Morgunblaðið - 24.10.2020, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 24.10.2020, Qupperneq 41
ÍÞRÓTTIR 41 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 2020 „Goðsögn“ er ofnotaðasta orð í umfjöllun um íþróttir nú á tímum. Ef leyfa á því að halda eðlilegri merkingu þá hafa verið til tvær „goðsagnir“ í sögu heimsfótboltans í karlaflokki og aðrar tvær verða það vænt- anlega síðar meir, þegar viðkom- andi hafa lokið ferlinum. Sú fyrri í tveggja manna hópnum fagnaði áttatíu ára af- mæli í gær. „Svarta perlan“, hinn brasilíski Pelé, var holdgervingur og sendiherra heimsfótboltans. Pelé sló í gegn 17 ára með tveimur mörkum í úrslitaleik HM í Svíþjóð 1958 og varð heims- meistari með Brasilíu í þriðja sinn í Mexíkó 1970. Þá var ég tíu ára gamall og þó ekki væri hægt að fylgjast með HM árið 1970 á sama hátt og í dag þá var Pelé sá besti. Allir vildu vera Pelé á sparkvellinum. Hann var stóra fyrirmyndin og goðsögnin. Fyrir mína kynslóð, og líka þá næstu á undan og eft- ir. Fólk um allan heim fékk áhuga á fótbolta vegna Pelé, hæfileika hans og afreka. Margir telja enn að hann sé sá besti sem uppi hafi verið. Aðr- ir aðhyllast Maradona og á þess- ari öld komu Messi og Ronaldo til sögunnar. Þetta eru stóru nöfnin fjögur í íþróttinni þó margir aðrir komi svo í kjölfarið og geri tilkall til fimmta sætisins. En slíkar vangaveltur skipta ekki öllu máli og fólk verður seint sammála um þetta eins og annað. Eftir stendur að fáir, ef nokkrir, hafa haft jafnmikil áhrif á vinsældir og útbreiðslu sinnar íþróttar og þessi lágvaxni og leikni Brasilíumaður sem skoraði 757 mörk í mótsleikjum með fé- lagsliði og landsliði og ríflega 1.200 mörk þegar talinn er með allur sá fjöldi vináttu- og sýning- arleikja sem tíðkaðist í hans tíð. BAKVÖRÐUR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is FRÉTTASKÝRING Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Úrslitaleikurinn við Ungverja um sæti í lokakeppni Evrópumóts karla í fótbolta nálgast dag frá degi. Nú eru aðeins nítján dagar þar til flaut- að verður til leiks í Búdapest, fimmtudagskvöldið 12. nóvember. Með sigri þar kemst Ísland á EM 2021, og mun þá einmitt spila tvo af þremur leikjum sínum, gegn Portú- gal og Frakklandi, á Puskás- leikvanginum í Búdapest næsta sumar. En sigur á Ungverjum í þessum úrslitaleik getur orðið íslenska landsliðinu dýrmætur á annan hátt. Eftir landsleiki nóvembermánaðar, þar sem Ísland leikur einnig við Danmörku og England í Þjóðadeild UEFA, verður gefinn út nýr styrk- leikalisti hjá FIFA, eins og gert er að jafnaði í hverjum mánuði. Þessi styrkleikalisti mun þó skipta meira máli en aðrir því samkvæmt honum verður raðað í styrkleikaflokka áður en dregið verður í riðla fyrir heims- meistaramótið 2022 en lokakeppni þess fer fram í Katar í desem- bermánuði það ár. Riðladrátturinn fer fram mánu- daginn 7. desember, og það er heimslistinn sem gefinn verður út 26. nóvember sem farið verður eftir. Dregið verður í tíu riðla og því verða tíu lið í hverjum styrk- leikaflokki. Örskammt frá öðrum flokki Ísland er sem stendur í 22. sæti Evrópuþjóða á heimslista FIFA og yrði því lið númer tvö í þriðja styrk- leikaflokki ef nýi listinn sem birtur var fyrr í þessari viku myndi ráða. En það er næsti listi sem ræður og þegar stigatala þjóðanna er skoð- uð sést að Ísland er örskammt á eftir Írlandi, sem er í 20. sæti og myndi því sleppa inn í annan styrk- leikaflokk eins og staðan er núna. Á milli er lið Slóvakíu og þetta gæti orðið harður slagur um að ná þessu 20. sæti. Rétt á eftir Íslandi koma síðan Norður-Írland, Noregur, Rúmenía, Skotland, Tékkland og Ungverjaland sem öll gætu gert til- kall til 20. sætisins með góðum ár- angri í nóvemberleikjunum þremur. Staðan varðandi röðun í þrjá efstu styrkleikaflokkana núna er þessi, miðað við október-heimslistann, stigatala í svigum: 1. flokkur: Belgía (1765), Frakk- land (1752), England (1669), Portú- gal (1661), Spánn (1639), Króatía (1634), Ítalía (1612), Danmörk (1610), Þýskaland (1607) og Holland (1596). 2. flokkur: Sviss (1589), Pólland (1568), Svíþjóð (1558), Wales (1550), Úkraína (1539), Austurríki (1523), Serbía (1489), Tyrkland (1486), Rússland (1480), Írland (1467). 3. flokkur: Slóvakía (1466), Ísland (1461), Norður-Írland (1458), Nor- egur (1456), Rúmenía (1455), Skot- land (1446), Tékkland (1446), Ung- verjaland (1439), Bosnía (1424), Grikkland (1408). Algengar sveiflur í stigum á milli mánaða eru á bilinu 0-20 stig en geta verið stærri. Rúmenar töpuðu t.d. 28 stigum eftir þrjá ósigra í október og féllu niður um tíu sæti. Ísland græddi fjögur stig en það dugði til að fara upp um tvö sæti. Danir græddu 17 stig í október, fóru upp um þrjú sæti og smeygðu sér inn í efsta styrkleikaflokk Evrópu. Sigur á Ungverjum gæti því hæg- lega fleytt Ísland upp um flokk. Leikið um 13 sæti í Katar Styrkleikaflokkarnir eru alls sex og verður eitt lið dregið úr hverjum í hvern riðil undankeppninnar. Þátt- tökuþjóðirnar eru 55 og því eru fimm lið í sjötta og neðsta flokki og fimm riðlar af tíu verða skipaðir fimm liðum. Aðeins þrettán sæti verða í boði fyrir Evrópu á HM í Katar. Þangað fara sigurvegararnir í riðlunum tíu en liðin tíu sem enda í öðru sæti fara í umspil um þrjú síðustu sætin, ásamt tveimur liðum með bestan ár- angur í Þjóðadeild UEFA sem nú stendur yfir. Svo einkennilega sem það kann að hljóma gæti Þjóðadeildin því aftur komið Íslandi til góða, þrátt fyrir að liðið hafi enn ekki unnið leik í þeirri keppni. Ísland komst í yfirstandandi EM-umspil með því að vera A-þjóð í fyrstu útgáfu Þjóðadeildarinnar. Það gæti gerst aftur, ef Ísland næði ekki öðru tveggja efstu sætanna í undanriðli HM á næsta ári. Ef fjórtán af þeim sextán liðum sem nú skipa A-deild Þjóðadeild- arinnar komast annaðhvort beint á HM 2022 eða í umspilið með því að vera í öðrum sæti í sínum riðli, kæm- ist Ísland í HM-umspil snemma árs 2022, sama hvernig gengi liðsins í undankeppni HM væri. Allir leikir á árinu 2021 Undankeppni HM 2022 fer öll fram á árinu 2021, nákvæmlega eins og undankeppni EM fór öll fram á árinu 2019. Umspilið er síðan á dag- skrá í mars 2022. Fyrstu þrjár um- ferðirnar fara fram 24. til 31. mars, næstu þrjár 1. til 8. september, og síðan eru tvær umferðir í október og tvær í nóvember. Ekki er leikið í júní eins og gert var 2019 og júní- leikirnir hafa einmitt verið íslenska landsliðinu happadrjúgir á und- anförnum árum. Getum ekki mætt Færeyjum Ísland lýtur nú ákveðnum tak- mörkunum vegna leikja í mars og nóvember. Ísland og Færeyjar eru skilgreindar sem sérstakar þjóðir með „harða vetur“ og mega því ekki vera saman í riðli. Aðrar þjóðir þar sem skilyrði geta verið erfið eru Hvíta-Rússland, Eistland, Finnland, Lettland, Litháen, Noregur, Rúss- land og Úkraína. Ísland mun því að- eins geta verið með einni þessara þjóða í riðli. Vegna ferðalaga getur Ísland enn fremur aðeins verið með einni þess- ara þjóða í riðli: Armenía, Kýpur, Ísrael og Georgía. Meira en EM í húfi í Búdapest  Leikurinn við Ungverja getur ráðið miklu fyrir HM 2022 í Katar Morgunblaðið/Eggert Landsliðið Ísland á fyrir höndum þrjá leiki í nóvembermánuði, úrslitaleik- inn við Ungverja og Þjóðadeildarleiki í Danmörku og Englandi. Evrópumeistarar Hollands gull- tryggðu sæti sitt á lokamóti EM kvenna í fótbolta með þægilegum 7:0-sigri á Eistlandi á heimavelli í gærkvöld. Danielle van de Donk og Jackie Groenen skoruðu tvö mörk hvor fyrir hollenska liðið og Sherida Spitse, Aniek Nouwen og Katja Snoeijs skoruðu einnig. Slóvakía fór upp í þriðja sætið í F-riðli Íslands með 2:1-útisigri á Ungverjalandi. Patricia Hmirova og Mária Mikolajová komu Slóvakíu í 2:0 áður en Sára Pusztai minnkaði muninn fyrir Ungverja í blálokin. Tryggðu sér sæti á lokamótinu AFP Tvö Danielle van de Donk skoraði tvö mörk fyrir Evrópumeistarana. Nýliðar Leeds fóru upp í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta með öruggum 3:0-útisigri á Aston Villa í gærkvöld. Patrick Bamford var hetja nýliðanna því hann skor- aði öll mörk liðsins í seinni hálfleik og er kominn með sex mörk í fyrstu sex umferðunum. Aðeins Dominic Calvert-Lewin hjá Everton og Son Heung-Min hjá Tottenham eru með fleiri eða sjö. Leeds hefur farið vel af stað í deildinni og er í þriðja sæti með 10 stig. Þrátt fyrir tapið er Aston Villa í öðru sæti með 12 stig. Nýliðarnir upp í þriðja sæti AFP Þrenna Patrick Bamford skoraði þrennu á Villa Park í gærkvöld. Körfuknattleikssamband Íslands hefur tilkynnt um útgáfu á nýju keppnisdagatali fyrir Íslandsmótið í meistaraflokkum karla og kvenna, ásamt breyttu fyrirkomulagi í bik- arkeppninni. Meðal þess sem þar kemur fram er að leikmenn í úrvalsdeild karla, Dominos-deildinni, verða ekki í jólafríi heldur verða spilaðar fjórar umferðir í deildinni um jól og ára- mót. Fyrirhugað er að leikdagar verði 20. desember, 23. desember, 27. desember og 3. janúar. Þá verð- ur leikið í bikarkeppni karla og kvenna um jólin. Í nýju keppnisdagatali er svig- rúm til að leika þá leiki sem fresta þarf vegna sóttkvíar eða einangr- unar leikmannahópa. Bikarkeppni karla hefur verið breytt á þann hátt að 32 liða úrslit hafa verið felld niður og aðeins lið úr úrvalsdeild og 1. deild taka þátt. Lið úrvalsdeildar, tólf talsins, fara beint í 16-liða úrslit en lið 1. deildar leika um fjögur sæti þar á meðan landsleikjahlé stendur yfir í nóv- ember. Átta liða úrslit í bikarkeppni kvenna verða leikin 27. desember og átta liða úrslit karla 30. desem- ber. Ekki hefur verið gefið form- lega út hvenær fyrstu leikir fara fram eftir að núgildandi takmark- anir renna út þann 3. nóvember. Spila fjórar umferðir um jól og áramót Íþrótta- og Ólympíusamband Ís- lands hefur í samvinnu við sér- sambönd sín skilgreint 27 manna ól- ympíuhóp en hann er skipaður því íslenska íþróttafólki sem stefnir markvisst að þátttöku í Ólympíu- leikunum í Tókýó 2021 og er talið eiga möguleika á að komast þangað af viðkomandi sérsamböndum. Sundmaðurinn Anton Sveinn McKee er enn sem komið er eini Ís- lendingurinn sem hefur tryggt sér keppnisrétt á leikunum. Hópurinn: Kári Gunnarsson, badminton, ein- liðaleikur Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir, frjálsíþróttir, 200 m hlaup Guðni Valur Guðnason, frjáls- íþróttir, kringlukast Hilmar Örn Jónsson, frjáls- íþróttir, sleggjukast Hlynur Andrésson, frjálsíþróttir, maraþon og 3.000 m hindrunarhlaup Sindri Hrafn Guðmundsson, frjálsíþróttir, spjótkast Guðrún Edda Harðardóttir Min, áhaldafimleikar Irina Sazonova, áhaldafimleikar Jónas Ingi Þórisson, áhaldafim- leikar Martin Bjarni Guðmundsson, áhaldafimleikar Valgarð Reinhardsson, áhaldafim- leikar Guðmundur Á. Kristjánsson, golf Guðrún Brá Björgvinsdóttir, golf Haraldur Franklín Magnús, golf Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, golf Valdís Þóra Jónsdóttir, golf Sveinbjörn Jun Iura, júdó, 81 kg flokkur Einar Ingi Jónsson, lyftingar, 73 kg flokkur Þuríður Helgadóttir, lyftingar, 59 kg flokkur Andri Nikolaysson Mateev, skylmingar, höggsverð Daníel Þór Líndal Sigurðsson, skylmingar, stungusverð Anton Sveinn McKee, sund, 100 og 200 m bringusund Jóhanna Elín Guðmundsdóttir, sund, 50 og 100 m skriðsund Snæfríður Sól Jórunnardóttir, sund, 100, 200 og 400 m skriðsund Ásgeir Sigurgeirsson, skotfimi, loftskammbyssa Hákon Þór Svavarsson, skotfimi, haglabyssa, skeet Guðlaug Edda Hannesd., þríþraut Ólympíuhópurinn skilgreindur af ÍSÍ  27 íslenskir íþróttamenn taldir eiga möguleika á að komast á Ólympíuleikana í Tókýó

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.