Morgunblaðið - 03.09.2020, Qupperneq 57

Morgunblaðið - 03.09.2020, Qupperneq 57
ÍÞRÓTTIR 57 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2020 Danska knattspyrnukonan Pernille Harder, fyrrverandi sam- herji íslenska landsliðsfyrirliðans Söru Bjarkar Gunnarsdóttur og verðandi samherji Maríu Þóris- dóttur, sem leikur fyrir norska landsliðið en er ættuð frá Sel- fossi, varð í vikunni ein dýrasta knattspyrnukona heims. Chelsea frá Englandi keypti hana frá þýska liðinu Wolfsburg og telur BBC að Lundúnaliðið greiði um 250 þúsund pund eða rúmar 46 milljónir króna fyrir landsliðsfyrirliðann. Harder þykir ein sú besta í heimi og er á besta aldri, 27 ára gömul. Það er því ekkert óeðlilegt að við séum að ræða um ein stærstu kaup á knattspyrnukonu frá upphafi. En er upphæðin alveg eðlileg? Breska ríkisútvarpið benti nefnilega einnig á þá staðreynd að á öllu árinu 2019 hefðu verið greidd um 500 þúsund pund í heildina fyrir knattspyrnukonur sem fóru á milli liða. Á sama ári skiptu fótboltakarlar um lið fyrir litla 5,6 milljarða sterlings- punda. Franskt knattspyrnutímarit gerði úttekt á launum knatt- spyrnufólks fyrr á árinu. Þar kom fram að Argentínumaðurinn Lionel Messi er sá launahæsti í heimi, fær um 19,6 milljarða króna í árslaun. Bandaríska landsliðskonan Carli Llyod var efst á lista kvenna, hún þénaði 72 milljónir á síðasta ári. Launahæsti maðurinn þénar sem sagt 272 sinnum meira en launahæsta konan. Og á meðan Harder gæti verið dýrasta fót- boltakona heims fyrir 46 millj- ónir þá varð Neymar dýrastur karla sumarið 2017 þegar PSG keypti hann á 36 milljarða króna. Eflaust má telja upp einhverjar eðlilegar ástæður fyrir launamun kynjanna í fótbolta, en þarf hann að vera svona mikill? BAKVÖRÐUR Kristófer Kristjánsson kristoferk@mbl.is FRAKKLAND Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Knattspyrnukonan Berglind Björg Þorvaldsdóttir er óvænt á leið til franska úrvalsdeildarfélagsins Le Havre í Frakklandi. Berglind, sem er 28 ára gömul, skrifaði undir tveggja ára samning við franska félagið sem er nýliði í efstu deild Frakklands en félagið keypti íslenska framherjann af Breiðabliki í vikunni. Berglind hélt utan til Frakklands í morgun en hún hefur leikið með Breiðabliki, ÍBV og Fylki hér á landi, ásamt Verona á Ítalíu, PSV í Hollandi og AC Milan á Ítalíu á at- vinnumannaferli sínum. „Ég heyrði fyrst af áhuga Le Havre þegar ég kom heim frá Ítalíu í byrjun sumars,“ sagði Berglind í samtali við Morgunblaðið. „Planið var svo bara að klára tímabilið heima á Íslandi og taka svo stöðuna eftir það þar sem samningur minn átti að renna út eftir tímabilið. Hlutirnir hafa hins vegar gerst mjög hratt undanfarna daga og að lokum ákveða þeir að kaupa mig frá Breiðabliki. Fyrsti leikur liðsins er svo bara á laugardaginn gegn Izzy á útivelli en ég missi af þeim leik þar sem öll pappírsvinna er ekki gengin í gegn enn þá varðandi félaga- skiptin. Auðvitað hefði það verið best fyr- ir alla ef ég hefði náð smá undirbún- ingstímabili með liðinu en eftir að allt fór af stað þá tók þetta sirka tvo daga að klárast og ég er því bara á leiðinni í flug til Frakklands í fyrra- málið [í dag],“ sagði Berglind sem á að baki 190 leiki í efstu deild þar sem hún hefur skorað 137 mörk. Spennandi tímar fram undan Berglind er spennt fyrir því að reyna fyrir sér í frönsku úrvals- deildinni sem er af mörgum talin sú sterkasta í heimi. „Fyrst þegar að ég fer til Ítalíu þá fer ég sem lánsmaður frá Breiða- bliki enda samningsbundin Blik- unum. Það er ekki algengt að leik- menn séu keyptir í kvennaboltanum og ég fer svo aftur út sem láns- maður til PSV í Hollandi árið 2019 og AC Milan 2020. Núna er ég hins vegar leikmaður Le Havre og ég er fyrst og fremst gríðarlega spennt fyrir því að reyna mig í þessari deild sem ég tel vera þá bestu í Evrópu. Ég er full tilhlökkunar og þótt ég sé ekki búin að spila þarna þá veit ég að þetta er sterkari deild en sú ítalska, einfaldlega vegna þess að ítalska deildin er titluð sem áhuga- mannadeild á meðan sú franska er atvinnumannadeild. Maður myndi því ætla að standardinn sé mun meiri í Frakklandi, ég á ekki von á neinu öðru en að svo sé.“ Sjaldgæft tækifæri Berglind hefur leikið samfleytt með Breiðabliki frá 2016. Þá lék hún einnig með liðinu frá 2007 til 2010 og svo aftur frá 2013 til 2014 en liðið hefur spilað frábærlega í ár og er í öðru sæti deildarinnar með 27 stig, einu stigi minna en Valur, en Breiðablik á leik til góða á Val. „Það er virkilega erfitt að kveðja Breiðablik og þetta var auðvitað allt í gangi á meðan við vorum í sóttkví sem gerði þetta eflaust erfiðara ef eitthvað er. Allir hjá félaginu hafa hins vegar sýnt mér mikinn stuðn- ing og skilning líka. Það hefur hjálpað mér persónulega mikið að takast á við þær breytingar sem fram undan eru. Ég fer að kveðja Steina, þjálf- arateymið og auðvitað stelpurnar líka á æfingu í dag [í gær] og ég á von á því að það verði ansi erfitt. Ég get alveg með sanni sagt að allt þetta ferli hefur tekið á en þegar svona tækifæri gefst þá er erfitt að sleppa því. Ég er búin að vera mjög lengi í Breiðabliki og mér finnst líka kominn tími á að prófa eitthvað al- veg nýtt.“ Skref í rétta átt Landsliðsfyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir gekk til liðs við Frakklands- og Evrópumeistara Lyon í sumar og er Berglind spennt fyrir því að mæta Söru á knatt- spyrnuvellinum þann 5. desember í Le Havre. „Ég og Sara erum mjög góðar vinkonur og ég hef verið í miklu sambandi við hana undanfarna daga. Hún peppaði það alla leið að ég myndi fara til Frakklands sem er geggjað. Ég er virkilega spennt að spila á móti henni og get satt best að segja ekki beðið eftir því að mæta henni á vellinum. Ég vonast fyrst og fremst til þess að bæta mig sem leikmaður úti í Frakklandi í deild þar sem allir leik- ir verða mjög erfiðir. Ég hef ekki átt fast sæti í byrjunarliði íslenska landsliðsins á undanförnum árum og auðvitað er það eitt af mark- miðum mínum að vinna sér inn fast sæti í liðinu. Að fara til Frakklands er vonandi skref í rétta átt fyrir mig en að sama skapi eru alltaf frábærir leik- menn í landsliðshópnum, sem eru allir að standa sig vel.“ Frábærir Blikar Berglind er markahæsti leik- maður efstu deildar með 12 mörk í níu leikjum en tímabilið 2018 skor- aði hún 19 mörk í 18 leikjum. „Ég skoraði 16 mörk á síðustu leiktíð og ég var alveg farin að horfa til þess að ég væri á góðri leið með að bæta þann markafjölda í það minnsta. Það gerist alla vega ekki í ár en kannski, einn daginn, þegar maður snýr aftur þá kannski tekst manni að bæta sinn besta árangur. Breiðabliksliðið í ár er algjörlega frábært og margar af þeim stelpum sem komu fyrir tímabilið 2018 hafa allar sprungið út í ár og eru orðnar lykilmenn í liðinu. Margar af þeim vilja taka næsta skref og reyna fyrir sér í atvinnumennsku sem er frá- bært. Ég var að grínast í þeim í vikunni að ég myndi sjá þær allar aftur þeg- ar ég sný aftur en svo fattaði ég að þær verða örugglega allar farnar út í atvinnumennsku þegar ég kem aft- ur,“ bætti Berglind Björg við kampakát. Leikmannakaup hjá kvennaliðum óalgeng Morgunblaðið/Árni Sæberg Frakkland Berglind Björg Þorvaldsdóttir segir skilið við Breiðablik í bili að minnsta kosti.  Berglind Björg leikur í efstu deild Frakklands á komandi keppnistímabili Emil Hallfreðsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, verður áfram hjá Pa- dova á Ítalíu en hann hefur fram- lengt samning sinn við félagið. Þetta staðfesti miðjumaðurinn í við- tali við RÚV í gær. Emil, sem er 35 ára, var upp- runalega með samning við Padova í ítölsku C-deildinni út síðasta keppnistímabil eða til 30. ágúst og voru meðal annars vangaveltur um hvort hann myndi snúa aftur til Ís- lands og spila með FH á Íslands- mótinu. Hann tók þátt í æfingaleik með FH-ingum í byrjun sumars. Emil verður áfram á Ítalíu Morgunblaðið/Eggert Ítalía Emil Hallfreðsson hefur framlengt við Padova á Ítalíu. Þrír leikmenn franska meistaral- iðsins í knattspyrnu, Paris Saint Germain, eru sýktir af kórónuveir- unni. Leikmennirnir sem um ræðir eru Neymar, Angel Di Maria og Leandro Paredes en félagið greindi frá þessu í gær. Þeir fá nú viðeigandi meðhöndl- un en ljóst má vera að undirbún- ingur liðsins fyrir komandi keppn- istímabil mun raskast. Á næstu dögum munu aðrir leik- menn og starfsfólk í kringum liðið fara í skimun vegna veirunnar. Neymar með kórónuveiruna AFP Faraldur Knattspyrnustjarnan Neymar er með kórónuveiruna. Hollenski knatt- spyrnumaðurinn Donny van de Beek er orðinn leikmaður Man- chester United en hann gerir fimm ára samn- ing við enska fé- lagið. Hann kem- ur frá Ajax í heimalandinu fyrir 35 milljónir punda. Van de Beek er 23 ára gamall en hann skoraði átta mörk og lagði upp önnur fimm í 22 byrjunarliðs- leikjum í hollensku úrvalsdeildinni á tímabilinu sem var aflýst vegna kórónuveirufaraldursins. „Ég get varla byrjað að útskýra hversu ótrúlegt tækifæri þetta er, að ganga til liðs við félag með svo ríka sögu,“ er haft eftir Van de Beek í yfirlýsingu sem félagið sendi frá sér. „Margir af bestu miðju- mönnum heims spila hérna og ég get lært af þeim en sömuleiðis kom- ið með mína eigin styrkleika inn í liðið.“ Van de Beek sló í gegn með Ajax í Meistaradeildinni á síðustu leiktíð þegar liðið fór alla leið í undan- úrslit keppninnar og sló meðal ann- ars lið á borð við Real Madríd og Juventus út. Donny van de Beek Hollenskur leikmaður til United
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.