Morgunblaðið - 27.10.2020, Qupperneq 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 2020
„VIÐ ÆTLUM AÐ FÁ ÞENNAN.”
„LÁTTU MIG VITA UNDIR EINS EF ÞÚ
FINNUR HJÁ ÞÉR ÞÖRF TIL AÐ LABBA ÚT
Á HLIÐ.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að biðja fyrir honum.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
„KÆRA SPYRÐU HUNDINN
…”
„HVERNIG VEIT ÉG AÐ ÞÚ SÉRT
HUNDUR Í ALVÖRUNNI?”
HANN GETUR KLÓRAÐ
SÉR BAK VIÐ EYRAÐ MEÐ
AFTURFÆTINUM
ÞETTA ER HAPPADAGURINN YKKAR!
VERÐIRNIR MÍNIR ERU NIÐRI VIÐ
VATNIÐ Í GRILLVEISLU!
ÁRÁS!
GRILL-
VEISLA!
ÞAÐ BORGAR SIG AÐ ÞEKKJA
VEIKLEIKA ÓVINANNA!
SPEGLAR
fossbæjar með meiru. Foreldrar
hennar eru hjónin Jens Guðmundur
Hjörleifsson, f. 13.11. 1927, og Krist-
jana Kristjánsdóttir, f. 11.12. 1929, d.
19.12. 2016. Þau bjuggu lengst af í
Hnífsdal en Jens býr nú á Selfossi.
Börn Bárðar og Sigríðar eru: 1) Guð-
mundur, f. 29.11. 1969, d. 31.10. 2018;
2) Kristjana Hrund, f. 16.11. 1972,
enskukennari við Fjölbrautaskóla
Suðurlands, gift Guðjóni Öfjörð Ein-
arssyni. Börn þeirra eru a) Jóhann
Bragi, í sambúð með Rakel Sunnu
Pétursdóttur; b) Anna Sigríður, í
sambúð með Marinó Marinóssyni; c)
Bárður Ingi; d) Jenný Arna. 3) Jens
Hjörleifur, f. 20.8. 1979, doktor í eðl-
isfræði, prófessor við Konunglega
tækniháskólann í Stokkhólmi. Sam-
býliskona hans er Maria-Theresa
Rider. 4) Helgi f. 20.12. 1982, verk-
fræðingur hjá Verkís, giftur Anní
Gerðu Jónsdóttur. Börn þeirra eru
Jón Trausti, Ingibjörg Lilja og Sig-
rún Sara. 5) Hlynur f. 20.12. 1982,
doktor í líffræði og starfar hjá
Hafrannsóknastofnun. Eiginkona
hans er Helga Ýr Erlingsdóttir. Börn
þeirra eru Kristín Edda, Margrét
Una og Örn Kári.
Systur Bárðar eru Hólmfríður, f.
25.8. 1944, fv. kennari og skólastjóri,
búsett á Akureyri, og Snjólaug, f.
14.11. 1945, fv. vefnaðarkennari á
Varmalandi, búsett á Brúarlandi á
Mýrum.
Foreldrar Bárðar voru hjónin Guð-
mundur Bárðarson, f. 9.2. 2018, d.
27.6. 1977, vélstjóri og ökukennari, og
Margrét Ingibjörg Bjarnadóttir, f.
8.8. 1915, d. 3.3. 1963, vefnaðarkenn-
ari.
Bárður
Guðmundsson
Guðmundur Jóhannesson
bóndi á Kirkjubóli,
Nauteyrarhreppi, Ísafirði
Kirstín Bárðardóttir
húsfreyja, Kirkjubóli,
Nauteyrarhreppi, Ísafirði
Bárður Guðmundsson
bókbindari á Ísafirði
Emelía Hólmfríður
Guðmundsdóttir
húsfreyja, Ísafirði
Guðmundur Bárðarson
vélstjóri og ökukennari
á Ísafirði
Guðmundur Guðmundsson
bóndi í Bæ Víkursveit,
Strandasýslu.
Björg Þorkelsdóttir
húsfreyja í Bæ Víkursveit,
Strandasýslu
Guðmundur
Ingi Guð
brandsson
umhverfis
og auðlinda
ráðherra
Óttar
Guðjónsson
fram
kvæmda
stjóri
Lánasjóðs
sveitar
félaga
Snjólaug
Guðmunds
dóttir
vefnaðar
kennari,
Brúarlandi á
Mýrum
Hólmfríður
Guðmunds
dóttir
kennari og
skólastjóri á
Akureyri
Kristján Benedikt
Bjarnason
bóndi Leifsstöðum, Eyjafirði
Borghildur Ingibjörg
Sigurðardóttir
húsfreyja Leifsstöðum
Bjarni Benediktsson
bóndi og kennari á
Leifsstöðum, Eyjafirði
Snjólaug Eyjólfsdóttir
húsfreyja, Leifsstöðum,
Eyjafirði, síðar áAkureyri
Eyjólfur Brandsson
bóndi StóruReykjum, SÞing.
Guðrún Árnadóttir
húsfr. StóruReykjum, SÞing.
Úr frændgarði Bárðar Guðmundssonar
Margrét Ingibjörg
Bjarnadóttir
vefnaðarkennari á
Ísafirði
Ingólfur Ómar Ármannsson orti áBoðnarmiði á laugardag:
Emja vindar aukast sköll
risti veðraslagur.
Fer með þjósti frír við mjöll
fyrsti vetrardagur.
Jón Atli Játvarðarson skrifar:
„Það að vera „neðanmálsskáld“ er
víst hvorki verra eða betra en að
vera „skúffuskáld“. Þessi kom upp
neðanmáls, við heita umræðu um
dulnefni á Boðnarmiði. Vissara að
láta hana inn sem færslu“:
Á sér falið eiginnafn,
andagift í múffu.
Enginn lækar ljóðasafn
sem liggur oní skúffu.
Indriði á Skjaldfönn skrifar um
„Ódáðanefnd“: Nú hefur Óbyggða-
nefnd í nafni bananalýðveldisins
okkar gert kröfu til 20 ferkílómetra
af Skjaldfannarlandi“:
Þjóðlendnanna þjófalið
þvælist um á fjöllum.
Bændur ekki fá nú frið
fyrir þessum köllum.
Jón Atli bætir við:
Þjóðlendur opnast, bjartara og betra,
blómlegt í fjallasal.
Það sem er ofan við þrjúhundruð metra
þjóðinni ánafna skal.
Enn yrkir Jón Atli og segir: „Veir-
an sem Þórólfur má ekki nefna,
þrátt fyrir að þetta sé nánast eini
stofninn sem angrar okkur í dag“:
Óx loks í sporti, var bitur og bæld,
á börum þá hart var í ári.
Veiran sú „franska“ í kóki er kæld
og kyngt með brennivínstári.
Hallmundur Kristinsson spyr:
Kollvarpa heiminum kórónuherir.
Komin er riða í fé.
Aldrei að vita hvað almættið gerir.
Er ekki að koma hlé?
Hólmfríður Bjartmarsdóttir fylg-
ist með pólitíkinni fyrir vestan:
Orðaflóð endalaus runnu
uppúr karlskari þunnu.
Þeir kalla hann Trump
Ég kalla hann Strump.
Hæst bylur í tómri tunnu.
Hólmfríður rifjar upp, að ein-
hvern tíma orti hún þetta um vín:
Af því gleðin alltaf vex
í ölvímu, ég þori.
að yrkja um karla, öl og sex
eins og fugl að vori.
Látum aldrei sorg og sút
setjast að í geði
Drekkum út úr einum kút
og yrkjum svo um gleði.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Neðanmálsskáld
og ódáðanefnd