Morgunblaðið - 14.09.2020, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 14.09.2020, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. SEPTEMBER 2020 Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is samlegt ka nýmalað, engin h lki. á y – 50 ára Knútur fædd- ist á Akranesi en býr í Friðheimum og er eig- andi og fram- kvæmdastjóri fyrir- tækisins. Hann er mikill hestamaður og hefur gaman af góð- um mat og að ferðast. Maki: Helena Hermundardóttir, f. 1970, eigandi og ræktunarstjóri Friðheima. Börn: Dóróthea, f. 1996, Karítas, f. 1998, Matthías Jens, f. 2005, og tví- burarnir Tómas Ingi og Arnaldur, f. 2008, öll með ættarnafnið Ármann. Foreldrar: Dóróthea Magnúsdóttir, 1950, fv. hárgreiðslumeistari, og Júlíus Jens Ármann, f. 1947, fv. lög- regluþjónn. Knútur Rafn Ármann Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það er ekki stórmannlegt að geta ekki beðist afsökunar á mistökum sínum. Láttu allar áhyggjur lönd og leið og mundu það að lofa ekki upp í ermina á þér. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú ert ánægð/ur með þig þessa dagana og mátt það vel því þú hefur unnið vel. Ef þú hefur efni á því að láta eitthvað eftir þér, skaltu gera það. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Notaðu daginn í verslun og við- skipti. Vertu viss um að þú sért til í að vera hreinskilinn og fyrirgefa smávægileg mis- tök sem bitna á þér. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Hversdagsleg stund getur breyst á augabragði í algjöra hátíð. Um leið og þú hefur sýn á framtíðina áttarðu þig á því sem gerist og sleppir því að kvarta. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Vertu ósmeykur við að binda þig til langs tíma við að leysa ákveðið vandamál. Hugsaðu dæmið upp á nýtt og þá lætur lausnin ekki á sér standa. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú ert á réttri leið en þarft þó að vera ákveðinn til að hlutirnir gangi hraðar fyrir sig. Skyldum þínum í vinnunni mun fjölga. 23. sept. - 22. okt.  Vog Hjónabönd og alvarleg sambönd hafa mátt ganga í gegnum ýmsar þolraunir að undanförnu. Gerðu upp þau mál sem á þig leita og þá mun þér hverfa allur ótti. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Það eru oft einföldustu hlut- irnir sem veita manni mesta gleði. Vertu umburðarlyndur og haltu þínu striki. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú ert uppfullur af nýjum hug- myndum og ættir að koma þeim á fram- færi hvar sem þú getur. Aðdáun þín á börnum og vinum er einlæg. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þér finnst það skylda þín að deila vitneskju þinni með öðrum. Aðrir þurfa ekki að vera á sama máli og þú en það truflar þig ekki. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þér er mikið niðri fyrir og þarft nauðsynlega að fá útrás fyrir tilfinningar þínar. Ekki lenda í valdabaráttu. 19. feb. - 20. mars Fiskar Nú er rétti tíminn til að víkka sjón- deildarhringinn og læra eitthvað nýtt og spennandi. Reyndu svo að áætla betur framhaldið. hjólaferðir að minnsta kosti annað hvert ár og ferðast þá með eig- inkonu eða þau saman með vinum. Fjölskylda Eiginkona Júlíusar er Guðrún Sigurðardóttir, f. 30.4. 1961, lyfja- hann síðan störf sem flotastjóri svefnbílaleigunnar Go Campers þar sem hann starfar í dag. Áhugamál Júlíusar eru hjólreiðar og þá sérstaklega að ferðast á hjóli með allt sitt hafurtask í hnakk- töskum. Hann reynir að komast í J úlíus er fæddur 13. sept- ember 1960 og uppalinn á Húsavík og naut þar þess frelsis sem börn í fámenninu áttu við að búa. Á sumrin þvældist hann ásamt félögum sínum út um fjörur, upp á fjöll og út á sjó, og ekki skrýtið að hann skuli vera svona tengdur náttúrunni og vilji helst hvergi annars staðar vera. „Að veiða á bryggjunni eða úti á Snásum, spila fótbolta eða hjóla út í sveit var ævintýri,“ segir Júlíus. Á veturna voru það skíðin, snjó- þotan eða snjóhúsagerð. „Að dvelja í sveitinni hjá Helgu systur í Krossdal var líka ævintýri. Í minningunni var þar alltaf sól, flugnasuð og fuglasöngur.“ Tólf ára gamall byrjaði hann í sumarvinnu hjá Mjólkursamlagi KÞ. Þetta var meðan mjólkin var enn þá flutt í brúsum og hans starf á morgnana var að tína brús- ana út úr mjólkurbílunum á færi- band sem flutti þá inn. Eftir há- degi aðstoðaði hann við pökkun á mjólk, osti og smjöri. Á sautjánda ári fór hann í fyrsta skipti til sjós og var eitt sumar á ísfisktogara. Júlíus lauk grunnskólanámi í Barnaskólanum á Húsavík og fór síðan í Menntaskólann við Hamra- hlíð og vann meðfram námi hjá Zinkstöðinni í Reykjavík þar sem hann var síðan verkstjóri í nokkur ár. Árið 1986 fór hann aftur til sjós og stundaði þá vinnu næstu 14 árin. Árið 1998 flutti hann með fjölskyldu sína í Skúlagarð í Kelduhverfi og fór að vinna í fisk- eldi. Hann og kona hans tóku svo við rekstri Skúlagarðs árið 2000 og ráku þar gistihús næstu sex ár- in. Árið 2005 settist Júlíus á skóla- bekk á Bifröst og lauk þaðan BS- prófi í viðskiptafræði árið 2008. Þá lá leiðin í Háskóla Reykjavíkur þar sem hann lauk meistaraprófi í fjármálum fyrirtækja árið 2010. Eftir það vann hann um tíma hjá Rannsóknaþjónustu HR og síðan hjá umboðsmanni skuldara næstu árin sem sérfræðingur í fjármálum og neysluviðmiðum. Árið 2015 hóf tæknir og lögfræðingur. Foreldrar hennar voru hjónin Sigurður Helgason, fv. sýslumaður, f. 27.8. 1931, d. 26.5. 1998 og Gyða Stef- ánsdóttir, fv. sérkennari, f. 5.9. 1932, d. 24.11. 2019. Þau bjuggu lengst af í Kópavogi. Andrés Júlíus Ólafsson viðskiptafræðingur - 60 ára Á toppnum Hér er Júlíus á toppi Hvannadalshnjúks árið 2011 og hafði aldrei verið í jafngóðu líkamlegu formi. Sól, flugnasuð og fuglasöngur Hjólaferð Hér eru Júlíus og Guðrún þar sem þau hjóluðu frá Búdapest í Ungverjalandi, upp með Dóná til Austurríkis og enduðu svo í Prag. Landmannalaugar Hress eftir að hafa gengið Löðmund við Dómadal. Til hamingju með daginn 50 ára Ásta Kristný ólst upp á höfuðborg- arsvæðinu og býr núna í Lindahverfi Kópavogs. Ásta Kristný er bókari og sér um bókhald fyrir Brauð og Co. Hún hef- ur áhuga á hreyfingu og innanhúss- hönnun. Maki: Kristinn Valur Wium, f. 1969, húsasmíðameistari og vinnur í fram- kvæmdadeild Olís. Börn: Arnrún, f. 1994, lyfjafræðingur og Brynja, f. 1997, nemur félagsráðgjöf við Háskóla Íslands. Foreldrar: Árni Þórhallsson prentari f. 1949 og Brynja Marteinsdóttir sjúkraliði, f. 1950. Þau búa í Reykjavík. Ásta Kristný Árnadóttir Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.