Morgunblaðið - 05.11.2020, Blaðsíða 68
68 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 2020
Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is
Tímapantanir í síma 533 1320
Við tökumvel ámóti ykkur í Vegmúla2
Gelísprautun
Greiddu fyrir meðferð í dag og nýttu þér tilboðið hjá okkur.
Bókaðu og nýttu meðferðina þegar hentar þér best!
Gefur náttúrulega fyllingu
• Grynnkar línur og hrukkur
• Eykur kollagenframleiðslu
Snemma í maí 1985 birtist í DV bréf
frá konu á Hvammstanga sem vildi
þakka fyrir tónleika sem Bubbi hafði
haldið þar. Það vakti athygli hennar
að á tónleikunum talaði Bubbi um
eiturlyf við áhorfendur og varaði
mjög við notkun þeirra: „Ég var að
láta mér detta í
hug hvort það
væri ekki snjallt
að fá Bubba í
grunnskóla
landsins til að
segja frá reynslu
sinni í þessum
efnum. Krakk-
arnir líta upp til
Bubba og taka mark á því sem hann
hefur að segja. Þau vita líka að hann
talar út frá eigin reynslu og er ekki
að predika út í loftið eins og einhver
postuli.“
Tónleikarnir á Hvammstanga
voru hluti af tónleikaferð sem hann
fór um landið til að kynna Konu.
Eins og fram hefur komið entist
edrúmennska Bubba eftir meðferð-
ina 1985 ekki nema fram á haust, því
þegar hann hélt til Óslóar að spila á
friðarhátíðinni á Holmenkollen í
ágúst beið þar íslenskur vinur hans
sem komið hafði með hassköggul frá
Kaupmannahöfn að beiðni Bubba.
Eftir það fór hann ekki á svið
óskakkur í rúman áratug. Honum
fannst kannabisefnin líka í lagi, en
fór í meðferðina 1985 til að hætta á
kókaíni.
Bubbi hefur lýst því að hann hafi
aldrei verið sérstaklega gefinn fyrir
áfengi. Í viðtali við DV 2004 sagði
Inga Sólveig að Bubbi „hafi aldrei
getað drukkið eins og maður. Varð
alltaf illa fullur og leiðinlegur en not-
aði þess vegna hass.“ Orðið alkóhól-
ismi er þó líka notað yfir þá sem eru
háðir öðrum vímuefnum og þannig
notar Bubbi það í bókinni hennar
Silju Aðalsteinsdóttur og ræðir opin-
skátt um það hvernig vímu-
efnaneyslan spillti lífi hans. Hann
ræddi það aftur á móti ekki að á þeim
tíma var hann aftur byrjaður að
reykja kannabis daglega og ekki
heldur að hann hafði einnig tekið upp
kókaínneyslu að nýju eftir að hafa
komist í efnið í ljósmyndastúdíóinu í
Stokkhólmi 1986 eins og fyrr var
getið.
Afneitun er sterkur þáttur í sjúk-
dómnum og Bubbi var duglegur við
að sverja af sér neyslu sterkra vímu-
efna þótt hann hafi ekki farið leynt
með gras- og hassneyslu framan af. Í
Vikunni í september 1981 segist
hann þannig hafa „gaman af grasi“
og að hassið sé ekki hættulegt á með-
an ekki sé reykt oftar en einu sinni til
tvisvar í viku. Haustið 1982 er hann
farinn að nota kókaín reglulega en
Egó tók þó þátt í tónleikunum Rokk
gegn vímu í desember það ár, „hress-
ari en nokkru sinni“, eins og það var
orðað í Morgunblaðinu 17. desem-
ber.
Eftir því sem kókaínneysla Bubba
eykst varð það fljótt á flestra vitorði í
tónlistarheiminum hvað væri á seyði
og það spurðist út til fjölmiðlamanna
sem báru sögurnar upp við Bubba.
Hann verst þó fimlega eins og sjá
mátti í viðtali í Helgarpóstinum 3.
maí 1984. Fyrirsögnin á viðtalinu var
„Kókaínneyslan er kjaftæði“. […]
Eftir meðferðina í byrjun árs 1985
talar Bubbi aftur á móti opinskátt
um neysluna, segir til að mynda í
Þjóðviljanum 4. apríl að ein af ástæð-
um þess að hann fór að nota sterkari
efni en kannabis hafi verið frægðin:
„Það var alls staðar gónt á mig, á
götunni, í bíó, í matvöruverslunum,
ég var mældur út. Ég fór að dópa.“
[…]
Konan á Hvammstanga stakk upp
á því að Bubbi myndi tala við ung-
menni um eiturlyf og það gerði hann
á tónleikum sínum næstu árin og sér-
staklega ef hann var að spila fyrir
ungmenni, en hann var áfram í sinni
neyslu. Í myndatexta við viðtal við
Bubba í DV í febrúar 1990 segir að
Bubba hafi „tekist að brjótast út úr
vonleysi kókaínneyslunnar“, og í við-
talinu segist hann líka hafa hætt
neyslunni, sem hann vissulega gerði í
rúmt ár. Hann ræðir einnig um af-
neitunina: „Öll erum við þannig að
við ljúgum að sjálfum okkur. Vímu-
efnaneytendur gera meira af því en
flestir aðrir. Hlutunum er hagrætt.
Ég viðurkenndi oft fyrir mér að ég
væri háður kóki. Þess á milli laug ég
að mér að svo væri ekki.“
Í heimildarmyndinni Blindskeri
sagði hann að leiðin sem hann sá var
að halda áfram að ljúga, „ljúga að
sjálfum mér, ljúga að þjóðinni, fjöl-
skyldunni minni, ég laug að öllum“. Í
viðtali við Fréttablaðið í nóvember
2013 nefnir Bubbi hversu erfitt hon-
um hefði reynst að sætta sig við þá
hugmynd að hann hefði ekki stjórn á
neyslunni: „En því meira sem ég
rembdist við að telja sjálfum mér trú
um að ég væri við stjórnvölinn, þeim
mun verr leið mér. Ég var oft þurr í
marga mánuði en svo datt ég í það.
Féll. Þetta var mikið strögl og ég
þjáðist svolítið af „Hemma Gunn-
einkenninu“.“
Þann 11. september 1996 urðu
straumhvörf í lífi Bubba, eins og
hann lýsir því í viðtölum, en þá vakn-
aði hann upp um nóttina og ákvað að
tími væri til kominn að hætta endan-
lega. Þá var hann í miðjum klíðum að
taka upp plötuna Allar áttir og segir
að erfitt hafi verið að halda fyrstu
tónleikana eftir að hún kom út, því
það hafi verið fyrstu edrú tón-
leikarnir.
„Fram að því það hafði bara ekki
verið fræðilegur möguleiki að geta
orðið edrú. Til þess þarf maður að ná
ákveðnum botni, sínum botni, og
finna löngun til að laga líf sitt, en af
hverju átti ég að vilja laga eitthvað?
Ég var bara stóri B og það gekk allt í
haginn, ég gat bara verið eins og ég
var og vissi að ég myndi aldrei
deyja.“
Um miðjan mars 2001 samdi
Bubbi svo við Olíufélagið hf. Esso um
samstarfsverkefnið: Veldu rétt! –
Esso og Bubbi gegn fíkniefnum. Í
verkefninu fólst að Bubbi héldi
þrenna tónleika í tengslum við átak-
ið, en einnig heimsótti hann grunn-
skóla, félagsmiðstöðvar og fleiri sam-
komustaði og ræddi við börn og
unglinga um vímuefni.
Nokkrum árum eftir að Bubbi
hætti á hnefanum, eins og hann lýsti
því, segist hann hafa farið í upprifjun
á AA-fræðunum hjá SÁÁ og í viðtali
við DV í október 2003 segist hann þá
hafa áttað sig á að hann væri „tilbú-
inn að fórna öllu, ferlinum og hverju
sem var til þess að geta verið fjöl-
skyldumaður og til þess að „fúnkera“
eins og hver annar meðaljón“.
Landsliðs-
maður í lygi
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Fræðsla Bubbi heimsótti nemendur Fellaskóla árið 2001 til að ræða um áfengis- og vímuefnaneyslu.
Bókarkafli | Í bókinni Bubbi Morthens – ferillinn í
fjörutíu ár rekur Árni Matthíasson tónlistarsögu
Bubba Morthens allt frá því plöturnar Ísbjarnar-
blús og Geislavirkir breyttu íslenskri rokksögu
fyrir fjörutíu árum. Þegar þær komu út varð Bubbi
Morthens á allra vörum og hefur verið þar síðan.
Glaðbeittur Mynd af Bubba
sem birtist með viðtali hér í
Morgunblaðinu með fyrir-
sögninni „Ég er fæddur fíkill“.