Morgunblaðið - 17.11.2020, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 2020
Svo virðist sem samgöngu-sáttmáli höfuðborgarsvæð-
isins eigi að hafa þann tilgang
fyrst og fremst að
þvinga sérvisku
meirihlutans í
Reykjavík upp á
höfuðborg-
arsvæðið í heild
sinni. Í ofanálag á
að láta landsmenn
alla greiða fyrir
sérviskuna með aðkomu ríkisins
að sáttmálanum.
Borgarlínan rándýra ogóhagkvæma er þungamiðja
sáttmálans að mati meirihluta
þeirra sem stjórna nú Reykjavík
og virðist raunar það eina sem
sá meirihluti hefur áhuga á í
samgöngumálum svæðisins.
Sundabrautin virðist í bestafalli eiga að vera neð-
anmálsgrein við sáttmálann sem
ekki verði lesin nema meirihluta
borgarstjórnar þóknist. Ekkert
bendir til að honum þóknist það.
Enn eitt dæmið er komið upp.Um helgina sagði Morg-
unblaðið frá gagnrýni Jóns
Gunnarssonar, alþingismanns
og fyrrverandi samgöngu-
ráðherra, á áform um ljósastýrð
gatnamót Arnarnesvegar og
Breiðholtsbrautar. Benti hann á
að mislæg gatnamót væru mun
betri leið og öruggari, og að
auki í samræmi við samgöngu-
sáttmálann.
Þau mislægu gatnamót virð-ast stranda á því, eins og
önnur mislæg gatnamót sem
brýn þörf er á að gera, að sér-
viska meirihlutans í borginni
leyfir ekki mislæg gatnamót.
Hvers vegna tekur ríkið þáttí þessu fyrir almannafé?
Jón Gunnarsson
Hvers vegna?
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Eldsneytisskortur er talin meginástæða þess að flug-
vél af gerðinni Piper PA-23 brotlenti nærri flugvell-
inum við Múlakot 9. júní í fyrrasumar. Þrír létust og
tveir slösuðust alvarlega þegar vélin brotlenti. Svo
virðist sem mistök hafi verið gerð í eldsneytisút-
reikningum.
Þetta kemur fram í skýrslu rannsóknarnefndar
samgönguslysa um slysið. Í skýrslunni er nefnt að
hugsanlegt reynsluleysi flugmannanna tveggja á
þessa tilteknu vél hafi haft áhrif.
Flugmennirnir voru tveir feðgar, sá yngri tvítugur
og hinn eldri 55 ára. Þeir fóru ásamt þremur fjöl-
skyldumeðlimum í einkaflug 9. júní 2019. Báðir flug-
mennirnir létust auk farþega sem var móðir annars
flugmannsins. Hinir tveir farþegarnir slösuðust al-
varlega. Á umræddum degi var ætlunin að fljúga frá
Múlakoti austur að Vík í Mýrdal. Auk þess var ætl-
unin að fljúga austur á Djúpavog og svo til baka í
Múlakot. Slysið varð þegar komið var til baka í Múla-
kot. Að sögn farþega var ekki tekið eldsneyti á þeim
stöðum sem stoppað var á, enda ekki auðsótt að nálg-
ast það eldsneyti sem passaði fyrir flugvélina á þeim
flugvöllum sem voru nærri. Eldri flugmaðurinn hafi
talið að eldsneytið nægði, samkvæmt skýrslunni.
Brotlenti vegna eldsneytisskorts
Mistök líklega gerð við
eldsneytisútreikninga
Slys Þrír létust í slysinu, tveir flugmenn og einn
farþegi, og tveir farþegar slösuðust alvarlega.
Vegna fjárhagslegrar end-
urskipulagningar Herjólfs ohf.
kemur til greina að engir starfs-
menn verði lengur í afgreiðslu fé-
lagsins við Landeyjahöfn og Þor-
lákshöfn. Ekkert hefur þó verið
ákveðið í þeim efnum.
Þetta segir Guðbjartur Ellert
Jónsson, framkvæmdastjóri Herj-
ólfs ohf.
Verktaki hefur séð um afgreiðsl-
una við Landeyjahöfn og Þorláks-
höfn og eru starfsmennirnir þar
því ekki á vegum Herjólfs ohf. Um
er að ræða fimm til sex starfs-
menn, að sögn Guðbjarts. „Út-
færslan eða niðurstaðan liggur
ekki fyrir hvort þetta verður
áfram með óbreyttu sniði eða
hvort það verða gerðar breyt-
ingar,“ segir hann en meðal ann-
ars velta menn fyrir sér hvort ger-
legt sé að hafa afgreiðsluna
mannlausa og fólk geti þjónustað
sig sjálft. „Áhrifin af Covid hafa
verið allveruleg á félagið. Við er-
um að reyna að aðlaga okkar
rekstur að því umhverfi og leita
allra leiða,“ segir Guðbjartur.
freyr@mbl.is
Íhuga að hætta með
starfsmenn í afgreiðslu
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Herjólfur Öllum starfsmönnum ferjunnar hefur verið sagt upp störfum.