Morgunblaðið - 03.09.2020, Blaðsíða 50
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2020
Claudia hefur lifað og hrærst í
heimi matargerðar frá unga aldri,
en fjölskylda hennar í Portúgal á
og rekur umfangsmikla sítr-
usræktun á stóru landsvæði. Það
var hins vegar ekki fyrr en í
kringum 16 ára aldur sem áhugi á
ostum og ostagerð kviknaði, þegar
Claudia byrjaði að vinna í ostabúð
í Portúgal. „Ég vann í ostabúðinni
í þrjú ár, og fékk mjög ítarlega
þjálfun. Þar lærði ég allt um fram-
leiðsluferli osta, um mismunandi
tegundir mjólkur og svo fram-
vegis. Ég heillaðist algjörlega af
þessu.“
Nítján ára gömul eignaðist
Claudia dóttur sína. Þegar hún var
tveggja ára skildi Claudia við
barnsföður sinn og flutti til Ís-
lands, en móðir hennar hafði þá
búið hér á landi í tæp fjögur ár. Í
kjölfarið fluttu bæði systir hennar
og amma til landsins.
Mjólk, hvað er það?
Claudia fékk fljótt starf við upp-
vask á veitingastað. Hún var ekki
lengi að vinna sig upp og innan árs
var hún farin að vinna í eldhúsinu.
Hún viðurkennir að þessi tími hafi
tekið á, enda einstæð móðir í nýju
landi og talaði ekki tungumálið.
„Dóttir mín fór strax í leikskóla
þegar við komum til Íslands. Hún
kom heim eftir fyrsta daginn og
bað um mjólk,“ rifjar Claudia upp.
„Ég skildi hana ekki. Mjólk, hvað
er það? Ég var lengi að átta mig á
hvað hún var að biðja um.“
Claudia hóf svo nám í matreiðslu
í Menntaskólanum í Kópavogi.
Námið fór allt fram á íslensku og
það var mikil áskorun. Hún stóð
sig þó með prýði og útskrifaðist
árið 2018. Claudia hefur verið dug-
leg að læra íslensku og hefur alls
tekið fimm íslenskunámskeið. Hún
skilur að eigin sögn nánast allt,
gerir sitt besta til að tala en
treystir sér ekki enn til að skrifa á
íslensku „Það sem mér finnst erf-
iðast er að vita hvort orðin eru
karlkyns eða kvenkyns. Segir mað-
ur falleg eða fallegur?“
Langflestir fara frá
borðinu með stórt bros
Eftir útskrift úr kokkanáminu
fékk Claudia starf sem yfirumsjón-
armaður Sælkeraborðs Hagkaups.
Þar unir hún sér vel og segir fátt
skemmtilegra en að ráðleggja við-
skiptavinum, hlusta á þá og finna
út hvaða ostar henti hverjum og
einum. Segist hún oft finna fyrir
því að fólk sé þakklátt fyrir þjón-
ustuna og fyrir að hitta loksins á
einhvern með almennilega þekk-
ingu á ostum. „Langflestir fara frá
borðinu með stórt bros, það er
ekkert sem gleður mig meira. Ég
er komin með nokkuð stóran hóp
af fastakúnnum, sem flestir koma
á fimmtudögum eða föstudögum.
Eftir að hafa afgreitt fólk í nokkur
skipti man ég eftir því og hvernig
osta það vill. Ég veit hversu langt
ég get farið, varðandi styrkleika til
dæmis.“
Íslendingar elska
geitaost og sterka osta
Spurð hvernig ost Íslendingar
vilja helst stendur ekki á svörum
hjá Claudiu. „Íslendingar elska
geitaost og sterka osta. Gamle Ole
og Vacherousse eru dæmi um osta
sem hafa verið hafa verið mjög
vinsælir. Kindaostur hefur einnig
verið að koma sterkur inn und-
anfarið. Kindaostur er í uppáhaldi
hjá mér en hann er mjög vinsæll í
Portúgal. Ég er mjög hrifin af teg-
und sem heitir Serra da Estrela
og er dálítið eins og smurostur.
Hann er búinn til úr mjólk úr
kindum sem lifa á stærsta fjallinu í
Portúgal. Það er eina kindakynið í
heiminum þar sem bæði karlkyns
og kvenkyns dýrin hafa stór horn,
en það er til að verja þær fyrir úlf-
unum sem búa líka í fjöllunum. Ég
er að vinna í að fá hann til okkar.“
Uppáhaldsostur Claudiu heitir
Veldenhuyzen Blue Label, marg-
verðlaunaður Gouda-ostur frá Hol-
landi. „Hann er fullkomin blanda
af Prima Donna og Old Amster-
dam. Saltur eins og Primadonna
og karmellaður eins og Old Amst-
erdam. Hann kom um jólin og
seldist strax upp, svo síðan þá hef
ég passað mig að panta nóg af
honum.“
Claudia segist heilluð af því
hveru fjölbreytilegir ostar geti
verið. „Þeir eru aldrei eins. Mér
finnst alltaf fyndið þegar fólk kem-
ur til mín og segir „Ég keypti
þennan ost en hann er ekki eins á
bragðið og um daginn.“ Það er af
því að hann er búinn að bíða í
nokkra daga. Mygluostar verða
sterkari með hverjum deginum,
það er ferli sem ekki er hægt að
stjórna. Brie-ostar verða mýkri
með tímanum.
En ostur er ekki það eina sem
selt er í Sælkeraborðinu, þar er
hægt að fá fjölmargar tegundir af
ýmiss konar áleggi sem skorið er
fyrir viðskiptavini á staðnum.
Claudia segir að ekki sé hægt að
líkja því saman að kaupa ferskt
álegg eða vakúmpakkað. „Það er
einfaldlega allt annað ferli að
skera parmaskinku, vakúmpakka
henni og selja í pökkum. Hún er
fljót að missa bragðið, verður
þurrari og öðruvísi á litinn. Þegar
hún er skorin á staðnum ertu að fá
allt bragðið og ferskleikann sem
annars á til að glatast.“ Claudia
ráðleggur einnig viðskiptavinum
varðandi víntegundir sem fara vel
með ákveðnum tegundum af osti
og kjöti.
Komin í draumastarfið
Claudia er full af hugmyndum
og hefur meðal annars unnið að
því að minnka matarsóun í versl-
unum Hagkaups. Hafði hún til
dæmis frumkvæðið að því að búa
til svokallað pastamix úr áleggs-
endum sem ekki var hægt að
skera í sneiðar og afgangsbitum
sem annars hefði verið hent.
Pastamixið er komið í sölu og hef-
ur vakið mikla ánægju meðal við-
skiptavina.
Þegar hún er spurð um framtíð-
aráætlanir sínar, hvar hún sjái sig
til dæmis eftir fimm ár, segist
Claudia vonast til að vera enn að
vinna hjá Hagkaup.
„Vinnutíminn hentar mér vel, ég
hef nægan tíma með dóttur minni.
Áður var ég að vinna um helgar og
sá hana mun minna. Hér er hugs-
að vel um fólk, og það besta er að
yfirmenn hlusta raunverulega á
starfsfólkið sitt og hugmyndir
þeirra. Þegar ég vann í eldhúsinu
snerist allt um hraða og að vinna
sem mest, en hér er hlustað á hug-
myndir og fundnar út leiðir til að
gera þær að veruleika.“
Íslendingar
elska geitaost
og sterka osta
Claudia Sofia Coelho Carvalho er frá Portúgal en
hefur búið á Íslandi síðastliðin níu ár. Hún er lærður
matreiðslumaður og hefur sérstaka ástríðu fyrir
góðum ostum. Sú ástríða blómstrar nú þar sem
Claudia hefur yfirumsjón með Sælkeraborði Hag-
kaups í Kringlunni þar sem hún veit fátt skemmti-
legra en að ráðleggja fólki um kaup á ostum.
Ljósmynd/Brynjólfur Jónsson
Vita hvað þeir vilja „Íslendingar elska geitaost og sterka osta. Gamle Ole og Vacherousse eru dæmi um osta sem
hafa verið mjög vinsælir. Kindaostur hefur einnig verið að koma sterkur inn undanfarið.“
Ljósmynd/Brynjólfur Jónsson
Seldist strax upp Uppáhaldsostur Claudiu heitir Veldenhuyzen Blue La-
bel, margverðlaunaður Gouda-ostur frá Hollandi. „Hann er fullkomin
blanda af Prima Donna og Old Amsterdam. Saltur eins og Primadonna og
karmellaður eins og Old Amsterdam. Hann kom um jólin og seldist strax
upp, svo síðan þá hef ég passað mig að panta helling.“
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
SANGSIN gæðavara frá Kóreu
BREMSU
VÖRUR
í flestar gerðir bíla
2012
2019