Morgunblaðið - 08.10.2020, Page 8

Morgunblaðið - 08.10.2020, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 2020 Sigurður Már Jónsson blaðamað-ur fjallar í pistli á mbl.is um misheppnað kvótauppboð á fisk- veiðiheimildum í Namibíu. Ástæðan fyrir umfjöllun um kvótamál í Namibíu er vitaskuld umfjöllun um þátttöku Samherja í sjávarútvegi í Namibíu, þar með talið þátt- taka í kaupum á veiðiheimildum.    Sigurður Márrekur það hvernig útboðið hafi misheppnast og að aðeins hafi tekist að koma út 1,3 prósentum af kvótanum sem boðinn var upp. Ætl- unin hafi verið að afla jafnvirði sex milljarða króna en niðurstaðan var vel innan við eitt hundrað milljónir króna.    Morgunblaðið sagði fréttina afþessu eins og Sigurður Már bendir á en miðað við áhugann á ýmsum fréttamiðlum hér á landi á tengdum málum furðar hann sig á að þeir skuli ekki hafa tekið þetta upp.    Um einn þeirra segir SigurðurMár þetta: „Í aðdraganda kvótauppboðsins flutti þannig vef- miðillinn Kjarninn tvær fréttir af því að útboðið væri í bígerð og að nota ætti afraksturinn í baráttuna við Covid-19. Miðillinn hefur hins vegar þagað þunnu hljóði um nið- urstöðuna.“    Hann segir líka að samkvæmtfrétt The Namibian hefði fyrra fyrirkomulag skilað jafnvirði um þriggja milljarða króna til nam- ibíska ríkisins. Fréttin, umfjöllunarleysið og málið allt efn- islega hlýtur að vera mjög umhugsunarvert eftir mikla um- fjöllun um tengd mál hér á landi. Frétt frá Namibíu sem ekki er sögð STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Nýtt vatnsár hófst hjá Landsvirkjun 1. október sl. Öll miðlunarlón á há- lendinu eru sem næst full og fyrir- tækið því í góðri stöðu til að tryggja orkuafhendingu til viðskiptavina sinna á komandi vatnsári, segir í frétt á heimasíðu Landsvirkjunar. Nýtt vatnsár hefst hjá Lands- virkjun 1. október ár hvert, en um það leyti eru miðlanir yfirleitt í hæstu stöðu eftir vorleysingar, jöklabráð sumarsins og upphaf haustrigninga. Þegar haustrigning- um lýkur og vetur gengur í garð er byrjað að nýta miðlunarforðann. Vatn frá miðlunum stendur undir um helmingi af orkuvinnslu Landsvirkj- unar yfir veturinn og fram á vor. Í heildina var innrennsli á nýliðnu vatnsári nokkuð undir meðallagi. Haustið 2019 var kalt og þurrt. Nið- urdráttur miðlunarlóna hófst um miðjan október og hélst nokkuð ein- dreginn fram á vor. Innrennsli vetr- arins var vel undir meðallagi, og voru nóvember og mars slökustu mánuðirnir. Í lok vetrar var tals- verður snjór á hálendinu og skilaði hann sér vel í vorflóðunum. Söfnun í miðlunarlón var með ágætum fram í lok júní en hægðist á í júlí, þegar inn- rennsli var vel undir meðallagi. Tíðin batnaði í ágúst og öll miðlunarlón Landsvirkjunar fylltust. sisi@mbl.is Útlitið er gott hjá Landsvirkjun  Nýtt vatnsár hafið og flest lón eru full  Góðar horfur fyrir afhendingu orku Ljósmynd/Landsvirkjun Full lón Hálslón fylltist í ágúst og þá myndaðist þar fossinn Hverfandi. Byggðastofnun hefur gengið frá samningum við þrjú sveitarfélög um stuðning við atvinnuuppbyggingu vegna fækkunar ferðafólks í kjölfar kórónuveirufaraldursins. Samning- arnir kveða á um stuðning ríkisins við tiltekin verkefni við atvinnu- uppbyggingu og nýsköpun. Í fjáraukalögum var gert ráð fyrir 150 milljóna króna fjárveitingu til sértækra aðgerða hjá sex sveitar- félögum sem samkvæmt greiningu Byggðastofnunar standa hvað verst að vígi vegna niðursveiflu í ferða- þjónustu. Fjármunirnir skiptast þannig að Mýrdalshreppur, Skaftár- hreppur og Skútustaðahreppur fá hver um sig 32 milljónir króna og Bláskógabyggð, Rangárþing eystra og Hornafjörður fá 18 milljónir, hvert sveitarfélag. Búið er að ganga frá samningum við Skútustaða- hrepp, Skaftárhrepp og Hornafjörð. Hinir samningarnir eru í undirbún- ingi. Þannig áformaði Mýrdals- hreppur að ganga frá sínum verk- efnum í gær. Sveitarfélögin leggja sjálf fram tillögur að verkefnum og fara verk- efnahópar yfir þau. Þau eru með allskonar verkefni í undirbúningi og jafnvel framkvæmd. Aðalsteinn Þor- steinsson, forstjóri Byggðastofn- unar, segir að þau hafi verið metin út frá því hversu mörg störf þau séu líkleg til að skapa eða varðveita. Sem dæmi um verkefni sem njóta stuðnings má nefna Skútustaða- hrepp sem fyrstur gekk frá sínum samningi. Þar er hamingjuverkefni Skútustaðahrepps stutt sem og að- gerðaáætlun verkefnisins Nýsköpun í norðri og greining orkukosta. Aðalsteinn segir að sveitarfélögin fái 80% fjárveitingarinnar við und- irritun samninga og 20% þegar verkefnum lýkur. Miðað er við að staðan verði tekin í marsmánuði og að sveitarfélögin skili greinar- gerðum um verkefnin fyrir 1. apríl. helgi@mbl.is Styðja atvinnu- og nýsköpunarstarf  Byggðastofnun út- hlutar ríkisframlagi Morgunblaðið/Sigurður Bogi Jarðböðin Atvinna í Mývatnssveit grundvallast á ferðaþjónustu. Baðinnréttingar Fríform ehf. Askalind 3, 201 Kópavogur. 562–1500 Friform.is. Mán. – Fim. 10–18 Föstudaga 10–17 Laugardaga 11–15 2 0 0 0 — 2 0 2 0

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.