Morgunblaðið - 27.10.2020, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 2020
Joe Biden hefur verið dálítið fasturí því að hann sé enn í framboði til
öldungadeildarinnar í Bandaríkj-
unum.
Í prófkjörsbarátt-unni í sínum
flokki tilkynnti hann
skörulega, að hann
væri Joe Biden og
hann byði sig hér
með fram til sætis í
öldungadeildinni.
Fyrir fáeinum vik-um, og þá löngu
orðinn forsetafram-
bjóðandi, endurtók
hann þessa fullyrðingu sína.
Í gær sagði hann á kosningafundiað kjósendur yrðu að gera sér
grein fyrir því hvaða afleiðingar
„fjögur ár í viðbót með George sem
forseta“ gætu haft fyrir þá. Hann
hikaði að vísu í framhaldinu, en fann
ekkert skárra og endurtók því þetta
með hættuna af George.
Frúin hvíslaði í eyra hans og þásagðist Biden hafa átt við
Trump.
Menn gátu sér til um að Bidenhefði orðið hugsað til George
W. Bush, en hann lét af starfi forseta
fyrir tæpum tólf árum og var Biden
þá einmitt að hætta í öldungadeild-
inni.
En aðrir töldu jafnlíklegt að Bidenætti við George H.W. Bush enda
einungis tæp 28 ár síðan sá fór úr
Hvíta húsinu.
Flestir útilokuðu að Biden hugn-uðust illa fjögur ár í viðbót með
George Washington enda hann löngu
hættur þegar Biden tók að berjast
fyrir öldungadeildarsætinu fyrst.
Joe Biden
Nóg komið, George
STAKSTEINAR
George Bush
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Leigubifreiðastjórar hafa orðið fyrir
miklu tekjufalli vegna lokana og
annarra sóttvarnaaðgerða. „Leyfis-
hafar leigubifreiða hafa þraukað við
aðstæður samdráttar og takmark-
ana og haldið uppi þjónustunni við
samfélagið, starfað í framlínunni, út-
settir fyrir smiti og þjónað mikil-
vægu starfi, svo sem að koma sýnum
til greiningarstöðva og aka með
sjúklinga og flugfarþega í sóttkví,
auk almenns aksturs. Þeim hefur
verið gert að breyta bifreiðum sínum
með skilrúmum og öðrum tilfallandi
kostnaði vegna sóttvarna.“ Þetta
segir í nýrri umsögn Bandalags ís-
lenskra leigubifreiðastjóra (BÍLS)
við stjórnarfrumvarp um tekjufalls-
styrki, sem er til umfjöllunar í efna-
hags- og viðskiptanefnd Alþingis.
Fram kemur að 22. október sl.
voru 100 leyfi leigubifreiða á höfuð-
borgarsvæðinu í tímabundinni inn-
lögn, auk nokkurra sem hafa hætt
rekstri.
Daníel Orri Einarsson, formaður
BÍLS, segir einnig í umsögninni að
fjöldi leigubifreiða í umferð hafi
minnkað um nær 20% og þeir sem
áfram starfa séu enn þá langt undir
þeim tekjumörkum að geta staðið
bæði undir rekstrarkostnaði og
launum.
Bandalagið óskar eftir því að tekið
sé tillit til leigubílstjóra og að þeir
falli undir skilyrðin til að geta notið
tekjufallsstyrkjanna. Fram kemur
að leyfishöfum hefur verið boðið upp
á frystingu bifreiðalána af hálfu
lánafyrirtækja, ,,en hins vegar hefur
þeim gengið misjafnlega að semja
við tryggingafélögin. Samdrátturinn
hefur haldist að öllu jöfnu milli 80 og
90 prósent frá 15. mars á þessu ári,
þá er bæði átt við tekjur af akstri og
fjölda ferða sem til falla. Margir
leyfishafar hafa lagt inn leyfi sín
tímabundið, þeir sem hafa haft þann
möguleika á eða þeir sem hafa ekki
átt annarra kosta völ en að draga úr
kostnaði,“ segir í umsögninni.
omfr@mbl.is
Samdrátturinn hef-
ur haldist 80-90%
Nær 20 prósent
fækkun leigubifreiða
í umferð frá í vor
Morgunblaðið/Jim Smart
Leigubíll Margir hafa lagt inn leyfi sín
tímabundið til að draga úr kostnaði.
Karlmaður á þrítugsaldri var á
föstudag dæmdur í fjögurra ára
fangelsi í Landsrétti fyrir stórfellda
líkamsárás. Hann hafði áður áfrýjað
dómi Héraðsdóms Suðurlands sem
dæmdi hann í sex ára fangelsi. Einn-
ig þarf maðurinn að greiða brotaþola
tvær milljónir króna.
Maðurinn, Hafsteinn Oddsson,
hafði áður fengið dóm vegna tilrauna
til ráns og fyrir brot gegn umferðar-
lögum sem hann hlaut sex mánaða
skilorðsbundinn dóm fyrir. Að því
gættu dæmdi Landsréttur hina fyrri
refsingu með í þennan dóm.
Í útdrætti dómsorðs kemur fram
að Hafsteinn hafi veist að konu með
ítrekuðum spörkum í andlit og búk.
Þá klæddi hann konuna úr öllum föt-
unum áður en hann yfirgaf hana þar
sem hún lá í götunni, mikið slösuð,
nakin og án bjargar.
Árið 2018 höfðu þrjár ljósmyndir
verið lagðar fram sem gögn í málinu.
Síðar fékk matsmaður aðgang að 19
myndum til viðbótar. Hafsteinn
krafðist þess að dómur Landsréttar
yrði gerður ómerkur og að málinu
yrði vísað aftur til héraðs til löglegr-
ar meðferðar. Hann segir það hafa
brotið gegn jafnræði málsaðila og
komið niður á vörnum sínum að dóm-
ari hafi hlutast til um að leggja fram
ný gögn í málinu við aðalmeðferð
þess.
Fékk fjögurra ára dóm fyrir líkamsárás
Réðst á konu og skildi hana eftir í
götunni mikið slasaða og bjargarlausa
Morgunblaðið/Hanna
Landsréttur Mildaði dóm héraðs-
dóms úr sex árum í fjögur.