Morgunblaðið - 24.10.2020, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 24.10.2020, Qupperneq 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 2020 ✝ Svava Auð-unsdóttir fædd- ist 27. október 1928 á Baldursgötu 20 í Reykjavík. Hún lést 15. októ- ber 2020. Foreldrar Svövu voru Margrét Ey- leif Bjarnadóttir og Auðunn Magn- ússon. Svava var gift Jakobi Magn- ússyni, dáinn 9.8. 2005, og bjuggu þau allan sinn búskap í Samtúni í Reykholtsdal. Börn Svövu og Jakobs eru: 1) Magnús Jakobsson, bóndi í Samtúni, fæddur 1947, 2) Mar- grét Arnheiður Jakobsdóttir, fædd 1952, gift Sigurði Guðna Sigurðssyni og eiga þau þrjú börn: Jakob Svav- ar, Ólaf Guðna og Sigríði Helgu, 3) Sveinsína Erla Jakobsdóttir, fædd 1953, gift Óskari Alfreð Beck og á hún fjögur börn: Helgu Björg Val- geirsdóttur, Óskar Alfreð Beck, Jón Arnar Beck og Margréti Guðríði Beck, 4) Guðrún Jakobsdóttir, fædd 1961, dáin 2013, gift Ólafi Gunnarssyni og áttu þau tvö börn, Sigríði Þóru og Gunnar Örn. Barnabörnin eru orðin 15. Útförin fer fram frá Reyk- holtskirkju í dag, 24. október 2020. Það haustar, blöðin falla af trjánum og gróðurinn visnar á þessari kveðjustund. Þegar ég fór fyrst að venja komur mínar í Samtún var vor og gróandi. Þú fylgdist með þessum unga manni sem var að gera hosur sínar grænar fyrir dótturinni og hafðir varann á. Þegar tíkin kom svo og þef- aði af mér, dillaði skottinu og vildi fá klapp sagðir þú: Þér er ekki alls varnað, tíkin er mann- þekkjari. Upp frá þessu kom okkur alltaf vel saman og mér var alltaf heldur hlýtt til tík- arinnar. Það er erilsamt að vera bóndi, húsfreyja og móðir allt í senn. Samt var eins og það væri aldrei erill eða mikið að gera. Fjósverkin voru þitt hlutverk í búskapnum. Það ríkir oft heim- spekileg ró í fjósinu og ef til vill sóttir þú friðinn frá erli dagsins til kúnna sem voru þér kærar. Lengi vel hélstu í að halda fá- einar kýr vegna þeirrar ánægju sem þær gáfu þér. Ekki voru það veraldlegu auðæfin sem bú- skapurinn gaf af sér. Enda sagðir þú að það hefðu verið viðbrigði að hætta að vinna og fara að fá laun frá samfélaginu fyrir það að vera til. Auk þess að ala upp eigin börn og eitt barnabarn var sæg- ur af börnum og unglingum sem komu í sumardvöl í Samtún. Mörg þeirra héldu tryggð við ykkur fram á fullorðinsár, komu í heimsókn eða sendu kveðjur. Öllum var tekið fagnandi og fylgst var með hvernig þeim gekk að fóta sig í lífinu. Allt fram á síðustu stund varstu með fullt minni, fylgdist með og ræddir atburði dagsins jafnt sem liðna tíð. Það var með ólík- indum hvernig þú gast haldið utan um atburði í lífi alls þessa fólks, hvar það lifði og starfaði, börnin þess, hvenær þau voru fædd og svo framvegis. Þú þurftir ekki á Google að halda. Það er margs að minnast þegar þú fellur frá, líkaminn hafði visnað eins og gróðurinn en eftir standa minningar um sterka konu. Minningarnar eru eins og stofn trjánna sem standa óhögguð þótt laufið sé fölnað. Sigurður Guðni Sigurðsson. Svava Auðunsdóttir ✝ Svanur Krist-ófer Kristó- fersson bifreið- arstjóri frá Hellu á Hellissandi fæddist 29. desember 1953. Hann lést af slys- förum 23. sept- ember 2020. Foreldrar hans voru Kristófer Sig- valdi Snæbjörns- son, f. 6.5. 1918, d. 1.10. 1997 og Svanhildur Snæ- björnsdóttir, f. 30.11. 1922, d. 10.11. 2011. Systkini Svans eru Gunnar Már, Stein- unn Jóna, Sigurjón, Snæbjörn, Þröstur, Valur og Guð- mundur Örn sem er látinn. Eftirlifandi eig- inkona Svans er Anna Bára Gunn- arsdóttir, f. 18.8. 1955. Börn Svans og Önnu Báru eru: Aðalsteinn Örn, Hafþór Svanur og Linda Rut. Útför hefur farið fram í kyrr- þey. Í síðustu viku bárust okkur þau hörmulegu tíðindi að Svan- ur Kristófersson skólabílstjóri hefði látist af slysförum. Svanur, ásamt starfsmönnum hjá Hópferðabifreiðum Svans Kristóferssonar, annaðist skólaakstur fyrir Grunnskóla Snæfellsbæjar á milli Hellis- sands og Ólafsvíkur með við- komu á Rifi, frá stofnun skól- ans árið 2004. Hann hafði þá áður séð um skólaakstur fyrir Grunnskólann á Hellissandi. Jafnframt sá Svanur um akstur með nem- endur og starfsfólk í lengri og styttri ferðir tengdar skóla- starfinu, stundum skipulagðar með stuttum fyrirvara og brást hann alltaf skjótt og vel við. Ferðir geta verið margar á hverjum degi og við mismun- andi aðstæður því veður geta oft verið válynd hér á Nesinu. Þetta kallaði á mikil samskipti skólabílstjóra við stjórnendur, starfsfólk og nemendur skól- ans. Svanur var nákvæmur og ábyrgðarfullur og lagði mikla áherslu á að gæta fyllsta ör- yggis farþega í ferðum á hans vegum, sérstaklega ef veður og færð voru tvísýn. Dagleg sam- skipti gengu vel en stundum gat fokið í Svan þar sem hann sagði skoðun sína umbúðalaust en það var alltaf fljótt úr hon- um aftur. Svanur lagði mikla áherslu á að bílar hans væru vel útbúnir, þeir uppfylltu öll öryggisskil- yrði og nauðsynlegur búnaður væri til staðar. Hann var farsæll bílstjóri á þeim 16 árum sem hann ók fyr- ir skólann. Síðast en ekki síst ber að þakka þau góðu sam- skipti og þolinmæði sem Svan- ur sýndi nemendum. Þeir treystu honum, fundu fyrir öryggi í ferðum sínum og virtu ákvarðanir hans. Við sem í skólanum störfum viljum þakka Svani fyrir góð samskipti í gegnum tíðina og farsælan akstur fyrir skólann. Fjölskyldu hans vottum við okkar dýpstu samúð. Fyrir hönd Grunnskóla Snæ- fellsbæjar, Hilmar Már Arason skólastjóri. Fallinn er frá Svanur Krist- ófersson bílstjóri frá Hellu á Hellissandi. Leiðir okkar Svans lágu fyrst saman er ég kom til Hellissands árið 1995 en þá sinnti hann akstri starfsmanna fyrirtækja á svæðinu inn í Rif. Þessi samskipti héldu áfram er ég tók við stöðu bæjarstjóra í Snæfellsbæ 1998 en hann hafði þá séð um skólaakstur fyrir sveitarfélagið á milli Rifs og Hellissands. Aksturinn jókst síðan þegar grunnskólar Hellis- sands og Ólafsvíkur voru sam- einaðir og síðar bættist við akstur unglinga á Snæfellsnesi í Fjölbrautaskólann í Grundar- firði. Svanur sá um akstur eldri borgara í þeirra starf og ung- linganna í íþróttir og tóm- stundastarf og í unglingavinn- una. Hans þjónusta við samfélagið varði í nokkra ára- tugi og var hún með miklum sóma. Hann var vakinn og sofinn yfir því hvernig best væri að veita þjónustuna og m.a. tók hann sjálfur ákvarðanir til að mæta þörfum hvers og eins á hverjum tíma án þess að fara fram á aukagreiðslur fyrir það eða ræða það neitt frekar. Mörg dæmi væri hægt að nefna, t.d. ef unglingur var myrkfælinn þá keyrði hann bara viðkomandi heim eða þeg- ar veður voru vond þá breytti hann akstrinum þannig að það hentaði sem best fyrir viðkom- andi. Svanur lagði mikla áherslu á öryggi í akstrinum, tók enga áhættu og felldi niður ferðir ef hann taldi ekki skyn- samlegt að aka. Fyrstu árin voru allir okkar samningar munnlegir og allt sem samið var um stóð eins og stafur á bók og þannig var það alla tíð þó samningarnir yrðu skriflegir í seinni tíð. Samskipt- in við Svan voru alltaf góð, hann var ekki skaplaus maður en aldrei lauk okkar fundum án niðurstöðu sem báðir voru sátt- ir við. Allan þann tíma sem Svanur sinnti akstursþjónustu fyrir sveitarfélagið fékk ég aldrei kvörtun um hans þjónustu en aftur á móti fékk ég margoft að heyra góð orð í hans garð fyrir lipurleika í þjónustunni. Margir árgangar fólks hér á svæðinu nutu þjónustu Svans og hef ég heyrt í mörgum sem minnast hans með mikilli hlýju. Að leiðarlokum vil ég þakka Svani fyrir hans góðu þjónustu fyrir Snæfellsbæ og okkar góðu samskipti á liðnum áratugum. Önnu Báru, börnum, barna- börnum og fjölskyldunni allri sendi ég mínar dýpstu samúð- arkveðjur Kristinn Jónasson, bæjarstjóri í Snæfellsbæ. Svanur Kristófer Kristófersson Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, EINARS INGVA ÞORLÁKSSONAR, fv. kaupmanns í versluninni Vísi, Blönduósi. Sérstakar þakkir eru til starfsfólks HSN á Blönduósi fyrir einstaka umönnun og vináttu. Arndís Þorvaldsdóttir Einar Einarsson Hafdís Ævarsdóttir Margrét Einarsdóttir Jón Sigurðsson Gróa María Einarsdóttir Guðmundur Ragnar Sigurðsson Kemp barnabörn og langafabörn Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma, systir og frænka, INGVELDUR (INGA) JÓNA SVEINBJÖRNSDÓTTIR KINDEL, Carlsbad, San Diego í Kaliforníu, lést á heimili sínu 7. september. Minningarathöfn verður haldin í dag, laugardaginn 24. október, í San Diego klukkan 15 að staðartíma. Wallace Monroe Kindel Michelle Katrín Martin Andrew Martin Kirsten Bára Kindel Brynja Ingveldur Martin Daði Elfar Sveinbjörnsson og frændfólk á Íslandi Ástkær sambýliskona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ESTER STEINDÓRSDÓTTIR, Þórufelli 16, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans 13. október. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Fjölskyldan vill færa starfsfólki líknardeildar og deilda 11E og 11G á Landspítalanum innilegustu þakkir fyrir einstaklega góða umönnun og hlýju, ásamt hjartans þökkum til Sigurðar Björnssonar krabbameinslæknis. Sigurgeir Jóhannsson Steindór Kári Reynisson Erna Magnúsdóttir Edda Waage Aðalheiður Millý Steindórsd. Kristján Guðnason Elín Gíslína Steindórsdóttir Ester Ósk Gestsd. Waage Steindór G. Guðm. Waage Birta Líf Bang Atladóttir og langömmubörn FALLEGIR LEGSTEINAR Auðbrekku 4, 200 Kópavogi, sími: 537-1029, www.bergsteinar.is Á góðu verði Verið velkomin Opið: 11-16 virka daga Faðir minn og eiginmaður, BRYNJAR ÖRN VALSSON, Brekkubæ 13, Reykjavík, varð bráðkvaddur sunnudaginn 27. september. Útför hans hefur farið fram í kyrrþey. Þökkum auðsýnda samúð. Fyrir hönd aðstandenda, Smári Arnfjörð Brynjarsson Mai Thi Nguyen Lauga frænka er látin 93 ára að aldri. Hún var yngri systir pabba, Svana sem var eldri lést fyrir 23 árum. Lauga var einstak- lega glaðvær og skapgóð og frá- bær kokkur, enda næringar- fræðingur að mennt og vann sem slík í mörg ár á Landspít- alanum. Alltaf var talað um þau hjónin bæði í sömu andrá, Laugu og Sigmund. Sigmundur var læknir og Lauga fylgdist vel með starfi hans og í öllu voru þau samhent sem einn maður. Þetta fundum við systkinin þegar við fórum suður til Reykjavíkur frá Akur- Guðlaug Sigurgeirsdóttir ✝ Guðlaug Sig-urgeirsdóttir fæddist 16. febrúar 1927. Hún lést 5. október 2020. eyri til framhalds- náms. Þá opnuðu þau heimili sitt fyr- ir okkur og börnin þeirra Sigurgeir, Sirry og Gunna urðu litlu systkini okkar. Þau fylgdust með högum okkar og ef eitthvað kom upp á sem þurfti að taka á og finna góða leið þá voru þau á undan okkur að færa það í tal og ekki bara það heldur voru þau búin að hafa samband við réttu aðilana og bjarga málum ef þess þurfti við. Systurnar Svana og Lauga voru mjög nánar og hugsuðu vel um Guðrúnu móður sína. Ef til vill er það táknrænt að þær lét- ust báðar 5. október á fæðing- ardegi móður sinnar og útfar- ardagur þeirra er hinn sami. Pétur, Kristín og Sólveig. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.