Morgunblaðið - 24.10.2020, Síða 10

Morgunblaðið - 24.10.2020, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 2020 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Gera þarf endurbætur á Landeyja- höfn til þess að markmið um stór- aukna nýtingu hennar náist. Mótvægisaðgerðir hafa ekki dugað og ætla má að erfitt sjólag utan hafnar muni áfram takmarka siglingar til og frá höfninni. Þetta kemur m.a. fram í nýrri skýrslu um fyrstu skref að óháðri úttekt á fram- kvæmd og nýt- ingu Land- eyjahafnar. Hún hefur verið afhent samgöngu- og sveitarstjórnar- ráðherra. Ráðgjafafyrirtækið Vatnaskil gerði skýrsluna í sam- vinnu við Leo van Rijn, hollenskan sérfræðing á sviði sandflutnings- rannsókna, og verkfræðistofuna Mannvit. Á meðal helstu niðurstaðna er að til þess að minnka verulega dýpk- unarþörf þurfi að ákvarða mögulegt dýpkunarfyrirkomulag sem taki til- lit til nýju ferjunnar og reynslu sem fengist hefur af nýtingu hafnar- innar. Aðgerðir til að mynda skjól fyrir háum öldum á milli rifsins utan hafnarinnar og hafnarmynnisins myndu bæta siglingarhæfni ferj- unnar milli rifs og hafnar. Eins væru þær líklegar til að styðja við dýpk- unaraðgerðir. Ólíklegt þykir að hægt sé að gera endurbætur á höfninni, eins og hún er nú, þannig að dýpkunarþörf hverfi. Til að slíkt markmið náist þykir líklegt að grípa þurfi til rót- tækra lausna sem krefjast endur- hönnunar. Slíka lausn þyrfti að skil- greina vel og meta samanborið við aðrar lausnir varðandi endurbætur á höfninni. „Dæmi um slíka útfærslu væri að byggja nýja höfn utan við rifið sem tengd væri eldri höfn með brú,“ segir í frétt samgöngu- ráðuneytisins. Skýrsluhöfundar telja of snemmt að segja til um það hvort endur- bætur kunna að vera gerlegar. Set- myndun er ekki eini þátturinn sem takmarkar siglingar ferjunnar. Öldufar hefur einnig veruleg áhrif. Heildstæð úttekt mun því líklega ekki leiða það í ljós að dýpkunar- aðgerðir einar og sér verði til þess að höfnin verði opin allt árið. Mynda þarf skjól fyrir öldu Úttektin var gerð í samræmi við þingsályktunartillögu sem var sam- þykkt á Alþingi í desember 2019. Páll Magnússon alþingismaður var fyrsti flutningsmaður. Í greinargerð var m.a. óskað eftir svörum um hvort hægt sé að gera þær úrbætur á höfninni að dýpkunarþörf minnki verulega eða hverfi. „Skýrslan staðfestir að til þess að ná fram hámarksnýtingu á höfninni þarf að fara blandaða leið,“ sagði Páll. „Annars vegar að búa til ein- hvers konar skjól fyrir öldunni á milli rifsins og hafnarmynnisins með varnargarði, varnargörðum eða hvernig sem það verður útfært. Hins vegar er ljóst að samhliða því verður þörf á dýpkun í höfninni. Sjálfsagt verður dýpkunarþörfin miklu minni en hún er í dag.“ Páll sagði það ótvíræða nið- urstöðu skýrslunnar að ekki væri hægt að gera Landeyjahöfn þannig úr garði að dýpkunarþörfin hyrfi al- veg, nema með því að endurhanna hana og endurbyggja. Hann sagði sama hvaða dýpkunaraðferðir yrðu notaðar, þær myndu einar og sér ekki tryggja 100% nýtingu á höfn- inni. Páll benti á að sandur hefði ekki verið til trafala í Landeyjahöfn lengi og höfnin ekki lokast vegna þess að dýpi hefði skort. „Það er aldan sem oft hefur stopp- að samgöngurnar milli lands og Eyja,“ sagði Páll. Hann sagði að það myndi líklega gerast áfram af og til. „Næst er að svara spurningunni um hvaða aðgerðir þarf til að brjóta ölduna við höfnina,“ sagði Páll. Hann kvaðst ætla að fylgja því eftir að fundið yrði út úr því til hverra að- gerða þyrfti að grípa svo hægt væri að mynda skjól fyrir öldunni fyrir utan innsiglinguna í Landeyjahöfn. Endurbóta er þörf í Landeyjahöfn  Óháð úttekt á framkvæmd og nýt- ingu Landeyjahafnar er komin út Morgunblaðið/RAX Landeyjahöfn Rifið sem um ræðir er skammt utan við hafnarmynnið. Skapa þarf skjól fyrir öldu utan við höfnina til að auðvelda siglingar þangað og styðja við dýpkunaraðgerðir. Of mikil ölduhæð hefur oft hamlað siglingum. Páll Magnússon Gleðilegar göngugötur Göngugöturmiðborgarinnar iðuðu af lífi í sumar. Viðtökur borgarbúa við stækkuðu göngusvæði fóru fram úr björtustu vonum og í nýlegri könnun Maskínu lýstu ríflega tvö af hverjum þremur yfir ánægju með göngugöturnar og jókst ánægjan milli ára. Nú eru göngugöturnar óðum að færast í skrautlegan vetrarbúning og búa sig undir upplýst mannlífmeð trefla og húfur og jólatilhlökkun í hjarta. Njótum lífsins saman ímiðborginni allt árið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.