Morgunblaðið - 03.09.2020, Page 34

Morgunblaðið - 03.09.2020, Page 34
34 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2020 Aðalstræti 2 | s. 558 0000 • Humarsúpa • Nauta piparsteik • Súkkulaði Lion Bar Kynningarverð 5.990 kr. Fullt verð: 8.990 kr. Fordrykkur fylgir hverri 5.000 kr. ferðagjöf STEIKARVEISLA BAKSVIÐ Gunnar Valgeirsson gval@mbl.is Leikmenn í NBA-körfuknattleiks- deildinni hér í Bandaríkjunum mót- mæltu kynþáttamisrétti og lögreglu- ofbeldi í síðustu viku með því að neita að mæta í leiki í þrjá daga. Þetta gerðist með samþykki forseta deild- arinnar, Adam Silver, sem hefur mót- að nýja leið í að reka eina stærstu at- vinnuíþróttadeild í heiminum. Eftir að leikmenn Milwaukee Bucks ákváðu á miðvikudag, án sam- vinnu við önnur lið, að neita að fara til leikvallarins frá búningsherberginu í viðureignina við Orlando Magic í úr- slitakeppni deildarinnar (í „kúlunni“ svokölluðu í Disney World), tók Sil- ver sig til og frestaði restinnni af leikjunum þann dag. Eins og undir- ritaður greindi frá á íþróttasíðu Morgunblaðsins á laugardag leiddi þessi ákvörðun leikmanna Bucks til tilfinningaþrunginnar umræðu meðal allra leikmanna liðanna það kvöld, sem að lokum leiddi til frestunar leikja fimmtudagsins þannig að öll liðin í úrslitakeppninni frestuðu leik til að styðja mótmælin. Þessi mótmæli breiddust út til annarra íþróttadeilda samdægurs og var þónokkur samstaða við NBA- leikmennina meðal íþróttafólks í öðr- um íþróttum, s.s. MSL-knattspyrnu- deildinni, NHL-íshokkídeildinni, MLB-hafnaboltadeildinni og jafnvel meðal NFL-ruðningsliðanna, sem nú eru að æfa stíft fyrir byrjun keppnis- tímabilsins. Slík samstaða meðal at- vinnuíþróttafólks þegar kemur að kynþáttajafnrétti og lögregluofbeldi er einsdæmi í sögu íþrótta hér í Bandaríkjunum. Það hafa vissulega verið mótmæli meðal atvinnuíþróttafólks í gegnum söguna (s.s. Muhamed Ali, Billie Jean King, og Arthur Ashe) þegar kemur að mannréttindum, en aldrei áður jafn víðtæk og í síðustu viku. Lögregluofbeldi ekki óhjákvæmilegt Þessi mótmæli gerast á sama tíma og kosningabaráttan fyrir forseta- kosningarnar í nóvember er nú kom- in á fullt eftir flokksráðstefnur demó- krata og repúblikana, og sýnist sitt hverjum. Yfirhöfuð er töluverður stuðningur hér í landi við þessi mót- mæli leikmanna, þótt stuðningsfólk Trumps forseta sé á bandi hans í að gagnrýna þau. Mótmælin hafa beint athyglinni að mikilvægu og langvarandi vandamáli kynþáttahaturs og kynþáttamis- réttis, sem teygir sig inn í starf lög- gæslustofnana. Það sem gerst hefur á undanförnum áratug er að eftir að snjallsímar urðu útbreiddir var mun algengara að almenningur færi að taka upp myndbönd af ofbeldi lög- regluþjóna á almannafæri, sér- staklega ofbeldi gegn blökkufólki. Fólk í minnihlutahópum hefur ávallt verið meðvitað um þetta ólöglega of- beldi, en eftir að myndbönd af ofbeld- inu voru birt á netinu, urðu hvítir Bandaríkjamenn meira meðvitaðir um vandamálið. Af þeim sökum hefur lögregluofbeldi orðið að meiriháttar þjóðfélags- og stjórnmálalegu deilu- máli, því myndböndin koma nær vikulega. Það sem hefur raskað vitund margra hvítra í þessu máli er hversu fljótir sumir lögregluþjónar eru að beita skotvopnum sínum gegn blökkufólki í deilum á almannafæri og jafnvel á heimilum þess. Afbrota- fræðingar, sem skoðað hafa þúsundir þessara atvika árlega þar sem lög- regluþjónar virðast „skjóta fyrst og spyrja spurninga seinna“ telja vanda- málið tengjast bæði ráðningarferli og þjálfun lögregluþjóna í mismunandi umdæmum. Í mörgum lögreglu- umdæmum er ráðningarferlið vel framkvæmt og þjálfun góð. Þar er mjög óvenjulegt að lögregluþjónar lendi í þessum skotárásum, en í öðr- um umdæmum er vandamálið út- breitt. Vandinn er því ekki óhjá- kvæmilegur. Þessu virðist hægt að breyta. Ríkið bjó til stéttamismunun eftir kynþætti Raunveruleikinn fyrir blökkumenn í Bandaríkjunum er að þjóðfélags- stofnanir hafa eiginlega ekki virkað fyrir þá síðan þeir voru teknir í þrælahald fyrir 400 árum. Þeir hafa aldrei staðið jafnfætis öðrum þegn- um. Til að mynda var hvítum gefinn kostur á að eignast sitt eigið húsnæði eftir síðari heimsstyrjöld. Alríkisyf- irvöld í Washington settu milljarða dala í heimilislánasjóði eftir stríðið, en það gaf milljónum fjölskyldna og fyrrverandi hermönnum tækifæri til að borga 10-20% af kaupverðinu við kaupin og síðan þrjátíu ára lán fyrir restinni á lágum vöxtum. Þetta kerfi var lykillinn að því að byggja upp hvítar miðstéttir eftir styrjöldina. Blökkufólki var meinaður aðgang- ur að þessum lánum í gegnum lög- gjöfina sem alríkið samþykkti. Þetta kynþáttamisrétti ýtti undir kynþátta- mismunun varðandi húsnæðiseign. Þetta hefur leitt til þess að í dag á hvít meðalfjölskylda ellefu sinnum meiri auð en blökkumannafjölskylda. Þessi mismunun hefur leitt til mikilla deilna og á margt hvítt fólk erfitt með að skilja sögulega yfirburði hvítra þegar kemur að ýmsum lögum og réttindum. Afrek og auður ekki vörn fyrir blökkufólk í Bandaríkjunum Eitt vandamálið sem margir af NBA-leikmönnunum nefna er að oft skiptir litlu hvort blökkufólk er vel menntað eða hæfileikaríkt þegar kemur að samskiptum við lögregl- una. Slíkt er engin vörn gegn lög- regluofbeldi. Sögurnar af þessu eru margar meðal vel menntaðra blökku- manna. Illa þjálfaðir og rasískir lög- regluþjónar sjá oft ekki „borgara“ þegar þeir eru að stöðva eða tala við blökkufólk. Aðeins hörundslitinn – sem þá getur jafnvel endað í dauða. Svörtum foreldrum – hvar svo sem þeir búa eða hversu vel menntaðir þeir eru – finnst þeir neyddir til að eiga „samræðuna“ (the talk) svoköll- uðu við börnin sín á ákveðnum aldri. Samræðan gengur út á það að kenna börnum sínum hvernig þau eigi að haga sér ef þau eru í samskiptum við lögregluþjóna. Þetta á sérstaklega við þau börn sem eru að fá bílpróf, en ein mistök í þeim samskiptum geta kostað þau lífið. Doc Rivers, blökkumaður og einn af virtustu þjálfurunum í NBA, hafði orð á þessu nýlega eftir að leikmenn fóru í verkfall. „Það erum við sem er- um drepnir. Það erum við sem erum skotnir. Það er í raun ótrúlegt að við höfum ávallt elskað þjóðina okkar, en hún elskar okkur ekki til baka. Við viljum einfaldlega að lögreglan fari eftir stjórnarskránni og komi jafnt fram við alla þegna.“ Rivers hefur hér rétt fyrir sér. Sögulega hefur margt blökkufólk stutt lýðræðisöfl og lýðræðisleg gildi, en „kerfið“ hefur ekki ávallt brugðist vel við. Erfitt að koma breytingum á löggæslu í framkvæmd Lausnin á þjóðfélagsvandamálinu er flókin og margþætt, en ekki er hægt að deila lengur um það – það geta allir séð það með því að opna tölvuna sína. Það eru einfaldlega of margir illa þjálfaðir og rasískir lög- regluþjónar í BNA sem setja svartan blett á starfsstéttina. Því miður hefur skort kjark meðal annarra lög- regluþjóna og lögregluyfirvalda til að takast á við vandann. Lögregluþjónar eru vel launaðir hér í landi, sérstaklega þegar tillit er tekið til þess hversu lítillar mennt- unar og þjálfunar starfið krefst. Þeir geta farið á eftirlaun fimmtugir. Starfið virðist stundum laða að ein- staklinga með persónuleika sem ger- ir þá illa hæfa til að sinna starfinu samkvæmt lögum. Rannsóknir félagsfræðinga hafa sýnt þetta um áratuga skeið. Þær sýna að jafnvel enn í dag er kynþáttahatur mjög al- mennt meðal lögregluþjóna. Rasism- inn er orðinn hluti af menningu lög- reglunnar, og í dag er ekki lengur verjandi að taka ekki á þessum vanda. Það er því hlutverk lögreglu- yfirvalda að sjá slíka hluti í ráðning- arferlinu. Lögregluþjónarnir fá skot- vopn í starfinu. Í dag eru yfir 1.000 starfandi lög- regluþjónar í Flórída sem hafa ann- aðhvort verið reknir annars staðar eða ekki verið taldir hæfir í starfið í öðrum fylkjum. Af hverju er ekki hægt að búast við því sama hjá lög- regluþjónum – hvað varðar hegðun og að fara eftir settum lögum – rétt eins og aðrar atvinnustéttir sem þjóna almenningi í starfi sínu eins og kennarar, heilsugæslustarfsfólk og lögfræðingar þurfa að gera? Enn á ný er það löggjafar- og framkvæmdavaldið hjá alríkinu og fylkjunum sem bregst. Í gegnum ára- tugina hafa lögregluþjónar komið á stofn öflugum stéttarfélögum sem hafa mikil áhrif á stjórnvöld bæði í borgum og fylkjum. Í hvert skipti sem tillögur koma fram til breytingar á löggæslu til að koma í veg fyrir ósæmandi hegðun lögreglunnar, fara hagsmunasamtökin af stað og tillög- urnar drukkna í einhverjum bakher- bergjum stjórnarbygginga. Þetta er enn að gerast, jafnvel í hinni frjáls- lyndu Kaliforníu. Stjórnmálakerfið í BNA hefur ein- faldlega ekki kjark til að takast á við stéttarfélög lögregluþjóna. Stór hluti vill breytingar Ástæðan fyrir því að þessi vandi er svo mikið í sviðsljósinu, er að það eru alltaf að koma upp ný mál. Í hvert skipti sem vandamálið hverfur af for- síðum blaða, kemur upp annað dráp lögregluþjóns á óvopnuðum blökku- manni. Aðrir þjóðfélagsþegnar eru því farnir að sjá ofbeldið sem alvar- legt þjóðfélagsvandamál sem stjórn- völd verði að bregðast við. Stór hluti almennings telur, rétt eins og atvinnuíþróttamenn, að ekki sé verjandi að gera ekkert í málinu. Margir eru svartsýnir að hægt sé að gera nægilega róttækar breyt- ingar á löggæslu sem muni leiða til bata á þessu þjóðfélagsvandamáli. Þrátt fyrir að almenningur viti að lögreglustarfið er mikilvægt og geti verið mjög erfitt, sé einfaldlega ekki lengur hægt að líta framhjá því að of margir lögregluþjónar eru allt of fljótir að grípa til skotvopna gegn borgurunum án nægilegrar ástæðu. NBA-leikmenn hafa tekið að sér það hlutverk að ýta á ráðandi öfl og skapa þannig þrýsting á löggjafar- valdið á öllum sviðum stjórnsýslu. Mótmæla morðum og misrétti  Lögregluofbeldi í Bandaríkjunum komið í sviðsljósið eftir mótmæli NBA-leikmanna  Kynþátta- misrétti á sér djúpar rætur  Um 1.000 lögreglumenn í Flórída verið reknir í öðrum fylkjum AFP Samstaða NBA-leikmenn Los Angeles sendu skýr skilaboð fyrir leik sinn gegn LA Clippers á dögunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.