Morgunblaðið - 05.11.2020, Blaðsíða 42
42 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 2020
✝ Magnús HansMagnússon
fæddist á Hólmavík
2. febrúar 1952.
Hann varð bráð-
kvaddur á heimili
sínu í Kópavogi 19.
október 2020.
Foreldrar hans
voru Sigrún Hulda
Magnúsdóttir, f. 25.
nóvember 1930, og
Magnús Ingimund-
arson, f. 27. desember 1922, d.
8. febrúar 1977.
Systkini Magnúsar eru María
S., f. 6. apríl 1947, og Gunn-
laugur R., f. 28. desember 1958.
Magnús giftist hinn 1. nóv-
ember 1975 Þorbjörgu Magn-
úsdóttur, f. 5. október 1951.
Foreldrar hennar voru Magnús
Þ. Jóhannsson, f. 4. september
1926, d. 17. ágúst 2016, og Katr-
ín Sigurðardóttir, f. 7. október
1930, d. 18. september 1987.
Börn Magnúsar eru: 1) Sig-
rún Harpa, f. 15. september
1971, maki Jónas Þórðarson, f.
16. ágúst 1967. Börn: Þorbjörg
Arna, f. 6. apríl 2000, Marvin, f.
12. febrúar 2003, dóttir Jónasar
af fyrra sambandi: Írena El-
ínbjört, f. 24. september 1985.
ill athafnamaður og tók virkan
þátt í uppbyggingu ferðamála á
Vestfjörðum. Hann rak hellu-
steypu, bílaleigu, verslun með
rafmagns- og ljósabúnað, var
vitavörður, umsjónarmaður
flugvallarins um árabil, um-
boðsmaður Stöðvar 2 og frétta-
ritari Morgunblaðsins á Hólma-
vík.
Hann fékk einkaflugmanns-
próf 1989. Hann var einn af
stofnendum Galdrasafnsins á
Hólmavík og sat í stjórn Orku-
bús Vestfjarða. Hann sinnti fé-
lags- og sveitarstjórnarmálum
um árabil, sat í hreppsnefnd og
var oddviti Hólmavíkurhrepps,
síðar Strandabyggðar.
Magnús og Þorbjörg keyptu
og gerðu upp elsta hús Hólma-
víkur og ráku þar myndarlegan
veitingastað, Café Riis, frá
1996. Að auki keyptu þau gamla
félagsheimilið, Braggann, og
gerðu upp í upphaflegri mynd.
Magnús og Þorbjörg seldu
reksturinn á Hólmavík árið
2005 og fluttu í Kópavog.
Útför Magnúsar verður gerð
frá Lindakirkju í Kópavogi í
dag, 5. nóvember 2020, klukkan
13. Í ljósi aðstæðna verða aðeins
fjölskylda og nánustu vinir við-
stödd en streymt er frá athöfn-
inni á slóðinni:
https://www.facebook.com/
groups/magnus.h.magnusson/
Virkan hlekk á streymið er
einnig að finna á:
https://www.mbl.is/andlat
2) Marín, f. 28. jan-
úar 1976, maki
Andri Þór Guð-
mundsson, f. 24.
september 1966.
Börn: Saga Mar-
grét, f. 12. maí
2007, Tinna Marín,
f. 27. nóvember
2012. Börn Andra
af fyrra sambandi:
Úlfur Þór, f. 23. júlí
1994, Giovanna
Steinvör, f. 14. mars 1996, Íris,
f. 8. júlí 1996. 3) Eyjólfur, f. 23.
apríl 1976, maki Auður Agla
Óladóttir, f. 17. júlí 1982. Börn:
Úlfar Jökull, f. 9. maí 2008, Óli
Kalman, f. 22. september 2009,
Áskatla, f. 17. september 2012.
4) Sigurbjörg, f. 23. apríl 1976,
maki Mohammed Omar, f. 20.
september 1993. Barn: Eyjólfur
Jóhannsson, f. 19. maí 2006.
Magnús fæddist og ólst upp á
Hólmavík. Hann vann þar ýmis
störf frá 13 ára aldri og var
meðal annars á sjó þar til hann
fór í Iðnskólann í Reykjavík.
Hann flutti ásamt Þorbjörgu til
Hafnar í Hornafirði árið 1972
þar sem hann lærði rafvirkjun.
Magnús starfaði sem raf-
virkjameistari alla tíð, var mik-
Elsku besti yndislegi pabbi
okkar.
Okkur þykir svo óraunveru-
legt að skrifa minningarorð um
þig elsku pabbi okkar. Við kveðj-
um þig með svo miklum söknuði
en líka svo miklu þakklæti og fyr-
ir að hafa fengið að njóta þeirra
forréttinda að eiga þig að í lífi
okkar. Við erum þakklátar fyrir
öll árin sem við áttum saman,
dásamlegu æskuna á Hólmavík
og síðar góð og náin tengsl í fjöl-
skyldum okkar. Því er söknuður-
inn nánast óyfirstíganlegur, við
héldum að þú yrðir með okkur
miklu lengur og að þið mamma
yrðuð gömul saman. Höggið er
svo mikið fyrir okkur öll en sér-
staklega fyrir elsku mömmu sem
hefur misst sinn best vin og fé-
laga. Þið voruð svo samrýnd og
falleg hjón elsku pabbi okkar,
dásamlegir foreldrar, amma og
afi, tengdaforeldrar og sannir
vinir vina ykkar.
Takk fyrir allt elsku pabbi,
hlýju hendurnar þínar, góðu fyr-
irmyndina, gleðina, húmorinn,
orðaleikina, skemmtisögurnar,
samverustundirnar, fallegu rödd-
ina þína, hugulsemina, hjálpsem-
ina, stuðninginn í öllu sem við
tókum okkur fyrir hendur því þú
hafðir alltaf svo mikla trú á okkur
stelpunum þínum og hvattir okk-
ur til þess að skoða heiminn og
upplifa nýja hluti sem er okkur
og barnabörnunum þínum svo
mikill styrkur. Skemmtilegu tím-
ana í fjölmörgum ferðalögunum
okkar út um allan heim og á Ís-
landi í sumar í yndislegu ferða-
lagi fjölskyldunnar allrar, en síð-
ast en ekki síst fyrir að vera alltaf
til staðar fyrir okkur og börnin
okkar. Þú hafðir svo góða nær-
veru elsku pabbi okkar, varst at-
hugull og klár, svo fallegur, hlýr
og sterkbyggður. Við hugsum um
bláu augun þín og fallega silf-
urgráa hárið þitt, sterka mann-
inn í lífi okkar sem var svo mikill
frumkvöðull og framsýnn og
kenndi okkur svo margt. Við
elskum þig og söknum þín óend-
anlega elsku pabbi okkar og lof-
um þér að við munum umvefja
mömmu ást og umhyggju eins og
þú gerðir alltaf svo vel.
þínar elskandi dætur,
Sigrún og Marín.
Elsku pabbi. Það er sárt að
hugsa til þess að samverustundir
okkar verði ekki fleiri. Örlögin
höguðu því þannig að ég um-
gekkst þig lítið sem barn en mun
meira eftir að ég varð fullorðinn.
Stundum leið samt alltof langur
tími milli þess sem við hittumst
en alltaf fann ég innilega hlýju
frá þér og þú varst ætíð boðinn
og búinn að hjálpa ef með þurfti.
Mér er til dæmis minnisstætt
þegar rafmagnið fór af íbúðinni
okkar í fyrra og þú varst mættur
á innan við hálftíma til að kippa
því í liðinn. Rafmagnið var komið
á örstuttu síðar. Stundir sem við
áttum saman á liðnum árum, eins
og árleg jólaboð heima hjá ykkur
Bobbu, eru mér kærar en ein-
hvern veginn tók ég því sem
gefnu að þú værir ekkert á för-
um. Að ég og fjölskylda mín ætt-
um eftir að eiga mun fleiri slíkar
stundir með þér á næstu árum og
að seinna, þegar grynnkaði á
daglegu amstri, myndum við hitt-
ast oftar. En stundum er ekkert
seinna. Ef það er eitthvað sem
þitt snögga fráfall kennir manni
þá er það að lífið er í dag, við get-
um ekki tekið morgundeginum
sem gefnum. Sorginni yfir illa
nýttum tíma fylgir samt þakklæti
fyrir þær stundir sem við áttum
saman.
Eyjólfur.
Það voru forréttindi að eiga
Madda sem tengdapabba. Hann
var einstakur maður á margan
hátt. Gamansamur, lífsglaður,
ævintýragjarn, framtakssamur
og umfram allt ástríkur og ein-
lægur maður sem var gaman að
umgangast. Hann var fyrirmynd
okkar á svo margan hátt. Fyrir
samfélagið var hann fyrirmynd
með framsýni sinni og framtaks-
semi. Hann trúði á mátt einka-
framtaksins og lét svo sannar-
lega verkin tala. Það eru svona
menn sem knýja áfram hagkerf-
ið. Eitt af stóru verkefnunum var
að gera upp elsta hús Hólmavík-
ur og reka þar úrvalsveitingahús
til margra ára. Löngu áður en
ferðamannaiðnaður tók að
blómstra á Íslandi lagði Magnús
út áætlanir um hvernig hægt
væri að laða að ferðamenn til
Hólmavíkur og Vestfjarða. Hann
átti mikilvægan þátt í stofnun
Galdrasafnsins á Hólmavík og
sem sveitarstjórnarmaður til
margra ára kom hann að mörg-
um framfaramálum fyrir sveitar-
félagið. Hann hafði mikinn metn-
að fyrir því að leggja hitaveitu til
Hólmavíkur og lagði í árangurs-
ríkar boranir með æskuvini sín-
um í Hveravík.
Hann var fjölskyldumaður í
bestu merkingu þess orðs. Hann
sinnti eiginkonu, börnum og
barnabörnum af alúð og kost-
gæfni, var lipur og nærgætinn í
samskiptum. Dætur hans voru
óendanlega stoltar af föður sín-
um og hvers meira gæti faðir
óskað sér?
Hann hafði óbilandi trú á
dætrunum og hvatti þær áfram.
Hann hvatti þær til náms í Ástr-
alíu, stofnunar fyrirtækis, að
leita uppi ævintýri og lifa þau.
Hann hafði sennilega meiri áhrif
á dæturnar en hann óraði fyrir.
Skopskynið, færni í samskiptum
og framtakssemin eru aðeins ör-
fá dæmi um þá góðu eiginleika
sem þær tileinkuðu sér.
Maddi hlúði vel að fjölskyld-
unni. Ást hans á eiginkonu sinni
leyndi sér ekki og það var ein-
stakt að sjá hve samrýnd þau
hjón voru. Þau voru bestu vinir.
Tengdafaðir minn var til fyrir-
myndar hvað varðar barnabörn-
in. Hann sýndi þeim og því sem
þau fengust við einlægan áhuga
og hvatti þau til dáða. Hann var
besti afi í heimi og gullin hans
sakna hans sárt. Fyrir þetta og
svo margt fleira verður Maddi
mér alltaf fyrirmynd.
Við þökkum fyrir góðu stund-
irnar sem við áttum saman í fjöl-
skylduferðalögum. Um framandi
lönd og nú í sumar um Ísland
með húsbíl og hjólhýsi í eftir-
dragi.
Það voru svo mörg verkefni og
ævintýri fram undan sem Maddi
hefði elskað að taka þátt í. Við
munum sakna þess að heyra sög-
urnar hans, orðaleikina og
spaugilegu hliðarnar sem hann
sá í flestum málum.
Takk fyrir að vera okkur til
fyrirmyndar – söknuðurinn er
sár en minningin lifir.
Andri Þór Guðmundsson.
Elsku besti afi okkar. Við trú-
um því ekki að við sjáum þig aldr-
ei aftur og við eigum eftir að
sakna þín svo óendanlega mikið
því þið amma hafið alltaf verið
svo stór hluti af okkar lífi.
Við erum þakklát fyrir að hafa
átt svona góðan afa eins og þig,
þú varst alltaf svo góður og um-
hyggjusamur og þú hvattir okkur
til þess að láta drauma okkar
rætast og hafa gaman, „því ann-
ars er svo leiðinlegt“, eins og þú
sagðir svo oft í gríni. Þú varst
alltaf með svo skemmtilega orða-
leiki og við munum alltaf hugsa
um þig þegar okkur tekst að
leika okkur með orðin.
Elsku afi, það verður tómlegt
án þín um jólin, í afmælisboðum,
ferðalögum, pítsukvöldum og öll-
um öðrum fjölskyldustundum.
Við eigum eftir að sakna knús-
anna þinna elsku afi okkar, þú
varst svo hlýr og góður. Okkur
leið alltaf vel með þér og við er-
um heppin að hafa átt afa eins og
þig. Takk fyrir umhyggjuna og
allt sem þú kenndir okkur elsku
afi, við elskum þig óendanlega
mikið og þú munt alltaf eiga stað
í hjarta okkar.
Þín
Þorbjörg Arna og Marvin.
Maddi hefur fylgt fjölskyld-
unni í gegnum lífið. Fannst sjálf-
sagt að hafa hann þar. Þau
mamma systrabörn. Besti vinur
pabba. Alltaf til staðar. Heppin.
Maddi var með í stóru áföng-
um lífsins. Alltaf í barnaafmæl-
unum eftir að börnin mín þrjú
fæddust. Jarðtengdi húsið sem
við Björn keyptum utan um fjöl-
skylduna fyrir áratug. Ekkert
betra en að fá jarðtengdan mann
til að ganga úr skugga um að ekki
stafaði hætta af rafmagninu.
Barnæskan varð betri fyrir
Bobbu og Madda. Hlátur. Góður
matur. Gleði. Helgarnar voru vel
nýttar í samveru fjölskyldna og
vina. Svo mikið hlegið. Svo var
sungið. Höfðagötublúsinn alltaf
raddaður. Sunginn af öllu hjarta.
Við börnin alltaf með. Með í sköt-
unni á Þorláksmessu. Með í
söngnum á gamlárskvöld. Með
þegar Ringo steig á svið í Atlavík
1984. Með í veiðiferðum. Bestu
minningar æskuáranna.
Maddi var athafnamaður. Allt-
af með mörg járn í eldinum.
Aldrei ráðalaus. Þau Bobba létu
draumana rætast. Svo samrýnd
og samtaka. Opnuðu Café Riis
sumarið 1996. Gerðu upp elsta
hús Hólmavíkur af alúð. Líka
Braggann. Vann þar fyrsta sum-
arið og svo aftur nokkrum árum
síðar. Eignaðist fleiri minningar
með þeim og nýja vini í heima-
bænum sem ég hefði annars yf-
irgefið alfarið sextán ára.
Svo komu þau öll til borgar-
innar. Nýir tímar. Það var gott
að leita til Madda. Hann var
Magnús H.
Magnússon
Staðfastur,
trúr, tryggur,
vandvirkur, hæg-
látur, réttsýnn, ósérhlífinn,
jafnlyndur, þrjóskur, þakklát-
ur, minnugur, sáttur við sitt.
Afi var alltaf eins, hann
skipti ekki skapi, með báða
fætur blýfasta við jörð. Ef
amma var að svífa upp þá tog-
aði afi hana mjúklega niður.
Þau voru ólík en mynduðu full-
komna heild sem alltaf tók
manni opnum örmum. Það
voru forréttindi eiga að ein-
mitt þessa ömmu og þennan
afa.
Sem lítil stelpa fékk ég að
skottast með afa í öllu sem
hann tók sér fyrir hendur,
bæði í leik og starfi. Ég á
sterka minningu um það þegar
það koma tölva og prentari í
vigtaraskúrinn. Afi lærði á það
um leið og ég man að mér
fannst hann magnaður, gat
prentað út og skráð inn án
vandræða.
Á ferðalögum um landið með
ömmu og afa lærðist manni
mjög ungum að hlusta frekar á
afa varðandi áttir, amma talaði
í áttum en yfirleitt ekki í sömu
áttum og afi. Afi var ótrúlega
góður í landafræði, hver þúfa
og hvert fjall átti nafn langt út
fyrir hans heimasveit. Afi var
trúr sínum heimahögum og tók
virkan þátt í samfélaginu og
lét gott af sér leiða.
Ferðalögin innanlands með
ömmu og afa einkenndust af
miklu nesti, ölflösku, tjald-
kerru, Subaru og sléttri laut.
Sjaldnast var gist á tjaldstæð-
um. En í sumar rifjaði afi upp
verðið á tjaldstæðum fyrir um
það bil 20 árum, það mundi
hann. Eins og allt annað, stál-
minnugur fram á síðasta dag.
Hann hafði það fyrir venju að
punkta hjá sér í litla vasabók,
þar skráði hann það helsta
sem á dagana dreif.
Stefán
Þórhallsson
✝ Stefán Þór-hallsson fædd-
ist 17. apríl 1931.
Hann lést 8. októ-
ber 2020.
Útför Stefáns
fór fram í kyrrþey
hinn 16. október
2020.
Afi var alltaf að
dúlla eitthvað í
skúrnum, hann gat
smíðað allt. Ég
laumaði stundum
að honum hug-
myndum um eitt
og annað sem mig
vantaði og svo út-
færðum við hug-
myndirnar saman.
Það voru miklar
gæðastundir. Hann
töfraði fram hvert verkið á
fætur öðru, náttborðin, rúm-
gaflinn, kollana, hliðarborðið
og margt fleira. Einn hlutur á
stóran þátt í lífi allra barnanna
í fjölskyldunni og það er
rugguhesturinn sem afi smíð-
aði handa mér þegar ég fædd-
ist.
Afi hafði góða og þægilega
nærveru, glotti út í annað og
blístraði um leið og hann dúll-
aði við verkin. Hann gat allt,
gerði við hvað sem var og
fannst bruðl og óþarfi að
kaupa nýtt. Afi hafði þolin-
mæði og sýndi börnum virð-
ingu og fengu allir að bjástra
með honum, aldrei var neinn
fyrir. Hann náði fólki og börn-
um með sér án þess að ætlast
til neins. Í nokkur ár borðaði
ég súrsaða selshreifa honum
til samlætis. Siginn fiskur,
reyktur og steiktur rauðmagi,
hákarl, harðfiskur, kæst skata
eða tindabikkja og fleira sjáv-
arfang verður ekki eins gott án
afa og jafnvel ekki á boðstól-
um.
Leggja net, dorga á bryggj-
unni, fara í Sandvíkina, spila,
teikna og lita gerði hann með
okkur krökkunum með bros á
vör, alltaf. Oft að eigin frum-
kvæði. Afi þekkti miðin vel og
vissi alltaf hvar og hvenær
væri von.
Húsið þeirra ömmu byggði
hann frá grunni og allt innbúið
var eftir afa, hagleikssmiður,
vandvirkur og útsjónarsamur.
Hann var fastur liður í til-
verunni og án hans verður allt
skrítið. Ömmu- og afahús verð-
ur öðruvísi, allt er breytt.
Afi kvaddi sáttur við sitt.
Hvíldu í friði, elsku besta
afakrútt.
Þín
Arna.
Minningarkort á
hjartaheill.is
eða í síma 552 5744
Ástkær systir okkar,
GUÐNÝ JÓNA HANSDÓTTIR WÍUM
frá Reykjum í Mjóafirði,
lést á hjúkrunarheimilinu í Neskaupstað
29. október.
Hún verður jarðsungin frá Norðfjarðarkirkju
föstudaginn 6. nóvember klukkan 14.
Vegna aðstæðna verða aðeins nánustu aðstandendur
viðstaddir. Athöfninni verður streymt á facebooksíðu
Norðfjarðarkirkju.
Þórarna Hansdóttir Ólafur Hansson Wíum
Nanna Hansdóttir Sigríður Hansdóttir Wíum
Steinþór Hálfdánarson
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi,
langafi og langalangafi,
HELGI MAGNÚSSON,
Æsufelli 2,
fyrrverandi bóndi Hamarsseli,
lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ
mánudaginn 26. október.
Útförin fer fram frá Fella- og Hólakirkju mánudaginn
9. nóvember klukkan 15. Í ljósi aðstæðna verða aðeins
fjölskylda og nánustu vinir viðstödd.
Þórarinn Ögmundur Helgas. Guðbjörg Jóna Jakobsdóttir
Guðmundur Helgason Inga Númadóttir
og fjölskyldur
Elsku mamma okkar, tengdamamma,
amma og langamma,
VIKTORÍA KARLSDÓTTIR,
Áshamri 3f,
Vestmannaeyjum,
lést á Landspítalanum 31. október.
Jónas Ragnar Gíslason Erika Ruiz
Stella Gísladóttir
Guðmundur Gíslason Guðný Jensdóttir
Viktoría Gísladóttir
Fanney Gísladóttir Oddur Magnús Oddsson
Bryndís Gísladóttir
barnabörn og barnabarnabörn