Morgunblaðið - 08.10.2020, Page 61

Morgunblaðið - 08.10.2020, Page 61
DÆGRADVÖL 61 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 2020 2-3ja mánaðaskammtur íhverju glasi „Ég upplifi enga verki í dag og er aftur farinn að njóta þess að styðja við heilsu mína með hreyfingu, þökk sé Nutrilenk.“ Kristófer Valdimarsson, 81 árs. Mest selda liðbætiefni á Íslandi LIÐVERKIR STIRÐLEIKI EÐA BRAK Í LIÐUM? Fæst í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana. „KANNSKI GET ÉG TOGAÐ Í EINHVERJA SPOTTA – EF ÉG NÆ TALI AF YFIRMANNINUM.” „ok, ekki ofmetnast!” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... efni draumanna. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÉG ÆTLAÐI AÐ SPYRJA ÞIG GÓÓÓL FYRSTA VORBLÓMIÐ HVAÐ NÚ? VÆL! ÞÚ ÞARFT AÐ LÆKKA LAUNIN HJÁ LIÐINU! FJÖLSKYLDAN ÞARFNAST ÝMISLEGS! ÞJÓNUSTU- DEILD ÉG ÞOLI EKKI ÞENNAN FÝLUSVIP Á ÞEIM! ÞIÐ VINNIÐ! ÉG ÞOLI EKKI ÞENNAN GRÁTKÓR LENGUR! GRENJ VARI ST HUND INN GREN J GRENJ fræðingur í sambúð með Karitas Sigurðardóttur, f. 14.5. 1993, við- skiptafræðingi. Barn þeirra er Katla Andrea, f. 2019. 3) Jóhanna Katrín, f. 19.1. 2001, nemi í Háskóla Íslands. Tvíburasynir Bryndísar eru Hlöð- ver Skúli, nemi í Sciences Po í París og Magnús Nói, nemi í Tækniskóla Íslands, f. 9.10. 1997, synir Hákonar Gunnarssonar viðskiptahagfræð- ings, f. 18.10. 1959. Dóttir Magnúsar Nóa og Mörtu S. Frímannsdóttur er Ronja Esther, f. 2019. Systkini Bryndísar eru Binna, f. 29.10. 1946, þroskaþjálfi, Vest- mannaeyjum; Erna, f. 28.8. 1948, hjúkrunarfræðingur, Reykjavík; Róbert, f. 30.10. 1950, fram- kvæmdastjóri, Hveragerði; Valþór, f. 6.4. 1952, framkvæmdastjóri, Reykjavík; Jódís Hlöðversdóttir, f. 16.6. 1958, myndlistarmaður, Garða- bæ; Jón Hrafn, f. 26.5. 1962, bygg- ingafræðingur, Garðabæ; Orri Vign- ir, f. 20.6. 1964, framkvæmdastjóri, Kópavogi og Hlöðver, f. 26.3. 1966, pípulagningameistari, Borgarbyggð. Foreldrar Bryndísar voru hjónin Hlöðver Kristjánsson, rafvirkja- meistari og öryggisfulltrúi hjá ISAL, f. 11.12. 1925, d. 12.2. 2003 og Kristjana Esther Jónsdóttir, sjúkra- liði, f. 5.3. 1927, d. 29.4. 2020. Þau bjuggu lengst af í Kópavogi. Bryndís Hlöðversdóttir Kristín Þorláksdóttir húsfreyja í Seljatungu í Flóa Jón Erlendsson bóndi á Lágafelli í Mosfellssveit, síðast í Seljatungu í Flóa Valdís Jónsdóttir frá Gerðum í Gaulverja- bæjarhr., húsfreyja í Reykjavík Jón Helgason frá Ósabakka á Skeiðum, verkamaður í Reykjavík Kristjana Ester Jónsdóttir sjúkraliði, Kópavogi Kristjana Friðrika Einarsdóttir frá Eiríksbakka í Biskups- tungum, ekkja, síðar vinnukona á Reykjum á Skeiðum Helgi Jónsson bóndi á Iðu í Biskupstungum og á Ósabakka á Skeiðum Sigríður Jónsdóttir húsfreyja í Blöndahlshúsi í Hafnarfirði Sigfús Jónsson bóndi og sjómaður í Vatnsnesi og Tröð í Njarðvík, síðar í Hafnarfirði Jónína Guðríður Sigfúsdóttir verkakona í Reykjavík Kristján Jónsson sjómaður og iðnverkam. í Rvík Geirlaug Sveinsdóttir húsfreyja á Hausastöðum í Garðahreppi Jón Kristjánsson sjávarbóndi á Hausastöðum í Garðahreppi Úr frændgarði Bryndísar Hlöðversdóttur Hlöðver Kristjánsson rafvirkjameistari og öryggisfulltrúi ISAL, Kópavogi Guðmundur Arnfinnsson yrkir áBoðnarmiði og kallar „Allt í steik“: Farsóttarþreytu er farið að gæta, fjölgar hér smitunum jafnt og þétt, vistun í sóttkví menn verða að sæta, varla oss gleður ein einasta frétt. Dagbjartur Dagbjartsson skrifar: „Eitt af þekktari kvæðum Steins Steinarr er Gras sem er að nokkru leyti byggt á kvæði Carls Sandburg, Grass, sem Magnús Ásgeirsson hafði áður þýtt og vildi svo slysalega til við frumbirtingu á kvæði Steins að láðist að geta þess að um þýðingu væri að ræða. Nokkrar umræður urðu um þessi mál og sökuðu sumir Stein um ritstuld. Af því tilefni orti Leifur Haraldsson eina af sínum meinlegu vísum: Um hirðusemi er hneyksli næst að fjasa, sú höfuðdyggð af náð er mönnum veitt. Hjá Carli Sandburg kennir margra grasa - menn komast varla hjá að taka eitt. Indriði á Skjaldfönn rifjar upp „Haustvísu“ eftir Ólaf Björn Guð- mundsson lyfjafræðing, en hann dó árið 2008: Þau hittust á haustdegi köldum, það var hrollkalt að búa í tjöldum. En Geir átti romm og Gunna varð bomm. Ég veit ekki af hvers konar völdum. Jón Atli Játvarðarson vitnar til þess, að hann hafi tekið upp 100 kíló af kartöflum fyrir dóttur sína og tengdason, en þau voru upptekin við daglegt amstur og frostnætur í kort- unum. Hann tekur síðan fram, að kartöflur séu á borðum meðan hann þyngist ekki meir en um 1,5 kg. Ég hirði lítt fisk eða foreldað ket og fylgi helst nautnum og losta. Kartöflur bústnar ég brasa og ét í beinlínu heimfengra kosta. Heiðreki Guðmundssyni skáldi var boðið í flugferð ásamt blaða- manni: Fljúgum yfir fjöll og snjó, fagrar birtast sýnir. Hærra uppi eru þó ýmsir vinir mínir. Heiðrekur orti á skemmtigöngu: Andann dreg ég djúpt og hylli dýrð vors bæjar, sæll og hress, er ég rölti einn á milli Öskuhauga og Krossaness. Um „þessi nýju kerti“ orti Heið- rekur: Það varpaði birtu um bæjargöng ef borin var týra í fjósið. Nú þekki ég mannkerti mörg og löng. En maður sér ekki ljósið. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Farsóttarþreyta á haustdegi köldum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.