Morgunblaðið - 05.11.2020, Síða 60
Á HLÍÐARENDA
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Kvennalið Vals í knattspyrnu lék
sinn fyrsta keppnisleik í rúmlega
mánuð þegar liðið fékk HJK frá
Helsinki í heimsókn í 1. umferð
Meistaradeildarinnar á Origo-
völlinn á Hlíðarenda í gær.
Leiknum lauk með þægilegum
3:0-sigri Vals sem var kominn
þremur mörkum yfir eftir 35. mín-
útna leik.
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, Elín
Meta Jensen og Mist Edv-
ardsdóttir skoruðu mörk Vals-
kvenna í leiknum en yfirburðir ís-
lenska liðsins voru miklir.
Valskonur settu mikla pressu á
finnska liðið strax á fyrstu mínútu
leiksins og þrátt fyrir mikinn mót-
vind og mismikla hæfileika í öft-
ustu víglínu voru Finnarnir stað-
ráðnir í að spila boltanum frá
marki.
Valskonur unnu boltann trekk í
trekk, djúpt á vallarhelmingi
finnska liðsins, og þær voru í raun
smá klaufar að nýta sér ekki betur
yfirburði sína í fyrri hálfleik.
Það var ekki sama ákefð í Vals-
liðinu í síðari háfleik enda algjör
óþarfi þar sem leikurinn var svo
gott sem búinn.
Íslenska liðið spilaði síðast
keppnisleik hinn 3. október síðast-
liðinn þegar Breiðablik kom í heim-
sókn í toppslag úrvalsdeildar
kvenna, Pepsi Max-deildarinnar.
Óhefðbundinn undirbúningur
Sjö leikmenn Vals voru í íslenska
landsliðshópnum sem tapaði 2:0
fyrir Svíþjóð í Gautaborg hinn 27.
október síðastliðinn í undankeppni
EM. Fimm þeirra voru í byrjunar-
liðinu en þær þurftu allar að fara í
sóttkví vegna kórónuveirunnar við
komuna til Íslands 28. október.
Valsliðið náði því aðeins tveimur
æfingum saman, sem lið, fyrir leik-
inn gegn HJK og þjálfarateymi
Valsara á hrós skilið fyrir að undir-
búa liðið eins og best verður á kos-
ið í fáránlegum aðstæðum.
Þegar allt kemur til alls var
Valsliðið að mæta mun lakari and-
stæðingum sem fá ekki háa ein-
kunn hjá undirrituðum og því alveg
hægt að segja að um ákveðinn
skyldusigur hafi verið að ræða.
Valur verður í pottinum þegar
dregið verður í 2. umferð Meist-
aradeildarinnar á morgun í höf-
uðstöðvum UEFA í Nyon í Sviss.
Leikirnir í 2. umferðinni fara
fram 18. og 19. nóvember en líkt og
í 1. umferðinni verður aðeins einn
leikur.
Eftir aðra umferðina taka svo við
32-liða úrslitin en dregið verður í
þau hinn 24. nóvember. Í 32-liða
úrslitum keppninnar verður leikið
heima og heiman, sem sagt tvö ein-
vígi, 8. og 9. desember og 15. og
16. desember.
18. desember verður svo dregið í
16-liða úrslit keppninnar en þeir
leikir fara fram í mars, líkt og átta
liða úrslitin.
Undanúrslitin fara svo fram í
apríl og maí og úrslitaleikur Meist-
aradeildarinnar fer fram 16. maí
2021 á Ullevi-leikvanginum í Gauta-
borg.
Gaman að fá heimaleik
„Við erum fyrst og fremst
ánægðar með að vera komnar
áfram í næstu umferð,“ sagði Elísa
Viðarsdóttir, bakvörður Vals, í
samtali við Morgunblaðið eftir leik
gærdagsins.
„Það er alltaf jákvætt að halda
markinu hreinu og skora þrjú mörk
þannig að við erum sáttar með
þennnan sigur.
Mér er alveg saman hvaða and-
stæðing við fáum í næstu umferð
en það væri gaman að fá heimaleik.
Að lokum vil ég bara koma því á
framfæri að „We are Icelandic, we
are not Finnish!““ bætti Elísa við
en það má þýða sem við erum ís-
lenskar, við erum ekki búnar, eða
finnskar.
Evrópusigur á skrítnum tímum
Valskonur eru komnar áfram í 2. umferð Meistaradeildarinnar í knattspyrnu
Pressuðu gestina frá Finnlandi stíft og gengu frá leiknum á rúmlega hálftíma
Morgunblaðið/Eggert
Bakvörður Valsarinn Elísa Viðarsdóttir geysist upp hægri kantinn á Hlíðarenda í gær og býr sig undir að senda boltann fyrir markið á liðsfélaga sína.
VALUR – HJK 3:0
1:0 Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir 8.
2:0 Elín Metta Jensen 19.
3:0 Mist Edvardsdóttir (víti) 36.
Valur: (4-3-3) Mark: Sandra Sigurðar-
dóttir. Vörn: Elísa Viðarsdóttir, Lillý
Rut Hlynsdóttir, Arna Eiríksdóttir,
Hallbera Guðný Gísladóttir (Bergdís
Fanney Einarsdóttir 90). Miðja: Mál-
fríður Anna Eiríksdóttir, Gunnhildur
Yrsa Jónsdóttir , Mist Edvardsdóttir
(Karen Guðmundsdóttir 90). Sókn:
Hlín Eiríksdóttir (Diljá Ýr Zomers 90),
Elín Metta Jensen (Ásdís Karen Hall-
dórsdóttir 75), Dóra María Lárusdóttir
(Ída Marín Hermannsdóttir 83).
M
Sandra Sigurðardóttir
Elísa Viðarsdóttir
Arna Eiríksdóttir
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir
Mist Edvardsdóttir
Hlín Eiríksdóttir
Elín Metta Jensen
Dómari: Maika Vanderstichel, Frakk-
landi
Áhorfendur: Engir.
60 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 2020
Meistaradeild Evrópu kvenna
1. umferð:
Valur – HJK.............................................. 3:0
Valur er kominn áfram í 2. umferð
keppninnar.
PAOK – Benfica....................................... 1:3
Cloé Lacasse lék allan leikinn með Ben-
fica og skoraði.
Vålerenga – KÍ Klaksvík ........................ 7:0
Ingibjörg Sigurðardóttir var á vara-
mannabekk Vålerenga.
Meistaradeild Evrópu
F-RIÐILL:
Zenit – Lazio ............................................. 1:1
H-RIÐILL:
Basaksehir – Man Utd............................. 2:1
Önnur úrslit í keppninni er að finna á
mbl.is.
Kasakstan
Taraz – Astana......................................... 1:0
Rúnar Már Sigurjónsson lék allan leik-
inn með Astana.
Danmörk
Bikarkeppnin:
Avarta – FC Köbenhavn ......................... 1:2
Ragnar Sigurðsson var ekki í leikmanna-
hópi Köbenhavn.
Noregur
Odd – Viking ............................................ 3:0
Axel Óskar Andrésson lék allan leikinn
með Viking og Samúel Kári Friðjónsson
fyrstu 67 mínúturnar.
Staðan:
Bodø/Glimt 23 20 2 1 76:27 62
Molde 23 15 1 7 57:28 46
Rosenborg 23 13 6 4 43:22 45
Odd 23 13 3 7 44:33 42
Vålerenga 23 12 6 5 39:28 42
Kristiansund 23 9 9 5 44:33 36
Stabæk 23 7 9 7 31:34 30
Viking 23 8 6 9 39:43 30
Sarpsborg 23 8 4 11 27:30 28
Haugesund 23 8 4 11 27:37 28
Sandefjord 23 8 3 12 25:37 27
Brann 23 6 7 10 29:39 25
Strømsgodset 23 5 9 9 30:42 24
Start 23 4 7 12 25:42 19
Mjøndalen 23 5 2 16 18:41 17
Aalesund 23 2 4 17 26:64 10
B-deild:
Sogndal – Lilleström............................... 0:1
Tryggvi Hrafn Haraldsson lék fyrstu 61
mínútuna en Arnór Smárason og Björn
Bergmann Sigurðarson voru ekki í leik-
mannahópi Lilleström.
Tromsö – Kongsvinger ........................... 1:0
Adam Örn Arnarson var ekki í leik-
mannahópi Tromsö.
Tveir íslenskir leikmenn komust
áfram í 2. umferð Meistaradeildar
Evrópu í knattspyrnu í gær fyrir
utan Valskonurnar.
Cloé Lacasse, sem er íslenskur
ríkisborgari, lék allan leikinn með
portúgalska liðinu Benfica og skor-
aði annað mark liðsins í 3:1-útisigri
á gríska liðinu PAOK.
Landsliðskonan Ingibjörg Sig-
urðardóttir er einnig komin áfram
með norska liðinu Vålerenga. Ingi-
björg sat á varamannabekknum
þegar Vålerenga skellti KÍ Klaks-
vík frá Færeyjum 7:0.
Tvær til viðbótar
komust áfram
Ljósmynd/Sigfús Gunnar
Skoraði Cloé Lacasse hefur síðasta
árið leikið með Benfica í Portúgal.
Eyjamaðurinn Erlingur Rich-
ardsson byrjaði vel í undankeppni
EM karla í handknattleik í gær.
Stýrði hann Hollendingum til sig-
urs gegn Tyrkjum í Hollandi. Unnu
Hollendingar eins marks sigur,
27:26, og tylla sér þar með í topp-
sætið í 5. riðli. Í riðlinum leika einn-
ig Slóvenar og Pólverjar. Fyrir-
fram er búist við því að Slóvenar
séu með sterkasta liðið.
Undir stjórn Erlings komst Hol-
land í lokakeppni EM sem fram fór
í byrjun árs. Var það í fyrsta skipti
sem karlaliðið nær slíkum árangri.
Sigur hjá Erlingi
gegn Tyrklandi
Ljósmynd/Sigfús Gunnar
Holland Erlingur Richardsson fer
vel af stað í undankeppni EM.
Undankeppni EM karla
4. RIÐILL:
Ísland – Litháen ................................... 36:20
Portúgal – Ísrael................................... 31:22
Staðan: Ísland 2 stig, Portúgal 2, Ísrael 0,
Litháen 0.
2. RIÐILL:
Austurríki – Eistland ........................... 31:28
5. RIÐILL:
Holland – Tyrkland .............................. 27:26
Erlingur Richardsson er landsliðsþjálf-
ari Hollands.
7. RIÐILL:
N-Makedónía – Finnland .................... 33:24
8. RIÐILL:
Svartfjallaland – Kósóvó...................... 32:25
Mörgum leikjum í keppninni var frestað
vegna þeirra áhrifa sem kórónuveiran hef-
ur í álfunni. Voru þetta fyrstu leikirnir í
undankeppninni fyrir lokakeppnina 2022.
Danmörk
Aarhus United –Holsterbro ............... 18:26
Thea Imani Sturludóttir skoraði 3 mörk
fyrir Aarhus Utd og gaf 3 stoðsendingar.
Ásgerður Stef-
anía Baldurs-
dóttir var ekki í
leikmannahóp
Vals á Hlíð-
arenda í gær. Ás-
gerður tjáði
mbl.is að hún
bæri barn undir
belti. Ásgerður,
sem er 33 ára
gömul, er á meðal
reyndustu leikmanna efstu deildar
kvenna frá upphafi en hún á að baki
251 leik í efstu deild.
Þá eru tveir leikmenn Vals í barn-
eignarfríi en Fanndís Friðriksdóttir
á von á sínu fyrsta barni eins og
fram hefur komið. Valur á alla vega
einn leik eftir á keppnistímabilinu, í
2. umferð Meistaradeildarinnar.
Ásgerður Stefanía
Baldursdóttir
Ásgerður ekki
meira með