Morgunblaðið - 03.09.2020, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2020
Kaja er mikill frumkvöðull hvað varðar líf-
rænar vörur og mikil baráttukona fyrir því að
fólk hafi kost á því að neita lífrænna vara, bæði
með því að flytja inn lífrænar vörur og svo ekki
síst við að framleiða þær sjálf.
Tvisvar á ári býður Kaja svo upp á safa-
hreinsun sem stendur yfir í viku og fá þátttak-
endur daglegan skammt af vandlega sam-
settum söfum sem hugsaðir eru til að hreinsa
og næra líkamann eins vel og kostur er. Ein-
göngu er notað hágæða lífrænt hráefni.
Þeir sem hafa tekið þátt í safahreinsuninni
verða flestir tryggir aðdáendur og koma aftur
og aftur. „Fólk finnur mikinn mun,“ segir
Kaja. „Fyrstu tveir til þrír dagarnir eru erf-
iðir, sérstaklega þegar fólk er að fara í hreins-
un í fyrsta sinn, en á þriðja til fimmta degi
verður oft svokölluð uppljómun. Bólgur
minnka og jafnvel hverfa, skapið verður létt-
ara og svo verður bara öll líðan svo einstök. Ég
fer í safahreinsun tvisvar á ári; á vorin og svo
haustin og það heldur mér gangandi,“ segir
Kaja um safahreinsunina en slíkar hreinsanir
hafa notið mikilla vinsælda og hafa sannað
gildi sitt. „Í upphafi var ég ein að vesenast í
þessu en í gegnum árin hef ég fengið sam-
ferðafólk sem hefur hrifist af safahreinsuninni
og í dag er þetta orðið að námskeiði sem haldið
er tvisvar á ári. Safahreinsunin er ekki megr-
unarkúr heldur er horft á að hvíla líffærin og
gefa þeim tækifæri til að hreinsa út, fara í smá
naflaskoðun og núllstilla sig. Núllstilling auð-
veldar að ná tökum breyttum lífsstíl og að gera
drastískar breytingar á mataræði.“
Á fimmta degi verður uppljómun
Þú ert það sem þú borðar eru einkunnarorð Karenar Jónsdóttur eða Kaju eins og hún er alla jafna kölluð. Kaja á og rekur Kaja
Organic-matvælaframleiðsluna og heildsöluna, auk þess að vera með kaffihús, Café Kaju á Akranesi.
Morgunblaðið/Eggert
Nauðsynlegt Þeir sem prófa að taka
alvöru safahreinsun eru yfirleitt ólmir
í að endurtaka leikinn. Hægt er að
skrá sig á Facebook-síðu Matarbúrs
Kaju eða hringja á Kaffi Kaju. Hægt
er að skrá sig til 4. september.