Morgunblaðið - 05.11.2020, Blaðsíða 2
Bingó-leikur haldinn
í annað sinn í kvöld
Mörg þúsund manns sameinuðust fyrir framan
skjáina á fimmtudaginn í síðustu viku þegar
Siggi Gunnars stýrði fjölskyldubingói í beinni
útsendingu á mbl.is. Bingóið gekk eins og í sögu
og þátttaka fór fram úr öllum væntingum.
Ákveðið var að halda gleðinni gangandi og í
kvöld verður slegið til veislu í beinni útsend-
ingu á mbl.is.
Klukkan 19:00 hefst annar þáttur af
bingói Morgunblaðsins, mbl.is
og K100. Enn og aftur sér
Siggi Gunnars um að
stjórna þættinum með Evu
Ruzu sér til halds og trausts.
„Ég er mjög spenntur
fyrir öðrum bingóþætti.
Þetta gekk svakalega
vel í síðustu viku, þús-
undir spilara tóku þátt
og gleðin var mikil. Við ætl-
um að byggja ofan á reynsluna frá í
síðustu viku og gera enn betur og ég
vona að sem flestir setjist fyrir fram-
an skjáinn og taki þátt,“ segir Siggi
sem sló heldur betur í gegn á skján-
um í síðustu viku.
„Við erum ekki mikið að fara út
að skemmta okkur næstu vikurnar
og ég vona að þetta gleðji einhverja
þarna úti, sérstaklega fjölskyldur
enda er bingó mikið fjölskyldu-
sport.“
Þúsundir tóku þátt í síðustu viku
Bingó
Siggi
Gunnars
heldur uppi
fjörinu.
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 2020
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Efnahags- og viðskiptanefnd Alþing-
is leggur til umfangsmiklar breyting-
ar á stjórnarfrumvarpinu um tekju-
fallsstyrki, svo mun fleiri geti átt rétt
á þessum stuðningi en gert var ráð
fyrir í frumvarp-
inu og jafnframt
að skilyrði fyrir
styrkjunum verði
rýmkuð. Ef
breytingatillög-
urnar verða sam-
þykktar gætu
tekjufallsstyrk-
irnir kostað ríkis-
sjóð um eða yfir
23 milljarða kr.
skv. upplýsingum
Óla Björns Kárasonar, formanns
nefndarinnar. Í upphaflegu frum-
varpi var gert ráð fyrir að kostnaður-
inn gæti orðið allt að 14,4 milljarðar.
,,Tekjufallsstyrkirnir voru í upp-
hafi hugsaðir fyrst og fremst fyrir
einyrkja, listamenn og örfyrirtæki
með þrjá starfsmenn eða færri, það
er búið að víkka þá út og í raun nær
frumvarpið utan um öll fyrirtæki eða
rekstraraðila óháð stærð,“ segir Óli
Björn.
Tekjufallsstyrkirnir eru í frum-
varpinu ætlaðir einyrkjum og litlum
fyrirtækjum þar sem launamenn eru
þrír eða færri og hafa orðið fyrir
minnst 50% tekjufalli á tímabilinu 1.
apríl til 30. september sl. samanborið
við sama tímabil í fyrra. Nefndin
leggur hins vegar til að allir rekstr-
araðilar geti sótt um tekjufallsstyrk
óháð starfsmannafjölda, enda upp-
fylli þeir önnur skilyrði fyrir styrk-
veitingu, m.a. um lágmarkstekjufall.
Sett er ákveðið þak á styrkina í til-
lögum nefndarinnar og þeir eru jafn-
framt þrepaskiptir. Tímabilið sem
miðað verði við nái til 31. október og
krafan um að þeir einir geti fengið
styrk sem hafa orðið fyrir meira en
50% tekjufalli verði rýmkuð þannig
að rekstraraðili þurfi einungis að
sýna fram á 40% tekjufall til að geta
átt rétt á úrræðinu. Ef tekjufallið er á
bilinu 40-70% getur tekjufallsstyrkur
í hæsta lagi numið 400 þúsund kr. á
hvert mánaðarlegt stöðugildi á tíma-
bilinu og í hæsta lagi tveimur millj-
ónum kr. á mánuði, sem nemur fimm
stöðugildum. Ef tekjufallið er meira
yrði hámark styrksins 500 þúsund á
hvert mánaðarlegt stöðugildi.
„Samkvæmt þessu getur rekstrar-
aðili með 40-70% tekjufall í hæsta
lagi átt rétt á 14 millj. kr. tekjufalls-
styrk og rekstraraðili með 70%
tekjufall eða meira í hæsta lagi átt
rétt á 17,5 millj. kr. tekjufallsstyrk,“
segir í nefndarálitinu.
Nefndin vill að fleiri skilyrði verði
rýmkuð, m.a. að ekki þurfi að miða
við sömu mánuði á síðasta ári þegar
tekjufallið er reiknað, heldur geti
umsækjendur valið það viðmiðunar-
tímabil sem gefur besta mynd af
raunverulegu tekjufalli þeirra. Þetta
eigi t.d. við ef einyrki var í fæðing-
arorlofi eða veikindaleyfi stóran
hluta síðasta árs sem gæfi ekki rétta
mynd af því tekjufalli sem hann hefur
orðið fyrir eftir að veirufaraldurinn
gekk yfir.
Öll nefndin stendur að álitinu
Óli Björn segir að tekjufallsstyrk-
irnir geti mætt fjárhagstjóni margra
og skipt verulegu máli. ,,Þarna erum
við vonandi að ná utan um og létta
undir með til dæmis veitingastöðum
sem hafa orðið fyrir verulegu tekju-
falli,“ segir hann. Einnig muni þetta
úrræði skipta fyrirtæki í ferðaþjón-
ustunni miklu máli, ekki síst smærri
fyrirtæki.
Athygli vekur að allir nefndar-
menn í efnahags- og viðskiptanefnd
standa að breytingartillögunum og
skrifa undir nefndarálitið. Smári
McCarthy skrifar undir álitið með
fyrirvara. Óli Björn segir að mikil og
breið samstaða hafi verið í nefndinni í
öllum málum sem komið hafa til
kasta hennar vegna afleiðinga
kórónuveirufaraldursins.
Hlutabótaleiðin verði fram-
lengd fram á mitt næsta ár
Þrátt fyrir að löggjöf um hlutabæt-
ur heyri ekki undir efnahags- og við-
skiptanefnd fjallar nefndin engu að
síður um framhald hlutabótaleiðar-
innar í nefndarálitinu. Leggur hún til
að hlutabótaleiðin verði framlengd
fram á næsta ár og að reglum um lág-
marksstarfshlutfall til að geta átt rétt
á hlutabótum verði breytt. Úrræðið
verði fært til fyrra horfs eins og það
var sl. vor þegar lögin voru upphaf-
lega sett, þ.e.a.s. að starfshlutfall
launamanns geti að lágmarki verið
25%. Óli Björn segir hlutabótaleiðina
að óbreyttu renna út um næstu ára-
mót og nefndin telji nauðsynlegt að
tekin verði ákvörðun um það núna að
framlengja hana a.m.k. fram á mitt
næsta ár. Mikilvægt sé að auka fyr-
irsjáanleika um þessa leið í rekstri
fyrirtækja.
Tekjufallsstyrkir útvíkkaðir
og gætu kostað 23 milljarða
Efnahags- og viðskiptanefnd leggur til umfangsmiklar breytingar á frumvarpi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þingfundur Vel var gætt að sóttvörnum á fundi Alþingis í dag og þingmenn báru grímur nema í ræðustóli.Óli Björn
Kárason
Mörkin 6 - 108 Rvk.
s:781-5100
Opið: Mán-fös: 11-18
Lau: 11-15
www.spennandi-fashion.is
LURDES
BERGADA
NÝTT!
- Frí heimsending -
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Lögreglan á Vestfjörðum lýkur á
næstu dögum yfirheyrslum yfir
skipverjum á Júlíusi Geirmundssyni
ÍS, en sem kunnugt er kom kórónu-
veirusmit upp í togaranum á dög-
unum og ekki var skeytt um að koma
þá í land heldur veiðum haldið áfram
í trássi við reglur. Margir þeir sem
voru um borð veiktust, en hafa nú
náð bata eða eru lausir úr sóttkví.
Lögregla hefur tekið sjómennina tali
þegar þeir hafa náð bata og hefur nú
rætt við 23 menn. Enn er þó eftir að
ræða við skipstjórann sem væntan-
lega verður laus úr einangrun á
næstu dögum.
„Myndin er að skýrast,“ segir
Karl Ingi Vilbergsson lögreglu-
stjóri. Þegar yfirheyrslum lýkur
verði tekin ákvörðun um hvort málið
gangi áfram til ákæru. sbs@mbl.is
Yfirheyrslum
er að ljúka
Ísafjörður Togarinn Júlíus Geir-
mundsson bundinn við bryggju.
Eldur logaði í leiktækjum á skólalóð
Vatnsendaskóla í Kópavogi á átt-
unda tímanum í gær. Rúnar Hauks-
son, varðstjóri hjá slökkviliðinu á
höfuðborgarsvæðinu, sagði í samtali
við mbl.is í gær að um tíma hefði
staðan ekki litið vel út og því voru
nokkrir bílar sendir á vettvang.
„Það komst eldur í gúmmímottu
og við höfðum áhyggjur af því að
hann gæti dreift úr sér,“ segir Rún-
ar. Vel gekk þó að ná tökum á eld-
inum og var öðrum bílum fljótt snúið
við.
Aðspurður sagði Rúnar að grunur
væri um íkveikju. „Það er voða fátt
annað sem getur komið eldi af stað á
þessu svæði, án þess að ég geti full-
yrt það á þessari stundu.“
agunnar@mbl.is
Eldur kviknaði við
Vatnsendaskóla