Morgunblaðið - 28.09.2020, Síða 22

Morgunblaðið - 28.09.2020, Síða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. SEPTEMBER 2020 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Húsviðhald Hreinsa þakrennur fyrir veturinn, og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Raðauglýsingar 569 1100 Tilkynningar Aðalskipulag Mýrdalshrepps 2012-2028 – Breyting í austurhluta Víkur Í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er kynnt tillaga um breytingu á aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2012- 2028 í austurhluta Víkur. Breytingin á aðalskipulaginu í austurhluta Víkur er margþætt og fellst í eftirfarandi: stækkun íbúðarsvæði ÍS7 til austurs, legu afleggjara af Austurvegi, breytt afmörkun á athafnasvæði A1, breytt notkun á hluta Iðnaðarsvæðis I1 og stækkun I2, breytt notkun hluta Verslunar- og þjónustusvæðis V36 í nýtt íbúðarsvæði ÍS8 og breyttir skilmálar fyrir V35. Tillaga þessi að aðalskipulagsbreytingu liggur frammi hjá skipulags-og byggingarfulltrúa Mýrdalshrepps Austurvegi 17, 870 Vík og á heimasíðu Mýrdalshrepps www.vik.is frá 23. september 2020 til og með 7. október 2020. Opið hús verður hjá fulltrúa skipulags-og byggingarmála í Leikskálum, Víkurbraut 8 þann 5. október 2020 á milli kl. 16-18 þar sem hægt verður að koma á framfæri ábendingum og fá svör við spurningum. Fólk er minnt á að fylgja öllum reglum sóttvarnaryfirvalda. Hægt er að skila ábendingum á skrifstofu Mýrdalshrepps, Austurvegi 17, 870 Vík eða í tölvupósti á bygg@vik.is til 7. október 2020. George Frumuselu Skipulags- og byggingarfulltrúi Mýrdalshrepps Auglýsing um skipulagsmál í Mýrdalshreppi Skipulags og byggingarfulltrúi Í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með auglýst eftir athugasemdum við eftirfarandi deiliskipulagstillögu. PÉTURSEY 2 LÓÐ - Deiliskipulagstillaga Deiliskipulagið nær yfir 1,8 ha lóðarinnar Pétursey 2 lóð. Innan skipulagssvæðisins er gert ráð fyrir nýbyggingum vegna fjölgunar gistirýma og aðstöðu fyrir ferðamannaþjónustu. Tillaga þessa liggur frammi hjá fulltrúa skipulags-og byggingarmála í Mýrdalshreppi Austurvegi 17, 870 Vík og á heimasíðu Mýrdalshrepps www.vik.is frá 28. september 2020 til og með 9. nóvember 2020. Athugasemdum ef einhverjar eru skal skila skriflega á skrifstofu Mýrdalshrepps, Austurvegi 17, 870 Vík eða í tölvupósti á bygg@vik.is. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út mánudaginn 9. nóvember 2020. George Frumuselu Skipulags- og byggingarfulltrúi Mýrdalshrepps Auglýsing um skipulagsmál í Mýrdalshreppi Skipulags og byggingarfulltrúi Í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með auglýst eftir athugasemdum við eftirfarandi deiliskipulagstillögu. PÉTURSHÓLAR - Deiliskipulagstillaga Deiliskipulagið nær yfir 4 ha. lóðarinnar Péturshóla. Innan skipulagssvæðisins er gert ráð fyrir byggingu tveggja frístundahúsa sem hægt verður að nota allt árið. Tillaga þessa liggur frammi hjá fulltrúa skipulags-og byggingarmála í Mýrdalshreppi Austurvegi 17, 870 Vík og á heimasíðu Mýrdalshrepps www.vik.is frá 28. september 2020 til og með 9. nóvember 2020. Athugasemdum ef einhverjar eru skal skila skriflega á skrifstofu Mýrdalshrepps, Austurvegi 17, 870 Vík eða í tölvupósti á bygg@vik.is. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út mánudaginn 9. nóvember 2020.. George Frumuselu Skipulags- og byggingarfulltrúi Mýrdalshrepps Auglýsing um skipulagsmál í Mýrdalshreppi Skipulags og byggingarfulltrúi Félagsstarf eldri borgara Árskógar Leikfimi með Hönnu kl. 9. Menningarklúbbu r/ Félagsfund- ur kl. 11. Opin smíðastofa kl. 9-15. Opin vinnustofa kl. 9 - 12. Opinn handavinnuhópur kl. 12-16. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. S. 411-2600. Boðinn Gönguhópur kl. 10.30, farið er frá anddyri Boðans. Hádegis- matur kl. 11.20-12.30. Myndlist kl. 13. Miðdegiskaffi kl. 14.30-15.30. Alltaf heitt á könnunni og allir velkomnir. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffi, spjall og blöðin við hring- borðið kl. 8.50-11. Skráning á þátttökulista fyrir vetrarstarfið er á skrif- stofunni kl. 8.50-16. Ganga kl. 10. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Mynd- listarnámskeið MZ kl. 12.30-15.30. Handavinnuhornið kl. 13. Síðdeg- iskaffi kl. 14.30-15.30. Allir velkomnir óháð aldri og búsetu. Nánari upplýsingar í síma 411-2790. Gerðuberg 3-5 Kl. 8.30-16 opin handavinnustofa kl. 9-16. Útskurður með leiðbeinanda (Grænagróf) kl. 11. Leikfimi Helgu (Háholt) kl. 13-15 Kóræfing (Háholt). Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9.30 postulínsmálun, kl. 10.50 jóga, heitt á könnunni frá kl. 8.30 til 16.30. Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Opin handavinna kl. 9–14. Hádegismatur kl. 11.30. Sögustund kl. 12.30-14. Samsöngur kl. 14.15–15. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps- leikfimi kl. 9.45. Jóga með Kristrúnu kl. 9.50. Minningahópur kl. 10.30. Jóga með Ragnheiði kl. 11.10 og kl. 12.05. Tálgun, opinn hópur kl. 13- 16. Stólaleikfimi kl. 13.30. Korpúlfar Hugleiðsla og létt jóga kl. 9 í Borgum. Ganga kl. 10 gengið frá Borgum og frá Grafarvogskirkju. Prjónað til góðs í Borgum kl. 13, allir velkomnir í hópinn, prjónagarn til staðar, gefið til líknarmála. Tréútskurður á Korpúlfsstöðum kl. 13 í umsjón Gylfa. Línudans með Guðrúnu kl. 15 í Borgum, vonum að sem flestir mæti í dansgleðina. Virðum sóttvarnir og förum varlega. Seltjarnarnes Gler og leir kl. 9 og 13. Billjard Selinu kl. 10. Kross- gátur og kaffi í króknum kl. 10.30. Jóga í salnum á Skólabraut kl. 11. Handavinna, samvera og kaffi á Skólabraut kl. 13. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–16. Heitt á könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30–12.15, panta þarf matinn fyrir helgi. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30–15.30. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586. Vantar þig rafvirkja? FINNA.is Kynni okkar Guðrúnar Ingi- bjargar hófust árið 1985, þegar ég gekk í Alþjóðlega frímúrarareglu karla og kvenna, þar sem hún var starfandi. Guð- rún tók mér hlýlega og það kom í ljós, að hún var kunnug föður mínum. Það var mjög ánægjulegt að spjalla við Guðrúnu strax í upphafi og þar lögðum við grunn- inn að vináttu okkar til framtíðar. Guðrún Ingibjörg var aðstoð- argjaldkeri reglunnar á árunum 1997-2002. Hún sinnti því emb- ætti af kostgæfni og var eins vak- andi yfir fjármálum reglunnar og framast var unnt. Það var lán mitt að hafa Guðrúnu til leið- sagnar þegar ég tók við sem aðal- gjaldkeri árið 2002. Hún veitti mér góð ráð og við ræddum um leiðir til að bæta innheimtu og fjármál reglunnar til framtíðar með aukinni tæknivæðingu. Ég kann henni miklar þakkir fyrir hversu vel hún undirbjó mig und- ir þær skyldur sem embættinu fylgdu. Í mínum augum var Guðrún Ingibjörg mikill máttarstólpi inn- an reglunnar þar sem hún vann öll sín störf af mikilli alúð og visku. Hún var skemmtileg, margfróð og þekkti siðakerfi okkar til hlítar. Hún lá aldrei á skoðunum sínum, hvorki um lífs- skoðanir sínar né önnur mál sem voru henni mikilvæg, en hún var hrein og bein og kom til dyranna eins og hún var klædd. Það var því alltaf frískandi og upplyftandi að ræða við hana. Ég naut þeirra forréttinda til margra ára að vera í góðum tengslum við Guðrúnu. Það var alltaf sérstakt að ræða við hana og oft gleymdum við okkur þegar talið barst að andlegum málum og reglustarfinu. Þá gaf hún mér mörg gullkorn, sem ég hef reynt að nýta mér til góðs í störfum mínum innan reglunnar. Guðrún Ingibjörg hvarf til hinnar eilífu stórstúku 7. septem- ber sl. Um leið og ég bið henni blessunar á nýrri vegferð þakka ég henni fyrir velvild hennar í minn garð og fyrir allt það sem hún lagði fram til þjónustu í reglustarfinu um margra ára skeið. Fjölskyldu Guðrúnar Ingi- bjargar votta ég samúð mína. Jóhanna E. Sveinsdóttir. Guðrún Ingibjörg Jónsdóttir ✝ Guðrún Ingi-björg Jóns- dóttir fæddist 18. október 1928. Hún lést 7. september 2020. Útför hennar fór fram 17. september 2020. Kveðja frá Frí- múrarareglu karla og kvenna LE DROIT HUMAIN og stúkunni Ósíris Síðastliðinn fimmtudag kvödd- um við í Laugarnes- kirkju kæra systur okkar úr Alþjóð- legri frímúrara- reglu karla og kvenna, LE DROIT HUMAIN, Guðrúnu Ingibjörgu Jónsdóttur, með þakklæti og virðingu. Guðrún vígðist inn í stúkuna Ými árið 1971 en varð síðar einn af stofnfélögum stúk- unnar Ósíris árið 1977 og hafði því verið í reglunni í tæp fimmtíu ár er hún lést á Hjúkrunarheim- ilinu Skógarbæ í Reykjavík 7. september sl. Guðrún var mikil og sterk per- sóna og einlægur frímúrari. Hún hafði ríka réttlætiskennd og var ævinlega trú sannfæringu sinni og fylgin sér. Guðrún gegndi í gegnum tíðina fjölmörgum emb- ættum og tók að sér mikil og krefjandi verkefni fyrir hönd reglunnar. Hún var m.a. meistari stúkunnar Ósíris tímabilið 1984- 1986 og aðstoðar- og síðar aðal- gjaldkeri reglunnar frá 1991 til ársins 2002. Guðrún var gerð heiðurs- meistari stúkunnar Ósíris á 600. fundi stúkunnar 14. apríl 2015. Hún var mjög vel lesin, fróð- leiksfús og leitandi í andlegum málum og hafði víðtæka þekk- ingu á öllu sem við kom frímúr- arastarfinu. Hún var góður fræð- ari þeirra sem styttra voru á veg komnir. Hún sinnti öllum störf- um sem henni voru falin innan reglunnar af einstakri alúð og trúmennsku. Guðrún var ákaflega virk í reglustarfinu alla tíð og sótti fundi meðan heilsan leyfði. Þrátt fyrir veikindi fylgdist hún vel með starfinu og sendi reglulega kveðjur til systkina. Jákvæð lífs- sýn Guðrúnar endurspeglaðist í hlýrri framkomu, glaðværð og staðfestu. Nú er leiðir skilja er okkur efst í huga þakklæti fyrir einlæga vináttu og ánægjulegt samstarf. Þitt starf var farsælt, hönd þín hlý og hógvær göfgi svipnum í. Þitt orð var heilt, þitt hjarta milt og hugardjúpið bjart og stillt. (Jóhannes úr Kötlum) Stjórn reglunnar og systkin í St. Ósíris senda ástvinum Guð- rúnar hugheilar samúðarkveðj- ur. Blessuð sé minning Guðrúnar Ingibjargar Jónsdóttur. Gylfi Már Jónsson. Minningarvefur á mbl.is Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr að andlátum og útförum. Þar eru birtar andláts-, útfarar- og þakkartilkynningar sem eru að- gengilegar öllum en auk þess geta áskrifendur lesið minningargreinar á vefnum.         þjónustuaðila sem aðstoða þegar andlát ber       ætlaðar aðstandendum við fráfall ástvina. www.mbl.is/andlát Minningar og andlát

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.