Morgunblaðið - 27.10.2020, Síða 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 2020
Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666
., '*-�-��,�rKu�,
KIEL/ - OG FRYSTITJEKI
Iðnaðareiningar
í miklu úrvali
BAKSVIÐ
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Bann sænskra stjórnvalda í liðinni
viku við notkun tækjabúnaðar frá kín-
versku fyrirtækjunum Huawei og
ZTE í 5G-kerfum landsins hefur vak-
ið mikla athygli, enda gengu Svíar
töluvert lengra en flest ríki önnur og
sendu Kínverjum tóninn fyrir njósnir
og hugverkastuld í leiðinni.
„Bannið kom
okkur í opna
skjöldu,“ segir
Kenneth Fredrik-
sen, norskur um-
dæmisstjóri Hua-
wei á Norður-
löndum og
Austur-Evrópu í
samtali við Morg-
unblaðið. „Þessi
ákvörðun mun
koma harðast niður á Svíum sjálfum
og mun bæði tefja innleiðingu 5G-
kerfisins þar verulega og gera hana
töluvert dýrari.“
Hann segir að viðræður við sænsk
stjórnvöld hafi gefið til kynna að þar
yrði opin og sanngjörn samkeppni
höfð í fyrirrúmi, líkt og góð norræn
venja stæði til, án þess að í nokkru
væri slakað á öryggiskröfum. „Það
var allt á réttri leið, þegar málið varð
allt í einu pólitískt.“
Hefur það áhrif á umsvif Huawei
utan Svíþjóðar?
„Við höfum starfað í Svíþjóð í 20 ár
án þess að nokkuð hafi komið upp
hvað öryggi áhrærir. Ekki frekar en
annars staðar í heiminum.“
En á Íslandi?
„Líkt og í Svíþjóð hefur Huawei
lagt mikið af mörkum til uppbygging-
ar stafrænna fjarskipta undanfarin
10-20 ár, sem hefur gert landið sam-
keppnisfærara, enda eru þau lykillinn
að hagvexti til framtíðar.
Ég sé ekki betur en að Íslendingar
ætli að einbeita sér að því og viðhalda
opinni og sanngjarnri samkeppni.
Þau lönd sem láta stjórnmálin ráða í
tæknimálum munu líða fyrir það til
langs tíma litið.“
Heldurðu að Svíar hafi verið að
gæta hagsmuna Ericsson?
„Nei, það held ég ekki. Forstjóri
Ericsson galt varhug við þessari
ákvörðun, ekki aðeins vegna þess
hvernig hún var tekin, heldur vegna
þess að ef menn hafa ekki aðgang að
nýjustu og bestu tækni, þá munu
menn tapa samkeppnislegri yfirsýn.
Ekki gleyma því að Svíar voru þjóða
fyrstir til að tileinka sér 4G og það
skilaði sér í gríðarlegum árangri
sænskra fyrirtækja á alþjóðavett-
vangi. En ef þeir ætla núna að útiloka
samstarf við kínversk fyrirtæki á
þessu nýja sviði, þá eru þeir líka að
neita sér um að vera fyrstir á markað.
Það á við um alla markaði, stóra og
smáa. Þeir sem nota nýjustu tækni
við fyrstu hentugleika hafa forskot.“
Áttu von á breytingum ef nýr for-
seti kemur senn í Hvíta húsið?
„Það er ekki mitt að leggja dóm á
pólitíkina, en satt best að segja held
ég að það sé heiminum fyrir bestu að
aðskilja stjórnmál og tækni.“
Sum Evrópuríki eru á öðru máli...
„Mér finnst það segja mikla sögu
hvað viðskiptavinir okkar eru áfram
um að halda áfram samstarfinu við
Huawei. Þeir vita best hvernig við
höfum reynst undanfarinn áratug og
að ekkert ríki hefur fundið að tækja-
búnaði okkar. Við munum áfram upp-
fylla ströngustu öryggiskröfur, leyfa
prófanir á tækjabúnaði okkar og
kóða. En pólitísk afskipti eyða engum
öryggisáhyggjum.“
Hvað með þróunina á Íslandi?
„Ísland er raunar mjög gott dæmi.
Huawei gerir ekki greinarmun á við-
skiptavinum eða mörkuðum eftir
stærð. Við höfum átt frábært sam-
starf við bæði Vodafone og Nova, al-
veg síðan 3G var nýjasta nýtt, og höf-
um haldið áfram að koma tækni-
nýjungum í gagnið hratt og örugg-
lega, án nokkurra öryggisvandamála.
Íslendingar hafa verið mjög nýjunga-
gjarnir, enda er samkeppni á íslensk-
um farsímamarkaði ein sú mesta í
Evrópu. Við erum nú þegar byrjaðir
að setja upp 5G búnað á Íslandi og
það mun ekki standa á okkur við að
innleiða öruggustu og bestu 5G-
tæknina.“
Pólitísk afskipti eyða
engum öryggisáhyggjum
Bann Sænsk stjórnvöld hafa bannað Huawei að koma að uppbyggingu 5G.
Kenneth Fredriksen, umdæmisstjóri Huawei á Norðurlöndum, í viðtali
Kenneth
Fredriksen
38,2 milljónum dollara eða samsvar-
andi öllum hagnaði tímabilsins.
Eignir félagsins eru metnar á
1.138 milljónir dollara, jafnvirði
tæplega 160 milljarða króna, í lok
fórðungsins. Höfðu þær lækkað um
32% frá áramótum. Skuldir stóðu í
845 milljónum dollara, jafnvirði
118,5 milljarða króna. Höfðu þær
lækkað um 29,3% frá áramótum.
Eigið fé félagsins stóð í 293 millj-
ónum dollara, jafnvirði 41 milljarðs
króna, í lok fjórðungsins og hækkaði
úr 118,4 milljónum dollara, jafnvirði
16,6 milljarða króna, frá lokum ann-
ars ársfjórðungs. Hækkunina milli
fjórðunga má rekja til vel heppnaðs
hlutafjárútboðs í september þar sem
félagið safnaði 23 milljörðum króna
frá núverandi og nýjum hluthöfum. Í
tilkynningu frá félaginu er haft eftir
Boga Nils Bogasyni, forstjóra þess,
að tekist hafi að draga úr tekjutapi
félagsins á fjórðungnum. Enn verði
gert ráð fyrir lágmarksumsvifum
næstu vikurnar en félagið geti staðið
af sér „lágmarksframleiðslu“ fram á
árið 2022 ef í harðbakkann slær.
Uppsafnað tap félagsins á árinu er
292,9 milljónir dollara, jafnvirði 41
milljarðs króna.
Hagnaður Icelandair Group á þriðja
fjórðungi ársins nam 38,2 milljónum
dollara, jafnvirði 5,2 milljarða króna.
Félagið hagnaðist um 61,5 milljónir
dollara yfir sama tímabil í fyrra. Um-
svif félagsins eru hins vegar marg-
falt minni. Tekjur af farþegaflutn-
ingum nema 56 milljónum dollara,
jafnvirði 7,9 milljarða, samanborið
við tæpar 228 milljónir dollara yfir
sama tímabil í fyrra. Heildartekjur
af starfseminni námu hins vegar
103,6 milljónum dollara, jafnvirði
14,1 milljarðs króna og drógust sam-
an um 81% frá síðasta ári. Frakt-
flutningar jukust um 16% á tíma-
bilinu.
Í tilkynningu frá félaginu segir að
eignfærsla tekjuskatts og end-
urflokkun eldsneytisvarna, sem urðu
virkar eftir endursamninga við mót-
aðila, hafi haft jákvæð áhrif sem nam
Hagnaður hjá Icelandair
Eignfærsla tekjuskatts og eldsneytisvarnir gera gæfumun
Morgunblaðið/Eggert
Vörn Bogi Nils segir félagið geta
staðið langvarandi storm af sér.
● 266 ný einkahlutafélög voru skráð
hér á landi í september. Í sama mán-
uði í fyrra voru þau hins vegar aðeins
124 og því nemur aukningin um
115%. Kemur þetta fram í nýjum töl-
um Hagstofunnar.
Flest voru félögin skráð í bygg-
ingarstarfsemi og mannvirkjagerð
(46) og heild- og smásöluverslun, auk
viðgerða á vélknúnum ökutækjum
(42).
Athygli vekur að frá júnímánuði
hafa nýskráningar einkahlutafélaga
verið talsvert fleiri en yfir sama tíma-
bil í fyrra. Í júní voru þau 225, en
168 í fyrra, í júlí 194, 166 í fyrra, og í
ágúst voru þau 205, en 156 í sama
mánuði 2019.
Á fyrstu níu mánuðum ársins voru
nýskráningarnar 1.772 en voru 1.685
yfir sama tímabil í fyrra.
Mun fleiri ný einka-
hlutafélög en í fyrra
27. október 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 139.07
Sterlingspund 181.86
Kanadadalur 105.95
Dönsk króna 22.158
Norsk króna 15.101
Sænsk króna 15.911
Svissn. franki 153.86
Japanskt jen 1.3279
SDR 197.39
Evra 164.87
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 195.0457
Hrávöruverð
Gull 1910.6 ($/únsa)
Ál 1829.0 ($/tonn) LME
Hráolía 42.4 ($/fatið) Brent
● Í septembermánuði var 41 fyrir-
tæki, sem skráð er í fyrirtækjaskrá
Skattsins, tekið til gjaldþrotaskipta.
Af þeim voru 28 virk árið 2019, þ.e.
annaðhvort með launþega samkvæmt
staðgreiðsluskrá eða veltu sam-
kvæmt virðisaukaskattsskýrslum.
Þetta kemur fram í gögnum Hagstof-
unnar.
Á þriðja ársfjórðungi voru 95
fyrirtæki lýst gjaldþrota. Af þeim voru
58 virk á síðasta ári. Fjölgar skráðum
gjaldþrotum um 5% miðað við sama
tímabil ársins á undan.
Fyrirtæki sem urðu gjaldþrota á
fjórðungnum voru samanlagt með
um 500 launþega að jafnaði árið
2019. Þar af voru um 130 launþegar
á fyrra ári í byggingarstarfsemi og
mannvirkjagerð og um 190 í einkenn-
andi greinum ferðaþjónustu. Hjá
fyrirtækjum í heild- og smá-
söluverslun sem lýstu yfir gjaldþroti á
þriðja ársfjórðungi var fjöldinn 11.
5% fleiri gjaldþrot á
þriðja fjórðungi
STUTT
Kínverska fyrirtækið Huawei var stofnað árið
1987 af Ren Zhengfei, næstráðanda í verkfræði-
sveitum Alþýðuhersins.
Huawei fór fram úr Ericsson sem helsti sím-
kerfaframleiðandi heims árið 2012.
Auknar áhyggjur hafa verið af fjarskiptaöryggi
Huawei-búnaðar vegna náinna tengsla við kín-
versk stjórnvöld.
Hömlur, beinar eða óbeinar, hafa verið settar á
notkun Huawei-búnaðar í 5G-kerfum í ýmsum löndum, þar á meðal
Bandaríkjunum, Bretlandi, Ástralíu, Frakklandi og Svíþjóð.
Áhyggjur af fjarskiptaöryggi
HUAWEI