Morgunblaðið - 14.09.2020, Síða 32
SÆKTU APPIÐ
á heimasíðu Hreyfils:
hreyfill.is
eða í App Store og Google Play
Sæktu appið frítt
á AppStore
eða Google Play
Hreyfils
appið
Pantaðu
leigubíl
á einfaldan
og þægilegan
hátt
Með Hreyfils appinu er fljótlegt
og einfalt að panta leigubíl.
Þú pantar bíl, færð SMS skilaboð
þegar bíllinn er mættur á staðinn.
Þú getur fylgst með hvar bíllinn er
staddur hverju sinni.
Ef þú ferðast á vegum fyrirtækis
getur þú valið viðskiptareikning
og opnað aðgang.
Hreyfils-appið er ókeypis.
Sungið verður af
hjartans lyst á
Borgarbókasafn-
inu í Menningar-
húsi Árbæjar í
Hraunbæ 119 í
dag, mánudag,
kl. 17.00-17.45.
Anna Sigríður
Helgadóttir
söngkona leiðir
samsöng gesta
ásamt Aðalheiði
Þorsteinsdóttur
píanóleikara.
Sungin verða kunnugleg lög og textablöð verða til
taks á staðnum. Í tilkynningu frá skipuleggjendum
kemur fram að allir geti tekið þátt, ungir og gamlir,
og hver syngi með sínu nefi. Sóttvarnareglur verða
hafðar í heiðri. Samsöngurinn verður endurtekinn
mánudagana 12. október og 9. nóvember á sama
tíma.
Samsöngur á Borgarbókasafninu
MÁNUDAGUR 14. SEPTEMBER 258. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Valur og Breiðablik eru með enn meira forskot á næstu
lið í Pepsi Max-deild kvenna í fótbolta en áður eftir sig-
urleiki í gær. Blikar fóru til Akureyrar og léku þar lið
Þórs/KA grátt, 7:0, og Valskonur lögðu Stjörnuna að
velli í Garðabæ, 3:0. Nú styttist í að þessi langbestu lið
landsins mætist en viðureign þeirra, sem getur farið
langt með að ráða úrslitum á Íslandsmótinu, fer fram í
lok mánaðarins. »26
Enn meiri yfirburðir toppliðanna
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Verkfræðingurinn Ólafur J. Briem
hefur síðustu tvö ár verið óþreytandi
við að skipuleggja gönguferðir fyrir
sig og þá skólafélaga sína, sem út-
skrifuðust frá Menntaskólanum í
Reykjavík vorið 1973, og hvetja þá
og fjölskyldur þeirra til þess að
ástunda reglubundna líkamsrækt.
Fyrsta skipulagða gönguferð
haustsins verður síðdegis í dag, en
þá er mæting við Gróttu klukkan
17:30 og Neshringurinn síðan farinn.
Þótt Ólafur sé boðberi hreyfingar
og bættrar heilsu segir hann að
skipulagning reglulegu gönguferð-
anna, sem hófust 2018 fyrir árgang-
inn, hafi verið tilviljun.
Stúdentsafmæli árgangsins voru
gjarnan tengd við við útivist og
skipulagði Ólafur gönguferðir fyrir
hópinn í fjögur skipti af því tilefni.
Hann segir að þegar haldið hafi ver-
ið upp á 45 ára stúdentsafmælið hafi
verið ákveðið að sleppa fyrrnefndri
tengingu, en bekkjarráðið falið sér
að skipuleggja þess í stað mánaðar-
legar gönguferðir yfir veturinn. Í
síðustu gönguferðinni vorið 2019
hafi þátttakendur lýst yfir von-
brigðum með að ekki yrðu á dagskrá
gönguferðir fyrr en um haustið.
Þar sem sú karlaleikfimi, sem
Ólafur segist sækja frekar óreglu-
lega, fellur niður yfir sumarmán-
uðina, tók hann ákvörðun um að
ganga vikulega á Úlfarsfellið yfir
sumarið. „Ég taldi mér trú um að ég
skuldaði sjálfum mér það að ganga
upp á Úlfarsfell einu sinni í viku,“
útskýrir hann. „Það væri lágmark
útivistar fyrir mann á mínum aldri
og með mína hreyfigetu.“
Tillit tekið til allra
Í kjölfarið hafi hann sent póst á
skólafélagana og sagt að þeir sem
hefðu áhuga væri velkomið að ganga
með sér á Úlfarsfellið klukkan sex
næstkomandi þriðjudag. „Ég fékk
ansi góðar undirtektir og talsverður
hópur sá ástæðu til þess að ganga
með mér á Úlfarsfellið það sumar.
Síðan hefur myndast harður kjarni
áhugasamra göngumanna sem er
duglegri að mæta í slíkar þriðju-
dagsgöngur en ég.“
Þótt þægilegt sé fyrir marga að
ganga á Úlfarsfellið og það taki ekki
nema um klukkustund upp og niður
segir Ólafur að það sé ekki fyrir alla.
Hann hafi því skipulagt göngur með
tilliti til þess. „Ég sendi út tölvu-
pósta fyrir þessar mánaðarlegu
göngur til að minna á þær, er nokk-
urs konar pískur á þá sem hafa
áhuga og nota tækifærið til að
hvetja hina til að mæta, því við eig-
um öll að reyna að hámarka lífsgæði
okkar.“
Önnur ganga haustins verður
kringum Tjörnina og um Vatnsmýr-
ina fimmtudaginn 8. október og er
mæting við suðvesturhorn Ráðhúss-
ins klukkan 17:30. Miðvikudaginn
11. nóvember er mæting við Borg-
arspítala áður en gengið verður um
Fossvogsdalinn. Síðasta ganga
haustsins verður fimmtudaginn 10.
desember og þá verður ratleikur um
miðborgina eins og verið hefur í des-
ember undanfarin tvö ár.
Ólafur leggur áherslu á að líkams-
ræktin sé allra meina bót. „Það er
svo mikið tekið frá þér í lífsgæðum
hafir þú skerta hreyfigetu. Allir
ættu að gefa því gaum að varðveita
hana og þar með lífsgæðin. Við ætl-
um kannski alltaf að sinna þessum
málum seinna, en þetta „seinna“
kemur ef til vill ekki.“
Á Hengilssvæðinu Ólafur Briem fór með hóp fólks í göngu í Marardal í vor og myndaði félagana á leiðinni.
Boðberi bættrar heilsu
Ólafur J. Briem skipuleggur gönguferðir fyrir sig og
skólafélaga Varasamt að fresta líkamsrækt til morguns