Morgunblaðið - 30.09.2020, Blaðsíða 22
DANMÖRK
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Landsliðsmarkvörðurinn Viktor Gísli
Hallgrímsson varði tólf skot og var
með 38% markvörslu þegar lið hans
GOG varð danskur bikarmeistari eft-
ir 30:28-sigur gegn Holstebro í úr-
slitaleik í Holstebro í Danmörku á
sunnudaginn síðasta.
Þetta var í tíunda skiptið sem GOG
verður bikarmeistari en upphaflega
átti danska bikarhelgin fyrir tímabil-
ið 2019-20 að fara fram í mars en
henni var frestað fram í september
vegna kórónuveirufaraldursins.
Viktor Gísli, sem er tvítugur, gekk
til liðs við danska félagið frá uppeld-
isfélagi sínu Fram síðasta sumar og
hefur verið lykilmaður í liði GOG á
leiktíðinni.
GOG er með 7 stig í öðru sæti
dönsku úrvalsdeildarinnar, 3 stigum
minna en topplið Álaborgar, en GOG
á leik til góða á Álaborg.
„Þetta var fyrst og fremst geggjuð
upplifun að fá að taka þátt í þessum
úrslitaleik og bikarhelginni,“ sagði
Viktor Gísli í samtali við Morgun-
blaðið í gær. „Það voru smá þreytu-
merki á liðinu í úrslitaleiknum enda
erfitt að spila tvo leiki á tveimur dög-
um en það var fljótt að gleymast eftir
að við höfðum tryggt okkur sigur.
Þetta var minn fyrsti titill í meist-
araflokki og tilfinningin var ansi sér-
stök.
Að sama skapi hefur þetta ár verið
ansi sérstakt vegna kórónuveiru-
faraldursins. Við fögnuðum á sunnu-
deginum en á mánudeginum hófst
strax undirbúningur fyrir seinni leik-
inn gegn Pfadi Winterthur í Sviss í 2.
umferð Evrópudeildarinnar þar sem
ekkert annað en sigur kemur til
greina.
„Við náðum þess vegna ekki að
fagna neitt að ráði og menn voru lítið
að missa sig í gleðskapnum en það
verður hins vegar gert seinna meir.
Maður er ennþá að meðtaka þennan
bikar og mér líður ekki beint eins og
ég hafi verið að vinna eitthvað en það
kemur vonandi seinna meir,“ bætti
Viktor Gísli við en leiknum gegn
Pfado Winterhur lauk með 35:31-
sigri Svisslendinga og samanlögðum
64:59-sigri GOG sem er komið áfram
í riðlakeppni Evrópudeildarinnar.
Sáttur með eigin frammistöðu
GOG leiddi með einu marki í úr-
slitaleiknum, 26:25, þegar tæpar tíu
mínútur voru til leiksloka en Viktor
Gísli átti nokkrar lykilvörslur á loka-
mínútunum.
„Þetta var mjög svipaður leikur
þannig séð og undanúrslitaleikurinn
gegn Bjerringbro-Silkeborg. Við vor-
um með nokkuð þægilegt forskot
þegar um tíu mínútur voru til leiks-
loka en þá fer sóknarleikurinn aðeins
að hiksta. Við förum illa með okkar
sóknir á meðan þeir nýta sínar og
þannig koma þeir sér inn í leikinn.
Morten Olsen var hins vegar frábær
undir restina og náði að dæla inn ein-
hverjum mörkum fyrir okkur á loka-
kaflanum, sem betur fer.
Sjálfur er ég sáttur með mína
frammistöðu og ég undirbjó mig í
raun ekkert öðruvísi fyrir úrslitaleik-
inn sjálfan. Það var skrítið að fá ekki
nokkra daga í undirbúninginn sjálfan
enda bara dagur á milli leikja. Ég
skoðaði þeirra lið aðeins kvöldið áður
en heilt yfir var undirbúningurinn
ekki jafn góður og vanalega en það
kom ekki að sök. Farandi inn í leik-
inn þá fann ég svo að spennustigið
var aðeins hærra en venjulega. Um
leið og leikurinn byrjaði hins vegar
þá gleymdi maður því öllu og þá var
þetta bara eins og hver annar hand-
bolti.“
Aukið sjálfstraust eftir EM
Viktor Gísli viðurkennir að það
hafi verið erfitt að hefja nýtt líf í
Danmörku til að byrja með.
„Svo við segjum það bara eins og
það er þá er erfitt að flytja út ungur
að árum. Þú þarft að læra nýtt
tungumál, leigja þér húsnæði, kaupa
húsgögn og allt vesenið sem fylgir
því. Í staðinn þá fær maður að spila
handbolta sem er auðvitað frábært
en það tekur líka tíma að koma sér
inn í nýtt kerfi í nýju landi.
Eftir EM í Austurríki, Noregi og
Svíþjóð í janúar 2019 þá fékk ég smá
auka-sjálfstraust og þá var danska
deildin ekki jafn stór og þegar ég
kom fyrst til GOG frá Fram. Eftir
EM hefur þetta ekki verið neitt mál
þannig séð og það hefur verið mun
meiri stöðugleiki í mínum leik sem
skiptir öllu máli þegar þú ert mark-
vörður.“
Munar um reynsluboltana
GOG samdi við reynsluboltana
Anders Zachariassen og Morten Ol-
sen í sumar en liðið varð síðast
danskur meistari fyrir þrettán árum.
„Við fengum tvo mjög öfluga leik-
menn til okkar í sumar. Þeir eru báð-
ir mjög reynslumiklir og hafa í raun
tekið að sér leiðtogahlutverkið inni á
vellinum. Þeir eru hálfgerðir þjálf-
arar á vellinum líka og það er alltaf
hægt að leita til þeirra, sama hvað.
Þeir hafa reynst okkur mjög vel á ög-
urstundum í upphafi tímabilsins.
Það munar miklu fyrir okkur að
hafa fengið þá tvo því við vorum með
mjög ungt lið á síðustu leiktíð. Þá
þekkist hópurinn betur en í fyrra, ég
er kominn betur inn í hlutina og þetta
hefur verið að smella vel að undan-
förnu. Markmiðið er svo að berjast á
toppi deildarinnar og vonandi skáka
Aalborg í baráttunni um danska
meistaratitilinn, enda orðið ansi
langt síðan GOG varð síðast meist-
ari.“
Landsliðsmarkvörðurinn hefur
komið sér vel fyrir í Svendborg
ásamt kærustu sinni, Jenný Fjólu
Ólafsdóttur.
„Ég bjó með Óðni Ríkharðssyni
fyrstu vikurnar mínar hjá klúbbnum
og svo kom kærastan út til mín og við
vorum fljót að finna okkur íbúð. Það
er frábært að hafa hana hérna og ég
geri mér fullkomlega grein fyrir því
að hún er að fórna miklu til þess að
vera með mér hérna úti. Að sama
skapi er hún að fíla sig mjög vel og
hún er byrjuð að spila handbolta og í
námi þannig að okkur gengur virki-
lega vel.
Ég skráði mig í fjarnám í sálfræði í
Háskólanum á Akureyri á dögunum.
Ég er ekki í fullu námi en ég er að
taka einhverja kúrsa og þannig get
ég aðeins tekið hugann frá handbolt-
anum og fókuserað á eitthvað annað
inn á milli, þó það sé ekki nema
klukkutími á dag. Að sama skapi er
algjörlega frábært að geta einbeitt
sér eingöngu að handboltanum og
það eru mikil forréttindi að fá borgað
fyrir að spila handbolta,“ bætti Vikt-
or Gísli við í samtali við Morgun-
blaðið.
Bikarmeistaratitlinum
verður fagnað seinna
Viktor Gísli Hallgrímsson vann sinn fyrsta bikar í meistaraflokki í Danmörku
Ljósmynd/Einar Ragnar Haraldsson
Bikarmeistari Viktor Gísli Hallgrímsson hefur farið vel af stað í Danmörku
á keppnistímabilinu og átt hvern stórleikinn á fætur öðrum fyrir GOG.
22 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 2020
Lengjudeild karla
Þór – Afturelding ..................................... 1:1
Vestri – Fram ........................................... 1:2
Keflavík – ÍBV.......................................... 3:1
Grindavík – Víkingur Ó............................ 3:0
Leiknir F.– Leiknir R. ............................. 0:7
Þróttur R. – Magni................................... 0:1
Staðan:
Keflavík 18 12 4 2 55:26 40
Leiknir R. 19 12 3 4 47:21 39
Fram 19 11 6 2 40:24 39
Grindavík 18 8 8 2 38:28 32
ÍBV 19 7 9 3 32:24 30
Þór 19 8 4 7 33:32 28
Vestri 19 7 5 7 26:27 26
Afturelding 19 6 4 9 34:31 22
Víkingur Ó. 19 5 4 10 25:41 19
Þróttur R. 19 3 3 13 15:38 12
Magni 19 3 3 13 19:43 12
Leiknir F. 19 3 3 13 18:47 12
Meistaradeild Evrópu
Umspil, seinni leikir:
Omonia – Olympiacos ............................. 0:0
Ögmundur Kristinsson var ekki í leik-
mannahópi Olympiacos.
Olympiacos sigraði 2:0 samanlagt og fer
áfram í riðlakeppnina.
Dynamo Kiev – Gent ................................ 3:0
Dynamo Kiev sigraði 5:1 samanlagt og
fer áfram í riðlakeppnina.
Ferencvaros – Molde ............................... 0:0
Ferencvaros fer áfram á fleiri mörkum
skoruðum á útivelli.
England
Deildabikarinn, 16-liða úrslit:
Tottenham – Chelsea....................... 6:5 (1:1)
Noregur
B-deild:
Ull/Kisa – Tromsö ................................... 0:7
Adam Örn Arnarson lék ekki með
Tromsö vegna meiðsla.
Danmörk
B-deild:
Fremad Amager Esbjerg ....................... 2:3
Andri Rúnar Bjarnason var ekki í leik-
mannahópi Esbjerg. Ólafur H. Kristjáns-
son þjálfar liðið.
KNATTSPYRNA
Evrópudeild karla
Kristianstad – Azoty-Pulawy............. 24:22
Ólafur Andrés Guðmundsson skoraði 4
mörk fyrir Kristianstad og Teitur Örn Ein-
arsson 1.
Pfadi Winterthur – GOG .................... 35:31
Viktor Gísli Hallgrímsson varði 8 skot í
marki GOG.
Montpellier – Skjern ........................... 33:29
Elvar Örn Jónsson skoraði 5 mörk fyrir
Skjern.
RN Löwen – Tvis Holstebro............... 26:27
Alexander Petersson skoraði 3 mörk fyr-
ir Löwen og Ýmir Örn Gíslason 1.
Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði 3 mörk
fyrir Tvis Holstebro.
HANDBOLTI
KNATTSPYRNA
Pepsi Max-deild kvenna:
Jáverksvöllur: Selfoss – KR......................16
KÖRFUKNATTLEIKUR
Dominos-deild kvenna:
Smárinn: Breiðablik – Fjölnir..............19:15
Stykkishólmur: Snæfell – Haukar.......19:15
Í KVÖLD!
Stöðuvötn sem verða að ís og viðlíka
frosthörkur er ekki það fyrsta sem
kemur upp í hugann þegar minnst er
á Flórídaskagann í Bandaríkjunum.
NHL-meistararnir í íshokkí eru
engu að síður frá ríkinu enda virðist
það vera löngu liðin tíð að atvinnu-
mannalið í íshokkí séu eingöngu
staðsett á svæðum þar sem vetrar-
íþróttir eru í hávegum hafðar. And-
stæðingurinn í úrslitarimmunni kom
til að mynda frá Texas.
Tampa Bay Lightning tryggði sér
sigur í deildinni 2020 aðfaranótt
mánudagsins en liðið vann þá Dallas
Stars í fjórða sinn í rimunni og sam-
tals 4:2. Líkt og í NBA-körfubolt-
anum var úrslitakeppnin afgreidd í
einni borg eftir að deildin fór aftur í
gang í sumar. Leikið var í Edmonton
í Kanada þar sem Wayne Gretzky
sló í gegn á sínum tíma.
Er þetta í annað sinn sem Tampa
verður NHL-meistari en fyrra
skiptið var árið 2004. Félagið er til-
tölulega ungt miðað við mörg lið í
deildinni og var ekki stofnað fyrr en
árið 1992. NHL-deildin var hins veg-
ar stofnuð árið 1917 og Stanley-
bikarinn var hannaður árið 1992.
Lið Tampa hefur þótt líklegt til af-
reka síðustu tvö til þrjú tímabil og
tókst nú ætlunarverkið eftir óvenju-
lega úrslitakeppni. kris@mbl.is
AFP
Í Edmonton Jon Cooper, þjálfari Tampa Bay Lightning, með bikarinn.
Annar sigurinn í sögu félagsins
Stanley-bikarinn verður geymdur
á Flórída næstu mánuðina
Tottenham er
komið í átta liða
úrslit enska
deildabikarsins í
fótbolta eftir
heimasigur á
Chelsea í víta-
spyrnukeppni í
16-liða úrslit-
unum í gær-
kvöld. Var stað-
an eftir venju-
legan leiktíma 1:1, en Tottenham
var sterkara í vítakeppninni og
vann 5:4. Timo Werner kom
Chelsea yfir með sínu fyrsta marki
fyrir liðið á 18. mínútu og var stað-
an 1:0 allt fram á 83. mínútu þegar
Érik Lamela jafnaði eftir undirbún-
ing Sergios Reguilóns. Ekki er
framlengt í deildabikarnum og réð-
ust úrslitin því í vítakeppni. Totten-
ham skoraði úr öllum fimm spyrn-
um sínum í vítakeppninni, en Mason
Mount brenndi af í fimmtu spyrnu
Chelsea og Tottenham fagnaði því
sigri.
Tottenham
fagnaði sigri
Harry
Kane