Morgunblaðið - 08.10.2020, Side 50

Morgunblaðið - 08.10.2020, Side 50
Glæsilegur þýskur náttfatnaður Frí heimsending um land allt Bláu húsin v/Faxafen • Sími 553 7355 • Vefverslun: selena.is Vefverslun selena.is MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 2020 Í tilefni af því að tónlistarkonan Bríet sendir frá sér plötuna „Kveðja, Bríet“ aðfaranótt laugardagsins 10. október slær K100 upp hlustunarpartíi í beinni þar sem platan verður spiluð í heild sinni og útgáfu hennar fagnað. Skelltu þér á rúntinn og fagnaðu með Bríeti á K100. Bríet ræddi við þá Loga Bergmann og Sigga Gunnars um plötuna og hlustunar- partíið en hún átti meðal annars eitt vinsæl- asta lag ársins „Esjan“. Spurð út í vinsældir lagsins segir Bríet: „Já, ég bjóst bara nákvæmlega við þessu. Það var ekkert annað sem kom til greina. Nei, ég er náttúrlega bara að bulla, auðvitað ekki. Maður gefur ekkert út lag og er bara já, ég geri þetta af því að þetta er hittari. Þannig að ég er bara í skýjunum og þetta er alveg fáránlegt.“ Bríet segir hlustendur mega búast við blandi í poka á nýjustu plötu sinni, „Kveðja, Bríet“, en hún haldi þó áfram að fjalla um ást- ina og sorgina. Vegna þess að Bríet getur hvorki verið með útgáfutónleika né partí vegna plötunnar ákvað hún í samstarfi við K100 að vera með hlustunarpartíið í beinni. „Maður þarf að finna aðrar leiðir og þar sem ég hlusta rosalega mikið á plötur þegar ég er að keyra, set oft plötur í gang þegar ég fer á rúntinn, þá er þetta sniðugt,“ segir hún. Platan verður spiluð í heild sinni á K100 klukkan 21:30 áður en hún verður gefin út. K100 hvetur fólk til þess að fara saman á rúnt- inn og njóta þess saman. Föstudagskvöldið 9. október slær K100 upp hlustunarpartíi í beinni útsendingu klukkan 21:30 og þér er boðið. Ljósmynd/Úr einkasafni Tónlistarkona Bríet á eitt vinsælasta lag landsins, Esjan. Hlustunarpartí K100 og Bríetar sem hún leggur inn skila sér og þvílíkt afrek að vera ein af 10 bestu í heim- inum til að keppa úti. Við getum verið stolt af okkar fulltrúa sýna kraftinn sem í henni býr. Að fylgjast með henni Katrínu á In- stagram er líka geggjað því að hún er dugleg að iðka þakklæti og fylla okkur sem fylgjum henni innblæstri til að gera aðeins betur. Held að það sé sér- staklega mikilvægt á þessum tímum að sjá fólk eins og Katrínu skara fram úr með því að leggja inn vinnuna á hverjum einasta degi og gera það með þrautseigjuna að vopni með bros á vör! Takk Katrín og ég hlakka til að fylgj- ast með þér RÚSTA á Crossfit Games í Aromas. Fylgist með á K100.is þar sem við höldum áfram með hrós vikunnar og ef þú lumar á hrósi endilega deildu því með okkur. Hrós vikunnar Ljósmynd/Instagram Katrín Tanja Leggur nú inn vinnuna fyrir heimsleikana í crossfit. Hrós vikunnar fær Katrín Tanja Ljósmynd/Hanna Andrésdóttir Kristín Sif Hrósar Katrínu Tönju fyrir dugnaðinn. Hér á K100 stefnum við ávallt að því að „hækka í gleðinni“ og því viðeigandi að í hverri viku sé einhverjum gefið já- kvætt og uppbyggilegt hrós. Það er sérstaklega mikilvægt að hrósa því sem vel er gert. Bæði höfum við öll gott af því að fá hrós, sem og að gefa það áfram. Hvað þá núna þegar veturinn nálgast, dagurinn styttist og samkomutakmarkanir hafa enn og aft- ur sett stórt strik í reikning allra Ís- lendinga. Það er hún Kristín Sif útvarpskona sem gefur hrós vikunnar að þessu sinni: Hrós vikunnar fær Katrín Tanja Davíðsdóttir sem er að leggja inn vinn- una fyrir heimsleikana í crossfit, ein af fimm konum í heiminum sem komast í úrslitin sem haldin eru í Kaliforníu í lok þessa mánaðar. Það er svo gaman að fylgjast með allri erfiðisvinnunni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.