Morgunblaðið - 05.11.2020, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 2020
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Í næstu viku afhenda fulltrúar Geð-
hjálpar stjórnvöldum undirskrifta-
lista þar sem skorað er á stjórnvöld
og samfélagið allt að setja geðheilsu
í forgang. Söfnun þessi, sem er á vef-
slóðinni 39.is, verður í loftinu fram á
sunnudagkvöld og í gær höfðu rúm-
lega 30.000 manns skrifað nafn sitt
þar. Einnig verður kynnt aðgerða-
áætlun Geðhjálpar í níu liðum, allt
atriði sem skipta miklu máli.
Gefa geði gaum á veirutíma
Á síðasta ári sviptu alls 39 manns
á Íslandi sig lífi en sú tala er líka
meðaltal sjálfsvíga á ári síðastliðinn
áratug. Af tölunni er titill söfnunar
undirskrifta fenginn.
„Við teljum að nú sé lag og hljóm-
grunnur úti í þjóðfélaginu fyrir úr-
bótum í geðheilbrigðismálum,“ segir
Grímur Atlason, framkvæmdastjóri
Geðhjálpar, í samtali við Morgun-
blaðið. „Aðstæður undanfarið hafa
verið erfiðar, einangrun og röskun á
daglegu lífi vegna kórónuveirunnar
tekur á og hefur áhrif á líf allra. Al-
þjóðaheilbrigðismálastofnunin,
WHO, gaf þau skilaboð út strax í
upphafi heimsfaraldursins að gefa
þyrfti geðheilbrigðismálum gaum
rétt eins og gert hefur verið. Geð-
heilsa ætti alltaf að vera í forgangi.
Nú horfum við til janúar- og febr-
úarmánaða, þessa dimma tímabils
þegar reynir á líf og líðan margra.“
Umhverfi og samfélag
sterkir áhrifaþættir
Ný stjórn var kjörin í Geðhjálp
fyrr á þessu ári og Elín Ebba Ás-
mundsdóttir iðjuþjálfi á þar sæti.
Stjórnarfólk segir hún strax þegar
það tók við keflinu hafa ákveðið að
vera framsækið og taka frumkvæði í
umræðu. Vekja athygli á orsaka-
þáttum geðheilbrigðis; því hve miklu
umhverfi og samfélag ráði um geð-
heilsu.
„Samfélaginu verður í krafti
reynslu og rannsókna sífellt betur
ljóst hvað fyrstu 1.000 dagarnir í lífi
barns skipta miklu máli um líf þess,
heilsu og þroska. Þar verður að stíga
fastar inn með ráðgjöf og stuðning
og veita fjölskyldum aðstoð ef þarf.
Einnig að fræða verðandi foreldra
um mikilvægi tengslamyndunar í lífi
barnsins. Skólagangan hefur líka af-
gerandi áhrif og því þarf geðfræðsla
að vera hluti af skólastarfi,“ segir
Elín Ebba. „Þetta helst í hendur við
margvíslegar aðrar breytingar sem
þurfa að verða. Bæði atvinnulífið og
skólakerfið hafa hingað til að veru-
legu leyti miðast við þarfir fram-
leiðslu sem setja fólk í kassa og und-
ir ákveðin viðmið. Nú þarf nýja
nálgun.“
Vilja geðsvið í ný húsakynni
Geðrænar áskoranir eru nærri
þriðjungur allra þeirra verkefna
sem heilbrigðisþjónustan í landinu
sinnir, þótt málaflokkurinn sjálfur
taki aðeins tíund fjárveitinga. Ýmsu
í þessari þjónustu þarf að breyta að
mati Geðhjálpar eins og tilgreint er í
þeim níu punktum til aðgerða sem
samtökin setja fram. Auka þurfi
fjárveitingar til þessa sviðs heil-
brigðismála og breyta starfsemi
heilsugæslunnar, svo liðsinni sál-
fræðinga, félagsfræðinga, iðjuþjálfa
Hljómgrunnur er fyrir úrbótum
30.000 manns kalla eftir úrbótum í geðheilbrigðismálum Geðhjálp safnar nú undirskriftum á
39.is Áhersla á orsakaþætti Baráttumál kynnt Þjónusta út í samfélagið Vitundarvakning
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Geðhjálp Að fólk sé ekki virkt, einangri sig og taki ekki þátt er samfélaginu
dýrt, segir Grímur Atlason, sem hér er með Elínu Ebbu Ásmundsdóttur.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Stjórnir Félags hesthúseigenda í
Víðidal og Hestamannafélagsins
Fáks hafa mótmælt samþykkt
meirihluta borgarráðs þann 25. júní
sl. Þá hafnaði borgarráð beiðni Fé-
lags hesthúseigenda í Víðidal um 50
ára lóðarleigusamninga með
ákvæðum um að borgarsjóður
greiði leigutaka sannvirði húsanna
þegar leigutíma lýkur. Meirihluti
borgarráðs samþykkti að lóðar-
leigusamningar í Víðidal skyldi
áfram vera til 25 ára og að eig-
endur skyldu fjarlægja hesthús á
sinn kostnað og skila lóðinni þannig
að leigutíma loknum.
„Hestamenn í Víðidal þurfa því
áfram að búa við algerlega úrelta
lóðarleigusamninga sem hamla við-
haldi, endurnýjun og fjármögnun
hesthúsanna. Þessir úreltu lóðar-
leigusamningar standa enn fremur
í vegi fyrir endurnýjun í hesta-
mennskunni, að ungt fólk vilji
leggja í þá fjárfestingu sem bygg-
ing hesthúss er. Það er ótrúlegt að
árið 2020 sé hesthúseigendum boð-
ið upp á það að fjarlægja hesthús
sín á sinn kostnað að loknum 25
ára leigutíma,“ segir í sameigin-
legri yfirlýsingu stjórna félaganna
tveggja 2. nóvember síðastliðinn.
Væntir farsællar lausnar
„Við höfum átt mjög gott sam-
starf við borgina og ég vænti þess
að við finnum farsæla lausn á þessu
máli eins og okkur hefur tekist
hingað til í öllum málum sem upp
hafa komið gagnvart borginni,“
sagði Hjörtur Bergstað, formaður
Hestamannafélagsins Fáks. Þrjú
hesthúsahverfi eru á starfssvæði
Fáks í Reykjavík, Faxaból og Víði-
dalur í Víðidal ofarlega í Elliðaár-
dal og í Almannadal á Hólmsheiði.
Fákur hóf uppbyggingu starfsemi í
Elliðaárdalnum árið 1970 og í Al-
mannadal 2006. Reykjavíkurborg
og Fákur gerðu árið 1986 lóðaleigu-
samning til 50 ára vegna hesthúsa-
byggðarinnar Faxabóls, norðan við
reiðhöllina í Víðidal, gæðingavallar
og skeiðvallar félagsins. Fákur
leigði svo félagsmönnum sínum lóð-
ir fyrir hesthús í Faxabóli og í Al-
mannadal. Eigendum hesthúsa þar
er skylt að vera í Fáki. Hesthúsa-
hverfið Víðidalur, sunnan við reið-
höllina, varð til upp úr 1970 þegar
eigendum hesthúsa við Elliðaár var
gert að færa þau fjær ánum vegna
mengunarhættu. Borgin gerði mis-
munandi lóðarsamninga við lóðar-
hafa í Víðidalshverfinu. Þeir sem
átt höfðu lóðarréttindi á svæðinu
þurftu ekki að borga gatnagerð-
argjald og sluppu við leigugjald til
að byrja með. Kveðið var á um að
lóðarhafar skyldu fjarlægja mann-
virki á sinn kostnað í lok samnings-
tíma. Þeim sem fengu úthlutaðar
lóðir eftir 1978 var gert að greiða
gatnagerðargjald og var í samning-
unum að borgarsjóður greiddi
leigutaka sannvirði húsa að leigu-
tíma loknum. Lóðarsamningar á
svæðinu voru yfirleitt til 25 ára en
lóðarsamningur Dýraspítalans í
Víðidal er til 50 ára. Dæmi eru um
lóðarsamninga þar sem ekki er tek-
ið fram hvað gerist með eignirnar
að loknum samningstíma. Sumir
þessara leigusamninga eru útrunn-
ir hvað gildistíma varðar en leigan
framlengist um tvö ár í senn sé
samningnum ekki sagt upp.
Allir sitji við sama borð
Hesthúseigendur og hestamenn
eru óánægðir með þetta ósamræmi
og segja að samningarnir sem
gerðir voru til 25 ára þar sem eig-
endum er gert að fjarlægja húsin
að leigutíma loknum standi í vegi
fyrir eðlilegri endurnýjun í hesta-
mennsku. Þeir hamli einnig við-
haldi og endurbyggingu hesthús-
anna. Engin teikn séu á lofti um að
til standi að breyta landnotkun á
svæðinu og borgarstjóri hafi marg-
lýst því yfir að þarna eigi áfram að
vera athafnasvæði hestamanna.
Vilja breytta lóðarsamninga
Hesthúseigendur í Víðidal vilja samninga til 50 ára Borgarráð hafnaði því Annað fyrirkomulag
er í Faxabóli og Almannadal þar sem Fákur leigir landið til 50 ára og endurleigir félagsmönnum lóðir
El
l ið
aá
r
Skeiðvöllur
Faxaból
Gæðingavöllur
Víðidalur
Árbær
Breiðholt
Norðlingaholt
Hesthúsalóðir
á athafna-
svæði Fáks
Br
eið
ho
lts
br
au
t
Reiðhöllin
Dýraspítalinn
GRUNNUR AÐ
GÓÐRI HEILSU
Vissir þú að um 80% af ónæmiskerfinu eru í meltingarveginum?
KEFIR er auðugur af lifandi góðgerlum sem fjölmargar rannsóknir
hafa sýnt að bæta meltinguna og viðhalda heilbrigðri þarmaflóru.
Hann inniheldur einnig mikið af próteini, kalki og nauðsynlegum
vítamínum eins og B12.
KEFIR - KOMDU HEILSUNNI Í JAFNVÆGI