Morgunblaðið - 03.09.2020, Síða 51

Morgunblaðið - 03.09.2020, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2020 Kaja er mikill frumkvöðull hvað varðar líf- rænar vörur og mikil baráttukona fyrir því að fólk hafi kost á því að neita lífrænna vara, bæði með því að flytja inn lífrænar vörur og svo ekki síst við að framleiða þær sjálf. Tvisvar á ári býður Kaja svo upp á safa- hreinsun sem stendur yfir í viku og fá þátttak- endur daglegan skammt af vandlega sam- settum söfum sem hugsaðir eru til að hreinsa og næra líkamann eins vel og kostur er. Ein- göngu er notað hágæða lífrænt hráefni. Þeir sem hafa tekið þátt í safahreinsuninni verða flestir tryggir aðdáendur og koma aftur og aftur. „Fólk finnur mikinn mun,“ segir Kaja. „Fyrstu tveir til þrír dagarnir eru erf- iðir, sérstaklega þegar fólk er að fara í hreins- un í fyrsta sinn, en á þriðja til fimmta degi verður oft svokölluð uppljómun. Bólgur minnka og jafnvel hverfa, skapið verður létt- ara og svo verður bara öll líðan svo einstök. Ég fer í safahreinsun tvisvar á ári; á vorin og svo haustin og það heldur mér gangandi,“ segir Kaja um safahreinsunina en slíkar hreinsanir hafa notið mikilla vinsælda og hafa sannað gildi sitt. „Í upphafi var ég ein að vesenast í þessu en í gegnum árin hef ég fengið sam- ferðafólk sem hefur hrifist af safahreinsuninni og í dag er þetta orðið að námskeiði sem haldið er tvisvar á ári. Safahreinsunin er ekki megr- unarkúr heldur er horft á að hvíla líffærin og gefa þeim tækifæri til að hreinsa út, fara í smá naflaskoðun og núllstilla sig. Núllstilling auð- veldar að ná tökum breyttum lífsstíl og að gera drastískar breytingar á mataræði.“ Á fimmta degi verður uppljómun Þú ert það sem þú borðar eru einkunnarorð Karenar Jónsdóttur eða Kaju eins og hún er alla jafna kölluð. Kaja á og rekur Kaja Organic-matvælaframleiðsluna og heildsöluna, auk þess að vera með kaffihús, Café Kaju á Akranesi. Morgunblaðið/Eggert Nauðsynlegt Þeir sem prófa að taka alvöru safahreinsun eru yfirleitt ólmir í að endurtaka leikinn. Hægt er að skrá sig á Facebook-síðu Matarbúrs Kaju eða hringja á Kaffi Kaju. Hægt er að skrá sig til 4. september.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.