Morgunblaðið - 28.09.2020, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 28.09.2020, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. SEPTEMBER 2020 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Skipulags- og samgönguráð Reykja- víkur hefur heimilað lóðarhafa Grensásvegar 1 að breyta fyrirhug- uðu atvinnuhúsnæði á jarðhæð í íbúðir með inngarði. Fasteignafélagið G1 ehf. sendi ósk um þessa breytingu til skipulags- ráðs í ágúst sl. Breytingin hefur ótvírætt gildi, segir í umsókninni. Erfitt sé að sjá möguleika á 2.650 fermetra atvinnueignum á jarðhæð- inni, þar eð aðkoma viðskiptavina verði eingöngu gangandi utan frá eða í gegnum bílageymslu. Ekki sé einu sinni gert ráð fyrir vöru- móttöku frá götum, enda aðkoma þröng og hættulegar fráreinar til hinna miklu umferðaræða Grensás- vegar og Suðurlandsbrautar. „Minni einingar, 80-160-240 fm max, gætu lifað,“ segir þar. Lóðarhafi myndi leggja í mikla áhættu með slíkri framkvæmd, nú þegar eru mörg auð atvinnurými við Grensásveg, sem þó hafa bílastæði beint fyrir utan. Fyrir íbúa efri hæð- ar sé þetta mjög jákvæð breyting. Garðurinn muni nú tilheyra íbúun- um en ekki vera í hættu á hávaða frá t.d. veitingastarfsemi á jarðhæð. Íbúðirnar yrðu í suðurhluta hússins en atvinnuhúsnæði yrði áfram í norðurhlutanum. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu fram svohljóðandi bókun við afgreiðslu málsins: „Hér er verið að bregðast við beiðni um meiri sveigj- anleika í þessu tiltekna verkefni, en ástæða er til að viðhafa sveigjanleika mun víðar. Auka þarf sveigjanleika í skipulagi Reykjavíkurborgar, ekki síst með notkunarheimildir jarð- hæða, en stífir skilmálar leiða til ójafnvægis á húsnæðismarkaði. Mikið framboð er á atvinnurými. Ekki síst á jarðhæðum. Þá er mikið af húsnæði í þróun og byggingu sem ekki hefur sveigjanlegar heimildir.“ Íbúðir verða alls 186 Eins og fram hefur komið í blaðinu hyggst G1 ehf. reisa miklar byggingar á lóðinni Grensásvegi 1. Þarna voru áður höfuðstöðvar Hita- veitu Reykjavíkur, en búið er að rífa þær. G1 ehf. hefur gert samning við verktakafyrirtækið Viðskiptavit ehf. um smíði 50 íbúða á lóðinni. Um er að ræða fyrsta áfanga af fjórum en alls munu 186 íbúðir og sjö hæða skrifstofubygging rísa á þessum stað. Eigandi Fasteignafélagsins G1 er Miðjan hf., sem er í eigu Jóns Þórs Hjaltasonar og Ragnhildar Guðjónsdóttur. Árið 2017 voru kynntar áætlanir um að byggja á lóðinni stærsta hótel landsins, með 300 herbergjum. Hætt var við þau áform árið 2019 og var uppgefin ástæða sú að bankarnir voru á þeim tíma búnir að fylla hjá sér lánakvóta til hótela. Íbúðir verði í stað atvinnurýmis  Lóðarhafi Grensásvegar 1 fær að breyta áformum  Mörg auð atvinnurými séu við Grensásveg Tölvuteikning/Archus-Ríma arkitektar Nýbyggingar Svona munu byggingarnar líta út sem reistar verða á lóðinni Grensásvegi 1. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Niðurrif Nýlega var ráðist í niðurrif fyrrverandi höfuðstöðva Hitaveitu Reykjavíkur á lóðinni. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Við núverandi aðstæður er skóla- starfið talsverð áskorun. Mér finnst þó nemendur, kennarar sem og ann- að starfsfólk hafa sýnt ótrúlega þrautseigju við að halda sjó,“ segir Jón Már Héðinsson, skólameistari Menntaskólans á Akureyri. Alls eru nú um 540 nemendur við skólann, þar af rúmlega 200 í 1. bekk. Þeir mæta daglega í skólann, þar sem vel er gætt að fjarlægðarreglu og sótt- vörnum. Nemendur í 2. og 3. bekk koma annan hvern dag í skóla- húsin og 2. bekk- ur reyndar ögn oftar. Skólahús- unum er skipt upp í hólf og svæði til að fyr- irbyggja smit. Sama er gert í heimavistarhúsi skólans. „Við reynum eftir megni að halda vel utan um nemendur, svo þeir hverfi ekki frá námi, sem óneit- anlega er hætta á þegar skólahald er ekki með eðlilegu móti. Sérstaklega er hætta á slíku hjá nýnemum enda gætum við sérstaklega að þeim hópi með öflugu starfi stoðhóps þar sem eru námsráðgjafar, sálfræðingur og fleiri. Þetta hefur líka skilað því að fáir hafa horfið frá námi á haust- önninni,“ segir Jón Már, sem kveðst bjartsýnn á að skólastarf komist aft- ur í eðlilegt horf. Aðgerðir heilbrigð- isyfirvalda séu markvissar og þrátt fyrir bakslag síðustu vikur sé von til þess að takmörkunum í skólastarfi verði aflétt á næstunni. Ef ekki um komandi mánaðamót, þá hin næstu. „Í MA er hefð fyrir öflugu fé- lagslífi en það er ekki svipur hjá sjón og þá vantar mikið. Það er hefð fyrir fjölmennum kvöldvökum, árshátíð, tónleikum og leiksýn- ingum, þessi hluti skólastarfsins er nemendum mjög mikilvægur og í fé- lagslífinu fá þau verklega þjálfun í að lifa í lýðræðislegu samfélagi,“ segir Jón Már Héðinsson skóla- meistari. Skólastarfið áskorun og haldið utan um nemendur  Þrautseigja við að halda sjó  Fáir hafa horfið frá námi  Öflugar smitvarnir í húsum  Menntaskólinn á Akureyri Morgunblaðið/Sigurður Bogi MA Nemendur við skólann eru nú um 540, þar af rösklega 200 í 1. bekknum. Jón Már Héðinsson Sími 555 2992 og 698 7999 • Við hárlosi • Mýkir liðina • Betri næringar- upptaka Náttúruolía sem hundar elska Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta. Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við mælum með Dog Nikita hundaolíu. Páll Ingi Haraldsson EldurÍs hundar Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda • Gott við exemi • Betri og sterkari fætur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.