Morgunblaðið - 28.09.2020, Blaðsíða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. SEPTEMBER 2020
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
AÐRAR MYNDIR Í
SÝNINGU:
* Harry Potter
* Hvolpasveitin (ísl. tal)
* The Secret :
Dare to dream
* The New Mutants
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
Frábær ný teiknimynd fyrir
alla fjölskylduna.
FYRSTA STÓRMYND ÁRSINS
Nýjasta Meistaraverk
Christopher Nolan
★ ★ ★ ★ ★
★ ★ ★ ★ ★
★ ★ ★ ★ ★
The Guardian
The Times
The Telegraph
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
Hið stóra og líflega sam-félag Pólverja á Íslandier smám saman að verðasýnilegra. Við þessi sem
eigum hér ættir aftur í aldir og lærð-
um íslensku heima hjá okkur erum
smám saman að vakna til meðvit-
undar um að við lifum í fjölbreyttara
samfélagi en við ólumst upp í. Þessa
sér góðu heilli líka merki í menn-
ingarlífinu, þó vel megi merkja og
skilja óþreyju fyrir að hlutir breytist
hægt. Bíó Paradís hefur lagt sig fram
um að bjóða upp á nýjar pólskar
kvikmyndir og á síðasta leikári hóf
Borgarleikhúsið að gera tilraunir
með að texta valdar sýningar á
pólsku.
En þjónusta er eitt en þátttaka
annað. Þar kemur Reykjavík
Ensemble sterkt inn; alþjóðlegur
leikhópur undir forystu Pálínu Jóns-
dóttur og Ewu Marcinek sem hefur
til þessa fyrst og fremst tekið til
meðferðar pólskan veruleika, sjálfs-
mynd og sögu. Að ógleymdri stöðu í
íslensku samfélagi.
Nafn sýningarinnar sem var
(endur)frumsýnd í Tjarnarbíói fyrr í
þessum mánuði gefur ekki bara vís-
bendingu um innihald heldur líka
efnistök. Polishing Iceland, eða
„Ísland pólerað“ eins og hún er
stundum kölluð líka og er álíka
skemmtilegt í léttri tvíræðni sinni.
Sem er skyld, en aðeins önnur, en í
enska titlinum. Texti sýningarinnar
(sem er leikgerð Pálínu og Ewu upp
úr smásögum þeirrar síðarnefndu) er
uppfullur af orðaleikjum og hug-
leiðingum um orðaleiki, orðsifjar og
merkingu sem verða til á þessu hálf-
blinda stefnumóti pólsku, íslensku og
ensku, sem aðstæður Pólverja á
Íslandi kalla á. Sem dæmi má nefna
þá staðreynd að sú hversdagslega
íslenska spurning „viltu poka?“
hljómar í eyrum stillt á pólsku sem
„sýndu mér hver þú ert?“ Sem aftur
býr til spennu milli persónulegrar
nándar og sviplauss hversdagsins.
Hins persónulega og þess ópersónu-
lega. Einsemdar og félagsskapar.
Það er skáldlegt flug í textanum og
létt áreynsluleysi sem nýtur sín vel í
leikhússamhengi, þar sem ljóðrænan
þarf að virka á viðtakandann á svip-
stundu, má ekki kalla á yfirlegu eða
endurtekningu. Það er líka einhver
sérstök stemning sem býr í því þegar
leikari/persóna tjáir sig á máli sem
hún hefur ekki að fullu á valdi sínu,
er ekki á heimavelli. Hlátrasköllin frá
pólskumælandi frumsýningargestum
þegar móðurmál höfundar og aðal-
leikkonu tók yfir glöddu líka.
Aðalpersóna Polishing Iceland er
mikið til ein. Verkið er um samband
hennar við heiminn, frekar en við
einstaklinga. Það er bæði form
verksins og viðfangsefni. Hún kemur
til Íslands eftir skilnað og líkamsárás
til að vinna í bakaríi, er seinna orðin
þjónn á veitingahúsi. Í stuttum
„sketsalegum“ atriðum fáum við
mynd af henni og ýmsu því sem
verður á vegi hennar í daglegu lífi á
Íslandi.
Polishing Iceland er einhvers-
konar léttleikandi revía eða heim-
spekilegur léttpólitískur sálar-
kabarett um menningarárekstra,
lykla og orð, sem eins og allir vita
duga skammt til að lýsa því sem við
upplifum, hvað þá því hvernig okkur
líður. Í úrvinnslu Pálínu Jónsdóttur
er sam- og eintölum lipurlega og
áreynslulaust fléttað saman
raunsæislegu (og hæfilega ýktu) lát-
bragði og stílfærðum hreyfingum á
dansrófinu í sáraeinfaldri umgjörð
sem samanstendur af einu hjólaborði
og einum hurðarfleka sem fimur leik-
hópurinn umskapaði í allar þær að-
stæður sem til þurfti. Höfundar
umgjarðarinnar eru þau Anna Hall-
dórsdóttir (tónlist og hljóð), Juliette
Louste (ljós) og Michael Godden
(leikmunir). Sjálf sér Pálína um bún-
inga.
Þrír leikendur flytja okkur Polish-
ing Iceland. Magdalena Tworek
nýtur sín vel í aðalhlutverkinu, býr
að miklum sviðssjarma og hvíldi
áreynslulaust í persónunni þrátt fyr-
ir brotakennt og óraunsæislegt form
sýningarinnar og stöðugt samband
við áhorfendur. Pétur Óskar
Sigurðsson brá sér í ýmis eftir-
minnileg hlutverk, uppskar mikla
kátínu í salnum þegar hann benti á
að Pólverjar á Íslandi hefðu ekki yfir
miklu að kvarta, sjálfur væri hann
frá Bíldudal og því jaðarsettur á
höfuðborgarsvæðinu. Eins var snögg
og þögul svipmynd hans af auðnu-
lausum kærasta kostuleg. Michael
Richardt er sérlega svipmikill leikari
með sterka útgeislun og fimi. Það
gustaði t.d. af honum sem unnustu
fyrrnefnds auðnuleysingja, en til-
komumestur var Michael þó sem
bolludeig.
Það má vera að þau sem setjast í
sal Tjarnarbíós með væntingar um
samfélagsádeilu verði fyrir von-
brigðum. Það er auðvelt að gera sér
þær fyrirframhugmyndir: að hér
verði fordómar, útskúfun, vangeta
hins opinbera og ill meðferð óprútt-
inna og gráðugra vinnuveitenda í
forgrunni. Nú eða óróinn „heima-
fyrir“ og þungbúinn afturhaldshim-
inninn sem grúfir yfir pólskum
stjórnmálum, allvega héðan frá séð.
Svo er ekki. Þó það sé vissulega „pól“
í „pólitík“ þá lætur Ewa Marchinek
þann orðaleik ósnertan að þessu
sinni. Polishing Iceland er í grunninn
smágerð mynd af persónulegri
reynslu sem er stundum sár en er
jafnframt mætt með opineygu og
þakklátu auga skapandi listamanns.
Það er léttur ljóðrænn tónn í sýning-
unni, húmor og ljúfsár írónía. Allt
borið fram af örlæti og afslappaðri
fimi. Eins og nafnið bendir til: fágað.
Óvenjuleg og skemmtileg heim-
spekileg revía sem allir geta notið,
jafnvel Bílddælingar.
Ljósmynd/Patrik Ontkovic
Örlæti „Það er léttur ljóðrænn tónn í sýningunni, húmor og ljúfsár írónía. Allt borið fram af örlæti og afslappaðri
fimi,“ segir í rýni um sýninguna Polishing Iceland sem Reykjavík Iceland sýnir í Tjarnarbíói um þessar mundir.
Tjarnarbíó
Polishing Iceland bbbbn
Eftir Ewu Marcinek. Leikgerð, leikstjórn
og búningahönnun: Pálína Jónsdóttir.
Dramatúrgía og sýningarstjóri: angela
rawlings. Tónlist og hljóðhönnun: Anna
Halldórsdóttir. Ljósahönnun: Juliette
Louste. Leikmunahönnuður: Michael
Godden. Leikarar: Magdalena Tworek,
Michael Richardt og Pétur Óskar Sig-
urðsson. Alþjóðlegi sviðslistahópurinn
Reykjavík Ensemble frumsýndi í Tjarn-
arbíói 11. mars 2020 en rýnt í 2. sýn-
ingu, einnig nefnd endurfrumsýning, á
sama stað 17. september 2020.
ÞORGEIR
TRYGGVASON
LEIKLIST
Ferðasaga pólfara