Morgunblaðið - 27.10.2020, Síða 15

Morgunblaðið - 27.10.2020, Síða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 2020 Gos Hverinn Strokkur við Geysi í Haukadal gýs reglulega góðu vatnsgosi, ferðamönnum til ánægju. Íslendingar í vetrarfríi voru þarna á ferð um helgina, fáir sem engir erlendir ferðamenn. Kristinn Magnússon Tíminn er afstæður, mælikvarði hvers og eins ólíkur og sveiflast frá degi til dags. Ef ekki væri klukkan og dagatalið ættum við erfitt með yfirsýn um liðna tíð. Á þetta erum við rækilega minnt á þessum COVID-tímum þar sem dregið hefur úr hraða daglegs lífs hjá mörgum. Á kvarða mannsævinnar eru 100 ár óratími, sem aðeins fáir ná að fylla upp í, og enn færri við góða og gjöfula heilsu og þrek til þátttöku í samfélaginu. Einn slíkur, Pétur M. Jónasson náttúrufræðingur, kvaddi nýverið. Hann var í vöggu þegar spánska veikin geisaði hér 1918 en náði að lifa í heila öld og nokkrum dögum betur og skila óvenjuríkulegu ævi- starfi til almenningsheilla sem vís- indamaður. Ég varð þess aðnjótandi að kynnast Pétri og það voru stóru viðgangsefnin hans, Mývatn og Þingvallavatn ásamt umhverfi þeirra, sem voru tilefni tengsla og samfunda. Aðkoma sem skipti sköpum Aðkoma Péturs M. að vatnalífs- rannsóknum við Mývatn 1971 skipti sköpum. Hann var þá að ljúka dokt- orsverkefni við Hafnarháskóla og gat því lagt á ný mið sem tengdust ættlandinu. Deilur höfðu þá staðið um hríð um fyrirhugaða stórvirkjun í Laxá sem og miðlunarfram- kvæmdir sem tengdust Mývatni til viðbótar við eldri stíflur. Nátt- úruverndarfólk mótmælti og stofn- að var Landeigendafélag Mývatns og Laxár til að vinna að verndun svæðisins. Mývetn- ingar tóku til sinna ráða og 25. ágúst 1970 var Miðkvíslarstífla sprengd. Til að lægja öldurnar hétu yfirvöld rannsóknum og leituðu m.a. til vatna- líffræðideildar Hafn- arháskóla sem óháðs aðila. Rannsóknirnar sem hófust 1971 sýndu fram á náið samhengi milli Mývatns og Laxár og leiddu vorið 1973 til samkomulags deilu- aðila með aðild þáverandi rík- isstjórnar. Í framhaldi af því varð til frumvarp um verndun Mývatns og Laxár sem lögfest var vorið 1974. Náttúruverndarráð, undir forystu Eysteins Jónssonar, en þar átti ég sæti þessi árin, studdi fast við verndaráætlunina, og í kjölfarið var stofnuð Rannsóknastöðin við Mý- vatn. Efnt var til vandaðrar útgáfu á ensku um rannsóknaniðurstöðurnar sem 10 höfundar stóðu að og kom ritið út 1979. (Pétur M. Jónasson, ritstj. Ecology og eutropic, sub- arctic Lake Mývatn and the River Laxá. Oikos 31) Svo vildi til að sá sem þetta ritar var þá iðn- aðarráðherra og tók við eintaki úr hendi dr. Péturs við hátíðlega at- höfn. Síðar varð til mikið rit um Mý- vatn á vegum Hins íslenska nátt- úrufræðifélags byggt á þessum og síðari rannsóknum (Náttúra Mý- vatns, 1991). Rannsóknirnar á Þingvallavatni Í kjölfar ákvarðandi niðurstöðu af rannsóknum við Mývatn sneri Ey- steinn Jónsson, þáverandi formaður Þingvallanefndar og náttúruvernd- arráðs, sér til Péturs M. Jónassonar með ósk um hliðstæðar rannsóknir á Þingvallavatni. Staðan var um margt svipuð og við Mývatn, þar eð Landsvirkjun hafði byggt 27 MW Steingrímsstöð 1959 og notaði síðan Þingvallavatn til vatnsmiðlunar ofan stíflu við útrennsli í Sogið. Fylgdi miðluninni veruleg sveifla á vatns- yfirborði, sem m.a. birtist í hvítri rönd af dauðum þörungum allt í kringum vatnið og margháttuðum inngripum í vistkerfi þess, sem m.a. kom fram í rýrnandi veiði. Pétur hafði í heilan áratug forystu um víð- tækar rannsóknir á Þingvallavatni og umhverfi þess og fékk til fjölda sérfróðra vísindamanna, innlenda og erlenda. Niðurstöðurnar leiddu í ljós að Þingvallvatn er einstakt í sinni röð, fátækt af köfnunarefni en óvenjugróskumikið og telur um 300 jurta- og dýrategundir, þar á meðal afbrigði sem hvergi finnast annars staðar. Í þeim hópi er heimsskauta- bleikja af fjórum ólíkum gerðum sem þróast hafa frá lokum síðasta jökulskeiðs. Þekktust þeirra er murtan sem lifir á smákröbbum, mý- flugum og lirfum. Heildstætt yfirlit um rannsóknirnar birtist í bókinni Thingvallavatn undir ritstjórn Pét- urs (OIKOS 1992, 436 bls.). Í nýút- komnu hefti Náttúrufræðingsins um Þingvallavatn (Nr 1, 2020) birtast okkur 12 greinar íslenskra vísinda- manna sem hlut áttu að þessu mikla átaki. Vel rökstuddar aðvaranir Pétur H. Jónasson var ekki vís- indamaður í fílabeinsturni. Um margt minnti hann mig á annan öld- ung: David Attenborough. Hann sat ekki á þekkingu sinni og reynslu, heldur miðlaði henni með sannfær- andi hætti í ræðu og riti til annarra. Hann bjó að því að hafa alist upp sem unglingur í Miðfelli og gjör- þekkti umhverfi vatnsins, náttúru og mannlíf. Þessu kynntist ég í fjölda samtala við hann og í ferðum af ýmsu tilefni, m.a. þau 12 ár sem ég átti sæti í Þingvallanefnd. Enginn á meiri þátt í því en Pétur að Þing- vallaþjóðgarður og vatnið voru tekin á skrá Heimsminjaráðs UNESCO um menningarminjar. Því fylgir ekki aðeins heiður heldur og skýrar skyldur. Í nefndu hefti Nátt- úrufræðingsins frá liðnu sumri varar hann sterklega við hættunni af nit- urmengun í Þingvallavatni frá frá- rennsli fjölda sumarbústaða, land- búnaði, barrskógum, ferðamönnum og umferð. Hann segir niturmagn í vatninu hafa 25-faldast á tímabilinu 1980-2010 og ógni bæði bláma þess og tærleika. Virðingarleysi yfirvalda fyrir friðun þjóðgarðsins þótti hon- um afar dapurlegt um leið og hann tók undir kröfur UNESCO, m.a. um að öll barrtré verði fjarlægð úr þjóð- garðinum sem og sumarbústaðir, alls á sjötta hundrað talsins um- hverfis vatnið, þar af eru enn 70 einkabústaðir í þjóðgarðinum sjálf- um. Stækka þurfi þjóðgarðinn og m.a. friða Eldborgarhraunið, en það- an koma 75% af innrennsli til vatns- ins. Haustdýrð í þjóðgarði Við hjón skruppum til Þingvalla snemma á góðviðrisdegi 10. október sl. Slíkt væri ekki í frásögur færandi ef viðbrigðin frá síðustu heimsókn fyrir ári hefðu ekki reynst sláandi. Þá varð þar vart þverfótað fyrir mannmergð, en nú stóðum við ein á Hakinu við dagmál og nutum heillandi útsýnis. Haustlitir Þing- valla og Bláskógaheiðar taka flestu fram, að vísu aðeins teknir að dofna. Í hugann kemur stef úr ljóði HKL að lokinni hátíð 1930: Sögulaus auðnin, ímynd allrar gnægðar, andar á ný um skóginn dularbláan og Þíngvöll. Það er aftur hún sem á hann ósnortinn traðki þúsund ára frægðar. Vinaskógur Vigdísar forseta sunnan Kárastaða skartaði í morg- unsólinni, einvörðungu skreyttur innlendum tegundum, sem og Lög- berg og nú fölgrænir Vellirnir. Margt hefur verið vel gert í þessum þjóðgarði: Við þjónustumiðstöð og í Almannagjá, í þinghelginni og víðar. Gönguleiðin eftir Stekkjargjá að Öx- arárfossi er smekklega klædd borð- viði sem þolir marga fætur. Fólki fjölgaði er nær dró hádegi, ung hjón með börn og nesti sóttu hingað upp- lifun og tilbreytingu á dögum CO- VID-veirunnar. – Við ókum veginn frá Leirum austur yfir Þingvalla- hraun og Hrafnagjá og nutum út- sýnis frá þekkilegum áningarstað vestur yfir Þingvallavatn með Arn- arfell og Miðfell í suðri. Þarna rifj- uðum við upp kynnin af Pétri H. Jónassyni, þessum hógværa afreks- manni sem meir en nokkur annar hefur svipt hulunni af Mývatni og Þingvallavatni. Þrem dögum seinna lásum við í Morgunblaðinu um lát hans í mánaðarbyrjun. Tíminn er af- stæður en minningin um vökulan eldhuga mun lifa lengi. Eftir Hjörleif Guttormsson » Í fullu gildi eru vel rökstuddar aðvar- anir Péturs M. Jónas- sonar um margvíslegar hættur sem steðja að Þingvallasvæðinu. Hjörleifur Guttormsson Höfundur er náttúrufræðingur. Pétur M. Jónasson svipti hulunni af Mývatni og Þingvallavatni

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.