Morgunblaðið - 27.10.2020, Síða 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 2020
✝ Hjalti GeirKristjánsson
fæddist í Reykjavík
21. ágúst 1926.
Hann lést 13. októ-
ber 2020.
Foreldrar hans
voru Ragnhildur
Hjaltadóttir, f. 30.
apríl 1899, d. 16.
maí 1972, og Krist-
ján Siggeirsson, f.
26. febrúar 1894, d.
20. maí 1975.
Systir Hjalta Geirs var Guð-
rún, f. 5. febrúar 1922, d. 21.
maí 2003, gift Hannesi Guð-
mundssyni og þau áttu fjórar
dætur.
Hjalti Geir giftist 18. apríl
1953 Sigríði Theódóru Erlends-
dóttur sagnfræðingi, f. 16. mars
1930. Foreldrar hennar voru Jó-
hanna Vigdís Sæmundsdóttir, f.
30. nóv. 1899, d. 19. nóv. 1981,
og Erlendur Ólafsson f. 9. febr-
úar 1894, d. 30. ágúst 1980.
Börn Sigríðar Theódóru og
Hjalta Geirs eru: 1) Ragnhildur,
f. 1953, dætur hennar og Péturs
Einarssonar, f. 1947, d. 2020,
eru: a) Sigríður Theódóra, f.
1985, b) Jóhanna Vigdís, f. 1996,
maki Jón Bjarni Ólafsson, f.
Íslands árið 1944, sveinsprófi í
húsgagnasmíði frá Iðnskólanum
1948 og námi í húsgagnahönnun
frá Kunstgewerbeschule der
Stadt Zürich árið 1951. Hann
stýrði alla tíð fjölskyldufyr-
irtækinu Kristjáni Siggeirssyni
hf. ásamt því að hanna húsgögn
sem fyrirtækið framleiddi.
Hann var stofnandi Félags hús-
gagna- og innanhússarkitekta
árið 1953 og var gerður að
heiðursfélaga árið 2019. Hann
sat í fjölmörgum stjórnum fyr-
irtækja, lengst af hjá Eimskipa-
félagi Íslands, Almennum
tryggingum og síðar Sjóvá-
Almennum. Hann sat í stjórn
Verslunarráðs Íslands um árabil
og var formaður ráðsins 1978 til
1982. Hann var brautryðjandi á
sviði íslensks iðnaðar og hönn-
unar og starf íslenskra hús-
gagnaarkitekta varð að sjálf-
stæðri atvinnugrein ekki síst
fyrir framgöngu hans. Hann var
sæmdur riddarakrossi hinnar
íslensku fálkaorðu árið 1986.
Útför Hjalta Geirs fer fram
frá Fríkirkjunni í Reykjavík í
dag, 27. október 2020, klukkan
15. Vegna aðstæðna og fjölda-
takmarkana verður aðeins nán-
asta fjölskylda viðstödd en
streymt verður frá athöfninni,
frá klukkan 14.40, á:
https://beint.is/streymi/
hjaltigeirkristjansson
Virkan hlekk á streymi má
nálgast á:
https://www.mbl.is/andlat
1995. 2. Kristján, f.
1956, giftur Rann-
veigu Einarsdóttur,
f. 1954, synir
þeirra eru: a) Ey-
vindur Ölnir, f.
1980, maki Carolin
Koenig, f. 1983, og
eiga þau tvö börn,
b) Arnaldur Sölvi,
f. 1985, maki Berg-
lind Rögnvalds-
dóttir, f. 1985, og
eiga þau þrjú börn. 3. Erlendur,
f. 1957, giftur Aðalheiði Val-
geirsdóttur, f. 1958, synir
þeirra eru: a) Hjalti Geir, f.
1987, maki Guðrún Þorsteins-
dóttir, f. 1987, og eiga þau tvö
börn, b) Valgeir, f. 1990, maki
Thelma Haraldsdóttir, f. 1993,
og eiga þau eina dóttur. 4. Jó-
hanna Vigdís, f. 1962, gift Guð-
mundi Magnússyni, f. 1958,
börn þeirra eru: a) Guðrún
Edda, f. 1983, maki Stefán Örn
Melsted, f. 1983, og eiga þau tvö
börn, b) Hjalti Geir, f. 1998, c)
Erlendur, f. 2001, d) Sigríður
Theódóra, f. 2005.
Barnabörnin eru tíu og lang-
afabörnin tíu.
Hjalti Geir lauk verzl-
unarprófi frá Verzlunarskóla
Ég hef átt samleið með Hjalta
Geir Kristjánssyni tengdaföður
mínum í hartnær fjóra áratugi.
Fljótlega eftir að ég kynntist
tengdaforeldrum mínum tókst
með okkur vinátta sem engan
skugga hefur borið á. Hjalti Geir
var mörgum kostum prýddur.
Hann var víðsýnn og bjartsýnn,
áræðinn og duglegur og hann bjó
yfir hæfileikanum að hlusta á aðra
og bera virðingu fyrir skoðunum
annarra. Þótt starfsferill Hjalta
Geirs hafi fyrst og fremst snúist
um að stjórna fjölskyldufyrirtæk-
inu Kristjáni Siggeirssyni hf. þá
var hann listamaður og brautryðj-
andi þegar kom að hönnun hús-
gagna. Hann kom heim úr námi
frá Zürich árið 1951 og fór nýjar
og ótroðnar slóðir og markaði um
leið djúp spor í sögu íslenskrar
hönnunar. Enda var hann gerður
að heiðursfélaga í Félagi hús-
gagna- og innanhússhönnuða árið
2019. Það má segja að hann hafi
verið listamaður á öllum sviðum,
hvort sem var við hönnun eða ein-
falda uppröðun húsgagna, allt var
gert af einskærum áhuga og virð-
ingu fyrir viðfangsefninu.
Hann fór utan til náms árið
1948, þá búinn að ljúka verzlunar-
prófi frá Verzlunarskóla Íslands
og sveinsprófi í húsgagnasmíði frá
Iðnskólanum. Leiðin lá til Zürich í
Sviss þaðan sem hann lauk námi í
hönnun húsgagna þremur árum
síðar. Sviss átti sérstakan stað í
hjarta hans alla tíð. Sjaldan leið
honum jafn-vel og í Zürich og Ba-
hnhofstrasse varð fljótt ein af
uppáhaldsgötunum hans. Böndin
urðu enn traustari og þéttari og
þar eignaðist hann vini sem hann
hélt órofa tryggð við. Það var því
vel við hæfi þegar hann var gerður
að ræðismanni Sviss á Íslandi og
gegndi því í tíu ár og átti fast sæti í
stjórn Félags íslenskra kjörræð-
ismanna um árabil. Það var því
mikil og gagnkvæm gleði þegar
við Jóhanna Vigdís og Guðrún
Edda dóttir okkar ákváðum að
fara til Sviss, ég í handboltann og
Jóhanna Vigdís í framhaldsnám,
eins og Ragnhildur systir hennar
áratug fyrr. Þar áttum við svo
sannarlega margar gleðistundir.
Þá fann hann og byggði upp
sælureit fjölskyldunnar í Laug-
arási í Biskupstungum þar sem
við höfum deilt fjölmörgum
skemmtilegum stundum, öllum
ógleymanlegum. Í Laugarási
byggði hann upp land og fjárfesti í
samverustundum fjölskyldunnar.
Við Hjalti Geir, ásamt Erlendi
mági mínum og Jóni vini okkar,
stunduðum hestamennsku saman
árum saman og skoðuðum landið
á hestbaki. Synir okkar Erlendar
bættust síðan í þann hóp. Vinátta
Hjalta Geirs tengdaföður míns
hefur alltaf verið mér afar dýr-
mæt, ég er stoltur af því að vera
tengdasonur hans og þakklátur
fyrir allt sem við áttum saman.
Börnunum mínum fjórum hefur
hann verið einstakur afi, afi sem
nú er sárt saknað þótt efst í huga
okkar sé þakklæti.
Það velur sér enginn tengda-
foreldra en ég hefði ekki fengið
betri þótt ég hefði valið þá sjálfur.
Guð blessi minningu Hjalta
Geirs Kristjánssonar.
Guðmundur Magnússon.
Kær tengdafaðir minn, Hjalti
Geir Kristjánsson, kvaddi á fögr-
um haustmorgni 13. október, 94
ára að aldri.
Hjalti Geir var stórhuga,
áhrifamaður í íslensku viðskipta-
lífi og frumkvöðull á sviði íslenskr-
ar hönnunar og húsgagnafram-
leiðslu. Hlutur hans í íslenskri
hönnunarsögu er drjúgur og eftir
standa verk hans þar sem saman
fer fáguð og glæsileg hönnun og
vönduð framleiðsla, enda eru stól-
arnir hans nú eftirsóttir af yngri
kynslóðinni.
Það var stíll yfir Hjalta Geir,
allt hans fas bar þess vitni að þar
fór höfðingi. Hann klæddist vönd-
uðum fötum, sokkarnir kannski
rauðir og skórnir vel burstaðir.
Hann var miðbæjarmaður, fólk
laðaðist að honum á mannamótum
eða bara á Laugaveginum þar
sem hann hafði bækistöð. Ein-
staklega viðræðugóður, spurði
frétta, hlustaði, gaf góð ráð, gaf af
sér. Gat líka verið óþolinmóður,
seinagangur var honum ekki að
skapi, vildi koma hlutum í verk,
ekki á morgun heldur helst í gær.
Glaður og þakklátur þegar eitt-
hvað kláraðist og alltaf tibúinn að
hrósa.
Hjalti Geir var mikill fjöl-
skyldumaður og gæfumaður í
einkalífi. Fallegri hjón en þau
Hjalta Geir og Sigríði Theódóru
er vart að finna. Glæsilega heim-
ilið á Bergstaðastrætinu er sam-
komustaður fjölskyldunnar en
mikið munum við sakna sam-
ræðna um menn og málefni með
þátttöku hans, hlusta á frásagnir
frá fyrri tíð sem hann sagði á sinn
hægláta og oft glettna hátt.
Hjalti Geir naut þess að taka á
móti gestum helst mörgum, ef
ekki var um að ræða afmæli eða
önnur tímamót var bara fundið til-
efni til þess að hóa saman fólki.
Árós og Ármót í Biskupstungum
er sælureitur. Hann að slá, sýsla í
bílskúrnum, dytta að, því hann fór
vel með, það þurfti ekki alltaf að
kaupa nýtt, það mátti alveg lag-
færa. Á meðan heilsan leyfði
sinnti hann hestamennsku og fór í
ferðir með strákunum í fjölskyld-
unni, síðar var hann ómissandi
trússari í þessum ferðum. Í tilefni
af 90 ára afmæli Hjalta Geirs var
boðið til mikillar veislu í sveitinni
þar sem fjöldi ættingja og vina
fagnaði með afmælisbarninu í veð-
urblíðu. Þess er gott að minnast
nú þegar takmarkanir eru á sam-
komuhaldi.
Heimsóknir Hjalta Geirs á
vinnustofuna mína í Höfða voru
gæðastundir þar sem við fórum
yfir það sem ég var að fást við í
myndlistinni. Hann fylgdist af
áhuga með undirbúningi sýninga,
hvatti mig áfram.
Hann naut þess að ferðast.
Minnisstæðar eru ferðir með þeim
Siggu og fjöskyldunni, ekki síst 80
ára afmælisferðin til Zürich, þar
var hann á heimavelli. Ferð til Te-
nerife fyrir tæpu ári skilur eftir
ljúfar minningar.
Hjalti Geir og Erlendur unnu
náið saman, gagnkvæm vinátta og
væntumþykja einkenndi samband
þeirra. Synir okkar nutu góð-
mennsku afa síns, hann var þeim
mikilvæg fyrirmynd. Litlu barna-
börnin okkar spyrja nú um lang-
afa Hjalta Geir sem situr ekki
lengur í stólnum sínum á Berg-
staðastrætinu.
Fjöskyldu minni var hann ein-
staklega góður og hlýr, sýndi
áhuga og hvatti til dáða sama hver
átti í hlut.
Ég kveð Hjalta Geir með sökn-
uði og þakklæti. Blessuð sé minn-
ing hans.
Aðalheiður Valgeirsdóttir.
Það er erfitt að öðlast djúpan
skilning á tímanum, skrifaði Sig-
urður Pálsson. Í lífinu felst að fólk
þroskast og eldist en þegar ástin
er mikil er alltaf jafn sárt að
missa. Sigurður vitnaði um leið í
mikilvægi þess að þótt við eldumst
og verðum gömul þurfum við ekki
að vera gömul.
Afi var aldrei gamall. Hann
hafði einstaka ástríðu fyrir lífinu,
lifði því til hins ýtrasta og hugsaði
aldrei um dauðann. Viðhorf hans
til lífsins var til eftirbreytni fyrir
alla. Hann kunni svo vel listina að
lifa.
Hann var ekki hinn hefðbundni
afi. Hann var líf okkar systra,
helsta fyrirmynd og stuðningur.
Hann var eins og pabbi okkar og
sá besti í heiminum. Að eiga bak-
land eins og við áttum í honum gaf
okkur kraft og styrk til að takast á
við verkefni sem oft virtust óyfir-
stíganleg. Hvatning hans var
ómetanleg. Stoltur fylgdi hann
okkur á vit ævintýranna þegar við
héldum til náms í útlöndum. Við
vildum standa okkur og gera hann
stoltan.
Eiginleikar hans voru ótelj-
andi. Hann sá aldrei hindranir, að-
eins lausnir. Hann var oft fastur
fyrir og vissi hvað hann vildi.
Hugsaði hlutina oft í minnstu
smáatriðum sem gat bæði verið
kostur en stundum erfitt fyrir þá
sem hann var með. Það var aldrei í
myndinni að segja við hann
„bíddu aðeins, tölum um þetta á
morgun“. Allt átti að gerast strax
og helst í gær.
Hann var jákvæður, um-
hyggjusamur, hugrakkur, frum-
legur og með skýra framtíðarsýn.
Þetta eru aðeins brot af hans kost-
um sem við vonumst til að búa yf-
ir.
„Góð hönnun verður alltaf gulls
ígildi,“ sagði hann og treystum við
auga hans og smiðshendi fyrir
heimilum okkar. Afi var frum-
kvöðull þegar kom að hönnun og
viðskiptum, og kenndi okkur
margt – ef ekki allt – á því sviði.
Hans sýn á fallega hönnun var
ólík öllu öðru og upp í hugann
kemur ávallt spurningin: „Hvern-
ig myndi afi hafa það?“
Það er erfitt að sætta sig við að
hann var ekki eilífur eftir allt sam-
an. Hann er, var og verður bestur
og við munum leggja okkur fram
um að lifa lífinu að hans hætti.
Söknuðurinn er sár en eftir sit-
ur djúpt þakklæti fyrir lífið með
honum og minningarnar ómetan-
legu.
Sigríður Theodóra og
Jóhanna Vigdís.
Afa voru gefin góð spil í lífinu
og hann bar gæfu til þess að nýta
þau vel. Hann hélt ungur til náms
í erlendum stórborgum bæði í
Evrópu og Ameríku. Þetta var
skömmu eftir seinna stríð, þegar
Evrópa var að rísa úr rústum, ný
heimsmynd að mótast og bjart-
sýni réð ríkjum. Þessi tími hafði
djúpstæð áhrif á afa. Hann var
næmur á umhverfið og hélt
tryggð við góða siði sem hann til-
einkaði sér sem ungur maður á er-
lendri grundu, ekki síst í Sviss, en
var þó alltaf framsýnn í hugsun.
Hann var ætíð snyrtilega til fara,
hafði auga fyrir vandaðri hönnun
og var alltaf vel akandi eins og
R-84 var til vitnis um. Hann var þó
fastheldinn á það sem var virkaði
vel og kunni ekki við bruðl.
En þótt afi hafi verið heims-
borgari þá var hann líka íslenskur
inn að beini. Hann stundaði sund-
laugarnar, borðaði svið og rengi
þegar færi gafst og kunni hvergi
betur við sig enn „fyrir austan“ í
Árósi þar sem þau amma byggðu
svo góða umgjörð um fjölskyld-
una. Við eigum ótalmargar dýr-
mætar minningar með afa fyrir
austan. Við hefilbekkinn með upp-
brettar ermar, í kartöflugarðinum
eða að sækja bleikju í netið niður
við ánna. Í sveitinni tók afi einnig
þátt í hestamennskunni með okk-
ur og það er táknrænt að við
bræður notuðum gamla ferming-
arhnakkinn hans afa langt fram
eftir unglingsárum. Afi var mik-
ilvægur hluti af árlegum sleppi-
túrum, en síðustu ár sinnti hann
starfi trússara með miklum
myndarbrag. Hann naut sín vel í
þessum ferðum, tók hlutverkið al-
varlega og beið ávallt með kaldar
veigar á áfangastað.
Afi sýndi í verki að fjölskyldan
er það sem skiptir mestu máli og
samband hans og ömmu var sér-
staklega fallegt og náið. Hann
lagði einnig rækt við okkur barna-
börnin, fylgdist með því sem við
gerðum af áhuga og miðlaði af
reynslu sinni til okkar. Hjá afa
kom maður aldrei að tómum kof-
unum. Hann var húsgagnasmiður
og arkitekt en var einnig iðnrek-
andi og var lengi áhrifamaður í
stjórnum leiðandi fyrirtækja hér á
landi. Hann bjó því yfir reynslu og
djúpstæðri þekkingu á viðskipta-
og atvinnulífi. Hann viðhélt þekk-
ingu sinni alla tíð og mætti á ráð-
stefnur, fundi og fyrirlestra og
byggði upp sambönd við yngra
fólk. Hann hélt þó alla tíð tryggð
við rætur sínar sem hönnuður og
við fengum að kynnast þeirri hlið
á afa enn betur síðustu árin. Þessi
bakgrunnur afa gerði hann svo
áhugaverðan og gaf honum ef-
laust annað sjónarhorn en aðrir í
viðskiptalífinu höfðu.
Afi var athafnasamur og hann
vildi að hlutirnir gerðust strax,
helst í gær. Þetta hélt honum
gangandi og því varð hann í raun
aldrei gamall maður, nema rétt
undir lokin. Vel yfir nírætt fór
hann í ræktina og sund og sinnti
nauðsynlegum störfum á skrif-
stofu sinni að Laugavegi 13 og var
alltaf með mörg járn í eldinum.
Þótt það sé erfitt að kveðja erum
við bræður líka fullir þakklætis
enda ekki sjálfgefið að hafa hann
svo lengi með okkur. Hér eftir
sem áður munum við spyrja,
„hvað myndi afi gera?“ Og þannig
lifir hann með okkur um ókomna
tíð.
Hjalti Geir og Valgeir
Erlendssynir.
Það getur verið snúið að lýsa
stóru persónunum í lífi sínu. Afi
var ekki með hæstu mönnum þótt
móðir hans hafi reyndar lýst hon-
um sem slíkum en hann var þeim
mun stærri í tilverunni.
Afi var 94 ára gamall en hugur
hans var það ekki. Hann var ung-
legur í huga, fasi og klæðaburði.
Snyrtimenni og alltaf smart.
Hann hafði nútímalega sýn á hlut-
ina og var framsýnni en við sem
yngri vorum. Hann ferðaðist um
heiminn alla tíð, fór í ræktina
þrisvar sinnum í viku og mætti
ásamt ömmu á alla helstu menn-
ingarviðburði. Það var fátt sem
gaf aldur hans til kynna og ég veit
að þar voru þau amma fyrirmynd
margra. Það komu þó augnablik
þar sem raunaldur hans skein í
gegn. Það var t.d. í fyrra að við
vorum fjölskyldan einu sinni sem
oftar á B70 og margir að tala. Þá
heyri ég út undan mér afa segja:
„Hvað heitir hann aftur söngvari,
sonur hans Bjarna?“ Ég fer að
láta hugann reika um helstu von-
arstjörnur í íslensku tónlistarlífi
þegar ég heyri að Stebbi, maður-
inn minn, segir „Raggi?“ Já, ein-
mitt. Raggi Bjarna, sá var mað-
urinn.
Framtakssemi var einn af hans
aðaleiginleikum og hálfkláruð
verk voru ekki til í hans bókum.
Ég held að ég uppljóstri engum
leyndarmálum þegar ég segi að afi
hafi alla tíð verið gegnheill sjálf-
stæðismaður. En kjörorð annars
flokks eitt kosningaárið, „Árang-
ur áfram, ekkert stopp“, eru þó
ekki síður til þess fallin að lýsa
honum. Hann beið ekki með neitt
til morguns sem klára mátti í dag.
Slíkt er auðvitað mikill kostur en
gat verið hausverkur fyrir okkur
hin, hans nánasta fólk. Þegar ég
leitaði að minni fyrstu íbúð var afi
iðulega með í för. Áður en ég vissi
af var HGK, eins og við kölluðum
hann stundum þegar hann var í
framkvæmdagírnum, búinn að
fara á skrifstofu borgarinnar, fá
teikningar af húsnæðinu og rissa
upp sínar tillögur að breytingum
og uppstillingu. Áður en ég hafði
ákveðið hvort ég ætlaði yfir höfuð
að bjóða í eignina.
Afi var áhugasamur í lífinu.
Fjölskyldu- og vinarækinn. Hann
var velviljaður fólki, jákvæður og
algjörlega fordómalaus. Hann var
líka einn af máttarstólpunum í lífi
Hjalta Geirs bróður míns sem í
afa hafði einstakan vin og fyrir-
mynd.
Ömmur og afar eru iðulega
stolt af afkvæmum sínum en í
mínu tilviki var því líka öfugt far-
ið. Ég er stolt af því að hafa átt afa
eins og afa Hjalta Geir. Flottan og
framsýnan heimsborgara, traust-
an og hlýjan. Afi er og verður allt-
af í einu af burðarhlutverkunum í
mínu lífi og fyrir það er ég óend-
anlega þakklát. Hann sýndi okkur
í verki að lífið er núna og lifði því
svo sannarlega lifandi til hinsta
dags. Fátt vissi ég skemmtilegra
en samveru með ömmu og afa. Við
fjölskyldan eigum stútfullan
minningafjársjóð sem ég veit að
við munum sækja í alla tíð – og
núna munum við ekki bíða með
verkefni til morguns sem klára
má í dag. Elsku afi. Takk fyrir allt
sem þú varst og allt sem þú gafst.
Það er erfitt að sleppa og því segi
ég bara eins og þú hefðir líklega
sagt og kímt út í annað „See you.“
Guðrún Edda
Guðmundsdóttir.
Ég hitti Hjalta Geir fyrst á
Champs Elysée í París, rétt hjá
Sigurboganum. Sigríður og hann
voru í brúðkaupsferðinni og mér
þótti aðdáunarvert að hann skyldi
taka í mál svona vinkvennafund,
undir þeim kringumstæðum.
Enda samþykkti ég strax þennan
ráðahag, fyrir mitt leyti – og hann
reyndist góður.
Frá fyrstu stund sást það lang-
ar leiðir hvern mann Hjalti Geir
hafði að geyma. Hann var geðug-
ur með afbrigðum og drengur
góður. Samboðinn Sigríði bekkj-
arsystur minni og ævivinkonu.
Enn styrktust vinaböndin með
nýjum kynslóðum. Jóhanna Vig-
dís, yngsta dóttir Hjalta Geirs og
Sigríðar, passaði Ástríði dóttur
mína og ég sótti hana oft á Berg-
staðastræti. Sérstök skemmtun
var fyrir mig að eiga löng samtöl
um gömlu Reykjavík við Kristján
Siggeirsson, föður Hjalta Geirs.
Og sú hefð myndaðist að við Ást-
ríður vorum gestir á Bergstaða-
stræti á gamlárskvöld og fögnuð-
um þar nýju ári.
Hjalti Geir var alla tíð mjög
unglegur í fasi og til marks um
það spurði ung stúlka, sem var til
aðstoðar í góðri veilsu á síðasta
stórafmæli, sem haldin var á höfð-
ingjasetri þeirra hjóna austur í
Tungum: Hvar er kallinn, sem á
afmæli?
Hjalti Geir Kristjánsson var
ekki aðeins einstakur vinur og
fjölskyldumaður, hann lét einnig
til sín taka í borgarlífinu og vann
vel sinni þjóð. Blessuð sé hans fal-
lega minning.
Vigdís Finnbogadóttir.
Fallinn er frá góður vinur og
mikil fyrirmynd, Hjalti Geir
Kristjánsson, húsgagnaarkitekt
og fagurkeri. Mikil gjöf og gæfa
sem það var fyrir unga hnátu að
kynnast Siggu og Hjalta Geir og
þeirra dásamlegu fjölskyldu. Ég
er svo lánsöm að móðir mín og
Sigga eru bestu vinkonur og því
voru heimsóknir okkar mæðgna
tíðar á þeirra undurfagra og
heillandi heimili að Bergstaða-
stræti. Dóa eða Jóhanna Vigdís,
yngsta dóttir þeirra, passaði mig
þegar ég var lítil, og börn Siggu og
Hjalta Geirs hafa ævinlega verið
mér góð og kær. Við mæðgur höf-
um verið boðnar til þeirra öndveg-
ishjóna á gamlársdag á hverju ári
og notið þar matarveislu og
dásamlegrar samveru þegar nýtt
ár gengur í garð. Úr hefur orðið
ævilöng vinátta sem ég er gríðar-
lega þakklát fyrir og mun varð-
veita og meta alla tíð.
Ég á erfitt með að skrifa um
Hjalta Geir án þess að nefna
Siggu og ég á erfitt með að nefna
Siggu án þess að nefna Hjalta
Geir eða börnin. Þau voru og eru
svo samrýnd fjölskylda og Sigga
og Hjalti Geir svo fallegt par, öll
dásamlega gefandi, skemmtileg
og góðar manneskjur. Ég gleymi
því aldrei og hvað það gladdi þeg-
ar ég var nýskriðin úr förðunar-
námi í kóngsins Köbenhavn og
Erlendur sonur þeirra kom á ferð-
um sínum til Kaupmannahafnar,
alltaf við hjá mér á Strikinu þar
sem ég rak verslun. Svona lítil en
þó stór atriði eru það sem ein-
kenndi Hjalta Geir og eru aðals-
merki hans fallegu fjölskyldu.
Hjalti Geir var einstakur mað-
ur. Hann var klár, brosmildur,
Hjalti Geir
Kristjánsson