Morgunblaðið - 27.10.2020, Qupperneq 19
MINNINGAR 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 2020
✝ Svana Jóns-dóttir fæddist á
Siglufirði 18. ágúst
1939. Hún lést á
Heilbrigðisstofnun
Vesturlands 17.
október 2020. For-
eldrar Svönu voru
hjónin Anna Hall-
dórsdóttir sauma-
kona frá Ísafirði, f.
18.8. 1913, d, 24.11.
1978, og Jón Ein-
arsson vélstjóri frá
Siglufirði, f. 6.1. 1917, d. 6.8.
2010. Systkini Svönu eru Hall-
dór Friðgeir, f. 1941, Margrét f.
1944, Þórelfur f. 1945, d. 2015,
Gunnar Þór, f. 1947, Lovísa, f.
1949, Ólöf, f. 1950, Einar, f.
1951, Svanborg Rannveig, f.
1953, og Svanfríður, f. 1955.
Svana giftist 31. janúar 1959
Erni Óskari Helgasyni vélstjóra,
f. 25.3. 1936. Börn Svönu og
Arnar eru: 1) Anna Arnardóttir,
f. 22.8. 1959, bílstjóri. Maki Eg-
ill Jensen Guðnason, f. 14.12.
Friðriksson, f. 26.12. 1952, raf-
virki. Börn: a) Heiðrún Arna, f.
1987, viðskiptafræðingur. Maki
hennar Lárus Blöndal Guð-
jónsson, f. 1987, töframaður.
Börn: Heiðdís Eva Óskarsdóttir
f. 2007, Ríkharður Leó Erlings-
son, f. 2010, Óliver Elvis Blön-
dal Lárusson, f. 2018, Kári Len-
non Blöndal Lárusson, f. 2020.
b) Svana María, f. 1990, tann-
tæknir. 3) Jón Örn Arnarson, f.
6.3. 1966, söluhönnuður, kvænt-
ur Nínu Borg Reynisdóttur, f.
6.12. 1971, fótaaðgerðafræð-
ingi. Börn: a) Reynir Ver, f.
1990, iðnfræðingur, maki Hlín
Hilmarsdóttir, f. 1991, leik-
skólakennari. Börn þeirra: Val-
ur Örn, f. 2016 og Maren Ósk, f.
2017. b) Ólöf Eir, f. 1992, hjúkr-
unarfræðinemi, maki Viktor
Örn Guðmundsson, f. 1991, vél-
virki. c) Arna Ósk, f. 2002, fram-
haldsskólanemi.
4) Helga Arnardóttir, gjald-
keri, f. 3.1. 1971, gift Helga
Haukssyni tölvunarfræðingi, f.
7.2. 1965. Börn þeirra: a) María
Mist Helgadóttir versl-
unarstjóri. f. 1987, gift Helga
Halldórssyni vélvirkja. Börn
þeirra: Ernir Leó, f. 2017 og
óskírðar tvíburasystur, f. 2020.
b) Anna Hallgrímsdóttir Kvaran
þroskaþjálfi, f. 1989, gift Páli I.
Pálssyni tæknifræðingi, þau
eiga Hrafntinnu, f. 2015, og
Hilmi Þór, f. 2018. c) Hafdís
Erla Helgadóttir tölvunarfræð-
ingur, f. 1993, gift Steinunni
Valbjörnsdóttur málfræðingi.
Systkini Arnar eru Hrafn
Helgason, Stefanía D. Helga-
dóttir og Guðjón Helgason.
Svana ólst upp á Siglufirði og
við Skeiðsfossvirkjun og flutti
16 ára á Akranes með fjölskyld-
unni. Svana var fermd á Barði í
Fljótum 1953. Var í Gagnfræða-
skóla Ísafjarðar í tvö ár, kláraði
Gagnfræðaskólann á Siglufirði
1956. Nam við Húsmæðraskól-
anum Laugalandi í Eyjafjarð-
arsveit 1957-58. Vann við ýmis
verslunar- og þjónustustörf en
lengst af sem starfsmaður í Ar-
ion banka á Akranesi. Húsmóðir
og sjómannskona.
Streymi verður frá útför:
https://www.akraneskirkja.is
Virkan hlekk á slóð má nálg-
ast á:
https://www.mbl.is/andlat
1957, bílstjóri.
Börn: a) Örn Jen-
sen, f. 1980, raf-
virki. Maki Sif Agn-
arsdóttir, snyrtifr.
Þau eiga fimm
börn: Hafþór Örn,
f. 2004, Heiður
Sara, f. 2006, Aldís
Ósk, f. 2008, Agnar
Ingi, f. 2012, Alex-
andra Mjöll, f.
2014. Þrjú elstu
börnin á Örn með
Hafdísi Búadóttur úr fyrra
hjónabandi. b) Ragnar, f. 11.3.
1983, d. 27.1. 2017. c) Margrét,
f. 23.5. 1986, verslunarm. Maki
Guðjón Birgir Tómasson ýtu-
stjóri. Þau eiga sex börn: Vignir
Gauti, f. 2006, Dagný Bára, f.
2009, Erlingur Orri, f. 2011,
Fanney Alda, f. 2013, Jóhannes
Egill, f. 2016, Lilja Maren, f.
2017.
2) Halldóra Hafdís Arn-
ardóttir, f. 19.5. 1962 hjúkr-
unarfræðingur. Maki Friðrik
Elsku Svana Stóra systir með
stóru S-i, „Tornfågeln“. Forystu-
fuglinn okkar tíu systkinanna
kvaddi þennann heim 17. október
síðastliðinn.
Ég segi hún er ein af Covid-19-
fórnarlömbunum, þar sem hún af-
þakkaði lífgjöf með snúrum og
leiðslum og tækjum ef þetta væri
framhaldið – að vera einangruð á
dvalarheimili og mega ekki fá sína
nánustu í heimsókn til sín, því það
er búið að skerða svo mikið heim-
sóknir til dvalarheimilisbúa sem
er það eina sem lífið gengur út á á
efri árum.
Hún var elst okkar tíu systkina
og ég var yngst hún var 15 ára að
verða 16 þegar ég fæddist á
Skeiðsfossi í Fljótum á ferming-
ardegi Halldórs bróður, svo hún
sá um fermingarveislu fyrir fjöl-
skylduna, flauelssúpu með safti
(samkvæmt Möggu systur).
Hún var og er til fyrirmyndar!
Elskuleg systir, eiginkona Össa,
sjómannskona með öllu tilheyr-
andi þeim titli, sem sagt bústjóri
og alltmúgligt á stóru heimili með
fjögur börn.
Frábær húsmóðir gestgjafi
vinur og stóra systir, yndisleg
móðir, amma og langamma, faðm-
ur hennar var opinn og hún gaf.
Hún var harðdugleg, listræn
og átti fallegt heimili þar var gleði
og bros heim að sækja. Handa-
vinna lék í höndum hennar og
þeim sprota hefur hún plantað vel
í dætrum sínum.
Fyrstu minningar eru þegar
hún og Össi hófu búskap á Still-
holtinu og ég kom spennt að
skoða Önnu sem var bara fjórum
árum yngri, seinna þegar þau
bjuggu á Hjarðarholti og ég fékk
að koma og passa Önnu og Dóru
Dís. Það var alltaf snyrtimennska
í hávegum höfð hjá Svönu og allt-
af eitthvað gott í ísskápnum fyrir
barnapíuna.
Það eru margar minningar
sem við eigum saman í sumarbú-
staðnum systkinin með fjölskyld-
um okkar og fjölskylduþorrablót-
in sem við fórum að halda eftir að
mamma dó.
Það var alltaf glatt á hjalla og
þegar þið systkinin hringduð út til
mín í Svíþjóð og sunguð raddað
fyrir mig gegnum símann „Fram í
heiðanna ró“ sem var svona
„verður að syngja lag“ fjölskyld-
unnar.
Ég sakna Svönu og er sorgbitin
yfir að hún sé farin yfir móðuna
miklu, en þar veit ég að haldin
verður „veisla“ þegar pabbi,
mamma og Nonni litli og Raggi
taka móti henni í Sumarlandinu.
Elsku systir, Drottningin okkar,
takk fyrir að hafa átt þig að.
Við Kristófer og okkar fjöl-
skylda sendum Erni og Önnu,
Dóru Dís og Helgu og Nonna og
fjölskyldum þeirra okkar dýpstu
samúðarkveðjur.
Svanfríður Jónsdóttir.
Svana Jónsdóttir
✝ Erlín Ósk-arsdóttir fædd-
ist í Reykjavík 12.
janúar 1950. Hún
lést á Heilbrigð-
isstofnun Suður-
lands 19. október
2020. Foreldrar
hennar voru Vil-
borg Guðsteins-
dóttir, fædd í
Reykjavík 10.
ágúst 1927, d. 7.
desember 2011, og Óskar Jen-
sen, rafvirkjameistari og versl-
unarmaður í Reykjavík, f. 16.
apríl 1923, d. 14. mars 1975.
Systkini Erlínar eru: 1) Gunnar
Guðsteinn, f. 16. júní 1948, d.
22. desember 1997, 2) Ásta, f.
18. desember 1955, 3) Finnur, f.
30. apríl 1957 og 4) Þórunn, f.
20. apríl 1964.
Erlín giftist 1971 Ástráði St.
Guðmundssyni húsasmíðameist-
ara, f. 3. mars 1946 í Reykjavík.
Foreldrar Ástráðs voru Guðríð-
ur Ástráðsdóttir, f. 18. apríl
1924, d. 16. ágúst 2003, og Guð-
mundur Friðriksson verslunar-
maður, f. 22. júlí 1920, d. 17.
október 1968.
Börn Erlínar og Ástráðs eru:
1) Vilborg María, f. 4. ágúst
1975 störf á Sjúkrahúsi Suður-
lands. Samfara vinnu lagði hún
stund á framhaldsnám í skurð-
hjúkrun og hand- og lyflækn-
ishjúkrun. Hún lauk sér-
skipulögðu BSc-námi við
Háskóla Íslands og meist-
aranámi í hjúkrunarfræðum við
Royal College of Nursing, Man-
chester-háskóla.
Erlín gegndi deildarstjóra-
stöðu skurðdeildar 12CD við
Landspítala - háskólasjúkrahús
síðustu starfsár ævi sinnar en
áður gegndi hún stjórn-
unarstöðum við Heilbrigðis-
stofnun Suðurlands (Sjúkrahús
Suðurlands) og á meðferð-
arheimilinu Sogni. Hún tók
snemma að sér kennslu á nám-
skeiðum við Fjölbrautaskóla
Suðurlands og seinna við hjúkr-
unarfræðideild Háskóla Íslands.
Erlín sat í stjórn Hjúkr-
unarfræðifélagsins og sinnti
fjölmörgum nefndarstörfum
gegnum árin. Síðustu misserin
starfaði hún í verkefnum tengd-
um sinni sérmenntun sem
skurðhjúkrunarfræðingur.
Sálumessa Erlínar fer fram
frá Kristskirkju Landakoti í
dag, 27. október 2020, kl. 14.
Streymt verður á:
https://promynd.is/live/
Virkan hlekk á slóð má nálg-
ast á
https://www.mbl.is/andlat
1975, eiginmaður
hennar er Sigurður
Unnar Sigurðsson,
f. 1972. Börn
þeirra eru: a) Ást-
ráður Unnar Sig-
urðsson, f. 2000, b)
Sigurlinn María, f.
2002, c) Magnús
Arngrímur, f. 2007,
og d) Hrafnkell
Flóki, f. 2009.
2) Katrín, f. 30.
júní 1979, sambýlismaður henn-
ar er Hans Alan Tómasson, f.
1975. Börn þeirra eru: a) Erlín
Katla, f. 2005, b) Ásrún Júlía, f.
2008, og c) Óskar, f. 2012.
3) Andri, f. 20. júní 1985,
sambýliskona hans var Sóley
Þorbjörnsdóttir, slitu þau sam-
vistir. Barn þeirra er Íris María,
f. 2014.
Erlín menntaði sig í hjúkr-
unarfræðum í Hjúkrunarskóla
Íslands og að loknu námi fluttu
Erlín og Ástráður fyrst til
München í Þýskalandi þar sem
hún starfaði við hjúkrun og síð-
ar til Stuttgart þar sem hún
starfaði einnig. Við heimkom-
una flutti Erlín ásamt eigin-
manni sínum að Eystri-Hellum í
Gaulverjabæjarhreppi og hóf
Það var fallegur dagur í sept-
ember 1968 þegar á fimmta tug
ungra stúlkna mættu til skóla-
setningar í gamla Hjúkrunaskól-
anum. Allar áttu sér stóra
drauma, fram undan voru óvissu-
tímar en markmiðið var það sama
hjá öllum hópnum, að verða hjúkr-
unarkonur.
Erlín Óskarsdóttir ein úr þess-
um hópi hefur nú yfirgefið okkur.
Hún veiktist í sumar og nokkrum
mánuðum seinna er hún horfin yf-
ir móðuna miklu. Erlín mun lifa
meðal okkar Hollsystra hennar
sem hinn sanni góði félagi, hún
barst ekki mikið á og tróð sér
hvergi fram til mannvirðinga en
gekk þó sinn veg þannig að eftir
henni var tekið. Hún var greind
athugul og víðlesin, hógvær í um-
ræðum og orðvör. Þegar hún tal-
aði hlustuðum við og þegar hún
hlustaði tókum við eftir því.
Erlín var mikill námshestur og
mjög áhugasöm um allt sem við-
kom hjúkrun og málefnum hjúkr-
unar. Þegar börnin uxu úr grasi
bætti hún við sig í námi tók BS-
gráðu í Háskóla Íslands og hélt
svo áfram og lauk við masterinn
og þetta nám tók hún samhliða
vinnu. Dugnaður Erlínar var með
hreinum ólíkindum, hún keyrði
daglega yfir 100 km milli heimilis
og vinnu og skólans þegar hún var
í náminu. Erlín var mögunð mann-
eskja og kölluð til ábyrgðarstarfa.
Hún var deildarstjóri á skurðdeild
LSH við Hringbraut hún var
kennari, fræðari, góður félagi og
gleðigjafi. Var dugleg að mæta á
hollfundina okkar ásamt því að
taka þátt í ferðalögum og gleði-
stundum tengdum afmælum okk-
ar og þetta árið er hún í undirbún-
ingsnefndinni fyrir 50 ára afmæli
hollsins 2021 og sorg okkar er
mjög mikil að hafa hana ekki með
áfram í þeim undirbúningi.
Það er þakkarvert og lærdóms-
ríkt að hafa gengið í gegnum lífið
með Erlínu. Takk fyrir allar góðu
stundirnar.
Lífs míns þegar dagur dvín
í dýrðina stíg ég inn
á sumardegi er sólin skín
ég sofna hjá þér herra minn.
(RV)
Við sendum fjölskyldu Erlínar,
Ástráði, börnunum ykkar og öðr-
um ástvinum innilegar samúðar-
kveðjur.
F.h. Skólasystra úr Hjúkrunar-
skóla Íslands útskrifaðra 1971
Ragna Valdimarsdóttir.
Erlín Óskarsdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
LAUFEY S. KARLSDÓTTIR,
lést á Grund mánudaginn 19. október.
Útförin fer fram frá Þorlákskirkju
fimmtudaginn 29. október klukkan 14.
Aðeins nánustu ættingjar verða viðstaddir.
Athöfninni verður streymt á slóðinni https://promynd.is/live
Heimir Konráðsson Eyrún Ingibjartsdóttir
Sigrún H. Gunnarsdótttir
Áslaug Kolbrún Jónsdóttir Gunnar Harðarson
Kolbrún Karlsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegur frændi okkar og vinur,
STEFÁN G. STEFÁNSSON
frá Kalastöðum,
lést þriðjudaginn 20. október á Hjúkrunar-
og dvalarheimilinu Höfða.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju
fimmtudaginn 29. október klukkan 13.
Vegna fjöldatakmarkana verða aðeins nánustu aðstandendur og
vinir viðstaddir, en athöfninni verður streymt frá Akraneskirkju á
slóðinni www.akraneskirkja.is. Þeim sem vilja minnast hans er
bent á Hjúkrunar- og dvalarheimilið Höfða.
Aðstandendur.
Ástkær afi okkar,
JÓHANN PÉTUR GUÐMUNDSSON,
skáld, myndlistarmaður
og smiður,
lést þriðjudaginn 20. október
á Sjúkrahúsinu á Sauðárkróki.
Útför hans fer fram í kyrrþey laugardaginn 31. október.
Sigurdóra Margrét Jóhann Pétur
Kristín Anna Eydís Ósk
og barnabarnabörn
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
JÓN GUNNARSSON
listmálari,
Klettahrauni 15,
lést á Sólvangi miðvikudaginn 14. október.
Útför hans hefur farið fram í kyrrþey.
Erla G. Jónsdóttir Jón Eiríksson
Sigrún Jónsdóttir Guðmundur Karl Jónasson
Gunnar Jónsson Magnea G. Þórarinsdóttir
Sjöfn Jónsdóttir Sigurjón R. Hrafnkelsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
ÁRNI MOGENS BJÖRNSSON,
prentari og prentsmiðjueigandi,
lést föstudaginn 23. október á líknardeild
Landspítalans í Kópavogi.
Útförin verður auglýst síðar.
Sigþrúður Þórhildur Guðnadóttir
Björn Styrmir Árnason Jakobína Sigvaldadóttir
Guðni Jón Árnason Hrönn Ámundadóttir
Árni Þór Árnason Soffía Lára Hafstein
Þyri Huld Árnadóttir Hrafnkell Hjörleifsson
barnabörn og langafabarn
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
PÁLL HALLDÓR GUÐMUNDSSON
málarameistari frá Oddsflöt í
Grunnavík,
lést á Landspítalanum 25. október.
Gróa Sigurlilja Guðnadóttir
Albert Pálsson Edda J. Georgsdóttir
Sigrún E. Hákonardóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
JAKOB JAKOBSSON
fiskifræðingur,
lést á Landspítalanum fimmtudaginn
22. október.
Útförin fer fram frá Langholtskirkju fimmtudaginn 29. október
klukkan 15. Vegna aðstæðna verða aðeins nánustu
aðstandendur viðstaddir en athöfninni verður streymt.
Upplýsingar má nálgast á mbl.is/andlat. Þeim sem vilja minnast
Jakobs er bent á Hjálparstofnun kirkjunnar.
Margrét Elísabet Jónsdóttir
Sólveig Jakobsdóttir Jón Jóhannes Jónsson
Oddur S. Jakobsson Hólmfríður Friðjónsdóttir
Auðbjörg Jakobsdóttir Sigurður Á. Sigurbjörnsson
barnabörn og barnabarnabörn