Morgunblaðið - 30.09.2020, Blaðsíða 21
DÆGRADVÖL 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 2020
„ÞÚ ÆTTIR AÐ VERA Í VESTI. ÉG Á ÞAÐ
TIL AÐ SKJÓTA FYRST OG SPYRJA
SVO.”
„ÞÚ GETUR EKKI NOTAÐ VEÐLÁNARANN
ÞINN SEM MEÐMÆLANDA.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að eiga sér öruggan
stað til að lúra á.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÞAÐ ER EKKI
KOMINN
MATARTÍMI!
ÞAÐ ER ALLTAF
MATARTÍMI!
ÞAÐ ER
GAT Á
BÁTNUM!
NÁUM VIÐ LANDI
ÁN ÞESS AÐ
SÖKKVA?
JÁ … ÞÖKK SÉ LALLA LEGGJALANGA!
LÁNADEILD
BYSSUR
málari. Börn Harðar og Ingibjargar
eru: 1) Atli Vilhelm, dósent við HÍ,
f. 1960, kona hans er Harpa Hreins-
dóttir og þau eiga synina Mána og
Vífil. 2) Bjarni bóksali, f. 1961, kona
hans er Elín Gunnlaugsdóttir. Þau
eiga synina Egil og Gunnlaug en
fyrr átti Bjarni Evu og Magnús Þór.
3) Kristín Þóra lögfræðingur í for-
sætisráðuneytinu, f. 1965. Maður
hennar er Árni Ragnar Stefánsson.
Börn Kristínar eru Alda Villiljós,
Hörður Jónsson, Arnaldur Ingi
Jónsson og Phil Widiger. Barna-
barnabörn Ingibjargar eru sjö tals-
ins.
Foreldar Ingibjargar voru Bjarni
Sæmundsson, f. 1902, d. 1973,
verkamaður frá Garðsauka í Hvol-
hreppi og Sigurrós Guðlaugsdóttir,
f. 1910, d. 1979, húsfreyja frá
Gvendarkoti í Þykkvabæ. Þau eign-
uðust saman sex börn en ólu auk
þess upp systurdóttur Rósu, Unni
Þorleifsdóttur, f. 1932, d. 2017, en
móðir hennar, Jóhanna Júnía Guð-
laugsdóttir, dó úr berklum frá
einkadóttur sinni ársgamalli. Næst í
röðinni og fyrsta barn Bjarna og
Rósu er Sigrún, f. í Þykkvabæ 1936,
verkakona í Reykjavík. Yngri en
Ingibjörg eru bræðurnir fjórir, Sæ-
mundur, f. 1942, verslunarmaður,
Akranesi, Vignir, f. 1945, trésmiður
í Hveragerði, Björgvin, f. 1949,
kennari og framkvæmdastjóri í Bol-
ungarvík, og Sigurbjörn, f. 1955,
verkamaður í Bláfelli í Hveragerði.
Þá átti Bjarni Sæmundsson fyrr
soninn Hjalta, f. 1928, d. 2010, en
hann ólst upp hjá móðurfólki sínu á
Strönd í Landeyjum.
Ingibjörg
Bjarnadóttir
Þorbjörg Jónsdóttir
húsfreyja í Skinnum og síðar Gvendarkoti,
af Víkingslækjarætt.Ömmusystir hennar
er Guðrún Ívarsdóttir afturganga
Jón Gunnarsson
bóndi í Gvendarkoti, dóttursonur
Agnesar Runólfsd. í Einkofa
Jórunn Jónsdóttir
húsfreyja í Gvendarkoti og Vallarhúsum
Guðlaugur Jónsson
bóndi í Gvendarkoti og síðar tómthús-
maður í Vallarhúsum í Þykkvabæ
Sigurrós Guðlaugsdóttir
verkakona og húsmóðir
í Hveragerði
Helga Snorradóttir
húsfreyja í Látalæti, frá
Ketilstöðum í Holtum
Jón Jónsson
bóndi í Látalæti á Landi, bróðir Bjarna læðu
Valgerður Magnúsdóttir
húsfreyja í Leirvogstungu og Garðsauka,
d. Magnúsar ríka í Skaftárdal
Bjarni Einarsson
bóndi í Eystri-Garðsauka, dóttur-
sonur Bjarna sáttamanns í Skaftafelli
Rannveig Bjarnadóttir
vinnukona á Efstu-Grund undir Eyjafjöllum
Sæmundur Oddsson
bóndi og kaupmaður í Eystri-Garðsauka í Hvolhreppi
Ingibjörg Ketilsdóttir
húsfreyja á Sámsstöðum
(Ingibjörg berfætta)
Oddur Eyjólfsson
bóndi og dannebrogsmaður á Sámsstöðum
í Fljótshlíð, af Víkingslækjarætt
Úr frændgarði Ingibjargar Bjarnadóttur
Bjarni Sæmundsson
verkamaður í Hveragerði
Ólafur Stefánsson skrifar: „Þaðer greinilegt að það er að
skella á kosningavetur, svo huggu-
legt sem það er, og stjórnarand-
staðan ríður á vaðið með lands-
fundum og loforðaflaumi.
Í kortunum núna er kosningavetur,
keppist þá hver einn sem betur það
getur
að lofa’upp í ermi sem mest.
Hækka skal bætur, en hríðlækka
skatta,
hvernig það gerist nær enginn að fatta;
en Sigmundur syngur þar best.
Samfó og Viðreisn á svipuðum slóðum;
sárkvalin þjóðin má von eiga’ á góðum
takti þá taka þau við.
Gera þau allt sem að guðum þeim líki,
greifum af Brussel í ESB-ríki,
og semja’ af sér sjávarins mið.
Á Boðnarmiði rifjar Indriði á
Skjaldfönn upp limru eftir Sigrúnu
Haraldsdóttur, – „Óbjörgulegt“:
Hún Björg var að bera út póst
og bogin hún rétt áfram dróst,
það var krefjandi streð
því konan var með
alveg svakaleg sílikonbrjóst.
Pestir eru að ganga. Friðrik
Steingrímsson kveður:
Er að kvarta aumur maginn
ill er þessi skituveira,
Það er ljóst að þennan daginn
þori ég ekki að borða meira.
Ingólfur Ómar Ármannsson seg-
ir: „Rigning og rok til skiptis“:
Regnið lemur kalda kinn
Kári er með í ráðum.
Skyldi ekki skaparinn
skrúfa fyrir bráðum.
Öðru vísi viðrar hjá Kristjönu
Sigríði Vagnsdóttur:
Hér er lognið ljúfa
líka sól á himni hlær.
þolgóð er hver þúfa,
þrengingar í burtu slær.
Sólin yfir sundin blá,
sendir okkur hlýju.
Fastur sá er fagna má,
að fá sér yl að nýju.
Þau eru misjöfn veðrin. Stefán
Sigurðsson yrkir:
Vindur gnauðar gluggum á
guðleg væta sest á brá
himinsölum háum frá
hjúpar regnið blöð og strá.
Jóni Atla Játvarðarsyni finnst til-
veran daufleg:
Ennþá lokuð öldurhús,
engar sárabætur.
Hvar má ég þá drekka djús
og djamma fram á nætur.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Kosningavetur,
rigning og rok