Morgunblaðið - 27.10.2020, Síða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 2020
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
FYRSTA STÓRMYND ÁRSINS
Nýjasta Meistaraverk
Christopher Nolan
★★★★★
★★★★★
★★★★★
The Guardian
The Times
The Telegraph
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
MÖGNUÐ MYND SEM
GAGNRÝNENDUR HLAÐA LOFI :
★★★★★
★★★★★
★★★★★
Roger Ebert.com
San Fransisco Cronicle
The Playlist
88%
SPLÚNKUNÝ MYND FYRIR
ALLA FJÖLSKYLDUNA
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI.
MYNDIN SEM HEFUR SLEGIÐ Í GEGN
Í EVRÓPU UNDANFARNAR VIKUR.
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALISÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
Chicago-sjömenningarnir,reyndar upphaflega átta,voru hópur manna semskipulögðu fjöldamótmæli
í Chicago í ágúst árið 1968 þegar
landsfundur Demókrataflokksins fór
þar fram og forsetaefni flokksins var
valið fyrir kosningar næsta árs,
Hubert Humphrey. Fleiri þúsundir
manna komu saman til að mótmæla
Víetnamstríðinu sem þá geisaði með
skelfilegu mannfalli og sífellt fleiri
ungir Bandaríkjamenn voru kvaddir
í herinn og sendir í stríðið. Lyndon B.
Johnson var þá forseti Bandaríkj-
anna, tók við völdum eftir að John F.
Kennedy var myrtur og við af John-
son tók svo Richard Nixon árið 1969.
Konur kröfðust aukinna réttinda til
jafns við karla og hippar boðuðu
frjálsar ástir, frið og hamingju. Árið
1968 voru bæði Robert Kennedy og
Martin Luther King myrtir og mót-
mælin gegn Víetnam-stríðinu voru í
algleymingi. Um tíu þúsund manns
söfnuðust saman í Chicago til að mót-
mæla því og andrúmsloftið var raf-
magnað.
Chicago-sjömenningarnir voru
þeir Abbie Hoffman, Jerry Rubin,
David Dellinger, Tom Hayden,
Rennie Davis, John Froines og Lee
Winer og voru þeir ákærðir fyrir
samsæri og að hvetja til óeirða, auk
fleiri ákæra. Áttundi maðurinn var
aktívistinn Bobby Seale, annar af
tveimur stofnendum Svörtu pardus-
anna, en málið gegn honum var fellt
niður á endanum eftir að hann hafði
verið bundinn og keflaður í réttarsal,
sem vakti mikli athygli og reiði á sín-
um tíma. Verjandi Seale var lagður
inn á sjúkrahús fyrir réttarhöldin og
gat því ekki sinnt starfi sínu og Seale
vildi ekki að sömu verjendur og
vörðu sjömenningana verðu hann.
Fimm af hinum sjö ákærðu voru á
endanum fundnir sekir fyrir að egna
til óeirða en ekki fyrir samsæri og
voru dæmdir til fangelsisvistar.
Dómarinn í málinu, Julius Hoffman,
þótti ekki starfi sínu vaxinn og illa
með á nótunum og voru hinir ákærðu
margsinnis ávítaðir fyrir að sýna
honum lítilsvirðingu.
Í mótmælunum eða óeirðunum
gengu lögreglumenn í skrokk á
óvopnuðu fólki, mörg þúsund manns,
með kylfum og beittu einnig skot-
vopnum og táragasi, eins og sjá má í
myndinni. Átök brutust tvisvar út,
fyrst í Grant Park þar sem mótmæl-
endur héldu til og síðar við Conrad
Hilton-hótelið. Fjöldi fólks var hand-
tekinn og hundruð særðust illa í
átökunum, bæði mótmælendur og
lögreglumenn. Barsmíðarnar voru
sýndar í sjónvarpsfréttum og upp-
tökur frá þeim má líka sjá í kvik-
myndinni The Trial of the Chicago 7
sem hér er til umfjöllunar og sýnd á
Netflix. Réttarhöld yfir mönnunum
átta hófust rúmu ári síðar, í sept-
ember 1969, og var dómur kveðinn
upp í febrúar 1970. Réttarhöldin
stóðu því yfir í um hálft ár. Verj-
endur sjömenninganna voru þeir
William Kunstler og Leonard Wein-
glass en saksóknarar Richard
Schultz og Tom Foran.
Handritshöfundur og leikstjóri
The Trial of the Chicago 7 er Aron
Sorkin og er þetta er önnur kvik-
myndin sem hann leikstýrir en hann
á mikinn fjölda sjónvarpsþátta- og
kvikmyndahandrita að baki, m.a.
handritin að A Few Good Men, þátt-
unum The West Wing og Newsroom
og kvikmyndunum Moneyball og The
Social Network. Sorkin er því þaul-
reyndur þegar kemur að því að taka
fyrir flókin mál á borð við réttarhöld
og pólitík og einkennast handrit hans
af löngum samtölum og oft og tíðum
flóknum og áhorfendur þurfa oftar
en ekki að hafa sig alla við til að halda
þræði.
Réttarhöldin, mótmælin og lög-
regluofbeldið sem Sorkin tekur fyrir
í The Trial of the Chicago 7 eru af
sama meiði, flókið mál og efni í langa
sjónvarpsþáttasyrpu. Hér er þessu
þjappað saman í 130 mínútur stút-
fullar af upplýsingum og samtölum
og aldrei dauður punktur í þeirri frá-
sögn. Líkt og verða vill í handritum
Sorkin eru allar persónur mælskar
og takast á með rökræðum en þar
sem fjallað er um sannsögulegan at-
burð eru samtöl mikið til fengin úr
málsskjölum. Það sem gerðist fyrir
luktum dyrum er auðvitað öllu skáld-
legra og getið í eyður þar.
Sorkin gefur bensínið í botn strax í
byrjun myndarinnar og dregur upp
mynd af sögusviðinu í stuttu en
snörpu inngangsatriði, kynnir helstu
persónur til sögunnar og rifjar upp
sögulega atburði frá þessum tíma og
þá m.a. morðin á Robert Kennedy og
Martin Luther King. Fyrir þann sem
ekki þekkir til mótmælanna og rétt-
arhaldanna er þetta eflaust yfir-
þyrmandi og mæli ég með því að fólk
kynni sér söguna áður en það horfir á
myndina. Má til dæmis finna ágætt
innslag úr bandaríska fréttaskýr-
ingaþættinum 60 mínútum á You-
Tube og langar greinar um réttar-
höldin víða á netinu.
Leikaravalið í myndinni er virki-
lega gott, valinn maður í hverju rúmi
og þá karlmaður því kvenpersónur
eru afar fáar í myndinni enda bæði
lögmenn og hinir ákærðu karlar.
Sacha Baron Cohen nær bæði tal-
anda og hegðun Abbie Hoffman lygi-
lega vel þó stundum fari hann aðeins
of langt í bandaríska hreimnum enda
Breti. Yahya Abdul-Mateen II er
góður í hlutverki Seale, Mark Ryl-
ance að vanda frábær sem verjand-
inn Kunstler og Joseph Gordon-
Levitt fínn í heldur bragðdaufu hlut-
verki saksóknarans Schultz. Michael
Keaton kemur stutt við sögu en af
miklu öryggi og Frank Langella fer á
kostum sem ringlaði og ógeðfelldi
dómarinn Hoffman. John Carroll
Lynch og Eddie Redmayne skila
sínu vel og í stuttu máli er bæði leik-
aravalið og frammistaða leikara eins
og best verður á kosið.
Réttardramamyndir eiga það til að
vera dálítið lýjandi þegar á líður enda
sjónrænt tilbreytingalitlar og mikið
talað. Sorkin gætir þess að sliga ekki
áhorfandann með þeim hætti og
klippir inn á milli atriði bæði aftur í
tíma og fram, annars vegar af undir-
búningi mótmæla, mótmælunum
sjálfum og átökunum og hins vegar
uppistandi Abbie Hoffman sem óljóst
er hvenær á að hafa farið fram en í
því rifjar hann upp atburðina og því
ljóst að það er eftir réttarhöldin.
Umfjöllunarefnið er sannarlega
áhugavert og á erindi við samtímann
í ljósi lögregluofbeldis í Bandaríkj-
unum og réttindabaráttu þeldökkra.
Frelsið er enn fótumtroðið í hinu
meinta landi frelsisins. Ég mæli hik-
laust með því að fólk horfi á þessa
kvikmynd og lítið út á hana að setja
annað en að stundum er upplýsing-
unum dælt fullhratt út og vissulega
er ókostur að þurfa að þekkja til
málsins fyrir áhorfið. Engu að síður
vönduð og áhrifamikil kvikmynd með
virkilega glæsilegum hópi leikara. Að
lokum má benda á að rætt er um
myndina í kvikmyndahlaðvarpinu
BÍÓ á slóðinni mbl.is/hladvarp/
hlusta/bio-kvikmyndahladvarp/.
Frelsið fótumtroðið
Réttardrama Frá vinstri leikararnir Yahya Abdul-Mateen II, Ben Shenkman, Mark Rylance, Eddie Redmayne og
Alex Sharp í The Trial of the Chicago 7 sem sýnd er á Netflix og fjallar um víðfræg réttarhöld árið 1969.
Netflix
The Trial of the Chicago 7 bbbbn
Leikstjóri og handritshöfundur: Aron
Sorkin. Aðalleikarar: Yahya Abdul-
Mateen II, Sacha Baron Cohen, Joseph
Gordon-Levitt, Michael Keaton, Frank
Langella, John Carroll Lynch, Eddie
Redmayne, Mark Rylance, Alex Sharp,
Jeremy Strong og Caitlin Fitzgerald.
Bandaríkin, 2020. 130 mín.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYNDIR