Morgunblaðið - 05.11.2020, Side 1

Morgunblaðið - 05.11.2020, Side 1
F I M M T U D A G U R 5. N Ó V E M B E R 2 0 2 0 Stofnað 1913  261. tölublað  108. árgangur  Úrbeinaður grísahnakki Með eplum og kanil 1.499KR/KG ÁÐUR: 2.499 KR/KG FRÁBÆR HELGARTILBOÐ Í NETTÓ! Kalkúnaleggir Lausfrystir – 3 stk 399KR/KG ÁÐUR: 887 KR/KG Lægra verð - léttari innkaup Tilboðin gilda 5.—8. nóvember -55% -40% Bökunarkartöflur 135KR/KG ÁÐUR: 269 KR/KG -50% „EIN AF BESTU BÓKUM ÓLAFS JÓHANNS“ STÓRSIGUR GEGN LITHÁEN ÍSLENSKUR JÓLABJÓR FER Í SÖLU Í DAG ÍÞRÓTTIR 61 SEXTÍU TEGUNDIR 20 64 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Vegna fjölgunar eldri borgara á næstu árum og áratugum þarf að byggja fjölda hjúkrunarheimila til að halda í við þörfina, jafnvel eitt eða tvö á ári. Verði það ekki gert munu biðlistar lengjast frá því sem nú er. Stærsti hópurinn sem flytur á hjúkrunarheimili er 80 ára og eldri þótt einnig þurfi hluti fólks á áttræð- isaldri á þjónustu þeirra að halda. Fjölmennir árgangar komast á þennan aldur á næstu árum og ára- tugum auk þess sem fólk lifir al- mennt lengur. Þrátt fyrir að hjúkrunarrýmum hafi verið fjölgað í ár og á síðasta ári eru nú yfir 400 aldraðir á biðlista hjúkrunarheimila. Meðalbiðtíminn hefur verið að lengjast og er nú sex mánuðir þótt stefna stjórnvalda sé að hann sé ekki lengri en þrír mán- uðir. Hætt er við að biðlistar muni lengjast mjög í framtíðinni, þegar stórir hópar aldraðra ná 80 ára aldri. Til þess að það gerist ekki þarf að byggja tugi hjúkrunarheimila, ef til vill eitt eða tvö 100 rýma heimili á hverju ári. Sá framkvæmdahraði sem verið hefur á byggingu nýrra hjúkrunarrýma mun engan veginn duga til að anna þörfinni. Unnt er að draga úr þörf fyrir byggingu nýrra hjúkrunarheimila í framtíðinni með aukinni áherslu á forvarnir, mataræði, heimaþjónustu og heimahjúkrun. María Fjóla Harðardóttir, forstjóri Hrafnistu, segir áríðandi að auka þessa þjón- ustu. Í framkvæmdaáætlun til ársins 2024 er gert ráð fyrir byggingu heimila með 578 nýjum hjúkrunar- rýmum. Þar vega þyngst áform um byggingu heimila með 200 rýmum í Reykjavík. Heilbrigðisráðuneytið og borgin eiga í viðræðum um lóðir og fjármögnun og verður staðsetning heimilanna væntanlega kynnt á næstunni. Byggja þarf hratt upp  Vegna hraðrar fjölgunar aldraðra þarf að byggja fjölda hjúkrunarheimila á næstu árum  Yfir 400 eru á biðlista eftir plássi á hjúkrunarheimilum Eldri borgurum fjölgar » Íbúum 80 ára og eldri fjölg- ar úr 13 þúsund í 34 þúsund til ársins 2050. Hluti af þessum hópi þarf pláss á hjúkrunar- heimilum. » Ef hjúkrunarheimili verða byggð í takti við áform stjórn- valda nú munu biðlistar marg- faldast. Nú eru yfir 400 aldr- aðir á biðlista eftir hjúkrunar- plássi en sú tala getur sjöfaldast fram til ársins 2050. MByggja þarf heimili… »24-26  „Okkur finnst að það sé allra hag- ur að það sé jafnræði á milli manna á svæðinu, að allir sitji við sama borð,“ segir Hjörtur Bergstað, for- maður Hestamannafélagsins. Mikil óánægja ríkir meðal hesthúseig- enda og hestamanna með að lóða- samningar virðast eiga að gilda í 50 ár fyrir suma en 25 ár fyrir aðra, samanber samþykkt meirihlutans í borgarráði. »18 Morgunblaðið/Eggert Deila Hestamenn segjast vera ósáttir. Borgin mismunar lóðaleigjendum Mikil aukning hefur orðið á sölu í verslunum Krónunnar að undanförnu, í sumum þeirra um allt að 30% séu síðustu mánuðir settir í samanburð við sama tímabil í fyrra. Ásta Sig- ríður Fjeldsted sem tók við sem framkvæmdastjóri fyrirtækisins í byrjun október sl. segir þetta í raun ekki koma á óvart. Margir vinni – og borði – heima um þess- ar mundir, mötuneyti í skólum og á vinnustöðum eru lokuð og veit- ingastaðir að mestu sömuleiðis. Auk þess er lítið um ferðalög til útlanda. Í Krónunni er nú meira keypt af ódýrari matvöru en áður sem Ásta telur að tengja megi við þrengri efnahag fólks. Almennt séu verslunarhættir mjög að breytast, þá einkum vegna tækniþróunar og þar sé margt spennandi í undirbúningi. »22 Aukning í verslunum Krónunnar um 30% Ásta Fjeldsted Joe Biden, forsetaframbjóðandi demókrata, þótti sigurstranglegur við upphaf annarrar nætur kosningavökunnar langdregnu í Bandaríkjunum. Biden er talinn hafa yfirhöndina í sveifluríkjunum Arizona og Wisconsin og nálgast sigur í Michigan - allt ríki þar sem Trump forseti vann fyrir fjórum árum. Úrslitin eru þó ekki ráðin meðan enn eru ótalin atkvæði og niðurstaðan var enn óviss þegar Morgunblaðið fór í prentun. »35-36 AFP Úrslita beðið í tvísýnum forsetakosningum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.