Morgunblaðið - 27.10.2020, Síða 28
Í stað þess að hafa lokað vegna
veirufaraldursins, eins og mörg
óperuhús hafa kosið að gera,
hófst sýningatímabil Óperunnar í
Atlanta í Georgíu fyrir helgi með
líflegri uppsetningu á hinni sí-
vinsælu óperu Pagliacci í sirkus-
tjaldi í garði einum þar í borg.
Gagnrýnendur lofa framtakið,
þar sem gestir sitja með grímur
með tilskildu bili milli manna,
kórinn syngur einnig með grím-
ur, en einsöngvarar í eins konar
plastklefum þar sem fyllsta ör-
yggis er gætt.
AFP
Dramatík Reginald Smith fer með hlutverk Tonios og flutti upphafsaríu óperunnar í einum plastklefanna á sviðinu.
Grímuklædd Baksviðs í sirkustjaldinu í Atlanta gerðu söngvarar sig klára
áður en þeir stigu á svið í líflegri en óvenjulegri uppfærslu óperunnar.
Söngvarar í
plastklefum
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Tónlistarkonan Kristín Sesselja
sendi nýverið frá sér aðra hljóm-
plötu sína sem nefnist Breakup
Blues. Kristín samdi lög og texta
plötunnar og sá Baldvin Hlynsson
um útsetningar á öllum lögum nema
„Breakup Blues“ og „What would I
do without you?“ sem hann útsetti
með Kristínu. Plötuna unnu þau
milli landa þar sem Kristín bjó í
Noregi en Baldvin í Svíþjóð og skrif-
uðu þau svo undir dreifingar-
samning við stórfyrirtækið AWAL
sem sér um að
dreifa tónlist fyr-
ir listamenn og
hljómsveitir á
borð við Die
Antwood, Thom
Yorke og Finn-
eas. Kristín og
Baldvin kynntust á listahátíðinni
LungA í lagasmíðasmiðju og í lok
námskeiðsins áttu allir að útsetja lag
og bað Baldvin Kristínu að syngja
lagið sem hann samdi. Hófst þar
með farsælt samstarf og segir Krist-
ín að tekið hafi um hálft ár að gera
plötuna.
Samband frá byrjun til enda
Kristín er tvítug og að mestu
sjálflærð í gítarleik. Söngþjálfun
hlaut hún fyrst í kór Menntaskólans
við Hamrahlíð og tók síðar nokkra
söngtíma. Hún flutti nýlega aftur til
Íslands frá Noregi þar sem nún
stundaði nám í alþjóðlegum heima-
vistarskóla sem hún segir hafa haft
mikil áhrif á sig.
Baldvin er upptökustjóri, laga-
höfundur og djasspíanóleikari og
hefur gefið út djassplötur. Hann
var valinn bjartasta vonin árið 2018
í djass- og blúsflokki á Íslensku
tónlistarverðlaununum og hefur
unnið með tónlistarmönnum á borð
við Auði, Sturlu Atlas og Unnstein
Manúel. Hann stundar nám við
Konunglega tónlistarháskólann í
Stokkhólmi auk þess að sinna upp-
tökustjórn.
Kristín hefur samið lög í um átta
ár, gaf út EP-plötuna Freckles árið
2017 en á nýju plötunni syngur hún
um persónuleg málefni, eins og titill
plötunnar, Breakup Blues, og laga
hennar bera með sér en af lagatitl-
um má nefna „What Would I Do
Without You“ og „Please Don’t Kiss
Me With Your Eyes Open“. Blaða-
maður spyr hvort platan fjalli í heild
um sambandsslit? „Já, platan er
eiginlega bara saga, ein stór dagbók-
arfærsla um samband frá byrjun til
enda, samband sem fer voða illa en
fer úr reiði og sorg yfir í að vilja
finna hamingjuna á ný, finna hana
svo og kunna að meta vini sína. Að
fókusa á hið góða,“ svarar Kristín.
Andstæður mætast
Tilfinningarnar sem Kristín syng-
ur um í lögunum eru þungar en oft
eru textarnir fyndnir líka, að hennar
sögn. „Sérstaklega „Fuckboys“, það
er sterkur texti en mér finnst það
bara fyndið og „Type“ líka þar sem
ég er að fjalla um afbrýðisemi og
sorg, að sjá fyrrverandi með nýrri
manneskju en ég hlæ að því,“ út-
skýrir hún.
Í „Type“ er sungið til fyrrverandi
kærasta sem er kominn með nýja
kærustu upp á arminn sem virðist þó
vera svipuð týpa og hans fyrrver-
andi. „Þetta lag samdi ég í náttúru-
fræðitíma þegar ég átti að vera að
læra,“ segir Kristín glettin.
– Svona textar magnast upp þegar
tónlistin er létt, andstæður mætast
þannig að úr verður eitthvað áhrifa-
meira en ella, ekki satt?
„Já, algjörlega og við Baldvin töl-
um mikið um það þegar við erum að
vinna að tónlist, að okkur finnist
gaman að vinna með andstæður.
Sorglegur texti við létta melódíu og
útsetningu. Eins og þú segir hjálpar
það mikið við að ýta laginu lengra.
Maður getur bara hlustað ákveðið
lengi á texta um að eitthvað sé
ömurlegt og manneskjan svo leið en
ef maður getur dansað við það er
það miklu skemmtilegra.“
Swift alltaf efst á lista
– Áttu þér einhverjar fyrirmyndir
úr röðum tónlistarkvenna?
„Já, ég hlusta einmitt mjög mikið
á tónlistarkonur af því ég vil styrkja
þær og líka af því að ég tengi við
textana, hlusta mest eftir þeim. Tay-
lor Swift er alltaf efst á lista og alveg
frá því ég var 11 ára hef ég verið
Taylor Swift-aðdáandi númer eitt í
heiminum. Ég dýrka hana og dái og
fæ mikinn innblástur frá henni. Ný-
lega er ég svo farin að hlusta á Lily
Allen, finnst hún geggjuð og lagið
„Breakup Blues“ er mikið inspírerað
af Robyn hinni sænsku,“ svarar
Kristín.
Breakup Blues er aðgengileg á
streymisveitum og segir Kristín að
hana langi gjarnan að gefa líka út á
vínyl. Þeir sem vilja hlusta á plötuna
geta t.d. gert það á Spotify og má
einnig finna tónlistarmyndbönd við
lög Kristínar á YouTube þar sem
hún er með rás sem gerast má
áskrifandi að.
Ein stór dagbókarfærsla
Önnur plata Kristínar Sesselju, Breakup Blues, er komin út Sjálflærð söngkona og gítarleikari
Farið úr sorg og reiði yfir í hamingju í textum plötunnar og fyrrverandi kærasti fær orð í eyra
Upptökustjóri Baldvin Hlynsson
útsetti lög plötunnar fyrir utan tvö
sem þau Kristín útsettu saman.
Blámi Kristín Sesselja
syngur um sambandsslit og
fleira á Breakup Blues.
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 2020
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is
Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt land
Áratug
a
reynsla
Startar bíllinn ekki?
Við hjá Rafstillingu leysum málið
Afhendingu
bresku Olivier-
leiklistarverð-
launanna var
frestað í vor
vegna Covid-19
en þau voru loks
afhent í vef-
útsendingu á
sunnudags-
kvöldið var.
Sharon D. Clarke var valin besta
leikkonan fyrir frammistöðuna í
Sölumaður deyr í Young Vic-
leikhúsinu. Hún hreppti einnig Oli-
vier-verðlaun í fyrra. Marianne El-
liott og Miranda Cromwell hrepptu
verðlaunin fyrir bestu leikstjórn en
þær leikstýrðu Sölumaður deyr
saman. Andrew Scott var valinn
besti leikarinn, fyrir frammistöðu í
Present Laughter í Old Vic. Nýr
söngleikur sænska tónlistarfram-
leiðandans Max Martins, & Juliet,
hlaut flestar tilnefningar til verð-
launa, níu alls, og hlaut þrenn, öll
fyrir leik. Annar nýr söngleikur,
Dear Evan Hansen, hlaut einnig
þrenn verðlaun. Þá tók Ian McKel-
len við sínum sjöundu Olivier-
verðlaunum, fyrir leikferð í tilefni
af áttræðisafmælinu.
Olivier-verðlaunin voru loks afhent
Sharon D. Clarke