Morgunblaðið - 03.09.2020, Síða 35

Morgunblaðið - 03.09.2020, Síða 35
FRÉTTIR 35Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2020 Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Forseti Frakklands, Emmanuel Macron, hét í gær áframhaldandi stuðningi Frakka við Írak í baráttu þeirra gegn vígamönnum Ríkis ísl- ams og öðrum vopnuðum hópum sem herjað hafa á Íraka að undan- förnu. Lagði forsetinn sérstaklega áherslu á að ekki mætti sofna á vakt- inni þegar kemur að aðgerðum gegn öfgasinnuðum íslamistum. „Við erum til staðar og munum áfram styðja Írak,“ sagði Macron Frakklandsforseti á sameiginlegum blaðamannafundi hans og Barham Salih, forseta Íraks, í Bagdad. Íraksforseti sagði mikilvægt að land hans verði ekki að vígvelli fyrir ólíkra hópa og ríki í framtíðinni. Stöðugleiki og öryggi sé mikilvægt. „Írak er fullvalda ríki sem vill koma á góðum samskiptum við öll sín nágrannaríki,“ sagði hann. „Við viljum ekki að Írak verði að vígvelli fyrir átök annarra ríkja. Við viljum að aðrir taki þátt í að koma á stöð- ugleika innan landamæra Íraks og virði fullveldi þess.“ Stjórnuðu eitt sinn stóru svæði Bandamönnum hefur tekist að vinna sigur á stærstum hluta Ríkis íslams, sem eitt sinn stjórnaði um þriðjungi af landsvæði Íraks. Víga- menn samtakanna stunda þó enn dráp, sprengjuárásir og tilræði. „Stríðinu gegn Ríki íslams er ekki lokið. Við munum halda áfram að berjast við hlið ykkar,“ sagði Macron Frakklandsforseti. Styðja við bakið á Írökum  Vígasamtök Ríkis íslams eru enn ógnandi innan landamæra Íraks þrátt fyrir verri stöðu en áður  Stöðugleiki og góð samskipti við nágrannaríki mikilvægt AFP Írak Frakklandsforseti (t.v.) átti einnig fund með forsætisráðherra landsins. Þess var minnst í gær að 75 ár voru þá liðin frá því að Japanir undirrit- uðu uppgjafarskilmála banda- manna um borð í bandaríska orr- ustuskipinu USS Missouri. Var efnt til mikilla hátíðahalda af því tilefni í Bandaríkjunum, bæði um borð í orrustuskipinu, sem statt var í Havaí, og auk þess hélt Donald Trump Bandaríkjaforseti sérstaka heiðursathöfn í hafnarborginni Wilmington í Norður-Karólínuríki, þar sem orrustuskipið USS North Carolina liggur við höfnina, en Trump gerði borgina að sérstakri heiðursborg um minningu styrjald- arinnar. Þessi fyrrverandi hermað- ur úr seinna stríði var í Wilming- ton, en vegna kórónuveirunnar voru færri uppgjafahermenn úr stríðinu viðstaddir hátíðahöldin en gert var ráð fyrir. 75 ár liðin frá uppgjöf Japana í síðari heimsstyrjöld Afmælis stríðsloka minnst víða AFP Bandaríska alríkislögreglan (FBI) hefur nú til rannsóknar tilkynningu tveggja flug- manna til flugumferðar- stjórnar um ein- stakling á flugi með þotupakka við alþjóðaflug- völlinn í Los Angeles (LAX). Banda- rískir miðlar hafa birt samskipti flugmanna við flugumferðarstjórn. Flugmaður: „Flugturn, American 1997. Við vorum að mæta manni með þotupakka.“ Flugturn: „Am- erican 1997, uu … allt í lagi. Var hann þér á vinstri eða hægri hlið?“ Flugmaður: „Vinstri hlið, kannski 270 metrar og í sömu flughæð.“ Fáeinum sekúndum síðar kom til- kynning frá annarri farþegaþotu. Flugmaður: „Við sáum rétt í þessu manninn með þotupakkann fljúga fram hjá […] Svona gerist hvergi annars staðar en í Los Ang- eles.“ Bandaríska flugmálastjórnin (FAA) segir mál þetta alvarlegt. BANDARÍKIN Maður á þotupakka sást á flugi við LAX Þotupakki Atvik- ið er í rannsókn. Þýsk stjórnvöld segjast hafa óhrekjanlegar sannanir fyrir því að eitrað var fyrir rússneska stjórnarandstæð- ingnum Alexei Navalní í ágúst er hann var á ferð frá Síberíu til Moskvu. Navalní veiktist skyndi- lega um borð í farþegaþotu og hef- ur honum verið haldið sofandi síð- an. Samkvæmt niðurstöðum eiturefnaprófs á sýnum úr Navalní var honum byrlað eitur úr hópi No- vichock-taugaeiturs, en eitrið var þróað í Sovétríkjunum á 8. og 9. áratug síðustu aldar. Fundað verð- ur um niðurstöðuna og hugsanleg viðbrögð á vettvangi NATO og Evr- ópusambandsins. ÞÝSKALAND Sovéskt taugaeitur fannst í Navalní Alexei Navalní Nærri 200 liðsmönnum vígasveita talibana í Afganistan hefur verið sleppt úr haldi í von um að liðka fyrir friðarviðræðum milli talibana og stjórnvalda í Kabúl. Voru þeir hluti af 400 manna sveit sem rót- tækir íslamistar mynduðu. „Ríkisstjórn Afganistans hefur sleppt úr haldi öðrum hópi talib- ana,“ hefur fréttaveita Reuters eft- ir talsmanni forseta landsins. Var föngunum sleppt sl. mánudag og í fyrradag, þriðjudag. Á sama tíma var sex afgönskum sérsveitar- mönnum sleppt úr haldi talibana. Talibanar hafa sett fram kröfu um frekari fangaskipti og hafa lagt fram lista sem inniheldur alls 120 nöfn. Á listanum eru minnst sex einstaklingar sem vestræn ríki vilja alls ekki sjá lausa úr haldi. Þrátt fyrir andstöðu Vesturlanda segir heimildarmaður Reuters líklegt að talibönunum verði sleppt úr haldi og kunni það jafnvel að gerast strax í þessari viku. AFP Í steininum Afgönsk stjórnvöld vilja reyna að liðka fyrir friðarviðræðum. Afganar sleppa vígamönnum Útsalan hefst í dag! Bláu húsin v/Faxafen Sími 553 7355 • Vefverslun: selena.is • Undirföt • Samfellur • Náttföt • Náttkjólar • Sundbolir 50% afsláttur af öllum útsöluvörum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.