Morgunblaðið - 28.09.2020, Page 21

Morgunblaðið - 28.09.2020, Page 21
Benedikt, börnum þeirra og fjöl- skyldum innilega samúð. Kristín Sigfúsdóttir. Nú hefur hún kvatt okkar jarð- nesku tilvist, elskuleg Guðbjörg frænka. Alltaf ljúf og yndisleg með sitt hlýja og bjarta bros. 6 ára var ég sendur á Akranes til Guðbjargar, þar sem móðir mín gekk með yngri bróður minn undir belti og hafði fengið snert af meðgöngueitrun. Að sjálfsögðu hlupu Guðbjörg og Benedikt und- ir bagga og tóku erfiðan drenginn í sumarvistun. Mér leist ekki á þetta í byrjun, en var fljótur að átta mig á að hjá frænku væri ég í góðum höndum. Hjá þeim var ég sumarið 1967 og á ég ótal fallegar og skemmtilegar minningar það- an. Við Dóri vorum alla daga úti að leika, ýmist á íþróttasvæðinu eða niðri á Langasandi. Þegar inn var komið tók Guðbjörg frænka á móti okkur með sínu ljúfa viðmóti og oftast fylgdu veitingar handa sísvöngum grislingunum. Allt sem Guðbjörg gerði var af- greitt með ákveðni, hægð og ör- yggi. Er ég viss um að hún hefur verið einstaklega góð og örugg í sínu starfi sem ljósmóðir. Það var önnur Guðbjörg á Akranesi á þessum tíma. Guð- björg Árnadóttir, sem þá var mat- ráðskona á sjúkrahúsinu. Guð- björg Árnadóttir var af flestum í fjölskyldunni bara kölluð frænka. Þegar hún fór til feðranna var það Guðbjörg Jóhannesdóttir sem tók við sem „frænka“. Voru þær nöfn- ur báðar hlýjar manneskjur og góðar heim að sækja. En eins og flestir vita merkir nafnið Guð- björg björgun, hjálp guðs. Hef ég alla tíð tengt Guðbjargarnafnið við góðar og hlýjar manneskjur. Guðbjörg frænka er komin til systkina sinna sem örugglega taka henni fagnandi. Votta ég öll- um afkomendum innilega samúð mína. Finnur Kristinsson. MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. SEPTEMBER 2020 því að aldrei dró hún verk til næsta dags hvorki innanstokks né utan. Þó að nokkurt bóka- safn væri á heimilinu gafst ekki mikill tími til bóklesturs á sumr- in, helsta lesefnið var þá blöðin sem komu á viku eða tíu daga fresti. Sella hafði eftir atvikum skoðanir á ýmsum efnum og gerði stundum óvæntar athuga- semdir sem báru vitni um skarpa hugsun, en hún var hins vegar enginn kappsmaður í mál- flutningi fyrir sjónarmiðum sín- um. Eftir nám á Eiðum stundaði Sella barnakennslu ein þrjú ár í nokkrum hreppum á Héraði og átti til að grípa í kennslu á Skjöldólfsstöðum þegar svo bar undir. Á síðustu búskaparárum þeirra Skjaldar á Jökuldal réðst Sella í sjúkraliðanám, þá komin hátt á fimmtugsaldur, og lauk prófi í þeirri grein á Borgarspít- alanum 1973. Á árunum 1974-75 var hún stundakennari við Skjöldólfsstaðaskóla þegar Skjöldur hafði fengið leyfi og síðan lausn frá skólastjórastarf- inu, en hann hóf þá háskólanám í íslensku og sagnfræði. Upp úr því fluttu þau hjón til Reykja- víkur og þar stundaði Sella sjúkraliðastarfið til starfsloka. Móðir mín og Sella voru ná- frænkur og nöfnur og með þeim þróaðist vinátta með frændsemi þó að aldursmunur væri mikill. Þær skiptust á heimsóknum, fóru saman í ferðalög og náðu að fara utanlandsferð saman. Þetta nána samneyti var báðum mikilvægt, ekki síst móður minni þegar árin færðust yfir og hún átti óhægra með að fara í heimsóknir, en Sella var alltaf jafn dugleg að vitja hennar. Fyrir þessa tryggð og vináttu viljum við systkinin þakka að lokum, og jafnframt sendum við börnum Sellu og fjölskyldum þeirra innilegar samúðarkveðj- ur. Gunnlaugur Ingólfsson. ✝ Baldur fæddistí Reykjavík 9. júlí 1924. Hann lést á Hrafnistu í Reykjavík 1. sept- ember 2020. Foreldrar hans voru Ingibjörg Gísladóttir, f. 1882, d. 1965 og Guð- mundur Magn- ússon, f. 1883, d. 1932. Baldur var yngstur tíu systk- ina sem öll eru látin, þau hétu Magnús, Óskar, Vilhjálmur, Björn, Margrét, Gísli, Guðbjörg, Haukur og Guðmundur. Eiginkona Baldurs var Vigdís Guðmundsdóttir, f. 17. október 1928, d. 6. júní 2020. Börn Baldurs og Vigdísar eru: 1) Sigríður Ingibjörg, f. 1955, maki Karl S. Sigurðsson, f. 1955. Synir þeirra eru a) Baldur Vignir, f. 1979, b) Jóhann Helgi, f. 1983, maki hans er Bettina Larsen, c) Benedikt Karl, f. 1989, sambýliskoma hans er Bríet Sveinsdóttir, d) Sigurður Björn, f. 1997, unnusta hans er Margrét Brandsdóttir. 2) Guð- mundur Helgi, f. 1959, maki Harpa Gunnarsdóttir, f. 1962. Dætur þeirra eru a) Helga, f. ósérhlífinn og duglegur til vinnu. Baldur flutti til Reykjavíkur um 17 ára aldur. Vann verka- mannavinnu, keyrði sendibíl og stundaði sjómennsku í fjölda- mörg ár. Hann byrjaði að vinna sem vörubílstjóri á Þrótti 1969 og vann þar til starfsloka. Baldur og Vigdís kynntust 1953 og gengu í hjónaband 17. júní 1955. Þau hófu búskap sinn í Drápuhlíð 30, fluttu í Álfta- mýri 4 árið 1962 og bjuggu þar í 45 ár. Síðustu árin bjuggu þau í Bólstaðahlíð 41 þar til þau flutt- ust á Hrafnistu í Reykjavík 2019. Þau hjónin byggðu sér sumarhús við Apavatn 1974 og varð hann þeirra annað heimili yfir sumartímann allt upp frá því. Þau byggðu þar upp fjöl- skylduparadís þar sem fjöl- skyldan hefur átt fjölmargar samveru- og gæðastundir. Bestu stundir Baldurs voru í sum- arbústaðnum við Apavatn og við silungsveiði í vatninu. Hann var mikill náttúruunnandi, veð- urglöggur og vinnusamur. Bald- ur stundaði hestamennsku til fjölda ára og sótti sundlaug- arnar sér til heilsubótar til 93 ára aldurs. Baldur var glaðlyndur mað- ur, ræðinn og mikill sögumaður. Að eigin sögn var hann gæfu- maður til sjós og lands og lán- samur beggja vegna heiðar. Útför Baldurs fer fram frá Háteigskirkju í dag 28. sept- ember 2020, kl. 13. 1983, b) Vigdís Eva, f. 1987, sambýlis- maður hennar er Vilhjálmur Levi Egilsson, c) Ást- hildur Didda, f. 1994, sambýlis- maður hennar Hall- dór Gauti Krist- jánsson. 3) Sævar Björn, f. 1965, maki Sigríður Oddný Marinósdóttir, f. 1971. Börn þeirra eru a) Dagný Björk, f. 1992, sambýlismaður hennar er Hallur Húmi Blumen- stein, b) Brynjar Freyr, f. 1998, unnusta hans er Harpa Rós Gunnarsdóttir. Barnabarnabörnin eru 11 talsins. Baldur var sendur í fóstur 6 ára gamall að Efra-Apavatni í Laugardal og ólst þar upp hjá hjónunum Sigríði Jónsdóttur og Helga Guðmundssyni, ásamt sonum þeirra Guðmundi og Jóni Sölva. Þau hjónin reyndust hon- um sem bestu foreldrar og undi Baldur hag sínum vel hjá fjöl- skyldunni. Hann naut sín við sveitastörfin og við veiði í Apa- vatni. Þótti strax á unga aldri mjög fjárglöggur og þekkti kindur í órafjarlægð. Hann var Á rúmu ári hafa öldungarnir okkar fjórir haldið í Sumarlandið eitt af öðru. Síðastur af hópnum var Baldur tengdafaðir minn. Nú er orðið fundarfært í öldunga- ráðinu okkar þar og án efa glatt á hjalla og margt að skrafa um. Baldur var hjartahlýr og glað- vær maður, léttur og ljúfur. Þeg- ar ég hugsa til hans dettur mér alltaf í hug sjóarinn síkáti. Hann tók á móti fólki fagnandi og með breiðu brosi. Baldur var vel liðinn hvar sem hann fór, hann var bón- góður og duglegur til vinnu. Hann var léttur á fæti og tilbúinn að leggja aukalega á sig fyrir aðra. Hann fékk það ríkulega launað með margvíslegum hætti í gegn- um árin sín, hvort sem var fyrir dugnað sinn við sveitarstörfin, ósérhlífni við sjómennskuna, lið- legheit við vörubílaaksturinn eða ræktarsemi við fólkið sitt. Apavatn átti hug og hjarta Baldurs allt frá barnæsku. Þar undi hann sér best, þreyttist ekki á að segja okkur sögur af sveit- inni og veiðinni. Silungur, rabar- bari, bláber, kríurnar, fjallasýnin, náttúran. Hann var sannkallað náttúrubarn. Það tókst mikill vinskapur á milli forelda minna og tengdafor- eldra, sem var okkur svo dýr- mætt. Þeir höfðingjarnir áttu saman margar gæðastundir í hestamennskunni sem þeir stunduðu saman til fjölda ára. Stuttir og langir útreiðatúrar, bras í hesthúsinu og þegar þeir fór ríðandi með hestana í sumar- beit austur í Laugardal, það voru ógleymanlegar og skemmtilegar ferðir. Við fengum að heyra margar skemmtisögur frá þeim tíma. Baldur var viðkvæmur maður. Hann hafði fengið að kynnast því hvað lífið getur verið hart strax sem barn. Þegar hann var 6 ára var hann sendur í fóstur í sveit- ina, frá móður sinni, systkinum og veikum föður. Það var erfitt fyrir ungan dreng. Hann sagði okkur oft söguna af því þegar konan sem fylgdi honum austur hélt á honum yfir Stangalækinn, því ekki var komin brú á þeim tíma. Þessi kona var ofarlega í huga hans síðustu árin, hún hafði sýnt honum hlýju og umhyggju á þessum viðkvæmu tímum. Baldur var lánssamur að vera sendur í fóstur til góðra hjóna, Sigríðar og Helga, á Efra-Apavatni. Þar ólst hann upp ásamt sonum þeirra, Guðmundi og Jóni Sölva. Baldur sagði það hafa verið mikla gæfu að alast upp hjá svo góðu fólki. Þau reyndust honum vel og hann lagði sig fram um að standa sig sem allra best gagnvart þeim. Baldur var góður maður og vildi öllum það besta. Við fjöl- skyldan höfum lært svo margt af samfylgdinni með honum í gegn- um árin og notið þess sem hann gaf af sér. Á síðustu árum hefur það fyrst og fremst verið æðru- leysi og þakklæti sem hann hefur kennt okkur. Hann var mjög þakklátur fyrir lífið sitt og fólkið sitt og sagðist vera gæfumaður til sjós og lands. Hann var búinn að eiga langa og góða ævi og bar virðingu fyrir því um leið og hann var tilbúinn að taka á móti því sem verða vildi. Það varð honum talsvert áfall að missa Viggu sína í sumar og heldur nú á hennar fund eftir stuttan aðskilnað. Elsku Baldur, með kærleika og þakklæti kveð ég þig með hjart- ans þökk fyrir allt og allt. Hvíl í friði Þín tengdadóttir, Harpa. Nafnið Baldur hef ég alltaf tengt við frænda, með þeirri hugsun að það þýði hinn góði og bjarti. Ég skrifa þessi kveðjuorð til hans vegna þeirrar væntum- þykju sem við áttum sameigin- lega hvor til annars. Baldur ólst upp í fóstri hjá góðu fólki á bænum Apavatni. Eftir að frændi fór að heiman, borgaði hann alltaf ákveðinn hlut af launum sínum heim til Apa- vatns, það var honum heilög skylda að gjalda fyrir fóstrið. Ég man fyrst eftir frænda, sem var föðurbróðir minn, þegar við hittumst 1955 hjá móður hans, henni Ingibjörgu Gísladóttur sem hann og allir sem til þekktu elsk- uðu. Amma var kærleiksrík og það hafði Baldur erft í ríkum mæli, það sá maður vel í því hvernig hann hugsaði um ömmu, Viggu konuna sína og svo börnin þegar þau komu. Baldur var sjómaður lengst af á Jóni forseta, enda orð- lagður dugnaðarforkur. Seinustu vinnuárin var hann með sinn vörubíl og vann mest fyrir óska- barn þjóðarinnar, Eimskip. Allt var í föstum skorðum, bjó í Álftamýrinni og byggði fjölskyld- unni sumarbústað við Apavatn, en það var hans líf og yndi að fara í bústaðinn og veiða í vatninu. Frændi var hláturmildur og hress og þegar hann varð sextug- ur komum við Geir mágur minn ríðandi að Apavatni á afmælis- daginn hans,var það ákveðið með fyrirvara og með frænda var tengdafaðir Guðmundar sonar hans. Við vorum allir vel ríðandi og nú var ákveðið að fara í ferð og ríða vestur fyrir Apavatn við Mosfell. Þriðja stopp í ferðinni var við Brúará og allir góðglaðir og Baldur söng hástöfum. Ég geng að honum og segi, mikið syngur þú vel frændi, þá segir hann: Ég get sagt þér það frændi að ég get sungið fyrir hvaða þjóð- höfðingja sem er og hvar sem er og svo hlógum við og skáluðum, þetta var frábært augnablik, sér- staklega vegna þess að Baldur var með allra hógværustu mönn- um, en svona er það með menn og góða hesta að menn verða kóngar um stund. Yfir Brúará og upp í Biskups- tungur lá leið okkar um Reykja- heiði að Brekkuskógi þar sem við vorum með bústað, þetta hefur alltaf verið ógleymanlegur sól- skinsdagur í lífi mínu, vinátta og gleði. Ég votta fjölskyldu og vin- um samúð okkar systkinanna og dýpstu samkennd og segi blessuð sé minning þín. Magnús Bjarnarson. Síðasta daginn í ágúst stóð ég við Apavatnið og horfði yfir um- hverfið sem Baldri var svo kært og sagði við sveitungann sem hjá mér stóð að ég héldi að Baldur myndi ekki láta Viggu sína bíða lengi eftir sér. Það reyndist rétt. Frá því ég man eftir mér hef ég þekkt Viggu og Baldur. Þótt þetta sé minningargrein um Baldur þá eru þetta minningar um þau bæði, enda voru þau alltaf nefnd bæði saman þegar minnst var á þau. Fyrstu minningarnar eru frá gamlárskvöldum þegar ég fór með foreldrum mínum í Álfta- mýrina og þar sátum við Sigga í eldhúsinu og spiluðum og þegar Gummi var orðinn nógu stór fékk hann að vera með. Að sjálfsögðu voru Vigga og Baldur á öllum við- burðum í minni fjölskyldu. En skemmtilegustu minningarnar eru þó frá þorrablótunum þegar mamma og pabbi hóuðu saman sínum bestu vinum og við Laula fengum að vera með ásamt okkar mökum. Eins og oft vill verða hópuðust konurnar saman og karlarnir sér og þá kom sögumað- urinn Baldur ungi (hann var yngri en pabbi) og setningin sem var hans einkenni „ja það get ég sagt þér“ var oft í loftinu. Og þeg- ar skvaldrið hækkaði mikið þá kom hitt einkennið hans Baldurs þegar heyrnartækin dugðu ekki lengur, þá brá hann svo fallega hendi bak við eyrað og ýtti því fram til að heyra betur. Þessi þorrablót stóðu í áratugi og með fráfalli Baldurs eru öll fern hjónin í þessari þorrablótselítu fallin frá. Ég las í minningargrein um Viggu að hún hefði verið mjög pólitísk og mikill framsóknar- maður og þau bæði. Það kom mér mjög á óvart því af kynnum mín- um við þau minnist ég þess aldrei að það hafi verið rædd pólitík hvort sem kaffi var í bollum eða eitthvað sterkara í glösum. Vigga og Baldur voru yndisleg hjón og mjög skemmtileg. Það er með mikilli hlýju og væntumþykju sem við hjónin minnumst Baldurs og Viggu og sendum við Klara öllum aðstand- endum okkar innilegustu samúð- arkveðju. Þröstur Lýðsson. Baldur Júlíus Guðmundsson ✝ Hjálmar Gunn-arsson fæddist 23. september 1937 í Skjaldartröð á Hellnum en flutti síðar með for- eldrum sínum að Gíslabæ á Hellnum. Hann lést 31. ágúst á hjúkrunarheim- ilinu Skógarbæ. Hann er sonur hjónanna Gunnars Ingólfs Kristóferssonar, f. í Skjaldartröð, og konu hans Mál- fríðar Einarsdóttur frá Þórodds- stöðum í Ölfusi. Hjálmar ólst upp í sjö systkina hópi. Elstur var Einar Valberg Sigurðsson (sam- mæðra), Hermann Áskell og Sig- valdi Hlöðver (tvíburar), þá Hjálmar og Kristófer (tvíburi á móti Hjálmari), systirin Magnea vann síðast sem málarameistari á Eyrarbakka, hætti að vinna 2007. Hann var í stjórn Málara- félags Reykjavíkur 1972-73, í framkvæmdastjórn sumarbúð- anna í Vogi 1972-77 og sat í stjórn Meistarafélags Suður- lands. Hjálmar kvæntist hinn 22. júní 1963 eftirlifandi konu sinni, Guð- rúnu Erlu Gunnarsdóttur Mel- sted, f. 18. september 1944. Hún er dóttir hjónanna Gunnars H. Melsted og Unnar E. Melsted. Synir þeirra eru: 1) Gunnar, kvæntur Erlu Elíasdóttur, þau eiga tvö börn og tvö barnabörn. 2) Hjálmar, kvæntur Berglindi Ágústsdóttur, þau eiga þrjú börn og þrjú barnabörn. 3) Halldór Óli. 4) Ingólfur, hann á fjögur börn. 5) Árni, kvæntur Ágústu Björk Svavarsdóttur, þau eiga fjóra syni. Hjálmar og Guðrún fluttu á Eyrarbakka 1982 og bjuggu þar þar til þau fluttu aftur til Reykja- víkur 2016. Útförin fór fram í kyrrþey 23. september 2020. og yngstur var Sig- urvin Gestur, Magnea og Krist- ófer eru ein eftir á lífi. Einnig var upp- eldisbróðir þeirra Hinrik Eiríksson. Fjölskyldan flutti til Reykjavíkur 1956. Þar vann Hjálmar sem sjó- maður og verka- maður þar til hann hóf nám í málaraiðn hjá Jóni Björnssyni 1958-1962. Hann fékk meistarabréf 1965 og vann sjálfstætt í Reykjavík og í sam- vinnu við aðra, síðast Gísla Ágústsson. Fyrir utan að vera með fyrirtækið Hjálmar og Gísla sf. áttu þeir trilluna Sóleyju RE 85 og voru á grásleppu meðfram málningarvinnunni. Hjálmar Ég held að ég hafi gert mér grein fyrir því þegar ég kvaddi pabba að kvöldi aðfangadags að ég væri að upplifa síðustu jólin með honum. Ég ýtti hugsuninni burtu en hún blundaði undir niðri. Eftir áramót hrakaði heilsu pabba hratt og endaði með að hann fékk pláss á hjúkrunarheim- ili. Fyrst var heimsóknarbann vegna covid sem síðan var aflétt en með takmörkunum og síðan sett á aftur með takmörkun við einn heimsóknargest. Síðasta heimsókn mín til pabba var áður en við fjölskyldan fórum í sumarfrí. Þar fengu strákarnir mínir síðasta faðmlagið frá afa, afa sem fékk þá alltaf til að brosa. Afa sem merkti teikningarnar þeirra með dagsetningu og geymdi, afa sem alltaf hafði tíma til að spila og hlusta. Pabbi kenndi mér að vinna, á sumrin og í fríum var hægt að fá vinnu hjá pabba. Þar var unnið af fagmennsku og hverju verki skil- að af metnaði. Þessar vikur sem eru liðnar frá andláti pabba hafa verið tilfinn- ingalegt ferðalag, ákveðið uppgjör í átt að sátt við dauðann. Niðurstaðan er þakklæti. Takk fyrir allt pabbi. Þinn sonur, Árni. Í dag kveð ég með miklum trega tvíburabróður minn hann Hjalla. Við vorum alla tíð afar sam- rýndir bræður og á milli okkar ríkti sterkt og traust samband. Mér þótti afar vænt um að hann Hjalli skyldi hringja til mín kvöld- ið áður en hann lést - líkt og hann vildi kveðja mig sérstaklega. Lík- lega er samband tvíbura svona - þeir einhvern veginn þekkja hvor annan svo miklu betur. Við Hjalli ferðuðumst oft sam- an og man ég sérstaklega eftir því er við héldum upp á 50 ára afmæl- ið okkar á Grikklandi ásamt eig- inkonum okkar og Einari elsta bróður okkar sem nýlega var orð- inn ekkill. Hjalli var ávallt rólegri hlutinn af okkur teyminu og má t.d segja frá því að í barnaskóla tók ég að mér að lesa og læra fyrir okkur báða. Hjalli þurfti ekkert að segja - ekki einu sinni til nafns – Krist- ófer var alltaf fyrri til að svara. Við vorum ekki mjög líkir í út- liti - Hjalli ljós yfirlitum og ég svona kolsvarthærður og mun þreknari, þótt ég væri heilum sex tímum yngri en hann. Helsta leiksvæði okkar Hjalla var í fjörunni og klettunum á Hellnum en þar björguðum við mörgum fuglsungum sem fallið höfðu úr hreiðrunum - tókum þá heim og gáfum þeim mat og slepptum þeim síðan þegar þeir voru orðnir fleygir. Hvíl þú í friði elsku bróðir. Hér er fallegt ljóð eftir föður okkar Gunnar Kristófersson: Minning þeirra manna ei deyr mikið að sem kveður, því í anda eru þeir oss í starfi meður. Mörg eru lífsins mótviðrin mjög svo lík sem þessi. Þú ert fallinn frændi minn friður Guðs þig blessi. Kristófer Gunnarsson. Hjálmar Gunnarsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.