Morgunblaðið - 27.10.2020, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 27.10.2020, Blaðsíða 14
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Bíldudalur Vænum vestfirskum gæðalaxi pakkað fyrir Evrópumarkað. BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Útgöngubann og aðrarsóttvarnaráðstafanir íEvrópu leiddu til þess aðverð á Atlantshafslaxi lækkaði í síðustu viku. Það er áhyggjuefni fyrir laxeldisfyrirtækin hér og í Noregi nú þegar verðið byrj- ar venjulega að hækka vegna mik- illar eftirspurnar síðustu mánuði árs- ins og fyrstu mánuði nýs árs. Mikil óvissa er því um verðþróun á þessum mikilvægasta sölutíma á eldislaxi. Meðalverð á norskum laxi var rúmar 46 norskar krónur kílóið í 42. viku, samkvæmt vísitölu sem Nas- daq birti fyrir viku. Það samsvarar tæplega 700 íslenskum krónum. Það er heldur lægra verð en verið hefur í þessari viku síðustu ár. Nasdaq hef- ur ekki birt meðalverð fyrir síðustu viku en samkvæmt fréttum norskra fréttamiðla varð snörp verðlækkun í vikunni vegna aukinnar útbreiðslu kórónuveirunnar í Evrópu og að- gerða stjórnvalda gegn henni, meðal annars lokunar veitingastaða og út- göngubanns í nokkrum löndum. Vef- miðillinn iLaks.no hafði samband við nokkra seljendur og kaupendur sl. föstudag og áætlaði út frá því að verðið myndi lækka niður í 37-40 krónur kílóið fyrir lax sem afhentur verður í þessari viku. Er það sagt lægsta verð sem fengist hefur í fimm ár. Ef það gengur eftir samsvarar verðið 550 til 600 krónum íslenskum. Búa sig undir öðruvísi vetur Mikil spurn hefur venjulega verið eftir laxi um jól og páska og í aðdraganda beggja hátíða. Þetta á bæði við um ferskan lax og reyktan. Reyktur lax er til dæmis vinsæll réttur á jólaborðum um alla Evrópu. Verðið er venjulega hæst yfir vetr- armánuðina af þessum ástæðum. Framleiðsla laxeldisfyrirtækj- anna miðast við að fullnægja þessari eftirspurn. Eru því allar sjókvíar fullar af fiski sem er orðinn eða er að verða tilbúinn til slátrunar. Það setur því verulegt strik í reikninginn hjá framleiðendum ef það dregur úr eftirspurn vegna far- aldursins. „Það er viðbúið að verðið verði lágt á meðan Horeca-markaðurinn [veitingahús, mötuneyti og veislu- þjónusta] er í öldudal. Mér sýnist að menn séu almennt að búast við því að verðið verði lágt næstu misserin og þetta geti orðið jóla- og páskavertíð með öðru sniði en verið hefur und- anfarin ár,“ segir Kjartan Ólafsson, stjórnarformaður Arnarlax. Hann bætir því við að miðað við söguna megi búast við því að spurn eftir laxi aukist þegar verðið er lágt. Framleiðendur og laxavinnslur reyna að færa framleiðsluna yfir í til- búna eða frysta rétti fyrir stórmark- aði og frysta eins mikið og hægt er. Þetta er þróun sem tekur tíma. Hann bætir því við að miðað við söguna sé verðteygni þannig að búast megi við því að neysla og eftirspurn aukist þegar verðið er lágt Sigurður Pétursson, fram- kvæmdastjóri hjá Arctic Fish, segir að menn vonist til að verðlækkunin sé tímabundin en tekur fram að eng- inn viti hvernig markaðurinn muni þróast við þessar sérstöku aðstæður. „Ég hef þá trú að matvæli muni alltaf finna sér leið á markaðinn. Menn laga sig að nýjum aðstæðum. Það hefur sýnt sig í þessum faraldri.“ Fiskeldi Austfjarða er í annarri stöðu. Guðmundur Gíslason stjórn- arformaður segir að meirihluti fram- leiðslunnar sé seldur með fyrirfram- gerðum samningum til Whole Foods-verslunarkeðjunnar í Banda- ríkjunum. Hann segir að betra verð fáist og það hjálpi fyrirtækinu í þessu árferði. Laxaframleiðendur óttast um jólavertíðina Heimsmarkaðsverð á laxi 2013-2020 Meðalverð í norskum krónum (NOK/kg) 90 80 70 60 50 40 30 20 Vika 43 Vika 52 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020 Heimild: Vísitala Nasdaq *37-40 NOK/kg skv. áætlun iLaks.no 38,6 53,9 79,2 50,0 39,2 50,6 77,8 ?? 38,5* 14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 2020 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Bankaáfallvarð í kjöl-far „útrás- arinnar“. Djarfur hópur viðskipta- og bankamanna hér notfærði sér út í æsar að um skamma hríð lá ógrynni fjár á lausu í alþjóðlegu fjármálakerfi svo verkefnið virtist vera það helst að koma því út á markað svo það skilaði lánveitendum arði, sem er blóð þeirra og súrefni. Svo óheppi- lega vildi til að um þær mundir hafði íslenska bankakerfið að- eins um skamma hríð fótað sig utan vébanda ríkisforsjár. Fjöldi banka á Vesturlöndum, sumir með aldalanga reynslu, misstu sig með öðrum orðum. Sumir stóðust áhlaupið sem varð, annaðhvort vegna þess að þeir stóðu á fyrningum eða létu ekki glepjast eins illa og aðrir. Seðlabankar, oft með atbeina ríkisvaldsins, völdu sums stað- ar úr „mikilvæga banka“ á með- an aðrir rúlluðu. Almenningur hér tók skilj- anlega þátt í dansinum og gaf óskhyggju sinni lausan taum- inn. Stjórnvöld í landinu, nema Seðlabankinn, töldu ástæðu- laust að efast um fullyrðingar stjórnenda nýju bankanna um að allt væri í góðu lagi. Helstu galgoparnir, sem stigu lánaöld- urnar af mestu kappi, voru þvert á móti hafnir til skýja og vegsamaðir sem „útrásarvík- ingar“ af þeim sem síst skyldi, og taldir hafi komist á meiri fjárfestingarferð en útlendir sem ekki höfðu víkingaeðli í sín- um genum. Allt ýtti þetta á and- varaleysi fólksins og í fram- haldi undir skiljanleg vonbrigði þess, reiði og spurningar um réttlæti og hefnd. Þeirri för var að hluta stýrt og hún kostuð af þeim sem síst skyldi. Og þeir stjórnmálamenn sem ákafast höfðu ýtt undir gagnrýnisleysi og kröfur um að hvergi mætti hemja taumleysið skolaði inn í ríkisstjórn á öldufaldi „búsá- haldabyltingar“. Á daginn kom að hin „hreina vinstristjórn,“ sem réttlát reiði ýtti í valdastóla með vel skipu- lögðum áróðri, taldi einstakt tækifæri hafa runnið upp fyrir sig. Í öðrum ríkjum var hávaða- laust tekið til við að rétta skút- ur af. Hér voru áróður, hefnd og öfugsnúnar sakbendingar settar í öndvegi. Einstakt tæki- færi væri til að kollvarpa þjóð- félaginu og skófla þjóðinni óviljugri inn í ESB. Því var glórulaust logið upp að stjórn- arskráin hefði eitthvað haft með bankaáfall að gera hér á landi. Engin önnur þjóð bland- aði sinni stjórnarskrá í það þeg- ar kúrsinn var réttur af eftir bankahrunið. Allur þessi gaura- gangur, sem Ríkisútvarpið tók fullan þátt í, laskaði stjórn- málastarfsemi í landinu og enn sem komið er virð- ist það varanlegt. Furðuflokkar kom- ust til áhrifa t.d. í borgarstjórn (og gufuðu svo upp) og hófu skuldasöfnun sem enn stendur. Og í þinginu, án þess þó að hafa nokkur raun- veruleg áhrif. Mest áhrif hafði einn delluflokkur þingsins þeg- ar hann setti heimsmet í 15 metra hlaupi þann 20. október sl. Fram að þessu hefur ekki verið viðurkennt hver voru markmið „búsáhaldabyltingar“ og óstjórnarinnar í kjölfarið. Atburðarásin talar þó sínu máli. Um helgina í þættinum Sprengisandi var ásamt öðrum góðkunnur lögmaður, Ragnar Aðalsteinsson, sem aldrei leynir því hvar hans pólitíska hjarta slær. Hann var að út- skýra hvernig staðið væri að breytingum á stjórnarskrá hér að fyrirmælum hennar sjálfrar sem svipar til þess sem tíðkast í öðrum lýðræðisríkjum. En Ragnar afgreiddi þá aðferð sem ónýta! og sagði svo: „Nú ef það gengur ekki og ef þjóðin er áköf um að ná til sín þessu valdi, sem hún hefur eðli málsins sam- kvæmt, þá verður hún að taka völdin. Það hefði kannski verið hugsanlegt eftir hrunið, að fólk hefði sent þingið og stjórnina heim og stofnað til bráða- birgðastjórnar, sem hefði haft það hlutverk að búa til stjórn- lagaþing og semja nýja stjórn- arskrá“. Kristján Kristjánsson (stjórnandi) hváði, svo sem von- legt var: „Ég skil nú ekki alveg hvert þú ert kominn núna! Þjóðin hefði sent þingið heim… hvernig hefði…? Ég er að velta fyrir hvernig þetta hefði bara gerst?“ Ragnar: „Það hefði bara ver- ið með einföldum… Þetta gerist í heiminum á hverjum degi.“ Björg (lagaprófessor): „Það eru byltingar sem að gerast.“ Kristján: „Já, já, ég veit. Ég kann orðið bylting en ég ímynda mér ekki að það sé mál- ið.“ Ragnar: „Það er valdarán. Það þarf ekki að vera að sjálf- sögðu neitt blóðugt eða ofbeldi fólgið í því.“ Kristján: „Nei nei, en þú ert sem sagt að tala um það?“ Ragnar: „Ég er að tala um það, já. Það var viss staða, sem kom upp [eftir bankahrunið] sem hefði getað leitt til þess- arar niðurstöðu, en það voru engir til þess að leiða slíkt á þeim tíma.“ Það munaði satt besta að segja mjög litlu að hið fámenna íslenska lögreglulið næði að bjarga því sem bjarga mátti. Og mikið vantar upp á að íslensk stjórnvöld hafi sýnt það síðan að þau meti þær fórnir að verð- leikum. „Fólkið“ setur þingið til hliðar og skipar bráðabirgða- stjórn...} Mikil ólíkindi V ið í Flokki fólksins höfum þungar áhyggjur af efnahagslegum af- leiðingum kórónuveirufaraldurs- ins fyrir heimilin og fólkið í land- inu. Við viljum að Alþingi geri tafarlausar ráðstafanir með lagasetningu til að vinna gegn því tjóni sem vafalaust hlýst af því þegar verðbólgan vex með tilheyrandi hækkun á verðtryggð lán heimilanna. Það er ástand sem við þekkjum því miður allt of vel. Við skulum átta okkur á því að allar for- sendur á verðbólguskoti eru nú þegar fyrir hendi. Lántakar mega búast við því að höfuð- stóll lána þeirra hækki umtalsvert með litlum fyrirvara eins og í kjölfar efnahagshrunsins ár- ið 2008. Þá ruku skuldir heimilanna skyndilega upp vegna verðbólguskots. Þúsundir misstu heimili sín. Kórónuveirufaraldurinn dregst á langinn. Við horfum fram á mesta efnahagssamdrátt í heila öld, hrun gjaldeyr- istekna og atvinnuleysi aldrei meira.Við verðum að und- irbúa okkur betur fyrir það sem fram undan er. Nú eru vextir lágir og það er boðið upp á endurfjár- mögnun hjá lánafyrirtækjum með töku óverðtryggðra lána. Þó munu fjölmargir ekki geta breytt skuldum sínum með endurfjármögnun vegna atvinnumissis eða annarra ástæðna. Þeir sem skulda verðtryggð lán eru berskjald- aðir. Við megum ekki skilja þetta fólk eftir varnarlaust. Nauðsynlegt er að vernda heimilin fyrir hörðustu áhrifum verðbólguskots. Skelfingar hrunsins 2008 mega aldrei endurtaka sig. Verðtryggð húsnæðislán taka mið af mánaðarlegum breytingum á vísitölu neysluverðs. Við í Flokki fólksins höfum nú lagt fram frumvarp á Alþingi (mál. nr. 38) um að þak verði sett á neysluvísi- töluna sem komi í veg fyrir áhrif verðbólguskots á höfuðstól verðtryggðra lána á næstu 12 mán- uðum. Þannig væri strax hægt að tryggja heim- ili landsins fyrir óvæntu verðbólguskoti á erf- iðum tímum. Jafnframt leggjum við til að verðtrygging húsnæðislána verði alfarið afnumin. Enda hefur hún valdið óbætanlegu tjóni í þjóðfélagi sem býr við sveiflukenndan gjaldmiðil sem krónan okkar er. Það er því nauðsynlegt að leggja bann við töku verðtryggðra húsnæðislána svo heimilum landsins verði ekki kastað á verðbólgubál í hvert sinn sem kreppir að í þjóðarbúskapnum. Þar sem ekki er hægt að afnema verðtryggingu af gild- andi lánum er nauðsynlegt að þeir sem það kjósa fái heim- ild til að endurfjármagna sig inn í nýtt kerfi. Einnig er brýnt að niðurstöður lánshæfis- og greiðslumats standi ekki í vegi fyrir því að skuldari geti breytt verðtryggðu húsnæðisláni sínu í óverðtryggt lán. Til að liðka fyrir end- urfjármögnun leggjum við í Flokki fólksins til að ekki þurfi að fara fram lánshæfis- og greiðslumat þegar neyt- andi skiptir út eldra verðtryggðu fasteignaláni fyrir óverð- tryggt lán. Það er skylda stjórnvalda að sjá til þess að heimilum landsmanna verði ekki kastað á verðbólgubálið eins og í kjölfar efnahagshrunsins 2008. Inga Sæland Pistill Forðum heimilunum í skjól Höfundur er alþingismaður og formaður Flokks fólksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.