Morgunblaðið - 24.10.2020, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 2020
ÚR BÆJARLÍFINU
Gunnlaugur Árnason
Stykkishólmi
Covid, codvid, covid er daglega á
vörum flestra Íslendinga síðustu
vikur og mánuði. Smit barst í Stykk-
ishólm um miðjan september. Strax
var brugðist við með einangrun
sjúkra og sóttkví annarra. Tókst að
uppræta veiruna á þremur vikum.
Nú er Hólmurinn veirufrír.
Þrátt fyrir það eru bæjarbúar
mjög varkárir, halda sig sem mest
heima eða í vinnunni og láta sem
minnst fyrir sér fara á alm-
mannafæri.
Allt félagsstarf í bænum liggur
niðri og hefur gert það að mestu síð-
an í mars. Starfsemi Aftanskins, fé-
lags eldri borgara, er í dvala og
sama gildir um önnur félög og sam-
tök . Það hefur ekki góð áhrif á þörf
mannsins fyrir að eiga samskipti við
samborgara sína.
Atvinnulífið fer ekki varhluta
af áhrifum veirunnar. Það bitnar
verst á ferðaþjónustunni sem hefur
verið vængbrotin síðustu misserin.
Það birti til meðan sólin var hæst á
lofti þegar Íslendingarnir fylltu í
slóð útlendinganna og heimsóttu
landsbyggðina. En frá 15. ágúst hef-
ur dregið fyrir sólu. Nú sjást varla
erlendir ferðamenn og innlendir
gestir mæta einkum um helgar.
Dregið hefur úr þjónustu veitinga-
og gististaðanna, en þeir munu hafa
opið um helgar í vetur.
Í sjávarútvegi er staðan frekar
þung vegna ástands á erlendum
mörkuðum. Opinber þjónusta og
önnur þjónusta er í góðu jafnvægi.
Stykkishólmsbær fær að glíma
við þungt högg. Tekjur dragast
mjög saman og munar mestu um
samdrátt í útsvari og framlögum úr
Jöfnunarsjóði sveitarfélaga sem
nemur um 75 milljónum króna á
þessu ári. Reiknað er með að fram-
angreindir tekjustofnar lækki um 50
milljónir. kr á næsta ári. Bæjar-
stjórn er ekki öfundsverð að koma
saman fjárhagsætlun næsta árs, því
stærsti hluti gjalda eru laun.
Atvinnuleysi mælist í 6-7% í
Hólminum. Slíkt ástand hefur ekki
sést í fjöldamörg ár. Að sögn bæj-
arstjóra hafa tölurnar farið lækk-
andi. Gott er ef sú þróun heldur
áfram í þá átt. Það jákvæða í at-
vinnumálum er að staðan í bygging-
ariðnaði er mjög góð.
Mikið er byggt af íbúðum í
Stykkishólmi á þessu ári. Mér telst
til að um 10 íbúðir séu í smíðum, ein-
býlis- eða raðhús. Fasteignaviðskipti
hafa verið góð og hafa seljendur
minni íbúða ekki þurft að bíða lengi
eftir kaupanda.
Undirbúningur vegna uppbygg-
ingar og um leið breytingu á hluta
húsnæðis sjúkrahússins í Stykk-
ishólmi fyrir hjúkrunarheimili miðar
vel áfram. Tilboð vegna útboðs 2.
áfanga á endurbótum á húsnæði
HVE Stykkishólmi voru opnuð 21.
ágúst sl. Tvö tilboð bárust, bæði frá
fyrirtækjum í Stykkishólmi. Samið
var við Skipavík ehf. sem átti tilboð
upp á 132.086.458 kr. Áætluð verk-
lok eru í lok febrúar 2021. Þriðji og
síðasti áfanginn verður boðinn út
strax eftir áramót. Endurbyggt
sjúkrahús og nýtt hjúkrunarheimili
verða svo tilbúin eftir tvö ár.
Mikið er byggt af íbúðum í
Stykkishólmi á þessu ári. Mér telst
til að um 10 íbúðir séu í smíðum, ein-
býlis- eða raðhús. Fasteignaviðskipti
hafa verið góð og og hafa seljendur
minni íbúða ekki þurft að bíða lengi
eftir kaupanda.
Af öðrum byggingafram-
kvæmdum má nefna að Hótel Stykk-
ishólmur er að byggja nýja gistiálmu
með 13 herbergjum. Hótelið getur
þá boðið upp á 90 herbergi. Auk þess
er verið að endurnýja gamla félags-
heimilið sem mun nýtast vel til ráð-
stefnuhalds.
Verið er að skipta um alla klæð-
ingu á húsnæði Sýsluskrifstofunnar í
Stykkishólmi. Eldri klæðning var
dæmd ónýt vegna leka. Húsið er
ekki gamalt eða um 20 ára. Mörgum
finnst það stuttur líftími á klæðn-
ingu. Verkið kostar mikið fé.
Í Stykkishólmi var landað 420
tonnum af grásleppu í sumar sem er
62% minni afli en árið áður þegar
landað var 1.096 tonnum. Aðal-
ástæðan fyrir miklum samdrætti er
að grásleppuveiðin má byrja mun
fyrr fyrir Norðurlandi. Norðanmenn
lögðu sig fram að veiða sem mest og
náðu að klára nærri allan úthlutaðan
kvóta ársins áður en veiðar máttu
hefjast í Breiðafirði. Til að geta veitt
eitthvað í Breiðafirði var úthlutað 15
dögum aukalega og kvótinn aukinn.
Afurðaverð lækkaði um 33 % á milli
ára. Sjómenn minnast vertíðarinnar
með vonbrigði í huga og hafn-
arsjóður varð af miklum tekjum.
Rólegt er yfir útgerð í Stykk-
ishólmi í haust. Aðeins einn bátur,
Fjóla SH, sem stundar ígulkeraveið-
ar landar afla sínum hér . Enginn
beitukóngur er veiddur núna.
Átta fyrirtæki með sterka teng-
ingu við Stykkishólm hafa stofnað
félag, Suðureyjar ehf., sem hefur
það að markmiði að auðvelda frum-
kvöðlastarf og bjóða upp á aðstöðu
til fjarvinnu, óháð aðsetri vinnuveit-
anda og stuðla að því að auðga at-
vinnulíf og samfélag í Stykkishólmi.
Félagið mun taka á leigu starfs-
miðstöð og endurleigja starfs-
aðstöðu, með aðgang að góðri ljós-
leiðaratengingu, fundar- og
kaffiaðstöðu. Þannig hafi allir sem
þar starfa félagsskap og stuðning
hver af öðrum.
Kórónuveiran á allra vörum
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Hólmurinn Súgandisey, skjól hafnarinnar og fjölsóttur ferðamannastaður. Þar mun listaverkið Fjöreggið rísa, eins og kom fram í Morgunblaðinu í gær.
Leirdalur 17 og 21, 260 Reykjanesbæ
Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is
Jóhannes Ellertsson
Löggiltur fasteignasali – s. 864 9677
Júlíus M Steinþórsson
Löggiltur fasteignasali – s. 899 0555
Nýjar 4ra herbergja sérhæðir með stórri verönd, með eða án bílskúrs.
Vandaðar fullbúnar eignir, sem skilast með gólfefnum og tækjum.
AÐEINS TVÆR EIGNIR EFTIR
Verð frá kr. 47.500.000 109 m2
Áformuð er tilfærsla póstmála frá
Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) til
Byggðastofnunar, þ.e.a.s. bæði
stjórnsýsla og eftirlit með póstþjón-
ustu í landinu. Hafa verið birt í sam-
ráðsgátt stjórnvalda drög að frum-
varpi samgöngu- og sveitarstjórnar-
ráðherra þar sem þetta er lagt til.
Í frétt ráðuneytisins um málið í
gær segir að með tilfærslu póstmála
frá PFS til Byggðastofnunar sé leit-
ast við að tryggja jafnan rétt lands-
manna til alþjónustu póstsins. Nú
standi yfir heildaryfirferð á lagaum-
hverfi PFS og leggja eigi fram frum-
varp til nýrra heildarlaga um PFS.
Fram kemur í greinargerð frum-
varpsdraganna að verkefni PFS á
sviði póstmála hafi minnkað en póst-
þjónustan gegni engu að síður mik-
ilvægu hlutverki. „Er það því mat
ráðuneytisins að til framtíðar litið,
sé það hlutverk ríkisins að tryggja
að allir landsmenn njóti alþjónustu
póstsins sem lýst er í lögum póst-
þjónustu. Tækifæri eru þó fyrir
hendi um að einfalda hlutverk rík-
isins í þessum málum, en mikilvægt
er að gæta að byggðasjónarmiðum
og jafnræði landsmanna við slíka
einföldum,“ segir í greinargerð.
Samkvæmt verkgreiningu PFS er
áætlað að verkefnið krefjist fulls
vinnuframlags a.m.k. tveggja starfs-
manna, auk utanumhalds, stjórnun-
arkostnaðar o.fl. Gera þarf lagfær-
ingar á lögum um Byggðastofnun
sem varða heimildir til að innheimta
tiltekin þjónustugjöld, skýrslugjöf
og fjárvörslu.
Verði frumvarpið að lögum mun
Byggðastofnun þá m.a. taka við því
hlutverki að hafa eftirlit með póst-
þjónustu, stuðla að samkeppni á
sviði póstþjónustu og koma í veg fyr-
ir óréttmæta viðskiptahætti. Enn
fremur að taka þátt í þróun mark-
aðar fyrir póstþjónustu og upplýs-
ingatækni og gæta þess að allir
landsmenn eigi aðgang að alþjónustu
svo dæmi séu nefnd. omfr@mbl.is
Póstmál færist til
Byggðastofnunar
Á að tryggja jafnan rétt til alþjónustu
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Sauðárkrókur Færa á eftirlit með
póstþjónustu til Byggðastofnunar.