Morgunblaðið - 03.09.2020, Page 46

Morgunblaðið - 03.09.2020, Page 46
46 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2020 ✝ Rafnar Arn-dal Sigurðs- son fæddist í Reykjavík 28. des- ember 1935 en ólst upp í Grinda- vík. Hann lést á Hrafnistu í Hafn- arfirði hinn 20. ágúst 2020. Hann var einkabarn foreldra sinna, Sigurðar Þorleifs- sonar skipstjóra, f. 2.2 1904, d. 2.11. 1971, og Fjólu Jóels- dóttur húsfreyju í Grindavík, f. 21.6. 1914, d. 18.10. 2004. Þau hjón sáu einnig um póst og síma í Grindavík um ára- bil. og Anney Fjóla, f. 14.5. 2005. Rafnar lauk sveinsprófi í rennismíði árið 1958. Hann fór síðar til náms í Vélskóla Íslands og lauk prófi úr raf- magnsdeild skólans árið 1965. Hann fór til sjós, á millilandaskipið Kötlu og síð- an á björgunarskipið Goðann. Eftir að hann kom í land kenndi hann við Vélskólann í nokkur ár. Þá stofnaði hann eigið fyrirtæki, G.T. búðina, sem hann rak til 1989. Eftir það vann hann sjálfstætt við bílaviðgerðir þar til hann gerðist sundlaugavörður á Álftanesi og þar lauk hann starfsævi sinni sjötugur að aldri. Rafnar var einn af stofn- endum Kiwanisklúbbsins Esju og var virkur félagi þar í 30 ár. Útför hans fór fram frá Ás- kirkju í kyrrþey að ósk hins látna. Árið 1958 kvæntist Rafnar Laufeyju Sigurð- ardóttur, f. 21.11. 1936. For- eldrar hennar voru Sigurður Snæland Gríms- son, f. 15.11. 1912, d. 4.4. 1980, og Gíslína Valdemarsdóttir, f. 4.5. 1916, d. 14.11. 1972. Fósturdóttir þeirra er Þorgerður Krist- jánsdóttir, f. 26.5. 1964. Eig- inmaður hennar er Þorgeir Axelsson, f. 18.2. 1961. Börn þeirra eru Elína Dís, f. 27.5. 1999, Axel Þór, f. 21.8. 2001, Elskulegur faðir minn er látinn. Ár alzheimersjúkdómsins falla nú í þokumistur og minningarnar streyma fram um manninn sem hann var og við þekktum. Við er- um mjög þakklát fyrir þá góðu umönnun sem honum var veittá Báruhrauni, Hrafnistu Hafnar- firði síðustu 18 mánuði. Faðir minn var mikill fjöl- skyldumaður og ég var svo heppin að fá að njóta umhyggju hans og elsku frá eins árs aldri. Hann var mín stoð og kenndi mér að takast á við lífsins ólgusjó. Hann leyfði stelpunni sinni oft að vera með í því sem hann tók sér fyrir hendur. Ég var því t.d. ekki gömul þegar ég var farin að munda bæði hamar og pensil. Við feðginin áttum margar skemmtilegar samveru- stundir og alltaf dáðist ég að hon- um; þegar hann keyrði rútu um landið með útlendinga fyrir afa minn, í hinum mörgu jeppa- og laxveiðiferðum, er við þeystumst um sundin blá á Puðaranum, sportbát sem hann átti - eða á ofsahraða um holt og hæðir í rall- bíl. Hann kenndi mér að róa og beita á Meðalfellsvatni þar sem við gleymdum okkur í kyrrðinni, bæði jafn kappsöm við veiðina. Við nutum þess að hlusta saman á tón- list og ekki voru stundirnar færri, jafnvel heilu laugardagarnir þar sem við horfðum saman á íþróttir í sjónvarpinu. Honum þótti gaman að koma mér á óvart með litlum gjöfum; skrauti í herbergið, plötu í safnið eða sælgæti í poka. Svona mætti lengi telja. Ég er einnig þakklát fyrir að börnin mín fengu að kynnast þessu ljúfmenni, þau fengu sín ævintýri með honum, t.d. að ferðast með honum á húsbílnum. Ómetanlegt hefur verið fyrir okk- ur öll að búa undir sama þaki í Garðabænum og tenging barnanna við afa sinn er mjög sterk. Stundirnar okkar saman voru jú margar, en sú síðasta var við sólarlag hinn 20. ágúst síðast- liðinn. Ég sat við hlið hans þegar hann kvaddi þennan heim. Tilfinn- ingarnar voru blendnar - ég vissi vel hvað hann þráði að losna úr viðjum þessa ömurlega sjúkdóms - en jafnframt helltist yfir mann söknuður og sorg. Efst í huga mér er samt óendanlegt þakklæti. Elsku pabbi minn, takk fyrir allt. Ég veit að þú munt áfram vaka yfir okkur, litlu fjölskyldunni þinni. Sólin hverfur í dimman sæ, er skipið fer sína hinstu ferð. Í húminu glitra hélandi fræ, þær stjörnur í hendi þér berð. Þú varst minn viti um stund, viska þín lýsti mér leið. Þakklát, með fætur á fastri grund, nú ljósi þínu fylgi um himnanna breið. Þín Þorgerður (Gerður). Elsku yndislegi afi okkar, það er sárt að sakna. Við eigum öll okkar frábæru minningar um þig og um skemmtilegar stundir með þér. Þú varst þekktur sem mikill bílaáhugamaður og rakst þitt eig- ið verkstæði. Síðustu árin hafðir þú gaman af að hugsa um og dytta að húsbílnum sem þið amma keyptuð. Við vorum svo heppin að fá að fara með þér og ömmu í ferðalög á þessum húsbíl - Hreiðr- inu. Húsbíllinn og heimilið ykkar var einmitt hreiður fyrir okkur börnin og við elskuðum að fá að vera með ykkur. Þú varst alltaf rosalega góður við okkur, þegar við krakkarnir fengum að gista hjá ykkur ömmu þá gafst þú okk- ur alltaf aur til að setja í baukinn. Uppáhaldsnammið þitt var súkku- laðirúsínur og þær munu alltaf minna okkur á þig. Þú varst svo gjafmildur og passaðir afabörnin þín eins og dýrmæta gimsteina. Ekki má gleyma því hversu mikill dýravinur þú varst, í gegnum líf þitt hefur þú átt þrjár labradortík- ur og elskað þær allar jafn mikið. Alveg sama hvernig veðrið var dreifstu þig alltaf út í göngutúr. Þú hafðir þína yndislegu nærveru, kossarnir þínir og knúsin voru ein- stök og munu lifa í minningum okkar að eilífu. Þín verður sárt saknað elsku afi. Takk fyrir allt, við elskum þig svo mikið. Elína Dís, Axel Þór og Anney Fjóla. Rafnar Arndal Sigurðsson Kæri blakfélagi og vinur. Það er sárt að sakna og það er sárt að kveðja góðan félaga. Það er ljóst að stórt skarð er höggvið í litla „hverfis“blak- hópinn okkar sem hefur hist tvisv- ar í viku yfir vetrarmánuðina og verið fastur punktur í tilveru okk- ar frá hausti fram til lokahófs á Öldungi síðustu ár og það má með sanni segja að þú litaðir æfingarn- ar með þínum einstaka húmor og glaðværð. Þú mættir samvisku- samlega á allar æfingar og hélst þínu striki jafnvel eftir að þú veiktist. Það sem helst einkenndi þig innan vallarins var að þú tókst þig ekki of alvarlega og við gátum endalaust hlegið saman að kjána- legum mistökum okkar og fífla- Frank Magnús Michelsen ✝ Frank MagnúsMichelsen fæddist 16. janúar 1978. Hann lést 20. ágúst 2020. Útför Franks fór fram 31. ágúst 2020. gangi. Þú varst líka dug- legur, sérstaklega fyrst um sinn, að taka „Einar félaga“ með þér á æfingar, öllum til mikillar kátínu. „Einar fé- lagi“ merkir að bolt- inn er tekinn með annarri hendi í stað tveggja eins og „lög“ gera ráð fyrir í blak- inu. Þú lést það nú ekki mikið stoppa þig og varst tryggur þín- um góða félaga. Að öllum öðrum kostum ólöst- uðum varstu að sjálfsögðu ein- staklega skemmtilegur djamm- félagi og hélst ávallt uppi fjörinu, enda aðalplötusnúður hópsins og græjaðir „playlistann“ með fullri alvöru. Skemmtilegast þótti þér að sleppa leiðinda tækniæfingum og bara spila blak með gleði, fjöri og tónlist. Þú lést þitt ekki eftir liggja og sast í stjórn blakdeildarinnar og sinntir því starfi af óeigingirni og metnaði. Það er ljóst að FRAMtíðin verður ekki söm án þín. Það verð- ur skrýtið að hefja blakárið á ný og sjá þig ekki á æfingu. Við erum endalaust heppin að hafa fengið að kynnast þér og við treystum því að hvar sem þú verður munir þú safna í lið og taka frá pláss fyr- ir okkur! Við sendum okkar innilegustu samúðarkveðjur til fjölskyldu þinnar, ættingja og vina. Hvíl í friði elsku Frank! F.h. blakfélaga í FRAM, Sigurður, Sverrir, Stefán, Rúnar, Freyja, Guðlaug og Jóna. Það er ekki auðvelt að setjast niður og skrifa minningargrein um ungan mann sem horfinn er burt úr þessu lífi langt fyrir aldur fram. Það er sama hversu mikið maður reynir að skilja tilganginn. Það er ekki nokkur leið. Frank mágur kom inn okkar líf þegar hann og Ösp systir kynntust í Versló fyrir um aldarfjórðungi, þá bara unglingar sjálf. Fjölskyldan stækkaði og um leið þeirra fallegu heimili. Drengirnir þeirra tveir bera foreldrum sínum gott vitni. Það er ekki auðvelt hlutskipti fyr- ir unga drengi að sjá á eftir föður sínum. En það er huggun harmi gegn að að baki þeim og Ösp er stór fjölskyldu- og vinahópur sem sýnt hefur síðustu daga að hann stend- ur þétt saman. Upp í hugann koma góðu stundirnar á þessum árum í sum- arhúsum fjölskyldunnar, fjöl- skylduboðum, útilegum og utan- landsferðum. Frank var sælkeri sem fannst fátt betra en góður bjór og blóðug steik. Reyndar fannst honum nánast alltaf steikin vera ofelduð. Hann kenndi okkur líka að gera alvöruhamborgara með lauk, beikoni og béarnaise- sósu. Pítsur á grilli með sultuðum rauðlauk og fleira góðgæti voru líka frá honum komnar. Frank var sérstaklega sparsamur og skyn- samur þegar kom að peningamál- um. Það vildi svo skemmtilega til að þegar þau Ösp og Frank byrj- uðu saman þá var dagsetningin örugglega úthugsuð því þau byrj- uðu saman á nýju kortatímabili og gátu því alltaf haldið veglega upp á sambandsafmælin sín. Oftast var leitað eftir tveir-fyrir-einn-til- boðum til að fara vel með pen- ingana enda fátækir námsmenn. Það var líka heppilegt að þau kynntust sama ár og í sama mán- uði og Ása og Gunni og þannig hafa þau vitað hvaða ár þau kynntust því auðvitað voru Ösp og Frank alveg með það á hreinu. Frank var líka með eindæmum bóngóður þegar klaufinn Ingi mágur hans var í vandræðum með tölvuna. Það var gott að geta end- urgoldið það með smá viðgerð á tjaldvagni eða fellihýsi því aldrei vildi hann taka neitt fyrir viðvikið. Þegar kom að tækni og nýjung- um var Frank líka alltaf fyrstur að kynna fyrir okkur nýjungar eins og Pinterest eða Spotify. Það er erfitt að kveðja góðan vin á besta aldri. En eins og áður er margsannað þá ræður enginn sínum næturstað. Frank barðist af æðruleysi til síðasta dags gegn þeim vágesti sem að lokum hafði sigur. Á sama tíma og það var sárs- aukafullt að horfa á líf þessa sterka manns fjara út hægt og ró- lega hefur verið aðdáunarvert að fylgjast með systur okkar og mág- konu í því erfiða hlutverki sem hún hefur verið í en hún annaðist hann af alúð og hefur staðið eins og klettur við hlið hans í þessum erfiðu veikindum. Það er okkur huggun í þeirri sorg að nú séu frændur okkar orðnir föðurlausir að þeir eiga al- veg einstaka móður. Bless á meðan, elsku vinur. Við sjáumst þegar okkar tími er kom- inn, þangað til munum við hjálp- ast að við að leiða drengina út í líf- ið. Elsku Ösp, Frank Gabríel og Almar Freyr, ykkar er missirinn mestur. Minningarnar um góðan eiginmann og föður eru ljósið í líf- inu. Þær verða ekki frá ykkur teknar. Ingólfur (Ingi) og Ásgerður (Ása), Arna og fjölskyldur. Elsku vinkona. Að setjast niður og skrifa minning- argrein um þig er ólýsanlega sárt og óréttlátt. Með sárum söknuði kveð ég þig elsku Reynheiður mín eftir hetjulega baráttu við þann ill- víga sjúkdóm sem krabbamein er. Mér þykir svo sárt að kveðja þig og er næstum því óbærilegt. Lífið getur verið svo ósanngjarnt og mun ég aldrei skilja hvernig ung kona í blóma lífsins sé tekin í burtu frá fjöl- skyldunni sinni. Ég er svo þakklát fyrir að hafa fengið þig inn í líf mitt fyrir rúmlega 13 árum. Ég er svo þakklát fyrir að eiga fullt af góðum minningum, bæði fyrir og eftir að börnin okkar komu. Þessar minningar eru dýrmætar, þær gleðja mig og fá mig til að hlæja. Ég mun alla tíð halda fast í þær. Ég mun halda uppi minningu þinni eins og þú baðst mig um. Ég man þegar þú bauðst okkur Heiðrúnu í næsturgist- ingu. Ég mætti glöð með páskaegg nr. 2 handa stelpun- um. Við ætluðum að horfa á mynd saman og hafa voða nota- legt. En planið breyttist eftir að sykurvíman fór að gera vart um sig og breyttist í mikið fjör. Þú varst sú fyrsta sem heim- sóttir mig eftir að við Heiðrún Erna fluttum norður á Akur- eyri. Ég var varla búin að koma mér fyrir. Hrafn Elís var ekki orðinn eins árs en þú gerðir þér þó lítið fyrir, settir börnin upp í bíl og brunaðir til okkar. Þetta var yndisleg stund og er Reynheiður Þóra Guðmundsdóttir ✝ ReynheiðurÞóra Guð- mundsdóttir fædd- ist 14. apríl 1985. Hún lést 22. ágúst 2020. Útförin fór fram 31. ágúst 2020. ég mjög þakklát fyrir það. Ég er svo þakk- lát fyrir hvað þú hafðir mikla trú á mér í eldhúsinu. Ég átti það til að fá snilldarhug- myndir, sá fyrir mér að þetta væri ekkert mál. Alltaf tókstu vel í það þrátt fyrir að það endaði yfirleitt í ruslinu. Ætli sörubaksturinn hafi ekki topp- að allt saman? Það hefur verið mér mjög erfitt að búa svona langt í burtu frá þér í gegnum veik- indin þín. Mér fannst ég ekki geta gert neitt, hef aldrei fund- ið fyrir eins miklum vanmætti. Þú varst lánsöm að eiga ynd- islega fjölskyldu sem stóð fast við hlið þér í gegnum þetta verkefni. Góða ferð elsku Reynheiður mín og ég á eftir að sakna þín svo mikið. Ég hef trú á því að við munum hittast aftur. Takk fyrir allt og sjáumst aftur síð- ar. Ljúfar voru stundir er áttum við saman. Þakka ber Drottni allt það gaman. Skiljast nú leiðir og farin ert þú. Við hittast munum aftur, það er mín trú. Hvíl þú í friði í ljósinu bjarta. Ég kveð þig að sinni af öllu mínu hjarta. (Maren Jakobsdóttir) Elsku besti Svanur Örn, Ha- frós Lilja, Hrafn Elís og fjöl- skylda. Hugur minn er hjá ykk- ur á þessum erfiðum tímum og sendi ég ykkur mínar innileg- ustu samúðarkveðjur. Birgitta Maggý Valsdóttir. Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, MARÍA JÓHANNSDÓTTIR, Suðurgötu 57, Siglufirði, lést á Sjúkrahúsi Akureyrar föstudaginn 21. ágúst. Útför fer fram frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn 5. september klukkan 13. Vegna samkomutakmarkana verður athöfnin aðeins fyrir boðsgesti, en útförinni streymt á facebook-síðunni „María Jóhannsdóttir útför“. Sigurður Þór Haraldsson Jóhann St. Sigurðsson Eyrún Björnsdóttir Ómar Freyr Sigurðsson Margrét Jónsdóttir Birkir Þór Sigurðsson Svava Ingimarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GEIR VIÐAR SVAVARSSON, Lautasmára 5, Kópavogi, lést á líknardeild Landspítalans laugardaginn 29. ágúst. Útför hans fer fram frá Digraneskirkju miðvikudaginn 9. september klukkan 13. Vegna fjöldatakmarkana verða einungis fjölskylda og nánir vinir viðstaddir athöfnina. Jóhanna Svavarsdóttir Hildigunnur Geirsdóttir Albert Guðbrandsson Viðar Rúnar Geirsson Gerður Ísberg Daníel Freyr Albertsson Guðný Björg Stefánsdóttir Brynja Dís Albertsdóttir Elvar Leó og Remí Þór

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.