Morgunblaðið - 05.11.2020, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 2020
biðtímann, sérstaklega í minni
heilsuumdæmum. Landlæknir reikn-
ar því einnig út miðgildi í biðtíma
sem embættið telur gefa betri mynd
af stöðunni en meðalbiðtími. Sá út-
reikningur hefur sýnt 60-70 daga
biðtíma það sem af er þessu ári.
Biðtíminn er afar misjafn eftir
heilbrigðisumdæmum. Lengst er
biðin á Vestfjörðum en styst á
Suðurlandi. Höfuðborgarsvæðið, þar
sem mesti fjöldinn býr, er aðeins yfir
meðaltalinu.
Biðlistar munu lengjast
Heilbrigðisráðuneytið stefnir að
því að byggja heimili með 578 nýjum
hjúkrunarrýmum samkvæmt fram-
kvæmdaáætlun sem gildir til ársins
2024. Ef maður gefur sér að byggð
verði hjúkrunarheimili með 500 rým-
um á hverju áratug, sem er bjartsýn
áætlun miðað við söguna, dugar það
skammt og biðlistar munu marg-
faldst. Þörfin er líklega sú að byggja
þurfi eitt til tvö hundruð rýma hjúkr-
unarheimili á ári, næstu þrjá áratug-
ina.
Nú er langur biðlisti sem þarf að
ná niður. Fólk fær almennt ekki
tækifæri til að komast inn á hjúkr-
unarheimili fyrr en það er orðið veikt
enda er dvalartíminn yfirleitt fáein
ár. Það hefur neikvæð áhrif á heilsu
fólks og lífsgæði ef það þarf að bíða
lengi í biðrými eftir plássi á hjúkr-
unarheimili, að mati embættis land-
læknis.
Heilbrigðisráðherra vill koma upp
200 hjúkrunarplássum í Reykjavík á
næstu árum. Viðræður standa yfir á
milli ríkis og Reykjavíkurborgar um
lóðir og fjármögnun og verður stað-
setning heimilanna gerð opinber á
næstu vikum. Þá er eftir að deili-
Þróun fjölda hjúkrunarrýma
Spá um fjölgun eldri borgara 2020-2050
Þörf á hjúkrunarrýmum og þróun biðlista 2020-2050
Meðalbiðtími 2019 eftir heilbrigðisumdæmum
reiknað á hverja 1.000 íbúa
Meðalbiðtími eftir hjúkrunarplássi 2011-2020*
Hjúkrunar- og
dvalarrými 2020
450
360
270
180
90
0
200
150
100
50
0
500
400
300
200
100
0
8.000
7.000
6.000
5.000
4.000
3.000
2.000
1.000
0
10%
8%
6%
4%
2%
0%
Dagar, miðað við ár flutnings
á hjúkrunarheimili
Mannfjöldi alls (þús.)
Hlutfall 80 ára og eldri af heildarmannfjölda
Fjöldi hjúkrunarrýma
Fjöldi á biðlista
2020 2025 2030 2040 2050
2020 2025 2030 2040 2050
Meðalfjöldi á biðlistum eftir hjúkrunarrými 2011-2020
Fjöldi rýma
Þar af
ný rými
Árborg 60 25
Höfn 30 6
Húsavík 60 6
Stykkishólmur 18 0
Sólvangur
gamli, Hafnarf.
33 33
Boðaþing,
Kópavogi
64 64
Akureyri 60 60
Reykjanesbær 60 30
Mosfellsbær 44 44
Reykjavík 200 200
Patreksfjörður 11 0
Ás, Hveragerði 35 0
Neskaupstaður 10 0
Ísafjörður 10 10
695 478
3.073
3.784
4.595
6.341
7.489
Heimild: Greinargerð
landlæknis, júlí 2020
158
279 297
418 395 407
364
386 385
405 420
Mannfjöldi
(þús.)
Fjöldi
80 ára
og eldri
2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020
1. ársfj.
2011
1. ársfj.
2015
4. ársfj.
2016
4. ársfj.
2018
4. ársfj.
2019
3. ársfj.
2020
3,5%
468
758
1.319
2.565
3.213
3,7%
4,7
6,7%
8,1%
186
132
104
65
Vestfirðir
Norðurland
Austurland
Vesturland
Höfuðborgarsvæðið
Suðurnes
Suðurland
13,5
11,4
10,8
10,7
7,2
6,2
4,3
Meðalbið-
tími 7,8
Framkvæmdaáætlun
til ársins 2024
Heimild: Heilbrigðisráðuneytið, sept. 2019
Almenn hjúkrunarrými 2.747
Önnur hjúkrunarrými 147
Dvalarrými 179
Samtals
3.073
hjúkrunar- og
dvalarrými
Heimild: Heilbrigðisráðuneytið
Heimild: Mannfjöldaspá Hagstofu Íslands frá 2019, miðspá.
Heimild: Greinargerð
landlæknis, júlí 2020
Vænt þörf fyrir hjúkrunarrými skv. opinberum mannfjöldaspám og
þróun biðlista þrátt fyrir að 500 rými verði byggð á hverjum áratug
*3. ársfj. 2020
Byggja þarf heimili á hverju ári
Hröð fjölgun eldri borgara á næstu árum og áratugum kallar á mikla uppbyggingu hjúkrunarheimila
Aukin áhersla á forvarnir og þjónustu við eldri borgara í heimahúsum getur dregið úr þörfinni
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sléttuvegur Nýjasta hjúkrunarheimili landsins, Hrafnista við Sléttuveg í
Fossvogi, reis á undraskömmum tíma. Þar eru 99 heimilismenn.
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Vegna hraðrar fjölgunar eldri borg-
ara á næstu árum og áratugum þarf
að byggja eitt eða tvö hjúkrunar-
heimili á ári til að halda í við þjón-
ustuna. Einnig þarf að bæta mikið í
forvarnir, endurhæfingu, heima-
hjúkrun og heimaþjónustu til að
draga úr þörf fyrir innlagnir á hjúkr-
unarheimili. Sá gangur sem nú er í
þessum málum dugar ekki. Raunar
telja margir viðmælendur að illa sé
staðið að þessari þjónustu og vísa til
þess að samtökin sem reka hjúkr-
unarheimilin fái ekki greiðslur frá
ríkinu í samræmi við þá þjónustu
sem þeim er ætlað að veita.
Stærsti hópurinn sem flytur á
hjúkrunarheimili eru 80 ára og eldri
þótt einnig þurfi hluti fólks á áttræð-
isaldri á þjónustu þeirra að halda.
Nú eru fjölmennir árgangar að kom-
ast á þennan aldur auk þess sem fólk
lifir lengur. Hagstofan spáir því að
fjöldi 80 ára og eldri tvö- til þrefald-
ist næstu þrjátíu árin á sama tíma og
landsmönnum í heild fjölgar aðeins
um 15%. Það verða færri hendur að
vinna fyrir útgjöldum samfélagsins
vegna þjónustunnar sem veikir eða
ellihrumir eldri borgarar þurfa á að
halda.
Beðið í sex mánuði eftir plássi
Ástandið er ekki gott fyrir. Sam-
kvæmt upplýsingum embættis land-
læknis voru að meðaltali 407 lands-
menn á biðlista eftir hjúkrunarrými
á þriðja fjórðungi þessa árs. Biðlistar
hafa lengst á undanförnum árum
enda hefur uppbygging hjúkr-
unarheimila mikið gengið út á að
bæta aðbúnað á þeim hjúkr-
unarheimilum sem fyrir eru, meðal
annars með því að taka tvíbýli úr
notkun. Þegar nýtt heimili bætist
við, eins og Hrafnista á Sléttuvegi
fyrr á þessu ári, sjást þessi merki á
biðlistum en þeir fara síðan fljótt í
fyrra horf og halda áfram að lengj-
ast.
Það tekur tíma fyrir veikt fólk að
fá færni- og heilsumat og komast
þannig inn á biðlista og eru hinir op-
inberu biðlistar því frekar vanmat en
ofmat á þörfinni.
Meðalbiðtími fólks sem flyst á
hjúkrunarheimili er nú 186 dagar og
hefur mikið verið að lengjast, eins og
sést á meðfylgjandi grafi. Biðtíminn
er því sex mánuðir. Stefna stjórn-
valda er að biðtíminn verði ekki
lengri en þrír mánuðir. Þess ber að
geta að fáir einstaklingar sem bíða
lengi af einhverjum ástæðum, gætu
til dæmis hafa fengið færni- og
heilsumat en ekki þegið vist á hjúkr-
unarheimili, geta haft mikil áhrif á SJÁ SÍÐU 26
Rekstur hjúkrunarheimila - þjónusta við aldraða
Aðalstræti 2 | s. 558 0000
SUNNUDAGSSTEIK
Við eldum, þú sækir, tilbúið beint á borðið hjá þér!
Takmarkað
magn í
boði
Pantaðu í síðasta lagi föstudaginn 6. nóv. á
info@matarkjallarinn.is eða í síma 558 0000
Afhent milli 17.30 og 19.00 á sunnudaginn
Heilt lambalæri á gamla mátann
• Meðlæti: Koníaksbætt sveppa-piparsósa,
kartöflugratín, rauðkál og salat
• Eftirréttur: Marengsbomba
Fyrir 4-6 manns
Verð 12.990 kr.