Morgunblaðið - 14.09.2020, Side 18
18 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. SEPTEMBER 2020
✝ Hallfríðurfæddist í
Reykjavík 12. júlí
1964. Hún lést á
líknardeild Land-
spítala þann 4. sept-
ember 2020. For-
eldrar hennar eru
Ólafur Tómasson, f.
1928, og Stefanía
María Pétursdóttir,
f. 1931. Systkini
Hallfríðar eru: 1)
Tómas Björn, f. 1955, giftur
Hólmfríði Aðalbjörgu Pálma-
dóttur, f. 1958, börn þeirra eru
Kristín María, f. 1983, gift Jóni
R. Jónssyni, f. 1983, barn þeirra
er Sóley, f. 2018, Ólafur Björn, f.
1991, og Ingibjörg Ásta, f. 1994.
2) María, f. 1960, maki hennar er
Jón Freyr Jóhannsson, f. 1962.
Börn Maríu eru Einar Búi Magn-
ússon, f. 1986, giftur Mel Hoyt, f.
1986, barn þeirra er Ari Kai, f.
2019, og Una Björg Magn-
úsdóttir, f. 1990, sambýlismaður
hennar er Logi Leó Gunnarsson,
f. 1990. 3) Kristín Anna, f. 1965,
gift Kristni Þorbergssyni, f.
1963. Börn þeirra eru Stefanía
María, f. 1992, Kári Þorbergur, f.
1997, og Ólafur Áki, f. 2002.
Eftirlifandi eiginmaður Hall-
fríðar er Ármann Helgason, f.
1964, börn þeirra eru Gunn-
hildur Halla, f. 1997, sambýlis-
maður hennar er Bjartur
Thorlacius, f. 1995, og Tryggvi
Pétur, f. 1999. Þau giftu sig
1990. Foreldrar Ármanns eru
minni hópum. Hún starfaði lengi
með KÍTÓN – Félagi kvenna í
tónlist og sat í fyrstu stjórn þess.
Hallfríður var höfundur og list-
rænn stjórnandi fræðsluverk-
efnisins um Maxímús Músíkús.
Bækurnar um Maxímús hafa
komið út á átta tungumálum.
Vel yfir hundrað tónleikar
byggðir á sögunum hafa verið
haldnir af sinfóníuhljómsveitum
víða um heim, m.a. í New York,
Washington, LA, Berlín, Stokk-
hólmi, Kuala Lumpur og Melbo-
urne. Árið 2002 var Hallfríði
veitt heiðursnafnbótin Associate
of the Royal Academy of Music í
London sem veitist þeim fyrr-
verandi nemendum RAM sem
notið hafa velgengni í starfi og
vorið 2003 hlaut hún titilinn
Bæjarlistamaður Garðabæjar.
Fyrir frumkvöðlastarf sitt í
þágu tónlistarfræðslu hlaut
Hallfríður riddarakross hinnar
íslensku fálkaorðu árið 2014 og
titilinn Eldhugi ársins frá Rót-
aryklúbbi Kópavogs vorið 2017.
Í apríl 2019 var Hallfríði veitt
heiðursviðurkenning Útflutn-
ingsverðlauna forseta Íslands
fyrir einstakt framlag til að
auka hróður Íslands á erlendri
grund og í júní á þessu ári var
henni veitt heiðursviðurkenning
frá Garðabæ fyrir mikilvægt
framlag til menningar og lista.
Útför hennar fer fram frá Ví-
dalínskirkju Garðabæ í dag, 14.
september 2020, kl. 15. Vegna
aðstæðna í þjóðfélaginu verður
einungis nánustu fjölskyldu og
vinum boðið í athöfnina en
henni verður streymt á https://
youtu.be/5OGBGJp2VaY/.
Virkan hlekk á streymi má nálg-
ast á https://www.mbl.is/
andlat/.
Helgi I. Gunn-
arsson, f. 1928, d.
1990, og Ingveldur
Einarsdóttir, f.
1930.
Hallfríður gekk í
Kársnesskóla í
Kópavogi og
Kvennaskólann í
Reykjavík. Hún
lauk stúdentsprófi
frá Mennta-
skólanum í Reykja-
vík. Hún lauk bæði einleik-
araprófi og blásarakennaraprófi
frá Tónlistarskólanum í Reykja-
vík og framhaldsprófum frá Ro-
yal Northern College of Music og
Royal Academy of Music. Auk
þess tók hún einkatíma í París.
Hallfríður var leiðandi flautu-
leikari Sinfóníuhljómsveitar Ís-
lands. Hún er stofnandi kamm-
erhópsins Camerarctica og
sinnti uppfræðslu ungs tónlist-
arfólks, bæði í flautuleik, m.a.
við Menntaskóla í tónlist, Tón-
listarskóla Garðabæjar og
Listaháskólann, og með þjálfun
tréblásaradeilda ýmissa
sinfóníuhljómsveita ungliða, m.a.
Ungsveitar Sinfóníuhljómsveitar
Íslands. Síðustu árin sinnti hún í
auknum mæli hljómsveitarstjórn
og stjórnaði tónleikum Sinfón-
íuhljómsveitar Íslands, Sinfón-
íuhljómsveitar áhugamanna,
Sinfóníuhljómsveitar unga fólks-
ins og bæði Sinfóníuhljómsveitar
Norðurlands og Austurlands,
auk þess að hafa stjórnað ýmsum
Haffí var stóra systir mín og ég
litla systir hennar, það voru bara
16 mánuðir á milli okkar svo við
vorum „næstum tvíburar“. Við
vorum yngstar í fjögurra systkina
hópi og vorum langt fram á full-
orðinsár alltaf kallaðar „litlu stelp-
urnar“ og ef önnur var nefnd á
nafn kom hitt nafnið oftast líka.
Við vorum nokkuð ólíkar en
alltaf góðar vinkonur. Þegar við
vorum litlar stelpur á æskuheimili
okkar og eitthvað bjátaði á hjá
annarri vorum við óaðskiljanlegar
og það hefur svo sannarlega líka
verið raunin undanfarin ár. Frá
því Haffí hóf sína glímu við meinið
höfum við, ásamt Maju stóru syst-
ur okkar, nýtt tímann okkar vel.
Við höfum spilað, hlegið, talað og
ferðast meira en áður og dvalið í
miklum kærleika. Við systurnar
þrjár urðum enn nánari en áður
og því er söknuðurinn enn sárari
yfir missi okkar. Þegar yfir lauk
var ekkert ósagt á milli okkar
þriggja þó við hefðum vissulega
viljað eiga meiri tíma saman.
Haffí hefur fengið ótal verðlaun
og viðurkenningar en það skil-
greindi hana ekki fyrir mér, hún
var þessi blíða en ákveðna kona
með margar skoðanir, og var
óspör á að fræða, leiðrétta og leið-
beina. Mikill umhverfissinni og
femínisti. Hennar vegna er ég
fróðari, tala betri íslensku, vanda
mig betur í samskiptum og í veik-
indum hennar lærði ég svo margt
um æðruleysi og sátt. Hún rækt-
aði gleði og hamingju, upptekin að
njóta hvers dags, það kom henni
að góðum notum. Hún valdi að
ganga bein í baki, óhrædd mót ör-
lögum sínum en gera samt allt
sem í hennar valdi stóð til að glíma
við þau. Hún nýtti vel þann tíma
sem henni var úthlutaður.
Uppáhaldsbarnabókin hennar
Haffí heitir „Sniðug stelpa“ og var
skrifuð árið 1940. Svona bók væri
ekki skrifuð í dag þar sem hús-
mæður dvöldu heima og sáu um
börn og bú og ekki gert ráð fyrir
að stúlkur gætu átt sér frama-
drauma um störf sem voru í hönd-
um karla, eins og skipstjórar,
bændur og læknar. Ég las þessa
bók um daginn og fann nákvæm-
lega málsgreinina sem olli því að
þessi bók varð hennar uppáhalds-
bók en þar segir frændi „Sniðugu
stelpunnar“: „Það er leitt að þú
skulir vera telpa, Milla mín.“ Milla
spurði undrandi: „Hvers vegna?“
„Jú ef þú værir strákur gætir þú
orðið duglegur sjómaður.“ Milla
var fljót að svara: „En það er al-
veg ófært frændi minn, því að ég
hef þegar ákveðið að ég ætla að
verða duglegur bóndi!“ – Svona
var Haffí, hún var „sniðug stelpa“
– hún lét ekkert stoppa sig í að
láta hugmyndir sínar og langanir
og drauma rætast, sóttist eftir því
og hvatti aðrar konur í kringum
sig til að verða „sniðugar stelpur“
líka.
Hjartans Haffí mín, ég vil
þakka þér fyrir allt og allt. Við
sem eftir sitjum komum til með að
hlúa að og elska börnin þín góðu,
Gunnhildi Höllu og Tryggva Pét-
ur, styrkja þau og styðja og halda
á lofti minningum um undurgóða
konu sem hafði gleðina að leiðar-
ljósi.
Hvíl í friði, kæra systir, ég elska
þig.
„Kyss, kyss og heils, heils.“
Kristín Anna.
Þegar ég sest niður og hugsa
hvernig ég minnist mágkonu
minnar, Haffíar, þá er víða hægt
að koma við. Það eru aðrir en ég
sem geta betur gert grein fyrir
hennar frábæra listaferli. Það sem
mér finnst hinsvegar standa upp
úr síðustu daga er að lesa pósta
hvaðanæva úr veröldinni og átta
sig á því hvað hún persónulega og
verk hennar hafa snert marga.
Hvað stundum stutt kynni fólks
við hana höfðu mikil áhrif á það.
Hún hafði einstakan hæfileika til
að tengjast fólki, sýna því áhuga
og hvetja áfram. Á dánarbeði
Haffíar sendi ég eftirfarandi
kveðju og fannst gott að hún
skyldi skila sér til hennar:
Kæra Haffí.
Á þessum vegamótum vil ég
þakka okkar góðu kynni og vin-
skap. Áhugi okkar á fjölmörgu
milli himins og jarðar hefur gert
að aldrei skorti okkur umræðuefni
ef sest var niður og spjallað. Sér-
staklega vil ég þakka fyrir alla
tónleikana sem þú bauðst mér á
og þá innsýn sem ég hef fengið
þannig í heim klassískrar tónlist-
ar, eitthvað sem ég annars hefði
líklega farið á mis við. Hafandi
sjálfur fengið krabbamein og svo
fylgst með þínum veikindum fær
mann til að hugsa og miðla til sam-
ferðamanna að tími okkar allra er
takmarkaður. Það er því mikil-
vægt að nýta hann vel til góðra
verka og það hefur þú gert.
Við erum heppin að fjölskyldan
er bæði stór og sterk, svo verður
áfram.
Þinn vinur
Kristinn (Kiddi).
Haffí var stórkostleg kona.
Hún hafði þann eiginleika að geta
nálgast einstaklinginn á hans for-
sendum, unga jafnt sem aldna.
Samband okkar í gegnum árin
þróaðist og fór Haffí úr því að vera
uppáhaldsfrænkan á Íslandi þeg-
ar ég var lítil stelpa og bjó í Ósló í
að við urðum nánar vinkonur þeg-
ar ég varð fullorðin. Eitt af fyrstu
orðunum sem ég lærði að segja
var „Haffafífí á Ísalili“. Síðustu ár-
in var mikið hlegið, spilað og notið
góðra stunda saman. Hún var
mjög spennt þegar ég sagði henni
frá því að ég ætlaði að feta í henn-
ar fótspor og fara í nám til Bret-
lands. Hún hjálpaði mér með
glöðu geði að semja bréfin sem
þurftu að fylgja með í skólaum-
sóknunum. Þegar ég var búin að
fá inngöngu í nokkra skóla í og í
kringum London þurfti ég að fara
að velja. Hún vildi ekkert segja
mér hvaða nám og skóla henni
fyndist að ég ætti að velja, en þeg-
ar ég var búin að festa val mitt á
skóla sem var í útjaðri London í
sveitaþorpi heyrðist í henni:
„YESS!! Þetta var það sem ég
vildi að þú myndir velja!“
Haffí var stóra systir mömmu.
Sterkari systrabönd en milli
þeirra og Maju hef ég ekki séð
annars staðar. Þess vegna langaði
mig alltaf að eignast systur og
verða alveg eins og þær. Ekki
fékk ég systur, en hinsvegar eign-
uðust systurnar þrjár eina dóttur
hver. Því fá sterku tengsl þeirra
systra að lifa áfram í okkur systra-
dætrunum.
Þegar við Haffí hittumst í síð-
asta skipti leysti hún mig út með
nokkrum heilræðum. Hún sagði
mér að fara varlega úti í Bret-
landi. Ég sagðist ætla að hugsa:
„Hvað myndi Haffí gera?“ Þá hló
hún, brosti og sagði: „Nei ekki
gera það, ég er allt of passasöm og
dræm við að spyrja spurninga.
Þannig að passaðu þig að passa
þig ekki of mikið og vertu dugleg
að spyrja spurninga!“
Hvíldu í friði, elsku Haffafífíin
mín, sjáumst síðar undir kirsu-
berjatrénu í blóma í sumarlandinu
í hristibuxum með frussvatn og
Pimms við hönd.
Stefanía María (Stefí).
Sem lítill strákur var fátt
skemmtilegra en að gleyma sér í
ævintýragarðinum hennar Haffí-
ar á Markarflötinni. Hvergi ann-
ars staðar komst ég upp með það
að klifra jafn hátt upp í tré og enda
daginn svo á því að liggja með
frændsystkinum mínum í hengi-
rúminu fyrir framan eldhúsglugg-
ann.
Einn af mínum uppáhaldsdög-
um með Haffí var fyrir akkúrat ári
þegar hún valdi mig og gaf mér
þann heiður að eiga dag með sér,
Gunnhildi, Bjarti og Tryggva í
bænum í tilefni af tvítugsafmæli
Tryggva frænda míns. Þetta var
með skemmtilegri haustdögum
sem ég hef upplifað. Við fórum í
jakkafataverslanir, borðuðum há-
degismat saman sem endaði svo í
afmælisveislu.
Baráttuvilji og þrautseigja er
það sem einkenndi frænku mína
Haffí. Það mun ég ávallt taka mér
til fyrirmyndar því hún hefur sýnt
hvað hægt er að ná langt með
þessa tvo kosti í farteskinu.
Takk fyrir samfylgdina, elsku
frænka.
Þinn frændi og vinur,
Kári Þ.
Ég hef aldrei kvatt ættingja
sem er jafn náinn mér og Haffí
móðursystir mín. Hún mun alltaf í
hjarta mínu vera þekkt sem „hin“
mamman mín, sú sem gat líka
huggað mig þegar eitthvað amaði
að og sú sem leyfði mér alltaf að
gista hjá sér þegar ég og Tryggvi
læddumst að henni með hvolpa-
augun og báðum um það. Hún
kenndi mér lexíur hér og þar í
gegnum tíðina eins og hvernig
ætti að borða fallega. Það var allt-
af gaman að gista á Markarflöt-
inni, þar var hægt að gista úti í
tjaldi hvenær sem var frá vori til
hausts og alls kyns ævintýri urðu
til með hjálp spennandi búninga-
kistu.
Þú ferðaðist um allan heiminn,
spilaðir víða og fékkst ótal verð-
laun sem ég vissi ekki einu sinni að
væru til og það var sannur heiður
að geta kallað þig frænku mína.
Ég veit ekki hvort ég hef sagt þér
þetta en þegar Lundaból las Max-
ímús fyrir okkur sagði ég hátt með
stolti: „Frænka mín skrifaði þessa
bók!“
Þú kenndir mér þessa bæn:
Vertu, Guð faðir, faðir minn,
í frelsarans Jesú nafni,
hönd þín leiði mig út og inn,
svo allri synd ég hafni.
(Hallgrímur Pétursson)
Takk fyrir allt.
Þinn frændi og vinur,
Ólafur Áki (Óli).
Elsku Haffí.
Það eru nokkrar manneskjur í
mínu lífi sem hafa verið mér sér-
staklega mikilvægar og þú ert þar
í hópi. Ég veit að það nær langt
aftur í tímann, þar sem ég afþakk-
aði víst að giftast vinkonu minni í
leikskólanum því ég ætlaði sko að
giftast henni Haffí frænku. Þú
sýndir mér svo mikla ást og um-
hyggju þegar ég var lítill, og það
lagði grunninn að ævilöngu sér-
stöku sambandi.
Þegar ég hitti konuna mína fyr-
ir 7 árum, leið ekki heill dagur fyrr
en hún hafði heyrt allt um þig. Það
skipti miklu máli fyrir mig að
segja frá fólkinu sem ég er stoltur
af og hef sem fyrirmyndir. Þær
voru fjölmargar stundirnar sem
ég sat á meðal áhorfenda og horfði
spenntur á þig á sviðinu rétt áður
en hljómsveitarstjórinn gekk á
svið, og velti fyrir mér hvort þú
sæir mig. Ég horfði varla á neinn
nema þig meðan á tónleikunum
stóð, til að missa ekki af einum
einasta tón úr flautunni þinni. Að
dást að þér á sviðinu og fá innsýn í
heiminn þinn með því að kíkja
stundum baksviðs mótaði mig
óskaplega mikið. Án þín held ég að
ég væri algjör menningaróviti í
dag.
Ég man eftir stundum saman
yfir góðum bjór, þar sem við
ræddum um sameiginlega reynslu
okkar af Bretlandi. Að fá þig í
heimsókn til mín þangað og sýna
þér hvað ég var búinn að uppgötva
þar var sérstaklega eftirminni-
legt, að fá að deila anglófílíunni
með þér. Mér finnst afskaplega
gott að hugsa til þess að London,
sem var einu sinni borgin þín, er
núna borgin mín, og ég vona að ég
muni eiga margar góðar stundir
hér með börnunum þínum og gera
þetta að borginni þeirra líka.
Þú varst alveg einstök og það
leikur enginn vafi á því að hann
Ari minn mun vita hvað Haffí
frænka stóð fyrir. Það er svo mik-
ilvægt að eiga margbreytilegar
fyrirmyndir, og þú munt alltaf
vera í hávegum höfð hjá okkur.
Sköpunargleðin, kímnin og þraut-
seigjan sem þarf til að ná árangri á
sínu sviði. En mikilvægast er
hversu hjartagóð, einlæg og
áhugasöm þú varst alltaf. Við
munum hvern dag reyna að vera
örlítið meira eins og þú, og geyma
þig þannig í hjartanu.
Takk fyrir hverja einustu
stund, hvert samtal, hvern hlátur,
hvert faðmlag í gegnum árin. Ég
elska þig innilega og mun sakna
þín ávallt.
Þinn
Einar Búi.
Nú er hún Haffí mín flogin á
brott, rétt eins og farfugl til fjar-
lægra landa, viss um að sólrík tíð
bíði handan hafs. Hinsta ferð
hennar var óumflýjanleg, þó allt of
fljótt, baráttan við illvígan sjúk-
dóm á enda.
Ég kynntist Haffí árið 1999 í
tónleikaferð með Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands þegar við vorum
settar saman í herbergi. Ég man
við hlógum að því að auðvitað vær-
um við, einu kasóléttu konurnar í
hljómsveitinni, látnar deila sama
herbergi. Og hvílík blessun sem
það var. Þarna upphófst einstök
áralöng vinátta sem fól í sér
trygglyndi, hlýju og stuðning, í
leik og starfi, gleði og sorg. Þessi
dýrmæta vinátta okkar spannar
nú 21 ár og eru drengirnir okkar,
Tryggvi og Sigurbergur, sem
fæddust með fárra daga millibili,
áþreifanlegur og fagur vitnisburð-
ur um þá vináttu sem aldrei bar
skugga á.
Líf okkar fléttaðist saman í
gegnum vináttu barnanna okkar,
gefandi samstarf í kennslu við
Tónlistarskólann í Reykjavík og
jafnframt ríkulega samvinnu í tón-
listinni, bæði við Sinfóníuhljóm-
sveitina og einnig í ýmsum ynd-
islegum samspilsverkefnum
okkar. Betri kollega var ekki hægt
að hugsa sér, svo áreynslulaust og
gefandi var það að spila saman og
hún hafði lag á að hrífa mann með
sér, sá fegurðina í hinu smáa og
einnig töfrana í hversdagslegum
hlutum.
Ég var svo lánsöm að vera við-
stödd stundina þegar Maxímús
Músíkús varð til í huga Haffíar.
Við höfðum nýlokið við að spila
saman Daphnis og Klóa á Sinfón-
íutónleikum þegar hún með sitt
skæra blik í augum sagðist hafa
fengið stórkostlega hugljómun
meðan á tónleikunum stóð. Fram í
hugann hefði sprottið mús sem
hún sæi fyrir sér í bók fyrir börn.
Þarna var þá Maxi litli kominn,
músin músíkalska sem átti eftir að
gleðja börn um allan heim. Gunn-
hildur dóttir Haffíar, eftirlæti
barnanna minna og fyrsti Maxinn,
átti síðan eftir að skóla Lilju mína
í Maxahlutverkið, sem hún hafði
yndi af að leika í mörg ár. Lilja átti
líka eftir að njóta dýrmætrar
handleiðslu Haffíar í flautunám-
inu og ljúft er að hugsa til tímans
sem við mæðgurnar áttum með
Haffí á flautunámskeiði Williams
Bennetts á Englandi á síðasta ári,
þar var hún umvafin vinum og
kollegum sem báru augsýnilega
mikla virðingu fyrir henni og mátu
mikils.
Á heimili Haffíar og Ármanns
hangir fallegt glerlistaverk með
upphafi ljóðs Hannesar Péturs-
sonar:
Sem dropi tindrandi
tæki sig út úr regni
hætti við að falla
héldist í loftinu kyrr -
Þessi orð hafa leitað á huga
minn undanfarna daga, en ekki
síður orðin sem á eftir koma:
þannig fer unaðssömum
augnablikum hins liðna.
Þau taka sig út úr
tímanum og ljóma
kyrrstæð, meðan hrynur
gegnum hjartað stund eftir stund.
Haffí kunni svo sannarlega að
njóta augnabliksins og börnin
þeirra Ármanns bera með sér að
alltaf var tími til að vera, hlusta og
njóta saman. Missir þeirra er mik-
ill en dýrmætar minningarnar lifa
og ljóma í hjörtum okkar allra. Ég
kveð vinkonu mína með djúpum
söknuði og þakklæti og bið góðan
Guð að styrkja þau Ármann,
Gunnhildi og Tryggva, foreldra
hennar og systkini í sorginni.
Takk fyrir allt, hjartakona.
Magnea Árnadóttir.
Við kveðjum með söknuði Hall-
fríði Ólafsdóttur, góða vinkonu til
fjölda ára. Leiðir okkar lágu sam-
an á námsárunum í Tónlistarskól-
anum í Reykjavík þar sem við
stunduðum nám og spiluðum sam-
an í hljómsveitum og kammertón-
list. Á þessum árum vörðum við
miklum tíma saman og ólum hvert
annað upp í tónlistinni eins og
Haffí orðaði það. Þetta var sam-
vinna sem við æ síðan höfum búið
að í samspili okkar og vináttu.
Haffí og Ármann héldu til Eng-
lands til framhaldsnáms í tónlist.
Þau voru fyrsta árið í Manchester
og fluttu sig svo til London þar
sem Haffí komst í eftirsóttan nem-
endahóp Williams Bennetts við
Royal Academy of Music. Haffí
blómstraði í náminu hjá Wibb og
varð framúrskarandi flautuleik-
ari. Tónn hennar var einstaklega
fagur, blæbrigðaríkur og tjáning-
in djúp, enda lagði hún metnað í
tjáningu á hverjum tóni. Flautu-
leikur hennar sem leiðandi flautu-
leikari Sinfóníuhljómsveitar Ís-
lands, einleikari eða í
kammertónlist var sannur og un-
un á að hlýða. Undanfarin ár lagði
Haffí sig fram við hljómsveitar-
stjórn í auknum mæli og naut þess
að miðla reynslu sinni og þekk-
ingu til annarra hljóðfæraleikara.
Hún hafði lag á að ná fram því
besta hjá hverjum þeim sem hún
stjórnaði með jákvæðni og gleði.
Haffí átti sér draum um frekari
verkefni sem hljómsveitarstjóri.
Henni var boðið að stjórna tón-
leikum þjóðarhljómsveitarinnar í
Úrúgvæ en gafst ekki tími til að
ljúka því verkefni.
Haffí var einstök, hún var leið-
togi og leiðbeinandi. Hún átti auð-
velt með að lesa líðan fólks og var
óspör á bros, hrós og hvatningu til
annarra. Þessi eiginleiki nýttist
henni einstaklega vel í kennslu og
hefur fjöldi úrvalsflautuleikara
numið hjá henni. Hún var mjög
hrifnæm og hreif okkur vini sína
með sér hvort sem um var að ræða
upplifun af tónlist, bókmenntum,
handverki, mat, náttúru eða bara
litlu blómi á leið okkar. Hún kunni
að njóta þess smáa og leyfa öðrum
að njóta með. Haffí var hug-
myndarík og óhrædd við að hrinda
hugmyndum sínum í framkvæmd.
Hún lagði metnað í að fræða fólk
og einkum var henni umhugað um
að kynna börnum heim tónlistar-
innar eins og sögurnar hennar um
Maxímús bera glöggt vitni um,
sögur sem hafa verið þýddar á
fjölda tungumála og fluttar á tón-
leikum víða um heim.
Það voru dýrmætar stundir
sem við áttum saman frá okkar
Hallfríður
Ólafsdóttir