Morgunblaðið - 24.10.2020, Blaðsíða 28
Hver var Ari
Jósefsson
Ég var orð-
inn næt-
urvörður á því
ágæta hóteli
„Skjaldbreið“
haustið 1959.
Nokkru síðar
kom þar til
starfa jafnaldri
minn, Ari Jós-
efsson frá
Blönduósi. Við
urðum miklir vinir – ólíkir
um allt. Ég miðstétt-
ardrengur í Reykjavík –
hann verkamannssonur frá
Blönduósi.
Þegar hann stundaði nám
við MA hafði hann farið að
næturlagi ásamt nokkrum
skólafélögum að Möðru-
vallarkirkju í Hörgárdal,
þar sem sonur Sigurðar
Stefánssonar vígslubiskups
skírði hann í þessari forn-
frægu kirkju. Heiðursmaður
af Thoroddsen ætt hélt hann
„barninu“ undir skírn en
viðstaddur vottur að athöfn-
inni, síðar, var cand.jur. Ás-
dís Þ. Kvaran.
Síðar verkaðist það svo að
okkar ágæti hótelstjóri á
Skjaldbreið keypti ásamt
vinum sínum Hótel Borg
sem Jóhannes Jósefsson
hafði rekið síðan 1930. Þar
unnum við saman í tæp tvö
ár. Þá fór hann í háskólann,
hætti þar fljótlega og hélt
síðan til Búkarest í Rúmen-
íu að nema þar. Þar var
hann í tvö misseri. Þá hélt
hann heimleiðis.
Ekki þarf að taka það
fram að þau sem stóðu að
atburðunum í Möðruvalla-
kirkju voru snarlega rekin
úr MA. Halldór Blöndal, síð-
ar ráðherra, var einn þeirra
sem ætluðu í kirkjuleiðang-
urinn. En hann sofnaði áður
en þau lögðu af stað og
slapp því við að vera rekinn
úr skólanum. Nokkru áður
hafði Ari og félagar hans í
MA stofnað einkahluta-
félagið „Serðir ehf.“. Voru
félagar um jólaleytið orðnir
19 – félagsmerkið var rauð
teiknibóla. Einn var með
hvíta bólu, Halldór Blöndal.
Er Ari hélt heimleiðis
vorið 1964 með Gullfossi var
hann að glannast á borð-
bakkanum sem varð til þess
að hann féll útbyrðis og hef-
ur aldrei fundizt síðan. Unn-
usta Ara var Sólveig Hauks-
dóttir, síðar
hjúkrunarfræðingur og leik-
kona. Þau áttu saman son-
inn Hauk, sem varð nátt-
úruvísindamaður. Hún var
harmi slegin og átti erfiða
tíma í vændum.
Eitt sinn fór-
um við Ari að
leiði Guð-
mundar Thor-
steinssonar,
Muggs, í Hóla-
vallakirkju-
garði. Þar áðum
við stundarkorn
– dreyptum á
okkar norska
Loitnes-ákavíti
og skáluðum
fyrir Stalín og
Lenín. Skömmu síðar fórum
við að skrifstofu hernáms-
andstæðinga í Vinaminni við
Mjóstræti. Þar var okkar
síðasti fundur. Nei, reyndar
ekki. Nokkru síðar fór ég á
miðilsfund hjá Hafsteini
miðli á Laugaveg 74. Þang-
að kom Ari Jósefsson og
greip þéttingsfast í olbog-
ann á mér og var svo farinn.
Síðan þá hefur hann ekki
heimsótt mig – nema í
draumi og það allopt.
Trúarjátning eftir Ara
Jósefsson: „Ég trúi á mold-
ina og son hennar, manninn,
fæddan af skauti konunnar,
sem er píndur á okkar dög-
um, krossfestur – drepinn
og grafinn, og mun rísa upp
á morgun og krefjast réttar
síns til brauðsins, ég trúi á
anda réttlætisins, samfélag
mannanna og friðsælt líf“ ...
Eftir Braga
Kristjónsson
Bragi Kristjónsson
Höf. var fornbókakaupmaður
í rúm 40 ár.
»Nokkru síðar
fór ég á miðils-
fund hjá Hafsteini
miðli á Laugaveg
74. Þangað kom Ari
Jósefsson og greip
þéttingsfast í olbog-
ann á mér og var
svo farinn.
Ari Jósefsson skáld
28 UMRÆÐAN Minningar
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 2020
✝ Ásgeir IngiÞorvaldsson
fæddist á Blönduósi
16. júlí 1948. Hann
lést á heimili sínu á
Hraunbúðum í
Vestmannaeyjum
16. október 2020.
Foreldrar hans
voru Þorvaldur Ás-
geirsson , f. 7. febr-
úar 1921, d. 29. júlí
2003, og Sigurborg
Gísladóttir, f. 27. apríl 1923, d. 7.
desember 2006. Systkini Ásgeirs
eru: Hrefna Þorvaldsdóttir, f.
1951, maki Valgeir Benedikts-
son, f. 1949. Olgeir Þorvaldsson,
f. 1961, maki Sigríður Ósk-
arsdóttir, f. 1962.
Hinn 1. desember 1974 kvænt-
ist Ásgeir eftirlifandi eiginkonu
sinni, Guðfinnu Sveinsdóttur, f.
1. maí 1954. Foreldrar hennar
voru Sveinn Valdimarsson, f.
1934, d. 2018 og Arnlaug Lára
Þorgeirsdóttir, f. 1932, d. 2015.
Börn Ásgeirs og Guðfinnu eru:
1) Sveinn Ásgeirsson, f. 1974,
maki Sigrún Alda Ómarsdóttir, f.
1976. Börn þeirra eru: Guðfinna
Dís Sveinsdóttir, f. 2001, Gunnar
Bjarki Sveinsson, f. 2004, Ómar
Smári Sveinsson, f. 2007
1999, Kristín Inga Þorvalds-
dóttir, f. 2001.
Ásgeir er fæddur og uppalinn
á Blönduósi ásamt systkinum sín-
um Hrefnu og Olgeiri. Ásgeir
lærði múrverk á Blönduósi og í
Reykjavík, og starfaði sem múr-
ari ásamt því að stunda sjó-
mennsku. Árið 1967 kynntist Ás-
geir fyrri konu sinni, Sigrúnu
Pálsdóttur, á Blönduósi og eign-
uðust þau saman tvö börn. Ás-
geir og eftirlifandi eiginkona
hans, Guðfinna Sveinsdóttir,
felldu hugi saman í Reykjavík
gosárið 1973 og saman eiga þau
tvo drengi.
Ásgeir og Guðfinna bjuggu
alla tíð í Vestmannaeyjum, fyrir
utan tvö ár þar sem þau bjuggu í
Hafnarfirði þegar Guðfinna sótti
sér nám í lyfjatækni. Ásgeir var
alla tíð virkur í félagsstarfi, fyrst
á Blönduósi í skátum og björg-
unarsveit, síðar í Eyjum þar sem
hann starfaði meðal annars í Tý,
svarta genginu, Oddfellow-
reglunni, Sjóve, Golfklúbbi Vest-
mannaeyja, Everton klúbbnum,
Eyverjum, Sjálfstæðisfélagi
Vestmannaeyja svo eitthvað sé
nefnt en engan veginn tæmandi.
Útför Ásgeirs verður gerð frá
Landakirkju í Vestmannaeyjum í
dag, 24. október 2020, og hefst
athöfnin klukkan 13. Steymt
verður frá útförinni á:
https://www.landakirkja.is
Virkan hlekk á slóð má nálg-
ast á
https://www.mbl.is/andlat
2) Borgþór Ás-
geirsson, f. 1980,
maki Birgitta Sif
Jónsdóttir, f. 1981.
Dætur þeirra eru:
Sóley Sif Borgþórs-
dóttir, f. 2011, Salka
Sif Borgþórsdóttir,
f. 2013.
Börn Ásgeirs og
fyrri konu hans,
Sigrúnar Páls-
dóttur, f. 1951, eru:
1) María Nsamba Ásgeirs-
dóttir, f. 1968, maki Martin
Nsamba, f. 1988. Börn Maríu með
fyrri maka eru:
Tinna Rún Kristófersdóttir, f.
1990, maki Bjartur Snorrason, f.
1988. Barn þeirra er Nóel Móri
Bjartsson, f. 2018
Kolfinna Kristófersdóttir, f.
1992. Barn Kolfinnu er Kristófer
Flóki Sigurðsson, f. 2019.
Kristófer Jón Kristófersson, f.
1996, maki Kolfinna Marta Sig-
rúnardóttir, f. 1998. Barn þeirra
er Stormur Leo Kristófersson, f.
2020.
2) Þorvaldur, f. 1971, maki Ás-
dís Gréta Hjálmarsdóttir, f. 1979.
Börn Þorvaldar með fyrri maka
eru: Ásgeir Þór Þorvaldsson, f.
1995, Jökull Elí Þorvaldsson, f.
Pabbi minn, hann á heima í
Vestmannaeyjum, það eru orð
sem hljóma í minningum æsku
minnar. Ég man enn eftir fyrstu
minningu um okkur í Eyjum þeg-
ar þú og Finna okkar keyptuð
ykkar fyrstu íbúð á Helgafells-
brautinni. Mér fannst þetta sem
ævintýri líkast, en samt skrítið að
neðri hæðin var full af sandi sem
ég skildi seinna að var gosvikur.
Ég kom til ykkar á sumrin og átti
þar minn ævintýraheim sem ég
gat gortað mig af við mína vini á
fastalandinu. Í einni slíkri ferð
man ég eftir að við systkinin fór-
um í barnaafmæli sem endaði á
þann veg að ég heimtaði að fara
heim. Þú komst og sóttir mig og
fórst með mér í ferð um eyjuna
okkar, skoðuðum Pelagus og fleiri
hluti sem mér fannst eins og við
hefðum fundið fyrstir af öllum. Ég
byrjaði að vinna hjá þér hluta úr
degi 13 ára gamall þegar þú varst
að vinna við múrverk í Hrísmóum
í Garðabæ. Þar lærði ég að vinna í
fyrsta skipti og það sem hand-
langari í múrverki, ekki var kall-
inn alltaf alveg kátur með hrær-
urnar hjá stráknum. Þú lést mér
þó líða þannig að ég væri partur af
þessari vinnu og það skipti mig
mestu. Þetta var ekki í seinasta
skipti sem við unnum saman, sjó-
mennska á Guðrúnu VE 122 og
svo múrverk mörg sumur. Það er
mér ómetanlegt að hafa fengið að
bæði starfa fyrir þig og með þér.
Ég man það líka hversu gott
það var að eiga þig að þegar við
vorum báðir að glíma við veikindi,
ég eftir slys og þú að byrja þitt
stríð við gigt. Þá var gott að geta
komið við í Garðhúsum og tekið
kaffi ásamt góðu spjalli, deilur um
enska boltann og annað ómerki-
legra. Þú náðir einnig að draga
mig með í alls kyns dægradvöl
eins og snóker, golf og sjóstöng
svo eitthvað sé nefnt. Baráttan við
veikindin var þér ekki auðveld þó
svo þú værir ekki á þeim buxun-
um að gefast alveg upp. Lesturinn
sem var þér svo mikilvægur var
ekki lengur mögulegur, og ekki
gastu heldur hlustað á sögur eða
fylgst með sjónvarpinu.
Ég áttaði mig fyrst því hversu
veikur þú varst orðin þegar þú
varst hættur að horfa á enska
boltann í þeirri vissu að nú myndi
Everton gera gott mót. Í heim-
sókn okkar Ásdísar til þín í byrjun
september var góður dagur hjá
þér. Við náðum í fyrsta skipti í
langan tíma að tala saman, þú
spurðir um okkur og hvað við
værum að gera, svona létt og gott
spjall. Þá fékk ég líka að heyra að
þú væri orðin þreyttur, þetta væri
bara að verða ágætt allt saman.
Ég er þér þakklátur fyrir allt sem
þú hefur gefið mér og ég get bara
ekki enn skilið að ég fái ekki að
hitta þig meir. Ég kveð þig með
trega og hryggð, ást og umhyggju
en umfram allt stolti þess að hafa
fengið að kalla þig pabba.
Nú haustar að og hélan grá
heldur yfir grundir.
Dofna litir deyja strá
dagurinn verður undir
(Ásgeir Ingi Þorvaldsson)
Ég elska þig pabbi minn.
Þinn sonur
Þorvaldur Tolli.
Elsku pabbi minn
Þótt söknuður hafi einkennt
þessa daga þá er hjartað mitt fullt
af þakklæti, visku og gleði vegna
alls þess sem þú hefur gefið mér í
gegnum tíðina. Þú varst alltaf
mikill kvæðakall og yfirleitt varst
þú fenginn til að semja ljóð, kvæði
eða vísur þegar veislur voru
haldnar. Eitt sinn fórstu með ljóð
sem þú sagðir mér að væri eftir
Kjarval og ég yrði að hlusta vel
því öll orðin væru íslensk:
Áfram skelfuran skreiðist um nátt
Skelmorinn starir með glyrnurnar hátt,
eitt ógurlegt brak og eitt boldánsins
slumm
burt hverfur gleidinn af skelfururumm.
Hvað heldurðu að þetta þýði?
Spurðir þú svo og hlóst hátt. Oft
langaði mig að leyfa öðrum reyna
að ráða gátuna og þá varstu alltaf
til í að fara með það aftur þótt ég
hafi verið að hringja á misgáfuleg-
um tímum. Það var ákveðið þema í
þessum orðaleik sem þú kenndir
mér og var megintilgangurinn,
alltaf að fá mig til að hlæja, sem
tókst í hvert skiptið.
Þú varst duglegur félagsmaður
og drífandi partur of svo mörgum
félögum og ég held þú hafi fagnað
því hversu mikið ég steig í fótspor
þín hvað þetta varðar. Það sem
mikilvægast var fyrir þig, var að
vera í góðum félagsskap og þú
varst mjög duglegur að safna
góðu fólki í kringum þig. Enski
boltinn var þér mikilvægur og ein
af mínum hlýjustu minningum var
að hafa farið með þér á leik. Þótt
það hafi ekki verið á leik með þínu
eða mínu liði, þá skipti það engu
máli. Þú varst bara svo ánægður
að vera á staðnum og að hafa
fengið að upplifa eitthvað með þér
sem skipti þig svona miklu máli
var ómetanlegt.
En það sem ég helst man eru
litlu hlutirnir sem hafa enga
merkingu nema fyrir mig eða þig.
Eins og að liggja uppi í rúmi þeg-
ar ég var álíka gamall og yngsta
stelpan mín er núna, og skrifa
stafi á bakið á þér og þú að reyna
giska hvaða stafi og orð ég var að
skrifa. Reyndar, held ég að þetta
hafi verið leyndur leikur til að fá
baknudd frá mér. Því ég mun
ávallt vera yngstur og litli strák-
urinn þinn, pabbi minn, og ég tek
það með mér til minna barna og
reyni að muna hvernig tilfinningin
var að hafa pabba sinn hjá sér, svo
glaður og frábær orka sem þú
náðir að sýna til minna barna. Sól-
ey og Salka eru svo ástfangnar af
þér og ég man hversu auðvelt var
fyrir þær að hlaupa upp í rúm til
þín að fá knús þótt þú hefðir ekki
orku til þess þá varstu alltaf til í
það enda varstu jafn ástfanginn af
þeim og þær voru af þér.
Elsku afi Geiri, ég vona að ég
geti lært af þér hversu góður
pabbi og afi þú ert fyrir okkar fjöl-
skyldu og ég er ævinlega þakk-
látur fyrir visku þína og kærleik.
Ég bið að heilsa afa Tolla og
ömmu Boggu og ég veit þú er
hlæjandi þarna einhvers staðar.
Í dagsins önnum dreymdi mig
þinn djúpa frið, og svo varð nótt.
Ég sagði í hljóði: Sofðu rótt,
þeim svefni enginn rænir þig.
En samt var nafn þitt nálægt mér
og nóttin full af söngvaklið
svo oft, of þetta auða svið
bar ætíð svip af þér.
Og þungur gnýr sem hrynja höf
mitt hjarta lýstur enn eitt sinn:
Mín hljóða sorg og hlátur þinn,
sem hlutu sömu gröf.
(Steinn Steinarr)
Þinn sonur
Borgþór.
Elsku pabbi minn, það er
margs að minnast og erfitt að
hugsa til þess að geta ekki kíkt að-
eins við og sjá hvernig þú hefur
það.
Ég var að lesa minningargrein-
ina sem þú skrifaðir þegar pabbi
þinn kvaddi okkur og eitthvað
hefur þú fengið frá honum þótt þú
skrifir um það að þér hafi ekki
gengist að ganga í sporin hans þá
gerðir þú það nú heldur betur
meira en þú gerðir þér fyrir, þú
minnist hans fyrir stundvísi, heið-
arleika og vinnusemi sem er ná-
kvæmlega það sama og ég minnist
þín og þá sérstaklega vinnusem-
innar, röskari mann hef ég aldrei
séð, þú vildir ekkert slór og það
átti bara að ganga í hlutina. Þetta
hef ég ætíð haft að leiðarljósi og
fæ það frá þér.
Þú talar um að pabbi þinn hafi
haft unun af skáldskap og þar
varst þú mönnum framar, það var
aldrei erfitt að velja fyrir þig jóla-
gjafir, peysa og góð bók var það,
myndlistina nefnirðu og vá hvað
Ásgeir Ingi
Þorvaldsson
ÁSKIRKJA | Hin mæta morg-
unstundin. Hlaðvarps-hugvekjur með
tónlist, ritningarorðum, hugleið-
ingum, bænagjörð og myndum birt-
ast á heimasíðu kirkjunnar, askirkja-
.is, á sunnudögum og fimmtudögum
kl. 9.30, í umsjá séra Sigurðar, Jó-
hönnu Maríu djákna og Bjarts Loga
organista. Guðsþjónustur liggja niðri
af sóttvarnaástæðum um óákveðinn
tíma. Prestur og djákni eru til viðtals
í síma eftir samkomulagi. Sími Ás-
kirkju er 588 8870.
DÓMKIRKJA Krists konungs,
Landakoti | Messa á sunnud. kl.
8.30 á pólsku, kl. 10.30 á íslensku,
kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku.
Virka daga kl. 18, og má., mi. og fö.
kl. 8. Lau. kl. 18 er vigilmessa og
messa á pólsku kl. 19.
FELLA- og Hólakirkja | Helgistund
verður streymt frá fésbókarsíðu kirkj-
unnar, fellaogholakirkja.is, kl. 11
sunnudaginn 25. október. Sr. Pétur
Ragnhildarson flytur hugvekju. Arn-
hildur Valgarðsdóttir er organisti. Fé-
lagar úr kór kirkjunnar syngja.
GRAFARVOGSKIRKJA | Sunnudag-
inn 25. október verður streymt helgi-
stund á Facebook-síðu kirkjunnar kl.
11. Sr. Sigurður Grétar Helgason
þjónar. Organisti er Hákon Leifsson.
Þórdís Sævarsdóttir syngur.
Sunnudagaskóla kirkjunnar verður
streymt á Facebook-síðu kirkjunnar
kl. 10. Umsjón með honum hafa
Hólmfríður Frostadóttir og Ásta Jó-
hanna Harðardóttir.
HALLGRÍMSKIRKJA | Útvarps-
guðsþjónusta: Hátíðarguðsþjónusta
kl. 11 við 346. ártíð Hallgríms Pét-
urssonar og 80 ára afmæli Hall-
grímssafnaðar. Sr. Sigurður Árni
Þórðarson prédikar og þjónar fyrir alt-
ari ásamt sr. Irmu Sjöfn Óskarsdóttur
og Kristnýju Rós Gústafsdóttur. Fé-
lagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju
syngja, stjórnandi Hörður Áskelsson.
Organisti er Björn Steinar Sólbergs-
son.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Guðs-
þjónusta fellur niður í kirkjunni 25.
október. Verið er að hanna útbúnað
til að streyma (senda út í tölvuformi)
athöfnum í kirkjunni. Nánar á vef-
síðu: ohadi.is.
SELTJARNARNESKIRKJA | Helgi-
stund í streymi á Facebook-síðu Sel-
tjarnarneskirkju kl. 11. Sr. Bjarni Þór
Bjarnason þjónar. Friðrik Vignir Stef-
ánsson er organisti. Salka Rún Sig-
urðardóttir syngur. Grétar G. Guð-
mundsson og Erna Kolbeins lesa
ritningarlestra. Anna Guðrún Haf-
steinsdóttir les bænir.
Streymi á bænastund miðvikudaginn
28. október kl. 12 á Facebook-síðu
Seltjarnarneskirkju. Sveinn Bjarki
Tómasson er tæknimaður.
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Kotstrandarkirkja
ORÐ DAGSINS:
Kanverska konan
(Matt. 15)
Messur á morgun
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein-
ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við
síðuna.
Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með
minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal
senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið
sent er ráðlegt að senda myndina á netfangið minning@mbl.is og láta
umsjónarmenn minningargreina vita.
Minningargreinar