Morgunblaðið - 08.10.2020, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 08.10.2020, Blaðsíða 22
Nýgengi smita á Íslandi síðastliðna 14 daga Á hverja 100.000 íbúa Heimild: covid.is Tvöföld skimun við komu hefst Slakað á sóttvarnarreglum Samkomubann Samkomutakmarkanir rýmkaðar Hertar samkomutakmarkanir 0 50 100 150 200 250 300 Okt.SeptemberÁgústJúlíJúníMaíAprílMars Andrés Magnússon andres@mbl.is Það lætur nærri að fjórar af hverj- um fimm áætluðum brottförum flugvéla Icelandair frá Keflavíkur- flugvelli hafi fallið niður frá sept- emberbyrjun. Samkvæmt tölum á vef Isavia hafa 70 brottfarir verið á vegum Icelandair á þessum tíma, en hins vegar hefur 265 flugum verið aflýst, um 79% áætlaðra brottfara. Þetta gerist þrátt fyrir að flug- áætlun félagsins sé ekki svipur hjá sjón miðað við það sem áður gerð- ist. Ef horft er til miðgildis talna þessa tímabils hafa að jafnaði verið tvær brottfarir á dag á vegum Ice- landair, en sjö brottförum verið af- lýst. Á stöplariti hér til hliðar má sjá hvernig það hefur skipst á daga, en þar geta verið nokkrar sveiflur. Stundum aðeins ein brottför frá landinu á dag, en flestar hafa þær verið fimm talsins. Sem fyrr segir eru þessar tölur sóttar á vef Isavia, en það gerði Torfi Frans Ólafsson, tölvuleikja- hönnuður hjá Microsoft, sem ferðast mikið til og frá landinu og hefur skiljanlega áhuga á því hvort flogið verður eða ekki. Það er þó ekki aðeins Icelandair, sem aflýsir flugi til og frá landinu. Á hinu stöplaritinu má sjá hvernig komum til landsins hefur verið hátt- að sama tíma og þar hefur líka tölu- verðu verið aflýst af flugferðum. Þröskuldur við landamærin Ekki þarf að hafa mörg orð um það hvað hertar sóttvarnaaðgerðir við komu til landsins hafa haft mikl- ar afleiðingar á samgöngur til og frá landinu. Þær hafa eðli máls samkvæmt komið harðast niður á ferðaþjónustunni, án þess að nokk- uð sé unnt að fullyrða um spurn er- lendra ferðamanna eftir ferðalögum til Íslands, jafnvel þó svo enginn sóttvarnaþröskuldur væri við kom- una til landsins. Ferðaþjónusta um allan heim er í lamasessi og lítill ferðahugur í fólki á dögum farald- ursins. Þegar litið er á myndritið að ofan, sem sýnir nýgengi kórónuveiru- smita á Íslandi á hverja hundrað þúsund íbúa, er erfitt að komast að þeirri niðurstöðu að hertar sótt- varnaaðgerðir við komu til landsins hafi haft afgerandi áhrif á út- breiðslu faraldursins hér á landi. Ómögulegt er hins vegar að segja fyrir um hver raunin hefði orðið ef ekki hefði verið gripið til þeirra ráð- stafana, sem fyrst og fremst felast í tvöfaldri skimun. Vel má vera að þá hefði næsta smitbylgja komið fyrr og risið hraðar. Hins vegar blasir við að núver- andi smitbylgja reis fyrst og fremst fyrir innanlandssmit, þótt eitthvað hafi verið um smit frá fólki, sem var að koma utan úr heimi. Að undanförnu hefur gætt nokk- urrar gagnrýni á smitgátina við landamærin, aðallega frá ferðaþjón- ustu, en þar hefur verið kallað eftir skýrari viðmiðum um hvenær gripið sé til tiltekinna ráðstafana. Í ljósi stóraukins fjölda innanlandssmita að undanförnu er rætt um að þar kunni að þurfa að vera skýr viðmið einnig, bæði með tilliti til sóttvarna og efnahags. 79% brottfara Icelandair aflýst  Mjög mörgum áætluðum flugferðum hefur verið aflýst að undanförnu  Icelandair flýgur aðeins eina ferð af hverjum fimm úr landi  Önnur félög hafa einnig frestað ferðum sínum til landsins Ætlaðar brottfarir Icelandair á Keflavíkurflugvelli Flogin og aflýst flug Heimild: Isavia Ágúst September Október Aflýst Flogin 16 12 10 14 8 6 4 2 0 Tvöföld skimun hefst Ætlaðar lendingar allra flugfélaga á Keflavíkurflugvelli Flogin og aflýst flug Heimild: Isavia Ágúst September Október Aflýst Lentu 30 25 20 15 10 5 0 Tvöföld skimun hefst 22 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 2020 S K Ó V E R S L U N STEINAR WAAGE KRINGLAN - SMÁRALIND Lloyd Jaron Verð: 34.995.- Vnr. LLOJARON-BRA Lloyd Garun Verð: 39.995.- Vnr. LLOGARUN-CIG NÝ SENDING AF SKÓM Lloyd Vesuv Verð: 39.995.- Vnr. LLOVESUV-BLK Lloyd Jaser Verð: 34.995.- Vnr. LLOJASER-BLK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.