Morgunblaðið - 27.10.2020, Síða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 7. O K T Ó B E R 2 0 2 0
Stofnað 1913 253. tölublað 108. árgangur
TRÚUM AÐ VIÐ
GETUM UNNIÐ
LEIKINN
ÚTIVIST Í
HEIÐMÖRK
AFAR VINSÆL
PLATAN EIN
STÓR DAGBÓK-
ARFÆRSLA
AUÐUR ELVA 11 BREAKUP BLUES 28LYKILLEIKUR GEGN SVÍUM 26
Omeprazol
Actavis 20mg14 og 28 stk.
Magasýruþolin hylki sem innihalda 20 mg af virka
efninu Omeprazol og eru ætluð fullorðnum til
skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis
(t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu
lagi með hálfu glasi af vatni með mat eða á fast-
andi maga. Kynnið ykkur notkunarleiðbeiningar,
varnaðarorð og frábendingar áður en lyfið er notað.
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgi-
seðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða
lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um
áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar
um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
Markaðsleyfishafi:
Actavis Group PTC ehf.
T
ev
a
0
2
8
0
6
2
Tinna Þorsteinsdóttir Tölgyes og
Ylfingur Kristján Árnason eru bestu
vinir. Þau eru þriggja ára og eru
saman á Waldorfleikskólanum Sól-
stöfum, þar sem þau eru nánast óað-
skiljanleg í leik og starfi. Sérstök
vinátta þeirra hefur verið gleðiefni
foreldra þeirra frá upphafi en sú
gleði magnaðist sannarlega sl.
fimmtudag þegar upp rann fyrir for-
eldrunum mikilvæg tenging á milli
forfeðra barnanna.
Í tilviljanakenndu grúski í síðustu
viku komst Hulda Jónsdóttir Töl-
gyes, móðir Tinnu, að því að dr.
Gunnlaugur Þórðarson, hæstarétt-
arlögmaður og félagsmálafrömuður,
væri langafi þessa vinar dóttur sinn-
ar, Ylfings. Það eitt og sér væri
skemmtileg staðreynd, enda dáður
maður á sinni tíð, en hefur hér öllu
meiri þýðingu. Árið 1956 sá Gunn-
laugur nefnilega persónulega til
þess að Ungverjinn Miklós Tölgyes
kæmist til Íslands sem flóttamaður
árið 1956. Sá fékk síðan íslenskt
nafn, Mikael Fransson, er 85 ára í
dag og hefur getið af sér börn og
fjölda barnabarna og barnabarna-
barna. Eitt þessara barnabarna-
barna er Tinna Þorsteinsdóttir Töl-
gyes. Tinna getur því þakkað
langafa besta vinar síns tilveru sína
og frændgarðsins. »6
Söguleg vinátta Tinnu og Ylfings
Mikilvæg tenging á milli forfeðra
tveggja vina á Waldorfleikskólanum
Morgunblaðið/Íris
Vinir Tinna Þorsteinsdóttir Tölgyes og Ylfingur Kristján Árnason eru sam-
an á Waldorfleikskólanum. Skemmtileg tenging milli þeirra kom í ljós.
Fyrirtæki og stofnanir hafa mörg hver verið
upplýst í bleikum ljósum í októbermánuði til að
minna á baráttuna gegn krabbameini hjá kon-
um. Húsavíkurkirkja er þeirra á meðal.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Bleikur ljómi frá Húsavíkurkirkju
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Mér sýnist að menn séu almennt að búast
við því að verðið verði lágt næstu misserin og
þetta geti orðið jóla- og páskavertíð með öðru
sniði en verið hefur undanfarin ár,“ segir
Kjartan Ólafsson,
stjórnarformaður
Arnarlax. Verð á
eldislaxi lækkaði í
síðustu viku og
samkvæmt fréttum
norskra vefmiðla
er verðið sem ein-
staka seljendur eru
að fá það lægsta í
fimm ár. Ástæðan
er viðbrögð mark-
aðarins við aukinni
útbreiðslu kórónu-
veirunnar í Evrópu og útgöngubanni og lok-
un veitingastaða vegna ástandsins.
Veturinn er mikilvægasti sölutími laxa-
afurða, ekki síst aðventa, jól, fasta og páskar.
Á sama tíma er framleiðslan að nálgast há-
mark þannig að mikið framboð er af laxi.
Meðalverð á laxi var 46 norskar krónur á
kílóið í 42. viku ársins sem svarar til um 700
króna íslenskra. Vísbendingar eru um að
verðið hafi lækkað talsvert í síðustu viku og
hafi farið undir 40 kr. norskar sem svarar til
um 600 kr. íslenskra.
„Þróunin mun skýrast betur í þessari viku.
Ég hef þá trú að matvæli muni alltaf finna
sér leið inn á markaðinn. Menn laga sig að
nýjum aðstæðum. Það hefur sýnt sig í þess-
um faraldri,“ segir Sigurður Pétursson,
framkvæmdastjóri hjá Arctic Fish á Vest-
fjörðum.
Högg á
laxa-
markað
Verð á laxi lækkar
vegna veirunnar
Markaður
» „Getur orðið
jóla- og páska-
vertíð með öðru
sniði en verið hef-
ur.“
» „Ég hef þá trú
að matvæli muni
alltaf finna sér leið
inn á markaðinn.“
MLaxaframleiðendur óttast … »14
Samdráttur tekna leyfishafa leigu-
bifreiða af akstri og fjöldi ferða hefur
haldist að öllu jöfnu milli 80 og 90% allt frá
15. mars síðastliðnum. Margir hafa lagt
inn leyfi sín tímabundið. Þann 22. október
sl. voru 100 leyfi leigubifreiða á höfuð-
borgarsvæðinu í tímabundinni innlögn
auk nokkurra sem hafa hætt rekstri. Þá
hefur fjöldi leigubifreiða í umferðinni
minnkað um nær 20%.
Þetta kemur fram í umsögn Bandalags
íslenskra leigubifreiðastjóra um stjórnar-
frumvarpið um tekjufallsstyrki. Þar segir
að leigubílstjórar hafi orðið fyrir miklu
tekjufalli vegna lokana og sóttvarna í
veirufaraldrinum. Þeir hafi þraukað við
þessar aðstæður, haldið uppi þjónustu,
starfað í framlínunni, berskjaldaðir fyrir
smiti, komið sýnum til greiningarstöðva,
ekið sjúklingum og flugfarþegum í
sóttkví. omfr@mbl.is »8
100 leyfi leigubifreiða
hafa verið lögð inn
Þjónusta Margir hafa þurft að breyta leigubíl-
unum með skilrúmum vegna sóttvarna.
Lögreglan á Vesturlandi rannsakar nú
farandsölu á bjór sem eigandi brugghúss-
ins Steðja á samnnefndum bæ í Flókadal í
Borgarfirði stendur fyrir. Fyrirtækið opn-
aði nýlega netverslun þar sem panta má
alls átta gerðir af bjór, þar með talið tvær
tegundir af jólabjór, sem viðskiptavinir fá
sendan heim. Árelíus Dagbjartsson, sem
starfrækir brugghúsið, segir þetta vera
heimilt skv. EES-reglum, samanber að Ís-
lendingar geti keypt áfengi í gegnum er-
lendar netverslanir sem Pósturinn kemur
svo til skila. „Við teljum reglurnar okkar
megin,“ segir Árelíus sem er nú í söluferð
um Austurland.
„Ég get staðfest að þetta mál er til rann-
sóknar hjá embættinu,“ sagði Úlfar Lúð-
víksson, lögreglustjóri á Vesturlandi, í
samtali við Morgunblaðið. »10
Farandsala á bjór til
rannsóknar hjá lögreglu