Morgunblaðið - 27.10.2020, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 2020
HVER restaurant á Hótel Örk
er fyrsta flokks veitingastaður,
fullkominn fyrir notalegar
gæðastundir með vinum,
fjölskyldu eða vinnufélögum.
GIRNILEGUR
OG SPENNANDI
MATSEÐILL
Pantaðu borð í síma 483 4700 | www.hverrestaurant.is
Líney Sigurðardóttir
Þórshöfn
„Þetta hefur verið einstaklega góð
vertíð og gengið mjög vel allan tím-
ann,“ sagði Siggeir Stefánsson, fram-
leiðslustjóri hjá Ísfélagi Vest-
mannaeyja á Þórshöfn, þegar
Sigurður VE sigldi í höfn í góðu veðri
með síðasta síldarfarminn. „Þetta er
líklega mesta magn sem fryst hefur
verið á sumar- og haustvertíð hjá
okkur hingað til.“
Skip Ísfélagsins, Heimaey og Sig-
urður, hafa komið í land með há-
gæðasíld á vertíðinni en þessi öflugu
skip fara einstaklega vel með aflann
sem gerir það að verkum að hægt er
að vinna hágæðavöru úr síldinni.
Frystingu síðasta farmsins lauk
um helgina og mannskapurinn getur
slakað aðeins á eftir mikla og góða
vinnutörn í sumar og haust.
Samfelld vinna
„Það hefur verið nánast samfelld
vinna frá upphafi vertíðar,“ sagði
Siggeir, „makrílfrysting hófst í júlí-
lok en síldin tók svo við í byrjun sept-
ember og unnið hefur verið á vöktum
allan sólarhringinn. Það má eiginlega
segja að allt hafi hjálpast að til að
gera þessa síldarvertíð framúrskar-
andi; góð síld, góð veiði og meira að
segja gott veður. Einnig munar
miklu að stutt sigling er á miðin, hér
rétt austan við okkur, það er aðeins
um átta tíma sigling á miðin.“
Makrílvertíðin var aftur á móti
mun snúnari því mestallur makríll-
inn veiddist í síldarsmugunni en
þangað er yfir 30 klukkustunda stím.
Eins var makríllinn ekki í góðu
ástandi hluta af vertíðinni.
Nægur mannskapur var til staðar
fyrir þessa miklu vinnu, ekki óvænt-
ar uppákomur og engin kórónuveiru-
smit hafa greinst. Siggeir sagði að
vissulega hefðu menn verið í sífelldri
viðbragðsstöðu hjá Ísfélaginu, meiri
og harðari umgengnisreglur og þrif
því það hefði verið stórmál ef vinnsla
hefði lamast vegna smits á hávertíð-
inni.
„Hér höfum við verið heppin en
allt starfsfólk hefur tekið saman
höndum af mikilli ábyrgð og því hef-
ur vertíðin gengið áfallalaust, það
ber að þakka,“ sagði Siggeir og ber
starfsfólki Ísfélagsins vel söguna.
Síldin er ýmist heilfryst, flökuð án
roðs eða unnin í bita eða svokallaða
flapsa, þar sem flökin eru ekki alveg
aðskilin heldur hanga saman á roð-
inu. Róbótar eru einnig í vinnslusaln-
um og létta erfiði af mannskapnum,
líkt og aðrar framfarir í tækni og
búnaði hjá félaginu.
Vinnslu þessa síðasta afla síldar-
farms lauk sl. laugardag en þá tóku
við þrif og frágangur og vinnsla bol-
fisks hefst að því loknu. Um 3.000
tonn bíða nú í frystigeymslu Ís-
félagsins en flutningaskip er vænt-
anlegt.
Í vertíðarlok hefur Ísfélagið haldið
lokahóf fyrir starfsfólkið og alla aðra
sem að hafa komið á einhvern hátt en
aðstæður núna bjóða ekki upp á það
að réttlætanlegt sé að stefna stórum
hópi fólks saman. Reynt var þó að
gera starfsfólki glaðan dag eftir
föngum og bauð Ísfélagið upp á
pítsuhlaðborð fyrir bæði dag- og
næturvakt í kaffistofunni en aldrei
eru allir þar í einu. Eftirrétturinn
verður svo í boði síðasta sólarhring-
inn því vegleg terta bíður starfsfólks
í kaffistofunni. „Það verður svo von-
andi hægt að gera sér glaðan dag síð-
ar og halda upp á góða vertíð,“ sagði
Siggeir Stefánsson framleiðslustjóri
eftir langa og góða vinnutörn.
Dýpkunarframkvæmdir standa nú
yfir í höfninni en byrjað var í júlílok á
sandhreinsun hafnar. Innsigling-
arrennan verður dýpkuð niður í 9,5
metra í þessum áfanga en mikil þörf
er á að innri hluti hafnar verði einnig
tekinn í sömu dýpt. Umsvif aukast
stöðugt í höfninni og skipin stækka,
sem kallar á meira rými að öllu leyti
ásamt stækkun viðlegukanta.
Besta vertíð í áratugi
Mesta magn sem fryst hefur verið á sumar- og haust-
vertíð hjá Ísfélaginu á Þórshöfn Góð síld og góð veiði
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Vinnutörn lokið Samhentur hópur starfsmanna Ísfélagsins á Þórshöfn.
Gengið vel Vertíðin gekk einstak-
lega vel, segir Siggeir Stefánsson.
„Við teljum reglurnar okkar megin
og viðtökurnar eru góðar. Pantanir
berast víða að,“ segir Dagbjartur
Árelíusson hjá brugghúsinu Steðja í
Borgarfirði. Fyrirtækið opnaði vef-
verslun á dögunum þar sem hægt er
að kaupa alls átta tegundir af bjór úr
framleiðslu Steðja. Varan er svo
keyrð heim til viðskiptavina og þar
er landið undir. Í gær var Dag-
bjartur austur á landi að dreifa
vörum – og hafði þá áður farið víða í
sama skyni um Norðurland.
Skv. lögum hefur ÁTVR, öðru
nafni Vínbúðin, einkaleyfi á smásölu
áfengis á Íslandi. Þetta telur Dag-
bjartur ekki standast lengur með
vísan til EES-samningsins. Í krafti
hans geti Íslendingar til dæmis
pantað og keypt áfengi frá útlöndum
og fengið sent heim með pósti. Hið
sama hljóti því að gilda á innan-
landsmarkaði, sbr. jafnræðisreglur.
„Við erum líka ósátt við hvernig
ÁTVR sinnir okkur einyrkjunum
sem framleiðum bjór. Á þessu hausti
erum við með tvær tegundir af jóla-
bjór, Almáttugan og Haleljúa, sem
aðeins verða seldar í tveimur versl-
unum Vínbúðarinnar. Því varð að
gera skurk í sölumálum og fara í
þessa útrás, sem ég tel löglega og
rétta og held ótrauður áfram,“ segir
Dagbjartur.
ÁTVR aðhefst ekki
Í samtali við Morgunblaðið sagð-
ist Sigrún Ósk Sigurðardóttir, að-
stoðarforstjóri ÁTVR, líta svo á að
farandsala Steðja á bjór væri skýrt
lögbrot. Einkaleyfið sem ríkið hefði
til smásölu á áfengi væri alveg skýrt.
Fyrirtækið myndi þó ekki aðhafast
neitt í málinu, slíkt væri hlutverk
lögreglu og löggjafans.
Fer um landið og
selur eigin bjór
Dagbjartur í
Steðja telur EES-
reglurnar gilda
Skál! Dagbjartur Árelíusson með
Steðja-bjórinn á leið til kaupenda.
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Þing Norðurlandaráðs sem nú
stendur yfir er mjög óvenjulegt og
fer eingöngu fram á fjarfundum í
fyrsta skipti í sögu Norðurlandaráðs
að sögn Silju Daggar Gunnars-
dóttur, forseta Norðurlandaráðs.
Ástæðan er vitaskuld faraldur kór-
ónuveirunnar en
upphaflega stóð
til að þingið yrði
haldið í Hörpu.
Þrátt fyrir að
þingið verði mun
umfangsminna
nú vegna farald-
ursins má þó
reikna með að á
þriðja hundrað
manns, þing-
menn, ráðherrar,
alþjóðlegir gestir auk starfsfólks,
komi að því með einum eða öðrum
hætti.
Tvö stór mál standa upp úr á fund-
um þingsins; samfélagsöryggi og
kórónuveirukreppan, afleiðingar
hennar og viðbrögð. Rætt verður
hvernig Norðurlöndin ætla að vinna
saman í faraldrinum, hvað læra megi
af reynslunni og fjallað um mótun
stefnu til framtíðar að sögn hennar.
Þurfa að vinna betur saman
Í dag verður haldinn opinn staf-
rænn umræðufundur leiðtoga Norð-
urlandanna undir yfirskriftinni „CO-
VID-19 í norrænu og alþjóðlegu
ljósi“. Mun Antonio Guterres, aðal-
ritari Sameinuðu þjóðanna, taka þátt
í fundinum ásamt öllum forsætisráð-
herrum Norðurlandanna, oddvitum
landsstjórnanna og þingmönnum
Norðurlandaráðs. Þar á að ræða
hvaða áhrif faraldurinn hefur haft á
norrænt samstarf, hvað hægt er að
gera til að tryggja öflugra samstarf
næst þegar á reynir og hvernig far-
aldurinn lítur út í alþjóðlegu ljósi.
Í dag fara einnig fram sérfundir
forsætisnefndar ráðsins með öllum
forsætisráðherrum Norðurlandanna
og fundir með utanríkisráðherrum,
varnarmálaráðherrum og ráðherr-
um almannavarna.
,,Það er alveg klárt að við þurfum
að vinna miklu betur saman,“ segir
Silja Dögg og bætir við að samráð
hafi skort meðal norrænu ríkjanna
þegar veirufaraldurinn skall á. Mikil
áhersla verði lögð á að bæta úr því.
Skýrslan sem Björn Bjarnason,
fyrrverandi ráðherra, vann fyrir
norrænu ráðherranefndina með til-
lögum um þróun samstarfs Norður-
landanna á sviði utanríkis- og örygg-
ismála verður til umfjöllunar á
þinginu og segir Silja Dögg að hún sé
góð undirstaða í þeirri vinnu sem
fram undan er.
Verðlaunahátíð í beinni
Í kvöld fer fram verðlaunahátíð
Norðurlandaráðs 2020 þegar afhent
verða verðlaun í fimm flokkum. Rík-
issjónvarpið verður með útsendingu
frá verðlaunaafhendingunni og hefur
undirbúið hana mjög vel að sögn
Silju Daggar. Verðlaunaafhendingin
verður í beinni útsendingu og sýnd á
sama tíma á öllum Norðurlöndunum.
AFP
Tekur þátt Antonio Guterres, að-
alritari SÞ ávarpar fundinn í dag.
Vilja efla samstöð-
una í faraldrinum
Þing Norðurlandaráðs allt á fjar-
fundum Funda með aðalritara SÞ
Silja Dögg
Gunnarsdóttir