Morgunblaðið - 27.10.2020, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 2020
Lækjargata 34a / 220 Hafnarfjörður
Við erum hér til að aðstoða þig! --
• Sérsmíðaðir skór
• Skóbreytingar
• Göngugreiningar
• Innleggjasmíði
• Skóviðgerðir
Erum með samning við
sjúkratryggingar Íslands
Tímapantanir í síma 533 1314
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Ósáttur við viðbrögð landlæknis
83 smit nú rakin til hópsmitsins á Landakoti Aðstoðarmaður landlæknis segir að lögregla verði að
svara fyrir hvort komi til sakamálarannsóknar líkt og vegna smits um borð í Júlíusi Geirmundssyni
Oddur Þórðarson
Freyr Bjarnason
Már Kristjánsson, yfirlæknir á
smitsjúkdómadeild Landspítalans,
segist vera ósáttur við þá fregn
landlæknis að smit sem kom upp á
Landakotsspítala sé atvik sem þurfi
að rannsaka. Rúmlega áttatíu kór-
ónuveirusmit eru rakin til smitsins
sem upp kom á Landakoti og starf-
ar Landspítalinn nú á neyðarstigi.
Már segir álagið mikið. Kjartan
Hreinn Njálsson, aðstoðarmaður
landlæknis, sagði í samtali við
mbl.is í gær, að hópsmitið yrði
mögulega tilkynnt sem alvarlegt at-
vik og yrði það þá rannsakað sem
slíkt. Lögregla
rannsakar nú
mál sem upp kom
vegna smits um
borð í Júlíusi
Geirmundssyni.
Spurður út í mál-
in tvö segir
Kjartan að hann
telji þau ekki
vera sambærileg
og bendir á að lögregla verði að
svara fyrir það. Hvorki náðist í Víði
Reynisson yfirlögregluþjón né Sig-
ríði Björk Guðjónsdóttur ríkislög-
reglustjóra við vinnslu fréttarinnar.
Páll Matthíasson, forstjóri Land-
spítalans, sagði hins vegar í Kast-
ljósi í gær að ekki væri útlit fyrir að
misbrestur í starfsemi Landakots-
spítala hafi gert það að verkum að
hópsmitið kom upp.
„Ég er mjög óánægður með fregn
sem borist hefur frá landlækni um
að þetta sé atvik sem þurfi að rann-
saka. Það gengur alveg gegn því
sem sagt hefur verið um samstöðu í
baráttunni við þennan faraldur. Á
farsóttartímum er mikilvægast að
rekja smit – rakning er ígildi rann-
sóknar og rakning er tólið sem við
höfum til að finna út hvað er á
seyði,“ segir Már í samtali við
Morgunblaðið.
Hann segir einnig að ekki sé útlit
fyrir að um neitt glæpsamlegt hafi
verið að ræða eða þá að nokkur
misbrestur hafi endilega orðið í
starfsemi Landakotsspítala.
„Við verðum að geta talað sam-
an,“ segir Már um mismunandi
stofnanir og embætti innan heil-
brigðisgeirans. „Við erum í rauninni
að reyna að rekja smitið eftir bestu
getu en ekki að áfellast hvert ann-
að. Starfsmenn, sjúklingar og að-
standendur þeirra þurfa ekki á
þessum tímapunkti að heyra af því
að það sé verið að rannsaka þá eða
að gefa í skyn einhverja vanrækslu
af þeirra hálfu.“
Már segir þó sjálfsagt að skoða
upptök hópsmitsins til þess að koma
megi í veg fyrir að svona hendi aft-
ur. Það sé þó ekkert tilefni til þess
að tilkynna um þetta atvik neitt sér-
staklega, hvað þá að það leiði á end-
anum til kæru eða einhvers slíks.
Morgunblaðið/Golli
Hópsmit Nú eru 83 kórónuveiru-
smit rakin til Landakotsspítala.
Már Kristjánsson
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Fyrsta daginn sem Dýrafjarðargöng
voru opin fyrir almenna umferð, síð-
astliðinn sunnudag, fóru 827 öku-
tæki um þau, samkvæmt teljara
Vegagerðarinnar. Átt er við ferðir
því öruggt má telja að margir hafi
farið fram og til baka og jafnvel oft-
ar en það.
Samsvarar þessi umferð fimm til
sex sinnum daglegri meðalumferð
um Hrafnseyrarheiði, fjallveginn
sem göngin leysa af hólmi.
Dýrafjarðargöng voru opnuð við
athöfn sl. sunnudag. Friðleifur Ingi
Brynjarsson, verkefnastjóri í um-
ferðardeild Vegagerðarinnar, segir
að búast megi við því að margir hafi
farið um göngin á sunnudag fyrir
forvitni sakir. Jafnvægi komist ekki
á fyrr en eftir einhverja daga og
jafnvel vikur og þá sé hægt að meta
áhrif þeirra á umferð.
Eykst umferð á suðurleið?
Telur Friðleifur Ingi fróðlegt að
fylgjast með því hvort tilkoma gang-
anna dragi úr umferð um þjóðveginn
um Ísafjarðardjúp, það er að segja
hvort íbúar á norðanverðum Vest-
fjörðum velji frekar suðurleiðina en
norðurleiðina þegar þeir fara til
Reykjavíkur. Tíminn verði að leiða
það í ljós.
Reiknað frá Ísafirði voru vega-
lengdir á norður- og suðurleið svip-
aðar áður en göngin voru opnuð en
menn fóru meira norðurleiðina því
hún er greiðfærari allt árið. Suð-
urleiðin styttist um 27 km með til-
komu Dýrafjarðarganga og er sú
leið nú um 420 kílómetrar en Djúp-
leiðin 455 kílómetrar, reiknað frá
Ísafirði. Þess ber að geta að veg-
urinn um Dynjandisheiði hefur ekki
verið endurnýjaður og enn er eftir
að leggja nýjan veg um Gufudals-
sveit. Enn eru því malarkaflar og
erfiðir fjallvegir á þeirri leið og
Djúpleiðin því greiðfærari, að
minnsta kosti á vetrum.
Prófa Dýrafjarðargöngin
827 ökutæki fóru um göngin fyrsta daginn Sum oft
Ljósmynd/Framkv.eftirlit Dýrafjarðarganga
Dýrafjörður Beinn og breiður vegur
liggur frá göngunum og út með firði.
Lögreglan á Vestfjörðum rann-
sakar nú mál skipverjanna sem
veiktust af kórónuveirunni á frysti-
togaranum Júlíusi Geirmundssyni
sem sakamál. Þetta staðfesti Karl
Ingi Vilbergsson lögreglustjóri í
samtali við mbl.is í gær. Í kafla
refsilaga um sjómannalög segir að
alvarleg brot geti varðað við-
urlögum allt að fjögurra ára fang-
elsi.
„Það verður haft samband við þá
[skipverjana] símleiðis enda eru
menn í sóttkví. Svo sjáum við til
hvert það leiðir okkur,“ segir Karl.
Hraðfrystihúsið Gunnvör hefur
beðist afsökunar á málinu. „Þetta
eru bara mistök af okkar hálfu og
við erum að biðjast velvirðingar á
þeim, innilega. Það er enginn af-
sláttur af því. Okkur þykir þetta
mjög miður; ömurlegt alveg. Þetta
sagði Einar Valur Kristjánsson,
framkvæmdastjóri HG, í samtali
við mbl.is á sunnudag.
Rannsókn
hófst í gær
Ræða við skipverja
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Covid-19 Júlíus Geirmundsson.
Hópur fólks kom saman við pólska sendiráðið í
gærkvöldi og mótmælti lögum um þungunarrof
sem tóku gildi í Póllandi í síðustu viku. Ströng
skilyrði hafa gilt fyrir þungunarrofi þar í landi
og voru þau hert enn frekar með lögunum. „Sem
brottfluttum Pólverjum þykir okkur mjög leitt
að geta ekki mótmælt með samlöndum okkar
gegn því helvíti sem konum er gert að búa við,“
sagði meðal annars í yfirskrift mótmælanna.
Mótmæltu við pólska sendiráðið
Morgunblaðið/Árni Sæberg