Morgunblaðið - 27.10.2020, Side 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 2020
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur.
Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Ýmislegt
Tilboð/útboð
Sveitarstjórn Skútustaðahrepps samþykkti þann
11. mars 2020 að auglýsa tillögu að breyttu
deili skipulagi frístundabyggðar í landi Voga 1
skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Deiliskipulagsbreyting fer fram í kjölfar óverulegrar
breytingar á aðalskipulagi sem var staðfest þann
30. september 2020
Deiliskipulagsbreytingin snýr að því að bætt verði við lóð
fyrir íbúðarhús við núverandi frístundalóðasvæði og stærð
frístundalóðarinnar F5 minnkar.
Tillöguuppdráttur með greinargerð mun liggja frammi á
skrifstofu Skútustaðahrepps, Hlíðavegi 6, 660 Mývatn, frá og
með fimmtudeginum 22. október til og með föstudeginum
4. desember 2020. Þá eru upplýsingar einnig aðgengilegar
á heimasíðu Skútustaðahrepps: www.skutustadahreppur.is
undir flipanum skipulagsauglýsingar.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur
á að gera athugasemdir við tillöguna. Frestur til að skila
inn athugasemdum rennur út föstudaginn 4. desember
2020. Skila skal athugasemdum skriflega til skrifstofu
Skútustaðahrepps, Hlíðavegi 6, 660 Mývatn og/eða í
tölvupósti á netfangið: atli@skutustadahreppur.is.
Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna innan
tilskilins frests teljast henni samþykkir.
Allar nánari upplýsingar veitir undirritaður.
Atli Steinn Sveinbjörnsson,
skipulagsfulltrúi Skútustaðahrepps.
Auglýsing um breytingu
deiliskipulagi Voga 1
SKÚTUSTAÐAHREPPUR
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar Smíðar, útskurður með leiðbeinanda kl. 9-16. Opin vinnu-
stofa kl. 9-12. Handavinnuhópur kl. 12-16. Hádegismatur kl. 11.40-
12.50. Heitt á könnunni, allir velkomnir. Það þarf að skrá sig í viðburði
eða hópa í síma 411 2600.
Boðinn Stafganga kl. 10 (ath. breyttur tími). Boðið verður upp á sam-
veru og spjall í Bjartasal frá kl. 14-16, getum tekið á móti 20 manns.
Bústaðakirkja Enn erum við í 20 manna viðmiðinu og þar af leið-
andi verður ekki félagsstarf hjá okkur þar til því verður aflétt. Við von-
um það besta, að hægt verði að hittast sem fyrst. Guðs blessun til
ykkar allra. Starfsfólk Bústðakirkju og Grensáskirkju.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8.10-11. Thai
chi kl. 9-10. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Myndlistarhópurinn Kríur kl.
13-15.30. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30. Allir velkomnir óháð aldri og
búsetu. Nánari upplýsingar i síma 411 2790.
Garðabær Kæru gestir, íþrótta- og félagsstarfið okkar er lokað tíma-
bundið en Jónshús er opið með fjöldatakmörkun sem er 20 manns í
rými. Minnum á grímuskyldu í Jónshúsi og muna að halda áfram upp
á 2 metra regluna. Tilkynningar um breytingar koma líka fram á face-
booksíðu okkar https://www.facebook.com/eldriborgararfelagsstarf-
gardabaer
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps-
leikfimi kl. 9.45. Gönguferð kl. 13.30.
Korpúlfar Frjáls postulínsmálun í Borgum kl. 9.30 og spjallhópur í
Borgum kl. 13. Borgir opnar frá kl. 8-16 og virðum allar sóttvarnir og
förum varlega. Skráning í hádegisverð deginum áður og einnig
skráning í kaffiveitingar, þannig virðum við 20 manna regluna.
Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag verður hópþjálfun með sjúkraþjálf-
ara í setustofu 2. hæðar kl. 10.15-11. Bókband verður á sínum stað í
smiðju 1. hæðar kl. 13-17. Þá verður söngstund einnig eftir hádegi, í
matsal 2. hæðar, kl. 13.30-14.30. Við minnum á að grímuskylda ríkir í
félagsmiðstöðinni um þessar mundir. Velkomin á Lindargötu 59.
Seltjarnarnes Ath. vegna lokunar sundstaða er engin vatnsleikfimi í
dag. Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Pútt á Skólabraut kl. 10.30 ef veður
leyfir. Námskeið og önnur dagskrá úti í bæ eru í samráði við stjórn-
endur sem stýra aðgenginu. Munum áfram að halda almennar sótt-
varnir, handþvott, sprittun og að enn ríkir grímuskylda.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið kl. 10-16. Heitt á könn-
unni kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er kl. 11.30-
12.15, panta þarf matinn daginn áður. Leikfimi kl. 13. Bókabíllinn kem-
ur kl. 13.15 og Bónusbíllinn kl. 13. Kaffi og meðlæti er til sölu kl. 14.30-
15.30. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568 2586.
Smá- og raðauglýsingar
Vantar þig
pípara?
FINNA.is
Atvinnublað Morgunblaðsins
fimmtudaga og laugardaga
Er atvinnuauglýsingin þín á besta stað?
Sendu pöntun á atvinna@mbl.is eða hafðu samband í síma 569 1100
Allar auglýsingar birtast í Mogganum, á mbl.is og finna.is
✝ Erla FanneySigurbergs-
dóttir fæddist 11.
ágúst 1933 í Ólafs-
vík. Hún lést á Heil-
brigðisstofnun Suð-
urnesja 8. október
2020.
Foreldrar Erlu
voru Oddný Guð-
brandsdóttir og Sig-
urberg Ásbjörns-
son, skósmiður í
Keflavík. Systur Erlu eru Sig-
urrós Unnur, Erna og Guðrún
Matthildur sem er fallin frá.
Þann 31.12. 1953 giftist Erla
eiginmanni sínum, Jóni Elliða
Þorsteinssyni, f. 3.8. 1928, d. 2.5.
2003 frá Geiteyjarstönd í Mý-
vatnssveit. Eignuðust þau fjögur
börn, þau: 1) Oddný Indíana, f.
21.2. 1953, sonur Oddnýjar og
fyrrum eiginmanns hennar,
3.10. 1972, Margrét Hlín, f. 5.12.
1982, sambýlismaður Alan Mac-
Eachern, f. 29.12. 1980, dóttir
þeirra Sóley Una, f. 24.7. 2020,
Þorvaldur Örn, f. 11.10. 1990,
sambýliskona hans er Árný
Björk Björnsdóttir, f. 30.1. 1990.
Erla ólst upp í Ólafsvík til fjög-
urra ára aldurs en flutti þá ásamt
foreldrum sínum og systrum til
Keflavíkur árið 1937. Erla var
listakona og kaupmaður og ráku
þau hjónin Skóbúð Keflavíkur
við Hafnargötu 35 til fjölda ára.
Erla og Jón bjuggu nánast öll
sín búskaparár á Hringbraut 48.
Hún var ein af stofnendum
Styrktarfélags aldraðra á Suð-
urnesjum.
Útför Erlu Fanneyjar fer fram
frá safnaðarheimili Keflavík-
urkirkju í dag, 27. október 2020,
og hefst athöfnin klukkan 13. Í
ljósi aðstæðna munu einungis
nánustu aðstandendur vera við-
staddir athöfnina.
Streymi frá athöfninni verður
hægt að nálgast á:
https://tinyurl.com/y6fh3jxc
Virkan hlekk á slóð má nálgast á:
https://www.mbl.is/andlat
Scott Nelson, er Jón
Róbert Nelson, f.
9.12. 1984. Seinni
eiginmaður Odd-
nýjar var Birgir
Hrafnsson. 2) Birgir
Steinn, f. 8.4. 1960,
d. 19.6. 1964. 3)
Bryndís, f. 14.6.
1968, gift Hilmi Snæ
Guðnasyni, f. 24.1.
1969, dóttir þeirra
Viktoría Ísold, f.
8.12. 1994. 4) Brynjar Steinn, f.
31.1. 1976, kvæntur Bylgju Dís
Erlingsdóttur, f. 20.5. 1978, börn
þeirra: Steindís Erla, f. 7.6. 2012,
og Jón Steinn Elliði, f. 16.11.
2017.
Stjúpdóttir Erlu er Inger L.
Jónsdóttir, f. 7.2. 1950, gift Davíð
Baldurssyni, f. 10.3. 1949, börn
þeirra: Drífa Kristjana, f. 28.7.
1974, gift Heiðari Karlssyni, f.
Í dag kveðjum við Erlu Sigur-
bergsdóttur hinstu kveðju. Hún
var sterkur persónuleiki, lét sér
fátt fyrir brjósti brenna, ósérhlíf-
inn vinnuþjarkur og unnandi lista.
Hún bar virðingu fyrir skoðunum
annarra, hvetjandi, umburðar-
lynd, ráðholl og hafði sterkar
skoðanir. Vakin og sofin yfir sín-
um nánustu.
Það var gæfa mín í lífinu að
kynnast hennar mannkostum,
snemma á lífsleiðinni. Ein af mín-
um sterku fyrirmyndum. Hún var
eiginkona föður míns og það mun
hafa verið laust eftir miðja síðustu
öld að fundum bar saman. Þá kom
hún ásamt föður mínum í sína
fyrstu heimsókn til tengdafor-
eldra sinna fyrir norðan. Hún
einkar barngóð og fylgdi henni
mikil gleði. Þessi fallega kona
heillaði mig frá fyrsta degi og með
okkur tókst vinátta sem aldrei bar
skugga á.
Samvistir í bernsku voru
tengdar árlegri dvöl á æskuslóð-
um föður míns á Geiteyjarströnd í
Mývatnssveit. Þangað söfnuðust
föðursystkinin og fjölskyldur á
sumrin. Bræðurnir stunduðu sil-
ungsveiði af miklu kappi, en Erla
hafði ofan af fyrir okkur Oddnýju
og sýndi okkur markverða staði. Á
þeim tíma var dvalið í tjöldum, en
síðar byggður heilsársbústaður á
jörðinni.
Þegar ég svo átti þess kost að
heimsækja þau í Keflavík, kynnt-
ist ég systrum Erlu og fjölskyld-
um. Þau eru einstaklega glaðvær
og skemmtileg, mikið og hratt tal-
að um hin margvíslegu málefni.
Börn þeirra á svipuðum aldri og
leið ekki á löngu áður en mér
fannst ég tilheyra stórfjölskyld-
unni.
Um áratuga skeið ráku þau
hjónin Skóbúð Keflavíkur. Sá
Erla um daglegan rekstur og inn-
kaup. Erla kom víðar við. Hún var
afar listræn og teikningar hennar
vöktu athygli frá unga aldri. Þessu
hugðarefni sinnti hún á sama tíma
og annasömum atvinnurekstri og
heimili. Var hún svo lánsöm að fá
tækifæri til að sækja einkatíma
hjá Sverri Haraldssyni listmálara
og einnig námskeið erlendis. Erla
hélt nokkrar myndlistarsýningar
og eftir hana liggur fjöldi mál-
verka. Myndefni sótt í íslenska
náttúru og mörg úr Mývatnssveit
af mögnuðum hraunmyndum. Þá
lagði hún fyrir sig leir- og glerlist
og prýða mörg verk hennar heim-
ili ættingja og vina og að auki
kenndi hún leirkeragerð um nokk-
urt skeið.
Heimili þeirra hjóna var einkar
smekklegt, enda Erla hinn mesti
fagurkeri, prýtt fjölda listaverka
eftir hana sjálfa og fleiri lista-
menn. Þá ræktaði hún fagran garð
með litskrúðugum blómum og
trjám og er mikil prýði að. Þess
nutu ekki síst gestkomandi sem
böðuðu sig í sundlauginni utan-
dyra. Á þetta heimili var gott að
koma, enda bjó Erla yfir þeim
hæfileika að láta öllum líða vel í
návist sinni. Hún virtist hafa
endalausan tíma og einlægan
áhuga á því sem viðkomandi tók
sér fyrir hendur. Viðbrögð hennar
og hrifning svo innilega jákvæð og
uppörvandi. Fylgdist vel með
börnum mínum og var þeim ávallt
innan handar. Vegna fjarlægrar
búsetu árum saman urðu símtölin
mörg en að sama skapi afar gef-
andi.
Ég kveð stjúpu mína með sökn-
uði og þakka henni fyrir um-
hyggju og ástúð á garð fjölskyld-
unnar.
Inger L. Jónsdóttir.
Þegar ég var barn vissi ég að ég
væri ótrúlega heppin. Það var
vegna þess að ég átti ekki bara
tvær ömmur, heldur heilar þrjár.
Þessi þriðja, aukaamma, var hún
Erla mín.
Alltaf beið hún manns í stigan-
um á Hringbrautinni með út-
breiddan faðminn og fallega bros-
ið sitt þegar leið lá í Keflavík, inn í
huggulegasta listagallerí sem ég
hef komið í. Sem barn var ég al-
gerlega uppnumin af hæfileikum
hennar á listasviðinu, hún virtist
geta og kunna allt, sama hver efni-
viðurinn var. Samt var hún svo
hógvær og fölskvalaus.
Þegar ég sjálf fór að teikna og
mála af einhverri alvöru var hún
uppfull af ráðleggingum og kenndi
mér svo margt sem ég bý enn að í
dag. Hún hafði svo gott lag á að út-
skýra hlutina á einfaldan hátt, var
hreinskilin og laus við alla tilgerð.
Hún var flippaða amman sem
málaði eldhúsið sitt bleikt, bakaði
pönnukökur með þremur pönnum
og var alger skvísa fram á gamals-
aldur. Hún var afskaplega fyndin í
tilsvörum og áttum við ófáar
stundirnar sem við sátum og
kjöftuðum fram á nótt. Það var
yndislegt að eiga afdrep hjá henni,
ávallt jafn velkomin.
Já, þvílík heppni að hún Erla
giftist afa mínum, að fá að kynnast
henni og eiga hana að eins lengi og
ég gerði. Það er afskaplega erfitt
að kveðja en ég er svo þakklát fyrir
minningarnar og þá endalausu
hlýju sem ég upplifði í kringum
hana.
Hlín Davíðsdóttir.
Það eru að sumu leyti forrétt-
indi að fá að ganga vegferð lífsins í
marga áratugi með góðu fólki sem
tengist manni strax í æsku. Fólki
sem var til staðar og hafði mótandi
áhrif á fyrstu árum ævinnar. Fólki
sem verður óaðskiljanlegur hluti
af lífinu, frá barnæsku til efri ára.
Þannig samferðamaður var hún
Erla móðursystir mín.
Milli þeirra systra Ernu móður
minnar og Erlu er aðeins rúmlega
eitt ár. Árið 1942 þegar þær voru
sjö og átta ára lést móðir þeirra.
Frá og með þeim tíma þurftu þær
að stóla hvor á aðra með meiri
þunga en gengur og gerist. Bæði
þegar þær voru stúlkur og síðar
sem ungar mæður með börn á
svipuðum aldri. Stundum höfum
við krakkarnir gantast með að
þess vegna hafi þær þróað með
sér samband sem er nánara en
milli tvíbura. Alla ævi höfðu þær
ríka þörf til að vera í nánu sam-
bandi, helst daglega, varðandi allt
milli himins og jarðar. Og skipti þá
litlu hvort þær bjuggu í sama bæ
eða sín í hvorri heimsálfunni.
Þessi harmur þeirra í æsku varð
þannig okkar gæfa þar sem við
fengum eiginlega tvær skemmti-
legar mæður.
Það er varla hægt að ræða um
Erlu frænku mína án þess að
nefna að hún var einstaklega fal-
leg kona. Þetta fór ekki fram hjá
neinum sem hitti hana. Alltaf
mjög vel tilhöfð og alveg sama
hvernig hún var klædd, allt fór
henni vel. Það sem einkenndi hana
sem persónu öðru fremur var nán-
ast ófrávíkjanlegt trygglyndi. En
eins og systur hennar allar var
hún þó alls ekki laus við að hafa
stundum hvassar skoðanir.
Á sinni starfsævi var hún dug-
mikil verslunarkona og rak um
árabil skóbúð í Keflavík ásamt
Jóni Þorsteinssyni eiginmanni
sínum og fetaði þannig í fótspor
Sigurbergs föður síns sem var
skósmiður. En auk þess að vinna
við verslunarstjórn fór hún gjarn-
an í innkaupaferðir til útlanda þar
sem hún valdi skó í búðina af
smekkvísi og þekkingu á sam-
tímastraumum í tísku.
Áhugamál og ástríða Erlu var
málaralist enda komu listrænir
hæfileikar snemma í ljós. Það var
skemmtilegt að fylgjast með
þroska hennar sem listmálara eft-
ir að hún fór í læri hjá Sverri Har-
aldssyni. Það voru eins konar
tímamót sem leystu listsköpun
hennar úr læðingi. Upp frá því
varð til hennar sérstaki stíll og
áhugi á að útfæra íslenskt lands-
lag og skálda í hraunmyndanir í
myndverkum sínum. Ekki er ólík-
legt að málverkið hafi verið far-
vegur til að vinna sig út úr áfalli
sem hún varð fyrir sem ung móðir
og finna nýjan flöt á lífinu.
Þegar Erla var rúmlega þrítug
féll dimmur skuggi á líf hennar og
okkar allra þegar Birgir Steinn
sonur hennar lést af slysförum
rétt rúmlega fjögurra ára. Barns-
missirinn hafði eðlilega þung áhrif
á Erlu og okkur öll en fráfallið var
sjaldan rætt upphátt í áratugi.
Þannig var tíðarandinn. Það var
ekki fyrr en fyrir nokkrum árum
að ég ræddi um Birgi Stein í fyrsta
skipti við Erlu. Það var bjart og
nærandi samtal um fjörkálfinn og
gleðigjafann frænda minn sem var
fjórum árum yngri en ég.
Erla eignaðist þrjú börn til við-
bótar, frændsystkin mín Oddnýju,
Bryndísi og Brynjar. Ykkur og öll-
um ykkar aðstandendum sendum
við Gunna samúðarkveðjur.
Einar Páll Svavarsson.
Erla Fanney
Sigurbergsdóttir