Morgunblaðið - 05.11.2020, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 2020
ENGIN SKILYRÐI. ÞÚ ÞARFT HVORKI LYKIL NÉ KORT.
ÖNNUR VILDARKJÖR GILDA EKKI MEÐ LÆGSTA VERÐI ÓB.
ob.is
LÆGSTA
VERÐÓB
ARNARSMÁRI
BÆJARLIND
FJARÐARKAUP
HLÍÐARBRAUT AKUREYRI
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Ekki er útlit fyrir að valkvæðar að-
gerðir verði leyfðar á Landspítalan-
um eða utan hans á næstu dögum.
Samkvæmt upplýsingum frá Þórólfi
Guðnasyni sóttvarnalækni er ekki
miðað við ákveðinn fjölda Covid-
sjúklinga svo hægt sé að ráðast í þær
aðgerðir á ný. „Við horfum fyrst og
fremst núna til 17. nóvember,“ segir
Þórólfur en fyrirmæli landlæknis um
frestun slíkra aðgerða frá 26. októ-
ber síðastliðnum ná til þess dags.
Anna Sigrún Baldursdóttir, aðstoð-
armaður forstjóra Landspítalans,
segir að áður en yfirvöld hafi ákveðið
að fresta valkvæðum aðgerðum hafi
þegar verið dregið úr starfseminni.
Þá hafi verið framkvæmdar um 50%
þeirra aðgerða sem gerðar séu í
venjulegu árferði.
„Við áætlum að nú séu gerðar um
það bil 35 aðgerðir hvern virkan dag
en venjulega eru þær um 100,“ segir
hún.
Anna Sigrún segir enn fremur að
aðeins séu framkvæmdar bráðaað-
gerðir núna. „Þær eru vegna bráða-
ástands sjúklinga eða ef talið er að
ástand þeirra muni versna til muna
ef ekki er gerð aðgerð. Þessar að-
gerðir eru einkum krabbameinsað-
gerðir en líka hjartaaðgerðir og
fleira.“
Hún segir aðspurð að starfsfólk
spítalans vilji gjarnan geta sinnt öll-
um aðgerðum og sé óþreyjufullt að
komast aftur af stað. „Það verður
ekki degi of snemma en þó ekki fyrr
en það er öruggt fyrir alla.“
Morgunblaðið/Eggert
Skurðaðgerð Aðeins eru framkvæmdar bráðaaðgerðir á Landspítalanum þessa dagana vegna kórónuveirunnar.
Um 35 aðgerðir á dag
Minnst 12 dagar í að valkvæðar aðgerðir verði leyfðar á ný
Fátt er meira hressandi en að fá sér
göngutúr í góðra vina hópi, enda
hefur almenningur verið hvattur til
að hreyfa sig utandyra í miðju sam-
komubanni og hertum sóttvarna-
aðgerðum.
Þessar kátu konur, sem allar búa
í þjónustublokk aldraðra við Afla-
granda 40, hvíldu lúin bein fyrir ut-
an Melabúðina í vikunni eftir
göngutúr og smá innkaup. Og
grímurnar að sjálfsögðu á. Frá
vinstri á myndinni eru Eygló Karls-
dóttir, Edda Kristinsdóttir, Karen
Lísa Guðmundsdóttir og Sveinbjörg
Símonardóttir.
Þær fara alla daga í göngu um
Vesturbæinn, nema þegar er mikið
rok. Þær eru einnig mjög virkar í
félagsstarfi hjá Samfélagshúsinu á
Aflagranda 40.
Á göngunni er spjallað um dag-
inn og veginn og gott tækifæri
gefst til að fylgjast með mannlífinu
í leiðinni. bjb@mbl.is
Fylgjast
kátar með
mannlífi í
Vesturbæ
Ljósmynd/Sigurlaug Bragadóttir
Bæði Framsókn og Vinsti hreyfingin
– grænt framboð hafa haldið rafrænt
kjördæmisþing í Norðausturkjör-
kæmi nýlega, Framsókn á þriðju-
daginn en Vinstri græn á laugardag-
inn. Ljóst er að í báðum flokkum
stefnir í toppslag þegar kemur að
sætum á lista fyrir næstu alþingis-
kosningar.
Á kjördæmisþingi Framsóknar
kvaðst Þórunn Egilsdóttir, sitjandi
oddviti, sækjast eftir umboði til þess
að leiða lista en Ingibjörg Isaksen
bæjarfulltrúi á Akureyri tilkynnti á
sama fundi að hún byði sig fram í
fyrsta sæti á B-lista.
Líneik Anna Sævarsdóttir, þing-
maður Framsóknar, sækist áfram
eftir sæti ofarlega sem og Þórarinn
Ingi varaþingmaður. Þá tilkynnti
Helgi Héðinsson, oddviti í Skútu-
staðarhreppi, að hann byði fram
krafta sína í hóp þeirra efstu.
Á kjördæmisþingi Vinstri grænna
í Norðausturkjördæmi tilkynnti
Steingrímur J. Sigfússon, forseti Al-
þingis, þingmaður og oddviti í kjör-
dæminu til margra ára og stofnandi
flokksins, að hann myndi ekki bjóða
sig aftur fram. Við þá tilkynningu
opnaðist sæti sem líklegt er að
keppst verði um.
Fyrir er Bjarkey Olsen Gunnars-
dóttir þingmaður í kjördæminu og í
örðu sæti á eftir Steingrími. Hún til-
kynnti á kjördæmisþingi að hún
hygðist bjóða sig fram í oddvitasæt-
ið. Þá hefur Óli Halldórsson, for-
stöðumaður Þekkingarnets Þingey-
inga, tilkynnt á Facebook-síðu sinni
að hann sækist eftir fyrsta sæti
listans.
Kári Gautason framkvæmdastjóri
þingflokks VG hefur tilkynnt að
hann bjóði sig fram í eitt af efstu
sætunum.
Við val á lista framsóknarmanna
verður stuðst við póstkosningu. Ekki
er algengt að notast sé við þá aðferð í
dag en vegna óvissuástands í þjóð-
félaginu þykir ekki öruggt að stefna
fólki saman á tvöfalt kjördæmisþing
eða prófkjör. Lög flokksins leyfa
ekki rafræna kosningu við val á lista.
Vinstri græn samþykktu á kjör-
dæmisþingi sínu að halda lokað for-
val, en það er aldrei annað en leið-
beinandi vegna t.d. kynjasjónar-
miða. Ekki er útséð um hvort fleiri
framboð berist á næstu dögum.
karitas@mbl.is
Nokkur framboð komin fram í NA
Vinstri grænir og Framsóknarflokkurinn hafa haldið kjördæmisþing í Norðausturkjördæmi
Þórunn
Egilsdóttir
Ingibjörg
Isaksen
Bjarkey
Gunnarsdóttir
Óli
Halldórsson