Morgunblaðið - 03.09.2020, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 03.09.2020, Blaðsíða 37
37 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2020 Málað Veggjakrot er víða til ama, sér í lagi ef skortir mjög á listfengi málarans. Hér er málað yfir slíkt krot á veggnum utan um Hegningarhúsið. Eggert Á hverju hausti fagnar kristið fólk um allan heim uppskeru sumarsins, þakkar fyr- ir gjafir jarðar og treystir og endurnýjar tengslin við móður jörð. „Season of Crea- tion“ stendur frá bænadegi sköpunar- innar 1. september til hátíðardags Frans frá Assísí, verndardýrlings vistfræð- innar, 4. október. Stef ársins er gleðiboðskapur á viðsjárverðum tím- um: Gleðjumst yfir jörðinni – í nýj- um takti og með nýrri von (Jubilee for Earth – New Rythms, New Hope). Allar kirkjudeildir kristninn- ar sameinast um Græna september og því standa 2,2 milljarðar kristins fólks að baki honum. Athafnir fylgi orðum Tímabil sköpunarverksins hef ég kosið að kalla „græna mánuðinn september“ hér á landi. Þá er sér- stök áhersla lögð á lífshætti sem samræmst geta um alla framtíð heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóð- anna í loftslags- og umhverfis- málum. Eins og áður eru prestar og söfn- uðir þjóðkirkjunnar hvattir til að vinna með umhverfi og náttúru á þessu tímabili í helgihaldi sínu og með því að gera starf sitt umhverf- isvænt og sjálfbært með ýmsu móti. Nú þegar hafa 12 söfnuðir og starfs- stöðvar á vegum kirkjunnar fengið viðurkenningu „á grænni leið“ vegna umhverfisstarfs og tveir söfnuðir öðlast rétt til að kallast „grænir söfnuðir“. Stefnt er að því að hið skemmtilega verk- efni Skírnarskógar fari af stað með athöfn í Skálholti 5. september næstkomandi. Þar er einnig ráðgert að hald- in verði ráðstefna Grænna safnaða 19. september og haldið áfram með helgun lands þar sem söfnuðir kolefnisjafna starfsemi sína með skógrækt. Kirkjuþing kemur saman 10. september og þar liggur fyrir að afgreiða framkvæmdaáætl- un um endurheimt votlendis, skóg- rækt og landgræðslu 2020-2030 á 30 kirkjujörðum. Útvarpsmessur um umhverfismál verða í Dómkirkjunni 13. september og í Glerárkirkju á Akureyri 20. september. Þar á milli er Dagur íslenskrar náttúru, mið- vikudaginn 16. september næstkom- andi. Þá er þess að geta að Græna stúdíóið svokallaða verður virkt í hverri viku þar sem efnt verður til umræðna um loftslagsmál og um- hverfisvernd. Fjölbreytt tengsl hafa myndast Sá háttur hefur verið hafður á hér að ljúka tímabili sköpunarverksins að afstöðnu Hringborði norðurslóða sem yfirleitt er efnt til í Hörpu um miðjan október ár hvert. Vegna CO- VID-19-faraldursins hefur Hring- borði norðurslóða verið frestað til næsta árs. Rétt er að minnast þess hér að þjóðkirkjan hefur á liðnum árum unnið með Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Hringborðsins, að því að bæta andlegri vídd við ár- legt þinghald þess (Arctic Circle Assembly) og meðal annars fengið ýmsa merka trúarleiðtoga hingað til lands í því skyni. Ávörp og samræð- ur fulltrúa Alkirkjuráðsins, græna patríarkans Bartholomews 1 og nor- rænna höfuðbiskupa á þessum vett- vangi, ásamt málstofum erlendra gesta og innlendra fræðimanna á vegum þjóðkirkjunnar, Stofnunar Sigurbjörns Einarssonar, Guðfræði- stofnunar og Guðfræðideildar Há- skóla Íslands, hafa vakið verðskuld- aða athygli og leitt til margvíslegra tengsla og nýrra verkefna. Bandalag um trú með jörðinni Í byrjun október í fyrra var haldin í Skálholti alþjóðleg ráðstefna með yfirskriftinni „Faith and Community Engagement for the SDGs“ (Trú og samfélag með sjálfbærnimark- miðum Sameinuðu þjóðanna). Í sam- ræmi við ákall þeirrar samkomu hafa fulltrúar frá þjóðkirkjunni, Fé- lagi Sameinuðu þjóðanna, Land- græðslunni og Skógræktinni, ásamt einstaklingum úr vísinda- og há- skólasamfélagi og ýmsum trú- félögum á Íslandi, unnið með full- trúa Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNEP) að því að ná fram samfylgd allra trúar- hreyfinga í baráttu fyrir heims- markmiðum Sameinuðu þjóðanna. UNEP hefur unnið markvisst að þessu verkefni frá því 2017. Skálholt II – heimsráðstefna Nú er komið að Skálholti II, því að í byrjun október verður þaðan stjórnað heimsráðstefnu um stofnun „Faith for Earth Coalition“ (Banda- lag um trú með jörðinni) innan vé- banda Umhverfisstofnunar Samein- uðu þjóðanna. Sjálf ráðstefnan ber yfirskriftina: „Faith for Nature – Multi-Faith Action“ (Fjöltrúarlegar aðgerðir með náttúrunni). Um er að ræða einstakt framtak sem sameina á helstu trúfélög um aðgerðir í þágu heimsmarkmiðanna og umhverfis- verndar almennt. Ennfremur verða gerð drög að ályktun fyrir næsta umhverfisþing Sameinuðu þjóðanna um hlutverk trúarinnar og gilda í baráttunni fyrir heimsmarkmiðin. Ráðstefnunni verður fylgt eftir með sérstökum ályktunarfundi í Reykjavík. Vonast er eftir heim- sóknum og þátttöku fulltrúa ólíkra trúarbragða hingað til lands en einnig skipuleggja alþjóðlegu sam- tökin „Religions for Peace“ (Trúar- brögð með friði), sem reka skrif- stofur í 90 löndum, vinnustofur í öllum heimshlutum sem tengjast munu ráðstefnunni í Skálholti á skjáfundum. Samtökin „National Religious Partnership for the Envi- ronment“ (Alríkissamstarf trúfélaga um umhverfismál) sjá um vinnustof- una í Bandaríkjum Norður- Ameríku. Til ráðstefnunnar er boðið um 500 trúarleiðtogum, starfsfólki samtaka með trúarlegan bakgrunn, fræði- mönnum og náttúruvísindafólki. Vegna COVID-19 og reglna um sóttkví og skimun við komu til landsins er nú líklegt að ráðstefnan verði að mestu leyti í stafrænu formi. Trúin í verki með náttúrunni Ríkisstjórnin hefur samþykkt að Ísland verði vettvangur ráðstefn- unnar og UNEP hefur gert hana að lið í formlegu undirbúningsferli að 5. umhverfisþingi Sameinuðu þjóðanna sem haldið verður í febrúar á næsta ári. Ríkisstjórnin, þjóðkirkjan og Landgræðslan hafa þegar styrkt verkefnið fjárhagslega. Umhverfis- ráðherra og ráðuneyti hans hafa fylgst vel með öllum undirbúningi. Ég tel þetta sýna vel að öll getum við lagt eitthvað af mörkum og jafn- vel haft áhrif á framvinduna á al- þjóðlegum vettvangi með þraut- seigju og ákveðni. Það voru ekki margir sem trúðu því að íslenskir aðilar ættu erindi inn í þessa um- ræðu en raunin hefur reynst önnur. Öflugt landgræðslufólk á Íslandi hefur í alþjóðlegu starfi sínu gert sér grein fyrir því hve nauðsynlegt það er að hafa samtök með trúarlegan bakgrunn með sér í baráttu gegn gróðureyðingu og eyðimerkur- myndun. Þar hefur það verið á sömu nótum og forystufólk Umhverfis- stofnunar Sameinuðu þjóðanna. Andleg gildi eru drifkraftur 80% heimsbúa að sögn þeirrar stofnunar, og þess vegna hafa leiðtogar trúar- hópa einstaka möguleika til þess að hafa áhrif á hegðun einstaklinga gagnvart umhverfi sínu. Þess vegna telur UNEP nauðsynlegt að hafa öll helstu samtök með trúarlegan bak- grunn á heimsvísu í verki með sér. Það hefur verið sérstaklega ánægju- legt og gefandi fyrir þjóðkirkjuna að ljá þessu verkefni lið eftir mætti. Grænn september og heimsráðstefnan Skálholt II Eftir Agnesi M. Sigurðardóttur » Landgræðslufólk á Íslandi hefur í alþjóðlegu starfi sínu gert sér grein fyrir því hve nauðsynlegt það er að hafa samtök með trúarlegan bakgrunn með sér í baráttu gegn gróðureyðingu og eyði- merkurmyndun. Agnes M. Sigurðardóttir Höfundur er biskup. Grein mín í Morgunblaðinu þann 29. ágúst sl virðist hafi valdið nokkru fjaðrafoki. Það er reyndar af hinu góða því markmiðið var að opna umræðuna. Það hefur hins vegar gætt mis- skilnings varðandi sumt, og því vil ég fara betur yfir nokkur atriði í þessari grein. Fyrst vil ég kynna til sög- unnar tvö mikilvæg hugtök sem eru e.t.v. ekki á allra vörum; case fatality rate (CFR) og infection fatality rate (IFR). CFR sýnir hversu margir sem hafa greinst deyja. IFR gefur hins vegar raunhæfari mynd, því það sýnir hversu margir sem sýkjast deyja. Ísland er í öfundsverðri stöðu (takk DeCode) því við höf- um mótefnamælt stærri hluta þjóðarinnar en flestir og vitum því nokkuð vel hversu margir hafa raunverulega sýkst. Við höf- um líka greinargóðar upplýs- ingar um Covid-tengd andlát. Það er sennilega einstakt á al- þjóðamælikvarða. Vegna þess er hægt að reikna út með nokkurri vissu raunverulega dánartíðni hérlendis (IFR), sem er eins og áður sagði 0,21% (95% vikmörk 0,1025-0,39305). CFR hérlendis er hins vegar 10/2107 (0,47%). Glæný rannsókn Decode sýnir reyndar Covid IFR upp á 0,3%, en 0,1% hjá yngri en 70 ára. WHO áætlaði 3,2% dánartíðni í mars, sem var klárlega ofmat. Til samanburðar er dánartíðni (IFR) inflúensu 0,1-0,2% og er það þrátt fyrir til- vist bóluefnis. Co- vid er meira smit- andi en inflúensa og með aðeins hærra IFR og því hættulegri sýking. Það sem skiptir mestu máli varð- andi raunverulega dánartíðni (IFR) er samsetning þýð- is m.t.t. aldurs og áhættuþátta. Covid er mjög alvarlegur sjúkdómur hjá eldra fólki og við- kvæmum hópum. T.d. sýnir ný- leg rannsókn þar sem tekin eru saman gögn frá mörgum löndum (m.a. Íslandi) að IFR fyrir 0-34 ára er 0,01% (1/10.000) og 35-44 ára 0,06% (1/1.666). Hins vegar er IFR fyrir aldurshópinn 75-84 ára 7,3% og fyrir 85 ára og eldri 27,1%. Þetta tekur ekki inn í myndina áhættuþætti. Þannig myndi hraustur ungur ein- staklingar hafa enn lægri dán- artíðni, en eldri einstaklingur með undirliggjandi sjúkdóma enn hærri dánartíðni. Það er hlutfallslega fleira yngra fólk að smitast í þessari bylgju og það skýrir sennilega að mestu að hún virðist vægari. Ný- leg rannsókn frá Oxford-háskóla byggð á gögnum Medical Rese- arch Council Biostatistics Unit á Englandi sýnir líka að IFR hefur farið lækkandi í sumar, en á tíma- bilinu júní til ágúst 2020 lækkaði IFR úr u.þ.b. 0,7% niður í 0,3% og virðist enn á niðurleið. Það er ekki ólíklegt að þetta sé a.m.k. að hluta vegna þess að nú séu hlut- fallslega fleiri ungir og hraustari einstaklingar að sýkjast. Þetta gefur tilefni til ákveð- innar bjartsýni og skýrir e.t.v. að hluta þá staðreynd að á meðan tíðni smita á heimsvísu hefur verið í línulegum vexti, hefur kúrfa dauðsfalla verið flöt. IFR er einn af þeim þáttum sem þarf að taka tillit til þegar teknar eru ákvarðanir um samfélagslegar aðgerðir út frá heildrænu sjón- armiði. Vissulega eru afleiddir kvillar Covid líka mikilvægir og þarf að rannsaka það betur. Það er hins vegar ekki heillavænlegt að keyra á hræðsluáróðri til lengdar því fólk á Íslandi er skynsamt og vel upplýst og ef gögn styðja ekki skilaboðin þá fjarar smám saman undan sam- stöðunni. Það er líka mikilvægt að stjórnmálamenn taki ákvarð- anir sínar byggðar á nýjustu og bestu upplýsingum. Það er áfram mjög mikilvægt að halda áfram aðgerðum innan- lands, þ.e.a.s. iðka smitvarnir, vernda viðkvæma hópa o.s.frv. Mér finnst raunar sums staðar að ekki hafi verið nægilega langt gengið, t.d. ættu þeir sem sinna aðhlynningu á hjúkrunarheim- ilum alltaf að vera með grímu í vinnunni. Það var ekki gert lengi vel en vonandi hefur það breyst. Hins vegar þykja mér aðgerðir á landmærum ekki í samræmi við þá stöðu sem við erum í nú og ut- an meðalhófs. Það gæti því miður verið of seint að breyta um stefnu þar því skaðinn er e.t.v. að mestu skeður, en þó skora ég á stjórnvöld að endurmeta þær ákvarðanir. Ég tek það skýrt fram að ég er ekki að tala fyrir því að opna landamærin upp á gátt, heldur að halda áfram með tvöfalda skimun í bili og taka upp heimkomusmitgát í stað sóttkví- ar. Loks vil ég að gefnu tilefni taka fram eftirfarandi. Ég er alls ekki fylgjandi því stefnuleysi sem hefur verið uppi í Bandaríkj- unum gagnvart Covid. Þvert á móti er það víti til varnaðar. Þó að lífið sé komið í nokkuð eðlilegt horf í mínu umhverfi og hjá vin- um og kollegum víðs vegar um Bandaríkin á það alls ekki við alls staðar og margir eiga um sárt að binda þar enda eru Bandaríkin stórt land með fólki sem býr við misjafnar aðstæður. Það er mikilvægt að litið sé heildrænt yfir sviðið og að opna umræðuna. Ég hef persónulega engra hagsmuna að gæta, nema það að ég vona að teknar séu ákvarðanir sem eru heillavæn- legar fyrir okkar frábæra land og þjóð. Við vitum að það er óraunhæft að við komum til með að búa í veirufríu landi og nei- kvæð umræða sem elur á ótta er ekki heillavænleg til langframa. Ég tel að nýjustu gögn bendi til að dánartíðni Covid hafi verið of- metin, en við erum nú að ganga í gegnum eitt mesta efnahagsáfall sögunnar og því afar mikilvægt að hlúa að innviðum, andlegri heilsu og lágmarka skaðann fyrir sem flesta. Hversu líklegt er að deyja af völdum Covid? Eftir Jón Ívar Einarsson »Dánartíðni af völdum Covid hefur verið ofmetin, þar sem fjöldi smita hefur ekki verið þekktur, hins vegar eru vissir hópar í mikilli hættu. Jón Ívar Einarsson Höfundur er prófessor við læknadeild Harvard-háskóla. jeinarsson@bwh.harvard.edu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.