Morgunblaðið - 03.09.2020, Síða 20

Morgunblaðið - 03.09.2020, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2020 Inga Ragna Skúladóttir fluttiásamt manni sínum, Guð-mundi Guðbjartssyni,Gumma, til Tenerife í maí 2019 þar sem þau opnuðu ölstofuna Bar-Inn. Inga segir að þau hafi ver- ið búin að fá nóg af því að geta aldrei leyft sér neitt á Íslandi, að eiga bara rétt fyrir húsnæði og mat. Eins hafi Gummi verið orðinn léleg- ur í skrokknum og leið mun betur í hitanum á Tene. En sorgin knúði dyra og varð Gummi bráðkvaddur 21. janúar sl. „Maðurinn minn var besti vinur minn og sálufélagi, einstakur ljúf- lingur. Hann var vert af guðs náð og það sögðu allir sem komu á Bar- Inn til hans. Hann var með sykur- sýki 1, en passaði sig ekki nógu vel að borða reglulega og huga að heilsunni svona almennt,“ segir Inga við Morgunblaðið. Hún segir Gumma hafa átt af- skaplega erfitt með að taka sér frí frá barnum og aldrei viljað hafa lokað. „Þetta endaði með því að blóðsykurinn fór allur í rugl og hann lenti inni á spítala í nóvember, var á gjörgæslu í fjóra daga og á al- mennri deild í sex daga. Þetta varð til þess að hann samþykkti að taka sér einn frídag í viku þannig að við fórum að hafa lokað á mánudög- um.“ Eftir þetta kom jólavertíðin og síðan handboltinn. Mánudaginn 20. janúar var lokað, Gummi eitthvað lasinn og tók daginn rólega. „Morg- uninn eftir var hann svo slappur að hann treysti sér ekki á Bar-Inn en tók ekki annað í mál en að ég færi þar sem það var landsleikur í hand- bolta og ekki mátti bregðast gest- unum sem ætluðu að horfa á leikinn hjá okkur,“ segir Inga. Vissi að eitthvað var að Hún ræddi við Gumma í síma skömmu fyrir leik og sagðist hann þá vera að hressast og kæmi bráð- um. Þegar hann lét svo ekki sjá sig hringdi Inga heim en hann svaraði ekki. „Þá vissi ég að eitthvað væri að, rauk í það að „henda“ öllum út af barnum, lokaði og hljóp heim, en við bjuggum í næsta húsi þar sem ég bý enn.“ Þegar Inga opnaði dyrnar sá hún Gumma liggjandi á gólfinu og hringdi strax í 112, sem því miður var of seint, því hann var látinn. Hún hefur ennþá ekki fengið opinbera dánarorsök, þrátt fyrir að hafa margbeðið um hana. Þar sem líkindin með þessu og fyrri veikind- unum eru mikil reiknar hún með að það sama hafi gerst aftur, þ.e. blóð- sykurinn rokið upp. „Í þetta sinn var ég bara ekki á staðnum til að hringja strax á sjúkrabíl. Vinir mínir, sem verið höfðu á barnum, höfðu samband til að leita frétta og voru komnir til mín á sama tíma og sjúkrabíllinn renndi í hlað. Þeir sátu svo hjá mér allt kvöldið og næstu daga og vikur skiptust þeir á um að hugsa um mig. Þarna kom í ljós hversu gott og þétt Íslendingasamfélagið hérna er. Ef eitthvað kemur upp á hjá fólki eru allir reiðubúnir að hjálpa.“ Þetta var barinn hans Gumma Þrátt fyrir áfallið og sorgina finnst Ingu yndislegt að búa á Tene. Hún er með vefjagigt og hit- inn gerir henni gott. Auk þess á hún góðan hóp vina sem hún um- gengst reglulega. Áfram sér hún um Bar-Inn, sem er lítill og huggu- legur staður með nokkur sjónvörp og hægt að sjá alla leiki sem hug- urinn girnist. Þar má líka sjá ís- lenska sjónvarpið og hægt að ganga að íslensku fréttunum vísum. „Ég verð að reyna að halda barn- um gangandi, þar sem þetta var jú barinn hans Gumma,“ bætir hún við. Áður en Covid skall á var barinn yfirleitt opnaður upp úr kl. 14 en núna opnar Inga kl. 16 og er með opið til kl. 22:30 á virkum dögum, lengur ef einhverir gestir eru á staðnum. Ef staðurinn er tómur á þessum tíma þá lokar hún. Inga hefur leyfi til að hafa gesti á ver- öndinni til miðnættis. Opið er fimm daga í viku eins og er, en lokað á sunnudögum og mánudögum. „Því miður hefur Covid gert mik- inn usla hér á eyjunni,“ segir Inga og heldur áfram: „Ferðamennskan hefur nánast lagst af og afleiðing- arnar eru skelfilegar. Fólk sem starfaði í ferðatengdum iðnaði á ekki í sig og á, margir fá litlar sem engar bætur og heilu fjölskyldurnar svelta. Eyjarnar munu ekki lifa það af ef túrisminn kemst ekki í gang fljótlega.“ Inga segist alltaf passa sig á að kaupa aukamat í „gjafakörfu“ þegar hún verslar, en við sumar verslanir er safnað mat handa bágstöddum sem er síðan er útdeilt til þurfandi. Inga segir að veiran og afleiðingar hennar hafi haft mikil áhrif, t.d. sé mánaðarinnkoma á barnum núna svipuð því sem áður kom inn á ein- um góðum degi. „Ég næ ekki inn fyrir rafmagnsreikningnum og hvað þá leigunni, en ég held að ég geti borgað með barnum út september. Ef túristarnir láta ekki sjá sig er þetta auðvitað búið spil, ef enginn kemur núna verður ekkert hér næsta ár til að heimsækja.“ Hótelin hrundu Inga segir að yfirvöld á Tenerife hafi tekið mjög vel á þessari veiru. Reglurnar séu strangar, viðurlög eru við brotum og lögreglan fylgist með. Auk þess sé það þannig að ef ferðamaður greinist með veiruna fær hann fría læknisaðstoð, uppi- hald í einangrun og greitt fyrir heimferð. Hið opinbera er með þessu að reyna að örva túrismann enda vita þeir að án ferðamanna lifa eyjarnar ekki af. Í útgöngubanninu voru engir ferðamenn, enda lokuðu yfirvöld eyjunum. „Hingað fékk enginn að koma nema heilbrigðisstarfsfólk í nokkrar vikur. Um leið og eyjan var opnuð 1. júlí byrjuðu Bretarnir að koma, nokkrir Íslendingar létu sjá sig hinn 11. júlí og við fylltumst bjart- sýni. Allt virtist vera á uppleið, en svo settu Bretar á sóttkví fyrir alla sem komu frá Spáni og settu eyj- arnar þar undir, þó að ástandið á eyjunum sé ekki neitt í líkingu við meginlandið. Bókanir á hótelin hrundu og þau hótel sem ætluðu að opna í ágúst hættu við.“ Hún segir þau þó heppin í Los Cristianos, þar sem flest er opið, en margir staðir séu lokaðir á amer- ísku ströndinni. „Ef einhver hyggur á Tenerife- ferð þá segi ég bara: Endilega komdu sem fyrst og því fyrr því betra. Það er nefnilega ekkert víst að það verði neitt um að vera á Tenerife næsta ár ef allir ætla að bíða þangað til með að koma.“ Morgunblaðið/Guðrún Vala Bareigandi Inga Ragna Skúladóttir tók alfarið við rekstri á ölstofunni Bar- Inn eftir að eiginmaður hennar lést skyndilega í lok janúar síðastliðins. Samfélag Íslendinga þétt og gott  Inga Ragna Skúladóttir missti manninn sinn í ársbyrjun, en saman opnuðu þau bar á síðasta ári Þórdís Ólafsdóttir flutti til Te-nerife í ágúst 2017 og hefurþví búið þar í þrjú ár. Húnvar hætt að vinna á Íslandi vegna líkamlegra kvilla og komin á örorku um svipað leyti. Þá langaði hana að prófa að flytja til spænsku eyjanna til þess að vita hvort hitinn færi ekki betur með hana, sem varð raunin. „Dóttir mín flutti hingað um svipað leyti, en maðurinn minn var enn að vinna á Íslandi og kom öðru hvoru hingað til Tenerife. Nú er hann kominn á aldur og ætlar sér að vera hér með okkur,“ segir Þórdís sem líkar vel að búa á Tene, segir alla mun glaðari og afslappaðri en á Ís- landi, þar sé ekkert stress og eyjan auk þes alveg frámunalega falleg. Hvergi sálu að sjá „Nú orðið geri ég ekki mikið annað en að vera þessi dæmigerða húsmóðir og líkar vel. Ég reyndi aðeins að sjá um íbúðir í fyrstu, en það gekk bara ekki upp vegna líkamlegs ástands. Ég reyni að hreyfa mig svolítið og ganga, og bara að njóta hitans og eyj- arinnar.“ Þórdís telur að venjulega hafi um 60-100 Íslendingar fasta búsetu á Te- nerife en núna séu þeir um 50. „Það hefur verið mjög rólegt síðan veiran skall á. Allt lokað nema mat- vörubúðir og apótek, öll eyjan eins og yfirgefin. Mjög mikið atvinnuleysi, því fólk hefur treyst á ferðamann- inn.“ Þórdís segist í fyrstu hafa koðnað niður þegar Covid hófst og fannst ástandið mjög ógnvænlegt. Þau voru í útgöngubanni og urðu að halda sig heima, einungis var leyfilegt að fara í næstu búð, apótek og til læknis ef þess þurfti. „Það var skrýtið að horfa út í garð og á borðin í kringum sund- laugina, ekki sálu að sjá.“ Þórdís segir þau heppin með íbúð, hafa góðar svalir, þar sem þau gátu setið úti. „Alltaf klukkan sjö á hverju kvöldi fór fólk út á svalir og klappaði saman fyrir hjúkrunarfólkinu, sem stóð sig frábærlega. Mér finnst stjórnvöldum hafa gengið mjög vel hér gagnvart kórónuveirunni. Þeir eru strangir og fólk virðir reglurnar sem eru settar,“ segir Þórdís við Morgunblaðið. Þórdís Ólafsdóttir Allir glaðari og af- slappaðri en heima  Þórdís Ólafsdóttir hefur búið á eyj- unni í þrjú ár  Hitinn fer betur í hana Íslendingar á Tenerife Tunguhálsi 10 Sími 415 4000 www.kemi.is kemi@kemi.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.