Morgunblaðið - 05.11.2020, Blaðsíða 32
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 2020
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Kraftur verður í loðnuleit og mæl-
ingum í byrjun næsta árs og hefur
verið auglýst eftir fjórum skipum
á leigu í samtals 49 daga. Þau
munu ásamt rannsóknaskipinu
Árna Friðrikssyni verða við mæl-
ingar og er gert ráð fyrir að ná
tveimur heildarmælingum á
hrygningarstofninum. Ekki hefur
áður verið auglýst eftir skipum til
loðnumælinga með þessum hætti.
Sigurður Guðjónsson, forstjóri
Hafrannsóknastofnunar, segir að
flókið geti verið að ná góðri mæl-
ingu á hrygningarstofni loðnunnar
í janúar og febrúar og nýta þurfi
veðurglugga sem gefist til að ná
samfelldri mælingu. Loðnan komi
oft í gusum inn á talsvert svæði
fyrir Norðurlandi og gangi síðan
hratt austur með landinu. Vanda-
samt geti verið að ná utan um
dreifinguna og talsverðar breyt-
ingar hafi orðið á göngum loðn-
unnar, atferli og útbreiðslu síðasta
áratuginn. Til að kortleggja stöð-
una fer rannsóknaskipið Árni
Friðriksson í forkönnun í byrjun
árs og verður nánari mæling m.a.
byggð á niðurstöðum hennar.
Grundvöllur ráðgjafar
Niðurstöður mælinga verða not-
aðar til grundvallar að lokaráðgjöf
Hafrannsóknastofnunar vegna
loðnuveiða á vertíðinni í vetur. Í
framhaldi af haustmælingum á
ungloðnu haustið 2019 var gefið út
170 þúsund tonna upphafsaflamark
á vertíðinni sem hefst nú eftir ára-
mót. Í haustleiðangri í september
síðastliðnum brá hins vegar svo
við að ekki mældist nægjanlegt
magn af loðnu til að gefa út ráð-
gjöf um aflamark. Skilyrði til leit-
ar voru hins vegar erfið vegna veð-
urs og hafís var yfir hluta af
leitarsvæðinu. Að óbreyttu verður
því loðnubrestur á næsta ári,
þriðja árið í röð.
Tveir leiðangrar
Í útboðsgögnum um leigu á
skipum kemur fram að gert sé ráð
fyrir tveimur leiðöngrum. Annars
vegar leigu á fjórum veiðiskipum í
sjö daga á tímabilinu frá 15. jan-
úar til 15. febrúar. Hins vegar
þremur veiðiskipum í viku á tíma-
bilinu frá 1. febrúar til 5. mars.
Nokkur sveigjanleiki er í útboðinu
þar sem erfitt er að fastsetja tíma-
setningar.
Að sögn Sigurðar hafa ekki bor-
ist svör frá fjárlaganefnd Alþingis
um 120 milljóna króna viðbót-
arfjárframlag á fjárlögum næsta
árs til að geta stundað loðnuleit og
mælingar á stofnstærð loðnu.
Hann segist þó vongóður um já-
kvæð svör við því erindi þar sem
um sé að ræða kostnað sem Haf-
rannsóknastofnun hafi ekki borið
áður. Mikið er í húfi því að ef
loðna finnst í nægjanlegu magni
eru mikil verðmæti fólgin í veið-
unum.
Lengi vel hafi útgerðir
uppsjávarskipa tekið þátt í þessu
verkefni fyrir eigin reikning, en
síðasta vetur hafi Hafrann-
sóknastofnun komið til móts við
þær með 30 milljóna króna fram-
lagi. Heildarkostnaður útgerðanna
var verulega meiri, að sögn Sig-
urðar.
Auk leigu á veiðiskipum til rann-
sókna á loðnu nefnir Sigurður að
aukakostnaður felist í kvörðun á
tækjum til bergmálsmælinga í
skipunum svo samræmi sé á milli
þeirra og þrír sérfræðingar frá
Hafró verði um borð í hverju skipi.
Leigja veiðiskip
til loðnumælinga
Flókið getur verið að ná góðri mælingu
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Þrátt fyrir kórónuveikifaraldur hef-
ur orðið aukning á útflutningi þorsk-
afurða til Frakklands fyrstu níu
mánuði ársins miðað við sama tíma í
fyrra. Hvað verðmæti áhrærir hefur
Frakkland verið á toppnum frá árinu
2017 þegar franski markaðurinn tók
fram úr þeim breska, samkvæmt
upplýsingum frá Samtökum fyrir-
tækja í sjávarútvegi (SFS).
Staðan á útflutningi þorskafurða
til Bretlands er nánast óbreytt í ár
miðað við 2019. Samdráttur hefur
orðið á útflutningi til Spánar og
Bandaríkjanna, en nefna má að
áfangastöðum fyrir flug frá Íslandi
hefur fækkað í Bandaríkjunum sam-
fara kórónuveirufaraldrinum. Aukn-
ing hefur orðið á útflutningi til
Portúgals. Fyrrnefnd fimm lönd
kaupa mest af þorskafurðum héðan
eða yfir 70% miðað við verðmæti.
Bretar hafa verið stærsta viðskipta-
þjóð Íslendinga með frystar afurðir,
Frakkar með ferskar og Spánverjar
og Portúgalar með saltaðar. Banda-
ríski markaðurinn er næststærsti
markaður Íslendinga með ferskar
afurðir.
Fjárfest í tækni
Á fyrstu níu mánuðum ársins er
útflutningsverðmæti sjávarafurða
komið í 196 milljarða króna saman-
borið við um 192 milljarða á sama
tíma í fyrra. Það er rétt rúmlega 2%
aukning í krónum talið, en sú hækk-
un skrifast á lækkun á gengi krón-
unnar. Rúmlega 7% samdráttur
mælist í útflutningsverðmætum
sjávarafurða á tímabilinu í erlendri
mynt, að því er fram kom í frétta-
bréfi SFS í vikunni.
Útflutningsverðmæti þorskafurða
var komið í tæpa 98 milljarða á
fyrstu níu mánuðum ársins. Það er
um 4% aukning frá sama tímabili í
fyrra, mælt í erlendri mynt. Verð-
mæti þorskafurða er þar með 50% af
heildarverðmætum útfluttra sjávar-
afurða í ár, en nefna má að loðna hef-
ur ekki verið veidd síðustu tvo vetur.
Samfara breytingum í vinnslu
undanfarinn áratug hafa miklar
breytingar orðið á hlutdeild ein-
stakra viðskiptalanda með þorskaf-
urðir. Þannig hefur franski markað-
urinn orðið mikilvægari á síðustu
árum. Miðað við útflutningsverð-
mæti þorskafurða 2019 var hlutdeild
franska markaðarins um 20% en
miðað við magn rúm 14%.
Það endurspeglar að verðmætari
þorskafurðir eru fluttar út til Frakk-
lands. Stærsti hluti þorskafurðanna
sem fóru þangað í fyrra voru fersk,
roðflett þorskflök í bitum og er það í
samræmi við auknar áherslur ís-
lenskra fyrirtækja á ferskar afurðir,
en þau hafa ráðist í verulegar fjár-
festingar í hátæknibúnaði fyrir
vinnslu og kælingu.
Verðmætustu afurðirn-
ar fara til Frakklands
Breytingar á hlutdeild viðskiptalanda með þorskafurðir
Hlutdeild 10 stærstu viðskiptalanda Íslendinga með þorskafurðir
30%
25%
20%
15%
10%
5%
0%
Miðað við útfl utningsverðmæti 2007 2011
2015 2019
Frakkland Bretland Spánn Bandaríkin Portúgal Holland Nígería Þýskaland Belgía Kanada
Heill og hausskorinn, ferskur eða frystur Frystar afurðir
Ferskar afurðir Saltaðar afurðir þurrkaðar afurðir Annað
Útfl utningsafurðir þorks eftir helstu vinnslufl okkum 2019
5% 35% 36% 18% 5%
30%
20%
17%
20%
15%
4%
12%
14%
7%
9%
6%
5% 5%
1%
4% 5% 4%
0%
3%
5%
Heimild: Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi
RAGNA Thermore® úlpa
kr. 27.990.-